Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Qupperneq 16
16 | Erlent 20. júní 2011 Mánudagur Google fjárfestir í sólarorku Tölvurisinn Google veitir nú 280 milljónum dollara eða 32, 6 millj- örðum króna í verkefni til að koma upp sólarorkuverum á bandarískum heimilum. Sólskjöldum verður kom- ið fyrir á þökum 10.000 heimila allt frá New York-ríki til Kaliforníu. Eitt sólarorkuver kostar 3 til 3,5 millj- ónir króna. Íbúar heimilanna munu borga uppsett verð fyrir orkuna. Fyrirtækið SolarCity sér um að koma sólarorkuverunum upp og hagnist fyrirtækið nógu mikið getur Google fengið féð sem lagt var í verkefnið til baka. Auk þess er skattaafsláttur veittur þar sem þetta er umhverfisvænn orkugjafi. Þetta er í sjöunda sinn sem Google fjárfestir í grænni orku og hefur Google eytt samtals 75 millj- örðum króna í verkefni af þessu tagi. Eiginkonu Helmuts Kohl var nauðgað Hannelore Kohl, eiginkonu fyrrver- andi kanslara Þýskalands Helmuts Kohl, var nauðgað af rússneskum hermönnum þegar hún var 12 ára gömul. Þetta kemur fram í ævisögu hennar sem vinur hennar hefur ritað. Hannelore Kohl framdi sjálfsvíg árið 2001 eftir að hún greindist með of- næmi fyrir ljósi og fékk mikla höfuð- verki ásamt því að missa hárið. Síð- ustu þrjú ár ævi sinnar gat hún ekki farið út úr húsi vegna ofnæmisins. Hannelore og móðir hennar voru í Þýskalandi eftir uppgjöf Þjóðverja í maí 1945, hermenn rauða hersins nauðguðu Hannelore og réðust á móður hennar. Þeir fleygðu henni svo eins og kartöflusekk út um glugga.  Atburðirnir fylgdu henni alla tíð og hún jafnaði sig aldrei, hvorki á meiðslum á baki né andlega. Sam- kvæmt ævisögunni átti hún erfitt þegar hún fann lykt af karlmanns- svita og hvítlauk og jafnvel þegar hún heyrði rússnesku talaða. Stríðinu í Afgan- istan að ljúka? Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hefur staðfest að viðræður séu nú í gangi við talíbana í Afganistan um hvernig hægt sé að komast að samkomulagi um að ljúka stríðinu í Afganistan. Bandarísk stjórnvöld eiga nú ásamt fulltrúum annarra ríkja í viðræðum við talíb- anana. Gates segir þó að þrátt fyrir viðræðurnar megi ekki búast við því að brottflutningur bandarískra her- manna frá Afganistan muni ganga hraðar fyrir sig, honum verði með öðrum orðum ekki flýtt. Þess má geta að um 10 ár eru síðan stríðið í Afganistan hófst. Gert er ráð fyrir því að síðustu hermenn bandaríska hersins yfirgefi Afganistan árið 2014. Líbískar konur og stúlkur sem þung- aðar verða í kjölfar nauðgana gætu átt á hættu að verða drepnar af eig- in fjölskyldumeðlimum. Feður drepa dætur sínar af ást en þeir trúa því að það bjargi stúlkunum. Í vesturhluta Líbíu, þar sem nauðganirnar eiga sér stað, þykir verra fyrir konur að sjást naktar en að deyja. Konur fara fæstar út úr húsi án þess að hylja andlit sín. Þá hafa líb- ískum góðgerðarsamtökum borist skýrslur þar sem fram kemur að kon- um og stúlkum hafi verið nauðgað fyrir framan feður og bræður. Tímaspursmál fyrir konurnar Konur sem eru þungaðar eftir að þeim hefur verið nauðgað geta á þessari stundu leynt óléttunni fyr- ir feðrum sínum en tíminn hleypur hins vegar frá þeim. Hjálparsamtök hafa meðal annars boðið upp á fóst- ureyðingar en fatwa-skipanir (sem íslamskir klerkar gefa út) hafa heim- ilað fóstureyðingar í aðstæðum sem þessum. Ímanar hafa verið fengnir til að segja við fórnarlömb að sökin sé ekki þeirra. Talið að mörg fórnarlömb gefi sig ekki fram af ótta við þá skömm sem fylgir en dæmi eru um að stúlkur hafi framið sjálfsmorð til að þurfa ekki að horfast í augu við skömmina. Mörg fórnarlömb nauðgana hafa flúið yfir til Túnis en jafnvel í Túnis hika fórn- arlömb við að leita á sjúkrahús af ótta við að aðrir líbískir flóttamenn verði þeirra varir. Dæmi er um fjölskyldu sem þarfnaðist lyfja gegn HIV-smiti sem hlaust vegna nauðgunar en móðirin þorði ekki að leita sér hjálp- ar á sjúkrahúsi í Túnis og faðirinn hélt aftur til Tripoli frekar en að leita sér hjálpar. Viagra notað við skipulagðar nauðganir Alþjóðastríðsglæpadómstóllinn í Haag telur Gaddhafi beita skipulögð- um nauðgunum í stríðinu en þó hafa ekki fundist sannanir fyrir því. Meðal annars er fullyrt að hermönnum sé gefið stinningarlyfið viagra til að geta framið nauðganirnar. Þótt ekki hafi fengist sannanir um skipulagðar nauðganir liggja fyrir sannanir um nauðganir af hálfu her- manna