Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2011, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2011, Page 24
T íundu dagleið Frakklands- hjólreiðanna, Tour de France, lauk á þriðjudag en hlutskarpastur varð hinn þýski Andre Greipel sem kom sekúndubroti á undan Bret- anum Mark Cavendish. Það er hins vegar heimamaðurinn Thomas Voeckler sem er í forystu í heildar- keppninni og hjólar hann því ennþá í hinni víðfrægu gulu treyju. Keppn- in í ár hefur þótt einstaklega spenn- andi þó vissulega hafi nokkrir miður skemmtilegir atburðir sett svip sinn á hana. Af þeim 198 hjólreiðamönn- um sem hófu keppni hafa nú þegar 20 keppendur helst úr lestinni. Sá síðasti var Rússinn Alexander Kolobnev, en honum var vísað úr keppni í gær eftir að þvagprufa reyndist innihalda leifar af efninu hydrochlorothiazide. Efnið er reynd- ar ekki örvandi, en það hjálpar til við að losa vökva úr líkamanum án þess þá að sá sem neytir þess þurfi að stöðva til að losa þvag. Kolobnev var í 69. sæti þegar honum var vísað úr keppni en hann er sá fyrsti sem verður uppvís að neyslu ólöglegra efna í keppninni í ár. Eru það viss vonbrigði því Alþjóðahjólreiðasam- bandið hefur barist ötullega gegn ólöglegum efnum í greininni eftir mörg lyfjahneyksli síðustu ár. Dagleiðin í gær hófst í bænum Au- rillac, sem er meðal annars frægur fyrir að framleiða meira helming allra regnhlífa sem er seldur í Frakklandi hverju. Leiðin var alls 158 kílómetrar að lengd og lauk henni í bænum Car- maux í Tarn-héraðinu í Suður-Frakk- landi, en þar má finna mikið úrval af glerlistavörum og glösum. Frakk- landshjólreiðarnar eru svo miklu meira en bara hjólreiðar. 24 | Sport 13. júlí 2011 Miðvikudagur A ldur er afstæður í fótbolta og það er getan sem segir til um hvernig liðið spilar, ekki hvað leikmenn eru gamlir,“ segir Heimir Guðjónsson, þjálfari karlaliðs FH í knattspyrnu. FH-ingar hafa borið höfuð og herðar yfir önnur félög í úrvalsdeild karla undanfarin ár en fimm Íslands- meistaratitlar á síðustu sjö árum segja þar allt sem segja þarf. Þeim var spáð mikilli velgengni í sumar, meðal annars var þeim spáð sigri í deildinni í árlegri spá fyrirliða og þjálfara liða í úrvalsdeild nú í vor. Þegar tíundu umferð Íslands- mótsins er lokið eru FH-ingar hins vegar á ókunnum slóðum, ef svo má að orði komast, en þeir sitja nú í fjórða sæti deildarinnar – átta stigum á eftir KR, sem á einnig leik til góða. Margir knattspyrnuspekingar telja það vera of mikinn mun til að hægt sé að brúa hann, þótt Heimir sé á öðru máli. Of gamlir Í yfirlitsþætti Stöðvar 2 Sport, Pepsi- mörkunum, sem sýndur var eftir tí- undu umferð var látið að því liggja að FH-liðið væri ef til vill komið til ára sinna. Meðalaldur liðsins í tapleik gegn ÍBV á laugardag var rúm 30 ár. Í byrjunarliði FH voru meðal annars höfðingjarnir Tommy Nielsen, sem varð 39 ára í júní, og Bjarki Gunnlaugs- son, sem er 38 ára. Einu leikmenn FH sem voru í byrjunarliðinu gegn ÍBV og eru undir þrítugu voru varnarmaður- inn Pétur Viðarsson, 23 ára, miðju- mennirnir Hákon Hallfreðsson, 21 árs, og Matthías Vilhjálmsson, 24 ára, og loks kantmaðurinn Ólafur Páll Snorrason sem er 29 ára. Umsjónarmenn Pepsi-markanna, þeir Hörður Magnússon, Magnús Gylfason og Reynir Leósson, virtust vera sammála um að aldurinn gæti verið farinn að segja til sín. Undir þetta tók Óskar Hrafn Þorvaldsson, sérfræðingur Pepsi-deildarinnar hjá RÚV. Magnús sagði leikmenn FH hafa verið þunga og efaðist um að eldri leikmenn liðsins væru tilbúnir til að spila 90 mínútur leik eftir leik. Heimir Guðjónsson segir aldur leik- manna FH-liðsins ekki skipta máli. „Við komum til baka“ „Það er ekki málið að liðið sé of gam- alt. Við höfum einfaldlega ekki spilað nógu vel og kannski hafa sumir hlutir ekki alveg fallið með okkur. Það vant- ar þennan stöðugleika sem hefur einkennt liðið undanfarin ár. Þótt við höfum dottið á góða leiki þá höfum við stundum bara verið lélegir.