Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2011, Qupperneq 20
20 | Fókus 20. júní 2011 Mánudagur
Friðrik Þór leikstjóri stendur í stórræðum:
Kýlir á mynd um leiðtogafundinn 1985
„Þetta er hátíð fyrir lönd sem fram-
leiða færri en þrjátíu myndir á ári,“
segir Friðrik Þór Friðriksson leik-
stjóri en mynd hans Mamma Gógó
hlaut áhorfendaverðlaun á alþjóð-
legu kvikmyndahátíðinni Festroia í
Portúgal. Myndin keppti þar við ell-
efu aðrar myndir. Þetta er þó ekki
í fyrsta sinn sem Friðrik Þór hlýtur
verðlaun fyrir verk sín á hátíðinni.
„Ég hef fengið eiginlega öll verðlaun
sem hafa verið í boði á þessari hátíð
í gegnum árin en aldrei fengið þessi
áhorfendaverðlaun áður.“
Það er nóg að gera hjá leikstjór-
anum en myndin verður sýnd á há-
tíðum víða um heim í sumar. „Ég
er bókaður í allt sumar á einhverj-
ar minni kvikmyndahátíðir,“ segir
Friðrik, sem á þó ekki alltaf heim-
angengt á hátíðirnar. „Hún er núna
á Shanghai Film Festival í Kína. Ég
komst ekki þangað, maður þarf að
gera eitthvað líka,“ segir hann og
hlær. „Maður má ekki detta úr knatt-
spyrnuforminu. Ég spila tvisvar í viku
í hádeginu með Lunch United,“ segir
hann en þar spilar hann með mörg-
um þekktum fótboltakempum af
gamla skólanum, meðal annars Eyj-
ólfi Sverrissyni þjálfara U-21 lands-
liðsins. Friðrik er sannfærður um að
liðinu hefði gengið betur hefðu þeir
verið með í för. „Hann hefur kannski
bara þurft á okkur að halda.“
Friðrik gerir annað en að taka á
móti verðlaunum og spila fótbolta.
Hann er með þrjár heimildarmyndir
í vinnslu. „Ég er að vinna að þremur
heimildarmyndum núna. Um Bobby
Fischer, Kristján Eldjárn og Hall-
dór Laxness.“ Auk þessara þriggja
mynda hyggst hann reyna að gera
eina leikna mynd í haust. „Ég vil kýla
á mynd, í haust helst. Mynd um leið-
togafundinn 1985. Maður bara klárar
handrit og vonast til að fá styrk.“
viktoria@dv.is
Minning um
förukonu
Á þjóðhátíðardaginn var opnuð
sýning Jónu Sigríðar Jónsdóttur í
Byggðasafninu í Skógum, í gamla
skólahúsinu frá Litla-Hvammi. Við-
fangsefni sýningarinnar er bernsku-
minning Jónu um förukonuna Vig-
dísi Ingvadóttur.
Vigga hafði sérstakt dálæti á
skrauti og sterkum litum. Hún
skreytti fötin sín gjarnan með tölum
og alls konar glingri sem varð á vegi
hennar. Vigga, en það var hún alltaf
kölluð, fæddist í Norður-Hvammi í
Mýrdal árið 1864. Jóna gerir minn-
ingu sinni um Viggu góð skil á sýn-
ingunni í formi verka sem lýsa vel
eiginleikum hennar.
Sólstöðutón-
leikar Ólafar
Arnalds
Ólöf Arnalds verður með sólstöðu-
tónleika í Café Flóru, grasagarðin-
um í Laugardal á þriðjudagskvöldið
klukkan 22. Ólöf gaf nýlega út sína
aðra plötu, Innundir skinni en One
Little Indian útgáfan gaf hana út. Í
tilefni sumarsólstöðuhátíðarinnar
hefur hún sett saman sérstaka dag-
skrá sem hún flytur á tónleikunum.
Aðgangseyrir er 2.000 krónur og
húsið verður opnað klukkan 21.30.
Þ
jóðleikhúsið kom, sá og sigraði
á uppskeruhátið leikhúsanna
en sýning ársins 2011 var valin
leiksýningin Lér konungur eftir
William Shakespeare í sviðssetningu
Þjóðleikhússins. Sýningin hlaut alls sex
Grímuverðlaun en hún var frumsýnd
á stóra sviði Þjóðleikhússins annan
jóladag 2010. Þetta er í fyrsta sinn sem
ein og sama sýningin hlýtur jafnmörg
verðlaun, en sviðsetning Þjóðleikhúss-
ins á Pétri Gauti komst næst því, þegar
hún var valin sýning ársins og hlaut alls
fimm Grímuverðlaun árið 2006.
