Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2011, Blaðsíða 20
20 | Fókus 22. júní 2011 Miðvikudagur Frábær skemmtun út í gegn Myndin fjallar um vinkonurnar Annie og Lillian sem hafa verið bestu vinkonur frá því þær voru litl- ar stelpur. Ástarmál þeirra beggja hafa verið frekar misheppnuð en lukkan virðist vera að snúast Lillian í hag. Hún hefur fundið stóru ástina og þau ætla að gifta sig. Hún gerir Annie að aðalbrúðarmey sinni og út frá því spinnst söguþráður myndar- innar. Fleiri brúðarmeyjar bætast í hópinn og þær lenda í ýmsum æv- intýrum. Brúðarmeyjahópurinn er einstaklega vel heppnaður og pers- ónusköpunin er frábær. Hópurinn skartar óþolandi fullkomnu týp- unni, þreyttu þriggja barna móð- urinni sem er algjör glyðra, rólegu nördatýpunni, misheppnaða bak- aranum og svo uppáhaldinu mínu, feitu og fyndnu týpunni. Hún er al- gjörlega frábær karakter. Ég var ekki með neinar sérstakar vænting- ar þegar ég fór á myndina. Ég hafði heyrt utan að mér að myndin væri góð en ég gerði mér engan veginn grein fyrir því hversu góð hún væri. Það er langt síðan það kom almenni- leg grínmynd og hvað þá sem skartar konum í nánast öllum aðalhlutverk- um. Þetta er einstaklega vel heppn- uð mynd og bíómiðinn er hverrar krónu virði. Leikkonurnar eru all- ar frekar óþekktar og þetta er frum- raun þeirra flestra í aðalhlutverk- um á stóra tjaldinu. Þær standa sig allar með prýði og skila sínu vel. Ég fann ekki marga galla við myndina, helst kannski að hún missir aðeins flugið á ákveðnum punkti og verð- ur hæg en það samt eiginlega kem- ur ekki að sök. Salurinn engdist um af hlátri nánast allan tímann og ég var þar engin undantekning. Frábær skemmtun út í gegn. Ég hef oft staðið mig að því þegar ég hlusta á djasstónlist að vilja heyra kontrabassann leika meira áberandi hlutverk í músíkinni. Þetta á bæði við þegar um er að ræða tónlist sem er kennd við bassaleikara, til að mynda eins og í tilfelli Daves Holland eða Charlies Haden, og eins þegar bass- inn á að vera í meira aukahlutverki í tónlistinni. Bassinn er oft bara í bak- grunninum en ekki forgrunninum og bassaleikurunum er ekki ætlað að láta ljós sitt skína um of með sólóum og öðrum tilburðum. Bassinn er oft og tíðum fyrst og fremst bakgrunns- og ryþmahljóðfæri en ekki einleiks- tæki. Stundum sakna ég þess því ein- faldlega að fá ekki meiri kontrabassa í djassi. Á nýjustu plötu Tómasar R. Ein- arssonar, Streng, er hins vegar nóg af kontrabassa. Bassi Tómasar er í að- alhlutverki í öllum tólf lögunum á plötunni. Eini undirleikurinn við bassa Tómasar R. er lágstemmt slag- verk Matthíasar Hemstock og ýmiss konar vatnshljóð úr íslenskri náttúru sem tekin voru upp í Húnaflóa og Dalasýslu, þaðan sem Tómas R. er ættaður. Slagverkið og vatnshljóð- in gefa plötunni sérstakan og ró- lyndislegan blæ. Bassinn er þó það sem platan snýst um en slagverkið og vatnshljóðin eru í aukahlutverki; aukahlutverki sem þó er afar mikil- vægt þar sem fullberangurslegt væri að vera bara með bassa í lögunum, platan er nógu lágstemmd og mini- malísk fyrir. Þetta er fyrirtaks plata hjá Tómasi R. Margar af bassalínunum hjá hon- um eru fallegar og grípandi. Platan er persónuleg þar sem Tómas gefur sér lausan tauminn og ber hana uppi með leik sínum og tilfinningu. Lögin Halldórshús og Til Ástríðar – Tómas tileinkar Ástríði dóttur sinni plötuna en hún lést af slysförum í fyrra – eru einna eftirminnilegust af verkunum á plötunni sem saman mynda þétta heild. Platan rennur ljúflega áfram á sefandi hátt eins og þægilegur helgar- dagur – ekki er slæmt að liggja á melt- unni og lesa við hana. Með hljómdisknum fylgir DVD- diskur þar sem hægt er að horfa á hreyfingu vatnsins sem notað er í undirleikinn á Streng en hreyfing þess var fest á filmu um leið og hljóð- ið var tekið upp. Auk þess fylgir plöt- unni rúmlega 30 síðna myndskreyttur bæklingur þar sem Tómas skrifar um skyldmenni sín sem bjuggu í þeim sveitum þar sem vatnshljóðin eru tek- in upp. Plata Tómasar er því í reynd persónuleg í margs konar skilningi. Tónlistarinnar á plötunni má því njóta á að minnsta kosti tvo vegu: Með