Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Blaðsíða 29
Fólk | 29Miðvikudagur 22. júní 2011
Það hlaut að koma að því að þessir odd-hvössu hælaskór yllu
slysi. Jimmy Choo-skór eru
aðalsmerki frægra kvenna í
Hollywood en það er þraut-
in þyngri að ganga í þeim
því hællinn er oftast örmjór
og hár. Aretha Franklin átti
þó ekki í vandræðum með
að ganga um í sínum fínu
skóm. Hún bara komst ekki
almennilega úr þeim og féll
kylliflöt með annan skóinn
fastan við tána. „Þetta var
bara helvíti vont,“ sagði
söngdívan en nokkrum dög-
um eftir atvikið lét hún kíkja
á fótinn og kom þá í ljós að
ein táin var brákuð. Búið
var um brotið og söngkonan
sett í skærbláan klunnaleg-
an gifsskó. Hún gerði mikið
grín að eigin hégóma og
sagði: „Hvað í ósköpunum
get ég fundið við nýja Marc
Jacobs-kjólinn minn sem
passar við þennan bláa spít-
alaskó sem ég er í núna?“
-KG
Féll kylliflöt í fínum skóm Aretha hefur húmor
fyrir sjálfri sér og spyr sig hvað passi við blátt gifsið.
Hégóminn er dýrkeyptur
Stórhættulegir hælaskór
Klúðurferill Melsins er sögu-legur. Síðustu árin hefur hann gert hvern skandalinn á fætur
öðrum. Ferill Lindsay Lohan og
Britney Spears er skínandi bjartur
miðað við Mels og sjálfsagt bera
þær sig saman við hann á sínum
verstu dögum til að líða betur með
sig sjálfar.
Kven- og gyðingahatur
Klúðurferill Mels hófst fyrir alvöru
árið 2006 þegar hann var tekinn fyr-
ir ölvunarakstur.
Hann hagaði
sér ósæmilega
við handtök-
una og sagði við
lögreglumenn-
ina að öll stríð
veraldar væru
gyðingum að
kenna. Einnig
kallaði hann lögreglukonu á staðn-
um „sykurtúttu“!
Dularfullt dauðsfall
Árið 2008 fannst verkamaður látinn
á heimili Mels í Los Angeles. Hann
virtist hafa fram-
ið sjálfsmorð í
nýbyggingu við
heimilið. Þegar
lögreglan mætti
á svæðið var það
engin önnur en
frú Sykurtútta
lögregluþjónn
og félagar sem
mættu á svæðið. Neyðarlegt fyrir
Mel.
Trylltist í viðtali
Þetta sama ár fór Mel í viðtal og
varð drullufúll þegar blaðamaður-
inn spurði hann
út í ölvunarakst-
urinn og hand-
tökuna. Mel
kallaði blaða-
manninn hálf-
vita og asna. Því
miður fyrir Mel
náðist þetta allt
saman á mynd-
band og fór á netið þar sem millj-
ónir horfðu á vitleysuna.
Frábær sæðissprauta
Í febrúar 2009 skildi Mel við eigin-
konu sína, Robyn. Robyn hafði
forðað sér þremur árum áður til
mikillar lukku og fer með forræði
sjö barna þeirra. Mel tók saman við
Oksönu Grigorievu. Aðeins mán-
uði seinna var tilkynnt að þau ættu
von á barni saman. Mel kom fram
í fjölmiðlum og sagðist stoltur vera
frábær sæðissprauta sem þótti afar
ósmekklegt.
Kirkjugestir fá óvæntan fyrir-
lestur um Hollywood
Í júní 2009 missti Mel sig í kirkju eft-
ir að hafa heyrt slúðrað um einkalíf
sitt. Hann gekk fram og til baka um
kirkjugólfið og sagist ekki standa
hjá og láta dæma sig. Kirkjugest-
um fannst þeim haldið í gíslingu
með sjálfhverfu rausi hans um eigið
einkalíf.
Winona Ryder segir frá
Í desember í fyrra minntist Winona
Mels frá því fyrir 15 árum. „Ég var
partíi og hann var rosalega drukk-
inn. Ég var með vini mínum sem er
samkynhneigður. Gibson sagði öm-
urlegan hommabrandara. Einhvern
veginn frétti hann síðan að ég væri
gyðingur og sagði eitthvað um að
ég hefði sloppið úr ofninum. Ég var
furðu lostin og sagði við vini mína
að hann væri gyðingahatari og
hommafæla en enginn trúði mér.“
Britney Spears blandast í
málin?
Um sama leyti var slúðurpressan
upptekin af því að það væri Britney
Spears að kenna að Mel og Robyn
slitu samvistum. Robyn var sögð
hafa fengið nóg þegar Mel bauðst til
að hjálpa Britney árið 2008. Hann
bauð henni út að borða og eyddi
miklum tíma með henni. Er þetta
smitandi?
Mel og Oksana
Í júlí í fyrra var lögregla kölluð að
heimili Mels og Oksönu eftir að Mel
lamdi hana. Oksana sagði hann
hafa lamið úr henni tönn í janúar
sama ár. Síðar í vikunni eftir harðan
slag við lögfræðinga Mel lak hún
út upptökum þar sem Melurinn
viðurkennir allt og segir hana hafa
átt barsmíðarnar andskotans skilið.
Oksana sagði dóttur þeirra hafa
meiðst við átökin. Hrein illska.
Mel viðurkennir allt
Eftir margra mánaða undabrögð
og lygar viðurkenndi Mel loksins
heimilisofbeldið. Þó með lymsku-
legum brögðum. Mel sagðist hafa
slegið Oksönu til þess að vernda
litlu dóttur sína frá meiðslum. „Ég
sló hana bara til að vekja hana úr
geðveikiskasti,“ sagði Mel.
Klipptur úr Hangover Part II
Nú síðast fréttist af Mel í æðiskasti
vegna framleiðslu myndarinnar
Hangover Part II eftir að hann var
klipptur úr myndinni. Mel lék húð-
flúrara í myndinni en var klippt-
ur út eftir að samstarfsfólk hans í
myndinni kvartaði undan því að
hann væri í henni.
Hann skilur ekki að Mike Tyson
hafi verið gefið tækifæri, dæmdum
eiturlyfjaneytanda og nauðgara, en
ekki honum,“ segir starfsmaður við
myndina. „Allir eiga skilið annað
tækifæri en ekki Mel. Mike hefur
snúið lífi sínu við, en ekki Mel.“ -KG
Ertu alltaf að klúðra? Berðu þig saman við Mel Gibson. Britney Spears gerir það!
Klúður-
ferill
Gibson
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
Verkstæði - Varahlutir - Smurþjónusta - Metan ísetningar
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox