Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 22. júní 2011 Miðvikudagur Þann 8. júní síðastliðinn var til- kynnt um sölu á helmingshlut í Sjóklæðagerðinni hf. sem er rekstrarfélag fataframleiðandans 66°Norður. Kaupandinn var fé- lagið SF II, félag í rekstri hjá sjóða- stýringarfyrirtækinu Stefni hf. sem er dótturfélag Arion banka. SF II er síðan í eigu Stefnis Íslenska at- hafnasjóðsins (SÍA I), Helga Rúnars Óskarssonar, núverandi forstjóra Sjóklæðagerðarinnar, og Bjarneyjar Harðardóttur, sambýliskonu Helga Rúnars. Á heimasíðu Stefnis kem- ur fram að á meðal sjóðfélaga SÍA I séu margir af stærstu lífeyrissjóð- um landsins. Íslandsbanki fór áður með þriðj- ungshlut í fyrirtækinu en kvik- myndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson átti síðan tvo þriðju í 66°Norður. Í janúar árið 2005 yfir tóku Sigurjón Sighvatsson og tryggingafélagið Sjóvá-Almennar 66°Norður. Samkvæmt heimildum var um svokallaða skuldsetta yfir- töku að ræða sem alfarið var fjár- mögnuð af Íslandsbanka sem var „ráðgjafi kaupenda í kaupferlinu og sá um þá fjármögunun sem til þurfti“, eins og segir í tilkynningu frá árinu 2005 þegar yfirtakan átti sér stað. Eftir að fjárfestingarfélagið Mile- stone hafði alfarið yfirtekið Sjóvá árið 2006 ákvað tryggingafélagið fljótlega að losa sig við hlut sinn í 66°Norður. Keypti Íslandsbanki þá hlut Sjóvár og hélt bankinn utan um hann allt þar til tilkynnt var um söluna á helmingshlut í 66°Norður þann 8. júní síðastliðinn. Í meirihlutaeigu félags á Tortóla Hlutur Sigurjóns Sighvatssonar í 66°Norður er skráður á félagið EGUS Inc. – félag sem stofnað var af Eggerti Jónasi Hilmarssyni, þáver- andi yfirmanni lögfræði- og skatta- sviðs Kaupþings í Lúxemborg, samkvæmt upplýsingum í Lögbirt- ingablaðinu í Lúxemborg frá árinu 2003. EGUS Inc. er skráð til heimilis í Road Town á eyjunni Tortóla sem tilheyrir Bresku Jómfrúareyjunum. Sigurjón staðfestir að félagið hafi verið stofnað af Kaupþingi í Lúx- emborg en vill að öðru leyti ekki tjá sig nánar um það félag. Líklega hafa fáir Íslendingar eins mikla þekkingu og Eggert á stofnun fyrirtækja á aflandseyjum. Algengt fyrirkomulag hjá Kaupþingi í Lúx- emborg sem og öðrum íslenskum bönkum sem störfuðu þar í landi fyrir bankahrunið var að eiga af- landsfélög á „lager“ sem viðskipta- vinir þeirra gátu síðan keypt. „Það er mjög merkilegt að tveir þriðju hlutar af 66°Norður, íslensku fé- lagi sem stofnað var árið 1926, hafi verið í eigu félags á Tortóla og eng- inn hefur séð ástæðu til að segja frá því,“ segir heimildarmaður sem DV ræddi við. 85 ára gamalt félag Sjóklæðagerð Íslands hf. var stofn- uð árið 1926 og því er óhætt að segja að fyrirtækið eigi sér langa sögu en félagið heldur upp á 85 ára afmæli sitt á þessu ári. Árið 1966 keyptu þeir Þórarinn Elmar Jensen og Davíð S. Jónsson Sjóklæðagerð- ina en þeir höfðu þá átt og rekið fataframleiðandann Max frá árinu 1956. Tæplega 40 árum síðar, eða árið 2004, fóru margir aðilar bæði á Íslandi sem og erlendis að falast eftir því að kaupa fyrirtækið. End- aði það með því að Þórarinn Elm- ar Jensen og synir hans, þeir Gestur Már og Markús Örn, seldu fyrirtæk- ið til Sjóvár og Sigurjóns Sighvats- sonar. „Þetta var keypt allt of dýru verði. Fjölskyldan sem hafði átt fé- lagið fékk í rauninni bara lottó- vinning. Þau fengu rosalega hátt verð fyrir fyrirtækið,“ segir heim- ildarmaður sem DV ræddi við sem þekkir vel til málefna 66°Norður. Á þessum tíma voru skuldsettar yfir- tökur sem fjármagnaðar voru af ís- lensku bönkunum að hefjast fyrir alvöru. Fullyrðir heimildarmaður- inn að Sigurjón hafi ekki lagt fram neitt eigið fé við