Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Síða 2
2 | Fréttir 5.–7. ágúst 2011 Helgarblað
Margir kvöddu Sævar
Sævar Mar-
inó Cie-
sielski var borinn
til grafar síðast-
liðinn þriðjudag.
Sævar var jarð-
sunginn frá Dóm-
kirkjunni og var
margmenni við
útförina. Það var
séra Örn Bárður Jónsson sem jarð-
söng Sævar.
Fráfall Sævars hefur vakið mikið um-
tal í þjóðfélaginu um Guðmundar-
og Geirfinnsmálið en Sævar var einn
þeirra sem sakfelldir voru í tengslum
við það. Sævar þurfti, af þeim sem
handteknir voru í tengslum við mál-
ið, að þola hvað mest harðræði. Hann
sat í einangrun í rúm tvö ár og þurfti
að þola hinar ýmsu pyntingar. Sævar
barðist fyrir rétti sínum allt þar til
hann féll frá þann 12. júlí síðastliðinn
í Kaupmannahöfn.
Svona sparar maður
bensín
DV birti á
miðvikudag
lista yfir fimmtán
pottþéttar leiðir
til að spara bens-
ín en á tímum
hækkandi elds-
neytisverðs er
mikilvægt að huga að eyðslunni. Fyrir
tveimur árum var hægt að keyra norð-
ur á Akureyri frá Reykjavík fyrir 4.295
krónur aðra leiðina. Nú kostar slík ferð
6.009 krónur sé miðað við að þú kaup-
ir ódýrasta bensínið. Þess má geta að
árið 2007 kostaði lítrinn 113 krónur
og hefur hann því hækkað um 114
prósent síðan þá. Þetta þýðir að ef þú
fyllir 50 lítra bensíntank núna þarftu
að greiða fyrir það 12.100 krónur. Fyrir
tveimur árum hefðir þú þurft að greiða
fyrir það 9.650 krónur en árið 2007
kostaði það 5.650 krónur.
Drápu 500 svín
Forsvars-
menn Stjör-
nugríss slátruðu
yfir 500 gyltum
og þurrkuðu þar
með út stofn-
inn að Brautar-
holti sem þeir
höfðu yfirtekið
frá Arion banka.
Áfrýjunarnefnd Samkeppniseftir-
litsins hefur aftur á móti ógilt sam-
þykkt Samkeppniseftirlitsins á sölu
Arion banka á búinu að Brautarholti
og Hýrumel. Kaupin hafa verið ógilt
en ljóst er að búið er að gjörbreyta
þeim rekstri sem fyrir var. Aðstand-
endur Stjörnugríss geta nú áfrýjað
þessari ákvörðun en líklegt er að
ef sú ákvörðun fær að standa muni
búunum verða skilað og fram-
leiðslu þar alfarið hætt. Þetta getur
leitt til hærra afurðaverðs til neyt-
enda.
Fréttir vikunnar í DV
26 | Fólk 3. ágúst 2011 Miðvikudagur
Sátu í
hlandlykt
Rithöfundurinn Tobba Mar
inós sleikir nú sólina á Tene
rife ásamt kærasta sínum,
borgarfulltrúanum Karli
Sigurðssyni. Ferðin byrjaði
ekki alveg nógu vel hjá þeim
skötuhjúum en þau fengu
sæti aftast í vélinni og var Kalli
ekki alls kostar sáttur við það.
Hann skrifaði inn á fésbókar
síðu sína áður en vélin fór í
loftið að þau sætu aftast hvort
í sinni sætaröðinni í Iceland
Express vél og væru farin að
finna hlandlykt og vélin ekki
einu sinni komin í loftið. Þau
virðast þó samkvæmt fésbók
arfærslum hafa lifað ferðina af
og komist á áfangastað þrátt
fyrir lyktina og njóta nú ljúfa
lífsins í sólinni.