Gaddhafis og einnig af hálfu uppreisnarmanna þótt ekki sé vitað í hve miklum mæli. Hjálparsamtök í Líbíu berjast gegn nauðgunum og hafa fengið sjeik frá Sameinuðu arabísku fursta- dæmunum til að breiða út þau skila- boð að nauðganir í stríði séu stríðs- glæpir rétt eins og það að skjóta fanga. Óbreyttir borgarar halda áfram að falla í árásum Nató Að minnsta kosti fjórir óbreytt- ir borgarar, þar af tvö börn, féllu í eldflaugaárásum Nató aðfaranótt sunnudags, samkvæmt líbískum yfirvöldum sem sýndu erlendum fréttamönnum tvö lík. Íbúar í Tripoli sögðu einnig að heil fjölskylda hefði farist í árásinni. Nató segir að árásin hafi heppnast vel en Nató hefur áður viðurkennt mistök við slíkar árásir. Líbísk yfirvöld sögðu að árásin hefði verið í fátækrahverfi og engin hern- aðarleg skotmörk væru nálægt. Þá sagði fréttaritari BBC að rústir bygg- ingarinnar sem líbísk yfirvöld sýndu honum hafi litið út fyrir að vera íbúð- arhús og að það hafi orðið fyrir árás Nató en ekki stjórnvalda. Gaddhafi heldur því fram að óbreyttir borgarar séu skotmörk Nató-ríkja en Nató hefur harmað dauða þeirra sem fallið hafa í árás- unum. Bretar að gefast upp á loft- árásum? Bretar og fleiri Nató-ríki virðast hins vegar vera að gefast upp á loftárásum og vonast til að nánustu aðstoðar- menn Gaddhafis svíki lit. „Enginn sér fyrir sér hernaðarsigur,“ sagði breskur embættismaður en áður hafði Mark Stanhope, yfirmaður breska flotans, sagt að árásirnar gætu ekki hald- ið mikið lengur áfram en þeim um- mælum var ekki vel tekið í Downing- stræti. Spenna ríkir innan Nató um loftárásirnar en ekki eru öll banda- lagsríkin á einu máli um réttmæti árásanna. Þá hafa sumir bandarísk- ir lögfræðingar lýst yfir efasemdum um lögmæti þess að Bandaríkin haldi áfram aðgerðum í Líbíu. Nató hefur nú gert 4.400 loftárásir á skotmörk í Líbíu síðan 90 daga loft- umferðarbanni var lýst yfir í mars. Bannið átti að renna út 27. júní en hefur hins vegar verið framlengt um aðra 90 daga. Heilbrigðisráðuneyti Líbíu segir 856 borgara hafa fallið í loftárásum Nató síðan þær hófust í mars. Þess- ar tölur hafa ekki verið staðfestar en sannað hefur verið að stjórnvöld í Líbíu hafi ýkt tölur fallinna í ein- stökum árásum. Þá segir talsmaður Nató, sem vildi gæta nafnleyndar, stjórn Gaddhafis hafa logið til um það fyrir stríðið að Nató hafi valdið dauða óbreyttra borgara þar í landi. Tímamótasönnunargögn um stríðsglæpi Gaddhafis Þótt ekki hafist fundist sannanir um skipulagðar nauðganir hafa sannanir um aðra stríðsglæpi Gaddhafis fund- ist. Þúsundum skjala er haldið leynd- um í hafnarborginni Misrata og bíða þess að vera sótt af fulltrúum stríðs- glæpadómstólsins í Haag. Sprengju- árásir eiga sér stað í borginni um þessar mundir og hersveitir Gaddh- afis sitja um hana. Í skjölunum er að finna skipanir Gaddhafis um að láta svelta íbúa í borginni í umsátri um borgina sem er í höndum uppreisnarmanna. Al- gert bann lá við flutningum á mat, eldsneyti og öðrum þarfaþingum til borgarinnar frá öllum hliðum. Þá var skipun gefin út um að elta uppi særða uppreisnarhermenn sem brýtur í bága við Genfar-sáttmálann. Áætlanir um sprengjuárásir má líka finna og skipanir Gaddhafis um að lita sjóinn rauðan með blóði íbúa. Lögfræðingar sem styðja upp- reisnarmenn beindu því til mótmæl- enda, sem brutust inn í lögreglu- stöðvar og herstöðvar, að kveikja ekki í byggingunum en þannig hafa mik- ilvæg gögn glatast í öðrum hlutum Líbíu, til dæmis í Benghazi. Sönnunargögnin þykja marka tímamót þar sem aldrei hafa bor- ist jafnafgerandi sönnunargögn um stríðsglæpi sem leiða til sektar eins höfuðgeranda í stríði. Enginn stríðs- glæpadómstóll hefur áður fengið í sínar hendur skriflegar skipanir um grimmdarverk í stríði. Þannig tafði skortur á sönnunargögnum réttar- höldin yfir Slobodan Milosevic sem lést áður en hægt væri að dæma í máli hans og hið sama gildir um rétt- arhöldin yfir Charles Taylor. Lík borið út Óbreyttir borgarar falla í Líbíustríðinu. Björn Reynir Halldórsson blaðamaður skrifar bjornreynir@dv.is Eman al-Obaidi Þekktasta fórnarlamb nauðgana í Líbíustríðinu. Feður drepa dætur sínar n Óbreyttir borgarar halda áfram að falla í árásum Nató n Bretar segja loftárásir ekki duga til að koma Gaddhafi frá n Tímamótasönnunargögn liggja fyrir um stríðsglæpi Gaddhafis

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.