upp- töku af vatnsföllunum eða án. Sama hvor leiðin er farin þá er Strengur veisla fyrir þá sem hafa gaman af því að hlusta á fallegan og róandi bassa- leik með sérstæðu kryddi. Hljómplata Ingi Freyr Vilhjálmsson Strengur Tómas R. Einarsson Útgefandi: Blánótt ehf. Bassaveisla Jamie Cullum í Hörpu Jamie Cullum verður á tónleikum í Hörpu þann 23. júní í Eldborg. Jamie Cullum hefur lengi verið með allra vinsælustu tónlistarmönnum Bret- lands og árið 2003 var hann þegar orðinn söluhæsti djasstónlistar- maður þar í landi. Jamie Cullum er ásamt Noruh Jones og Díönu Krall talinn frumkvöðull í því að brúa bilið á milli djasstónlistar og nútíma popptónlistar. Þuríður og Vanir menn Í nóvember 2005 steig Þuríður á svið í Salnum og hélt upp á 40 ára söngafmæli sitt. Nú ætlar hún að stíga aftur á svið og rifja upp í tali og tónum ríflega 45 ára feril. Með Þuríði spilar hljómsveitin Vanir menn sem er skipuð þeim Birgi Ingimarssyni, Leó R. Ólasyni og Magnúsi Guðbrandssyni. Grímur Sigurðsson hefur bæst í hópinn af þessu tilefni. Sérstakur gestur verður Jóhann Vilhjálmsson. Á tónleikunum verður flutt úrval dægurlaga sem hljómað hafa í óskalagaþáttum útvarps, á dansleikjum, í Lídó, á Röðli, í Sigtúni, á Hótel Sögu og víðar. É g verð að viðurkenna að ég varð töluvert spenntur fyrir nýjustu plötu Bubba Morthens, Ég trúi á þig, eftir að hafa lesið bloggið hans þar sem hann rakti tilurð henn- ar og greindi frá tónlistarfólkinu sem spilar á henni. Þar voru á ferð einstak- ir fagmenn sem Bubbi var að vinna með og ekki annað hægt en að verða smá spenntur. Auk þess ætlaði Bubbi að reyna við sálartónlist. Bubbi fer nokkuð troðna slóð með því að snúa sér að þeirri tónlistar- stefnu, en það er ekkert að því enda viðurkennir hann það fúslega í ræðu og riti þar sem hann hefur talað um áhrif tónlistarmannsins og upptöku- stjórans Marks Ronson. Ronson vann meðal annars að hinni frábæru plötu Back to Black með söngkonunni Amy Winehouse sem kom út fyrir tæpum fimm árum. Á plötunni er sótt í sálar- tónlist sjöunda áratugs síðustu ald- ar og naut hún mikillar velgengni, og fylgdu nokkrir listamenn í fótspor Winehouse.  Á plötunni hans Bubba leika Sól- skuggarnir svokölluðu stórt hlutverk. Útsetningarnar á lögum Bubba eru margar hverjar mjög góðar og allur hljóðfæraleikur er fantagóður. Plat- an hljómar mjög vel og er öll vinnsla hennar til fyrirmyndar. Bassa- og trommuleikurinn er einstaklega þéttur og raddútsetningar mjög fag- mannlegar, sem og blásturinn. Það síðasta sem hægt er að setja út á þessa plötu er tónlistarflutningurinn sjálfur, hann er hreint út sagt frábær.  Það sem er hægt að setja út á er eiginlega voðalega fátt ef rýna á til gagns. Ég get þó sagt það að plat- an stóðst ekki alveg mínar vænt- ingar til hennar. Ég kannski bjóst við of miklu eftir að hafa heyrt Bubba tala svona vel um hana. Hljómsveitin nær „fílingnum“ sem þarf til að flytja svona tónlist mjög vel en ætli það sé ekki helst að lagasmíðarnar sjálfar eru ekki alveg nógu sterkar, að mínu mati.  Bubbi hefur svo sannarlega sýnt það í gegnum árin að hann kann að semja góð lög og lögin eru alls ekki slæm á þessari plötu. Það vantar bara eitthvað í lögin þannig að þau nái til mín pers- ónulega.  Það fær mig þó aldrei til að segja að þessi plata sé slæm, þvert á móti. Mér finnst hún vera prýðilegt verk sem hægt er að mæla með fyrir áhuga- sama. Lögin sem bera af eftir nokkrar hlustanir hjá mér eru Háskaleikur, Blik þinna augna og Sól. Þá mun ég hér eft- ir alltaf raula „bi-bi-bi-bi-bi-biðraðir“ næst þegar ég lendi í röð eftir að hafa heyrt lagið Biðraðir og bomsur.  Sú tilraun Bubba að gefa út sálar- plötu finnst mér skemmtileg þótt plat- an hafi ekki alveg verið fullkomin.  „Fílingurinn“ til staðar Hljómplata Birgir Olgeirsson Ég trúi á þig Bubbi Morthens Útgefandi: Sena Bíómynd Viktoría Hermannsdóttir Bridesmaids IMDb 7,7 RottenTomatoes 89% Metacritic 75 Leikstjóri: Paul Feig Handrit: Kristen Wiig og Annie Mumolo Leikarar: Kristen Wiig, Terry Crews, Jessica St. Clair og Maya Rudolph 125 mínútur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.