Reif sig úr
Steindi Jr. vakti gríðarlega lukku
þegar hann steig á sviðið í Herj
ólfsdal um helgina. Steindi sá
um að skemmta þjóðhátíðar
gestum á laugardagsnóttinni og
var gríðarleg stemning í brekk
unni þegar hann tók helstu
slagarana sína. Það ætlaði svo
allt um koll að keyra þegar
Steindi reif sig úr að ofan í
mesta hamaganginum. Það var
umtalað á meðal hátíðargesta
að Steindi hefði stolið senunni
en á hátíðinni komu fram ekki
minni spámenn en Páll Óskar,
Bubbi og Dikta.
S
ævar Ciesielski var
jarðsunginn í Dóm
kirkjunni á þriðjudag
inn. Margmenni var við
útförina en fjöldinn all
ur af þjóðþekktum einstakling
um vottuðu Sævari virðingu
sína. Það var séra Örn Bárður
Jónsson sem jarðsöng Sævar.
Fráfall Sævars hefur vak
ið mikið umtal í þjóðfélag
inu um Guðmundar og
Geirfinnsmálið en Sævar var
einn þeirra sem sakfelldir
voru í tengslum við málið.
Sævar þurfti, af þeim sem
handteknir voru í tengslum
við málið, að þola hvað mest
harðræði. Hann sat í ein
angrun í rúm tvö ár og þurfti
að þola hinar ýmsu pynt
ingar. Sævar barðist alla tíð
fyrir rétti sínum og endur
upptöku málsins en hafði
ekki erindi sem erfiði. Sæv
ar barðist fyrir rétti sínum
allt þar til hann féll frá þann
12. júlí síðastliðinn í Kaup
mannahöfn.
Mikið hefur verið rætt um
það undanfarnar vikur að Al
þingi setji á laggirnar sérstaka
rannsóknarnefnd sem fari
ofan í saumana á þessu um
talaðasta sakamáli Íslands
sögunnar.
Illugi Jökulsson var einn
þeirra sem báru kistu Sævars
í gær en hann sendi vini sín
um hinstu kveðju á bloggsíðu
sinni. „Hann var ódeigur bar
áttumaður fyrir réttlæti, og nú
stendur það upp á okkur sem
eftir lifum að halda baráttu
hans áfram.“
Lagður til hinstu hvílu
n Sævar Ciesielski var jarðsunginn n Barðist til síðasta dags n Margmenni við útförina
Össur, Hrafn og Illugi Össur Skarphéðinsson ræddi við bræðurna Hrafn
og Illuga Jökulssyni, en Illugi var einn þeirra sem báru kistu Sævars út úr
kirkjunni.
Ómar Ragnarsson Ræðir við séra Örn Bárð, félaga sinn úr stjórnlaga-
ráðinu.
Beggi og Sigrún Vottuðu vini virðingu sína.
Birgitta Jónsdóttir alþingiskona Ein þeirra sem
barist hefur fyrir endurupptöku málsins. Hún sendi
Sævari kveðju á Facebook-síðu sinni: „Blessuð sé minn-
ing þín Sævar minn – megi allar góðar vættir vaka yfir
þér. Réttlætið mun sigra að lokum.“
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Guðrún
Ögmundsdóttir Voru á meðal þó nokkurra alþingis-
manna sem mættu við útförina.
Egill Ólafsson Söng Hvert örstutt spor.Mikil sorg Sævar var lagður til hvílu í Stóra-Núps-
kirkjugarði.
Þéttsetið Margmenni var við athöfnina.
Borinn til grafar Sævar Ciesielski
var jarðsunginn í Dómkirkjunni á
þriðjudag klukkan 13.00.
MyndIR GunnaR GunnaRSSon
Keypti spritt
fyrir róna
Blaðamaðurinn Eiríkur Jóns
son skrifar um það á bloggsíðu
sinni fyrir helgi að hann hafi
keypt spritt fyrir tvo ógæfu
menn sem sátu fyrir utan Bón
us á Granda. Eiríkur sá aumur
á þeim og fór inn og keypti
fyrir þá handspritt sem selt
er við kassann. Hann lét þó
ekki staðar numið þar heldur
laumaði tveimur bjórum með
sem hann tók úr
skottinu á bíln
um sínum.
Ógæfumenn
inir voru þakk
látir Eiríki og
sögðu bjórinn
þynna vel út
sprittið. Þeir
bættu því
svo við
að þeir
drykkju
allt sem
rynni
nema
hjólbör
ur.