Ástralski leikstjórinn Benedict
Andrews hlaut verðlaunin fyrir leik-
stjórn og Arnar Jónsson var valinn leik-
ari ársins í titilhlutverkinu. Leikararnir
Atli Rafn Sigurðarson og Margrét Vil-
hjálmsdóttir, nýlega fastráðnir leikar-
ar við Þjóðleikhúsið, hlutu Grímuna
fyrir hlutverk sín í sýningunni og Hild-
ur Ingveldardóttir Guðnadóttir hlaut
Grímuna fyrir tónlistina í sýningunni.
Tinna Gunnlaugsdóttir leikhús-
stjóri segist ánægð með leikárið, ekki
aðeins þann listræna árangur sem
Grímuverðlaunin hafi sett í fókus, held-
ur hafi sýningar leikársins almennt
gengið mjög vel og aðsókn verið góð.
„Árið hefur verið alveg frábært. Við
vorum með margar vinsælar sýningar,
en tvö ný íslensk verk voru frumsýnd
á stóra sviðinu í vetur, auk annars og
bæði hafa gengið fyrir fullu húsi fram á
sumar, en það eru barnaleikritið Ballið
á Bessastöðum eftir Gerði Kristnýju og
Söngleikurinn Bjart með köflum eftir
Ólaf Hauk Símonarson.
Tinna segir að aðsókn að leikhúsinu
hafi verið að aukast jafnt og þétt und-
anfarin ár og það síðastliðna hafi verið
metár. „Það er einstaklega ánægjulegt
að fólk skuli sækja í leikhúsið í jafnrík-
um mæli og raun ber vitni þótt kreppi
að en það segir eiginlega meira um
þessa þjóð en nokkuð annað, hversu
gott skynbragð hún ber á þau verðmæti
sem felast í listum og menningu.“
Þurfum að gera mjög mikið úr litlu
Það er í skugga mikils niðurskurðar
sem Þjóðleikhúsið fagnar svo glæstum
árangri og Tinna segir það hafa verið
erfitt og kallað á umtalsverðar fórn-
ir að takast á við þá hagræðingu sem
kallað var eftir. „Við höfum einfald-
lega þurft að fækka fólki í öllum deild-
um og leggja meira á þá sem eftir sátu.
Það er hvorki vinsælt né sanngjarnt,
en það hefur þrátt fyrir það myndast
samstaða innan hússins að leita allra
leiða til að verja hið listræna starf og
láta niðurskurðinn ekki verða til þess
að við förum að slá af eða lækka stand-
ardinn. Við erum í raun að gera ótrú-
lega hluti fyrir fáránlega litla peninga,
ef við lítum til sambærilegra leikhúsa
á Norðurlöndum, og við gætum það
ekki nema fyrir þá staðreynd að við
erum með frábært fólk á öllum póst-
um. Það er og hefur verið styrkur Þjóð-
leikhússins.“
Uppsagnir í leikhúsinu
Nokkur umræða hefur verið um upp-
sagnir í leikhúsinu að undanförnu.
Tinna segir að slík umræða sé allt-
af vandmeðfarin og viðkvæm. „Það
er nógu sárt að missa fastan samning
þótt þú þurfir ekki líka að lesa um það í
fjölmiðlum. Nafnbirtingar að fólki for-
spurðu eru að mínu viti ósmekklegar í
svona tilvikum, enda hafa viðkomandi
ekkert til saka unnið. Sérstaklega get-
ur þetta verið álitamál þegar leikarar
eiga í hlut, þar sem starf þeirra er svo
bundið persónu þeirra og sjálfsmynd.“
Tinna segir að það hljóti alltaf að verða
einhverjar áherslubreytingar og það sé
mikilvægt fyrir Þjóðleikhúsið að geta
tryggt sér krafta þeirra leikara sem
mest eftirspurn er eftir á hverjum tíma.