“ En sér Heimir fyrir sér að liðið rétti úr kútnum? „Já, það eru tólf umferð- ir eftir og við höfum trú á því að við getum snúið blaðinu við. Við þurfum bara að sýna það inni á vellinum.“ Á síðustu leiktíð komst FH-liðið á mikið skrið á síðari hluta Íslands- mótsins. Þá fóru fjórir fremstu leik- menn liðsins á kostum og skoruðu ófá mörk, þeir Matthías Vilhjálmsson, Atli Guðnason, Ólafur Páll Snorrason og Atli Viðar Björnsson. Í ár hefur ver- ið talsvert um rót á fremstu mönnum vallarins, meðal annars með tilkomu Hannesar Sigurðssonar. Hefur þetta rót haft eitthvað að segja? „Það getur svo sem verið og menn hafa meiðst sem hefur orðið til þess að þeir eru ef til vill lengur í gang. En þannig er bara boltinn og önnur lið þurfa líka að glíma við slík vandamál.“ Heimir segir ágætis stand á liði sínu um þessar mundir þótt fimm leikmenn glími nú við meiðsli. Að- spurður hvort FH hafi breidd til að takast á við það er Heimir ekki í vafa. „Já, blessaður vertu. Engar áhyggj- ur.“ n Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, blæs á gagnrýni sérfræðinga n Segir að stöðugleikann vanti en það standi til bóta n Ætla að snúa við blaðinu nú þegar tólf umferðum er ólokið„ Já, blessaður vertu. Engar áhyggjur. Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is „Aldur er Afstæður í fótboltA“Heimir á hliðarlínunni Hann er viss um að FH-liðið taki við sér í næstu leikjum. HM í knattspyrnu kvenna:Æsispennandi undanúrslit fram undan „Þessi keppni er búin að vera al- veg frábær og mér finnst eins og gæðin í kvennaknattspyrnunni hafi aukist gífurlega mikið á skömm- um tíma,“ segir Vanda Sigur- geirsdóttir, fyrr- verandi lands- liðskona og landsliðsþjálfari í knattspyrnu. Í dag fara fram undanúrslita- leikir heims- meistarakeppninnar í knattspyrnu kvenna í Þýskalandi og hafði DV samband við Vöndu til að spá fyrir um úrslit leikjanna. Í leikjunum mætast annars vegar Japan og Sví- þjóð, en hins vegar Bandaríkin og Frakkland. Japan–Svíþjóð, 1-2 „Ég verð að taka það fram að ég er ekki alveg hlutlaus þegar kemur að þessum leik. Ég spilaði sjálf í Svíþjóð og viðurkenni að ég held með sænska liðinu. Þrátt fyrir það býst ég við mjög jöfnum og spenn- andi leik. Japanska liðið kom auð- vitað öllum á óvart þegar það lagði heims- og Evrópumeistara Þjóð- verja, en ég held að þýska liðið hafi fyrir leikinn ekki tapað leik á heims- meistaramóti síðan 1999 – á síðustu öld. En þær japönsku eru mjög snarar í snúningum og koma fullar sjálfstrausts. Ég hef hins vegar trú á sænska liðinu sem lítur mjög vel út, en þær unnu meðal annars Banda- ríkin í riðlakeppninni.“ Bandaríkin–Frakkland, 1-0 „Það er mjög erfitt að spá fyrir um þennan leik. Franska liðið er mjög gott tæknilega og leikmenn þess eru einnig mjög fljótir. Þetta könnumst við Íslendingar við af eigin raun enda hefur franska liðið reynst okkur einstaklega erfitt á undanförnum árum. Bandaríska liðið er ekki jafngott tæknilega. Þær eru hins vegar alltaf í ótrúlega góðu formi og virðast geta hlaupið endalaust. Þær hafa líka hefðina með sér eftir mikla velgengni á stórmótum, þær eru ríkjandi ólympíumeistarar og tóku bronsið á HM fyrir fjórum árum. Ég þekki líka þjálfara Bandaríkj- anna, Piu Sundhage, persónulega og ég held að reynsla hennar eigi eftir að vega þungt. Því spái ég Bandaríkjunum naumum sigri.“ Þess má geta að báðir leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu á RÚV. Fyrri leikurinn hefst 15.30 en sá síðari hefst 18.30. Vanda hvetur alla til að fylgjast með, enda hafi keppnin verið frábær hingað til. „Það eiga allir eftir að hafa gaman að þessu. Gæðin í kvenna- boltanum hafa aukist mikið og ég mæli bara með þessu enda frábær skemmtun.“ bjorn@dv.is Vanda Sigurgeirsdóttir Voeckler heldur gulu treyjunni n Tíundu dagleið Tour de France lauk í gær 158 kílómetrar að baki Greipel (lengst til hægri) tekur fram úr Cavendish (lengst til vinstri) á allra síðustu metrunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.