yfirtökuna. Umdeild sala fyrir Íslandsbanka Segja má að salan á hlut Íslands- banka í 66°Norður eigi sér töluvert langan aðdraganda. Fyrirtækjaráð- gjöf Íslandsbanka auglýsti þriðj- ungshlut sinn í 66°Norður til sölu í október 2010 og hófst söluferlið formlega þann 1. nóvember. Var söluferlið opið öllum áhugasömum fjárfestum sem töldust fagfjárfestar en til að uppfylla það skilyrði þurfti að sýna fram á 300 milljóna króna eiginfjárstöðu. Í lok desember í fyrra fullyrti vefmiðillinn Eyjan að sala Íslands- banka á þriðjungshlut í 66°Norður væri á lokastigi. Búið væri að úti- loka alla kaupendur nema einn. Um svipað leyti sagði Halldór Gunnar Eyjólfsson, þáverandi for- stjóri 66°Norður, starfi sínu lausu. Hann var ráðinn til 66°Norður sumarið 2006 en á þeim tíma starf- aði hann sem framkvæmdastjóri hjá Sjóvá sem um svipað leyti seldi þriðjungshlut sinn í 66°Norður til Íslandsbanka. Fyrir það hafði hann setið í stjórn 66°Norður fyrir hönd Sjóvár. Í febrúar síðastliðnum var Helgi Rúnar Óskarsson ráðinn forstjóri 66°Norður. Hann var framkvæmda- stjóri mannauðssviðs Glitnis frá árinu 2006 og þar til bankinn fór í þrot haustið 2008. Sjö mánuðum eftir að Íslands- banki auglýsti þriðjungshlut sinn í 66°Norður til sölu var tilkynnt um kaupandann. Eins og áður kom fram keypti Sjóðurinn SF II helm- ingshlutinn sem er í eigu Stefn- is Íslenska athafnasjóðsins (SÍA I), Helga Rúnars Óskarssonar og Bjarneyjar Harðardóttur, sambýlis- konu hans. SÍA I er að stærstum hluta í eigu stærstu lífeyrissjóða landsins eins og áður kom fram. Mjög undarlegt þykir að Íslands- banki hafi ákveðið að hætta við að selja þriðjungshlut sinn í 66°Norð- ur í opnu söluferli en þess í stað ákveðið að selja helmingshlut í fé- laginu sjö mánuðum eftir að fyr- irtækjaráðgjöf bankans auglýsti þriðjungshlutinn til sölu. Eins og áður sagði var Helgi Rúnar einn af æðstu stjórnendum Glitnis fyrir bankahrunið. Bjarney Harðardóttir, sambýlis- kona hans, kom einnig að kaup- unum. Hún starfaði sem yfirmað- ur markaðs- og viðskiptadeildar Glitnis fyrir bankahrunið og var síðan markaðsstjóri Íslandsbanka þar til hún lét af störfum í nóvem- ber í fyrra. Stuttu áður en Bjarn- ey lét af störfum hjá Íslandsbanka hafði DV sagt frá því að útlit væri fyrir að verktakafyrirtæki sem hún tengdist myndi fá hundraða millj- óna króna afskriftir hjá Íslands- banka. Um er að ræða félagið SÆ 14 .ehf. sem skuldaði Íslandsbanka 400 milljónir króna. Snúningur hjá Helga og Bjarneyju Heimildarmaður sem DV ræddi við segir að salan á hlutnum í 66°Norð- ur hafi verið erfitt mál fyrir Íslands- banka. Ástæðan sé sú að það sé al- þekkt í viðskiptalífinu að erfitt sé að vinna með Sigurjóni Sighvatssyni. „Það gengur öllum illa að vinna með Sigurjóni,“ sagði heimildar- maður blaðsins. Því hafi fáir sýnt því áhuga að kaupa þriðjungshlut í 66°Norður enda myndi slíkt eignar- Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is Helmingur 66°Norður í hendur Glitnistoppa n Fyrrverandi yfirmenn hjá Glitni fengu að kaupa hlut Íslandsbanka í 66°Norður n Auglýst sem opið söluferli n 50 prósenta hlutur Sigurjóns Sighvatssonar í 66°Norður í eigu félags á Tortóla„Bjarney Harðar- dóttir, sambýlis- kona hans, kemur einnig að kaupunum. Hún starf- aði sem yfirmaður mark- aðs- og viðskiptadeildar Glitnis fyrir bankahrunið og var síðan markaðs- stjóri Íslandsbanka þar til hún lét af störfum í nóvember í fyrra. Staðan góð Að sögn Sigurjóns er staða 66°Norður góð og hann leggur áherslu á að fyrirtækið hafi ekki fengið neinar afskriftir hjá Íslandsbanka. MyNd RóBeRT ReyNiSSoN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.