Þar ráði listræn forgangsröðun vissu-
lega nokkru, en þetta sé líka spurning
um samsetningu leikarahópsins með
tilliti til þeirra verkefna sem eru í und-
irbúningi. „Við höfum kosið að beina
fremur athyglinni að þeim sem koma
inn á samning, enda er það vægast
sagt einvalalið leikara. Þar fer fremstur
meðal jafningja Hilmir Snær Guðna-
son, en auk hans koma þau Björn
Thors, Margrét Vilhjálmsdóttir, Atli
Rafn Sigurðarson, Jóhannes Haukur
Jóhannesson og Arnbjörg Valsdóttir
núna inn á fastan samning.“
Vesalingarnir ekki of stór biti
Einhverjir hafa viljað tengja uppsagn-
ir leikara sviðsetningu Þjóðleikhúss-
ins á Vesalingunum, en Tinna segir að
það séu óskyld mál. „Við erum ekki að
fækka leikurum á föstum samningi,
eins og fram hefur komið, heldur eiga
sér stað ákveðnar áherslubreyting-
ar, sem fela það í sér að við erum að
tryggja okkur þá leikara sem fyrirsjá-
anlega verða í mestri vinnu þegar leik-
árið er skoðað í heild sinni. Á hverju
leikári koma að auki á milli 20 og 40
sviðslistamenn að starfi leikhússins
vegna einstakra verkefna og eru þá á
tímabundnum samningum sem renna
út þegar sýningum á viðkomandi verki
lýkur. Þar reynum við að sýna aðhald
eins og alls staðar annars staðar, en
þessir listamenn eru ekki síður nauð-
synlegir en þeir sem eru í samfelldri
vinnu hjá leikhúsinu.“
Tinna segir að þeir sem ráðnir eru
vegna tiltekinna hlutverka í einstökum
verkefnum, fari allir í gegnum faglegt
mat eða áheyrnarprufur, ýmist leik-
prufur eða söngprufur. Söngprufur
hafi farið fram vegna hlutverka í Vesa-
lingunum og nú liggi fyrir hverjir hafi
orðið fyrir valinu.
Ráðning Egils
„Hlutverk fangans Jeans Valjena, sem
er aðalhlutverk sýningarinnar, verður
sungið af Þór Breiðfjörð, en Þór, sem
hefur starfað erlendis til fjölda ára,
söng þetta sama hlutverk á West End
í London um tíma, þar sem söngleik-
urinn hefur gengið samfellt frá því að
hann var frumsýndur fyrir um 26 árum.
Það er frábært að eiga kost á hæfileika-
manni á borð við Þór Breiðfjörð til að
syngja þetta mikilvæga hlutverk,“ seg-
ir Tinna. Í öðrum hlutverkum verða
sterkir söngkraftar, meðal annarra
Vala Guðnadóttir, Eyþór Ingi Gunn-
laugsson, Jóhannes Haukur Jóhannes-
son, Örn Árnason, Vigdís Hrefna Páls-
dóttir og Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, auk
Egils Ólafssonar, eiginmanns Tinnu.
Hún segir það ekki þurfa að koma á
óvart í ljósi ferils Egils, þótt hann velj-
ist í hlutverk í söngleik. Hún hafi þar
hvergi komið að málum, Egill hafi ein-
faldlega komið í prufu eins og aðrir og
forgangsröðun leikstjóra og tónlistar-
stjóra hafi þarna ráðið úrslitum, eins
og gildir almennt um val á leikurum
og söngvurum í hlutverk. „Það verður
hver og einn að fá að njóta hæfileika
sinna á jafnréttisgrunni. Þú hyglar ekki
ættingjum eða venslafólki í opinberri
stjórnsýslu með því að skjóta þeim
ómaklega fram fyrir aðra, en þú brýt-
ur heldur ekki á rétti þeirra, ef þeir eru
metnir hæfastir af þeim sem fara með
hið faglega umboð. Mönnum hættir til
að fara nokkuð geyst í þessa umræðu
og fullyrða umfram efni og ástæður.“
kristjana@dv.is
n Uppsagnir í leikhúsinu n Egill Ólafsson eiginmaður Tinnu
lausráðinn í verkefni í vetur n Hyglar ekki ættmennum
Glæstur árangur
í skugga uppsagna
Sólstöðu-
ganga í Viðey
Hin árlega sólstöðuganga á höfuð-
borgarsvæðinu fer að þessu sinni
fram í Viðey þriðjudagskvöldið 21.
júní. Þór Jakobsson leiðir gönguna.
Sólstöðugangan hér á landi hefur
verið kölluð „Meðmælaganga með líf-
inu og menningunni.“ Meðan á henni
stendur hvíla menn sig á deilumálum
og ganga saman í friði og spekt um
fallega náttúru. Gangan hefst kl. 19.30
við Viðeyjarstofu og tekur eina og
hálfa til tvær klukkustundir.
Yfir 100 þúsund
gesta markið
Tinna segist vona
að listirnar fái
áfram að blómstra
þótt þröngt sé í búi.
MYnd sigTRYggUR aRi