2 | Fréttir 3. ágúst 2011 Miðvikudagur
F
orsvarsmenn Stjörnugríss
slátruðu yfir 500 gyltum og
þurrkuðu þar með út stofn
inn að Brautarholti sem þeir
höfðu yfirtekið frá Arion
banka. Áfrýjunarnefnd Samkeppnis
eftirlitsins hefur aftur á móti ógilt
samþykkt Samkeppniseftirlits
ins á sölu Arion banka á búinu að
Brautar holti og Hýrumel. Kaupin
hafa verið ógilt en ljóst er að búið er
að gjörbreyta þeim rekstri sem fyr
ir var. Aðstandendur Stjörnu gríss
geta nú áfrýjað þessari ákvörðun en
líklegt er að ef sú ákvörðun fær að
standa muni búunum verða skilað
og framleiðslu þar alfarið hætt. Þetta
getur leitt til hærra afurðaverðs til
neytenda.
Aðkoma bankans
Arion banki tók yfir rekstur tveggja
svínabúa í febrúar 2010, annars veg
ar Hýrumels í Hálsasveit í Borgarfirði
og hins vegar Brautarholts á Kjalar
nesi. Með því varð bankinn einn
stærsti kjötframleiðandi á landinu
en ákveðið var að reka búin áfram
þar til kaupandi fyndist að búunum.
Búin voru tekin yfir vegna skulda
vanda búanna á þeim tíma.
Eigendur Hýrumels og Brautar
holts hafa ekki verið á eitt sáttir með
meðferð sinna mála hjá bankanum
og hafa þeir gagnrýnt bankann áður
í fjölmiðlum. Kristinn Gylfi Jónsson,
fyrrverandi eigandi Brautarholts,
sagði frá því í samtali við Morgun
blaðið að hann hafnaði þeim fullyrð
ingum bankans að látið hefði verið
reyna til fulls á samstarf við fyrri eig
endur Brautarholts um endurskipu
lagningu rekstrarins. Hann fullyrti
að bankinn hefði brotið verklags
reglur sínar en bankinn svaraði því
til að eftirlitsnefnd um skuldaað
lögun hefði skoðað úrlausn bank
ans, vegna skuldamála fyrirtækisins
sérstaklega og engar athugasemd
ir gert við niðurstöðu hans. Þá hafi
fyrirtækið ekki fullnægt þeim kröf
um sem gerðar eru til fyrirtækja um
beinu brautina svokölluðu auk þess
sem búið að Brautarholti hafi verið
gjaldþrota þegar beina brautin var
kynnt til sögunnar.
Lokað söluferli
Þegar búin tvö, Hýrumelur og
Brautar holt, fóru í sölumeðferð hjá
Arion banka var ákveðið að hafa
söluferlið lokað. Það er að segja,
salan var ekki auglýst opinberlega.
Bankinn ákvað einnig að bjóða út
rekstur beggja búanna í einu. Eins
og fram kemur í ákvörðun Sam
keppniseftirlitsins þá ákvað bank
inn að auglýsa söluna ekki opinber
lega auk þess sem hann gerði kröfu
um að nauðsynlegt eða æskilegt væri
að væntanlegir kaupendur hefðu
reynslu og þekkingu af rekstri svína
búa. Umsagnaraðilinn Baula, sem
veitti Samkeppniseftirlitinu umsögn
sína um málið, gerði athugasemdir
við þetta og taldi að með þessu hefði
bankinn mögulega þrengt hóp þeirra
sem hefðu haft áhuga á að kaupa
rekstur búanna. Einungis einn aðili
sýndi áhuga og fékk aðgang að gögn
um um búin en ákvað á endanum að
leggja ekki inn tilboð. Á endanum
var það svo Stjörnugrís sem tók yfir
búin tvö.
Árið 2005 seldi Kaupþing, for
veri Arion banka, eitt stærsta svínabú
landsins til fyrirtækis í óskyldum
rekstri segir í ákvörðun Samkeppn
iseftirlitsins. Hér ákvað því Arion
banki að fara með sölu svínabúanna
á annan hátt en áður hafði verið gert
af hálfu forvera hans. „Umsagnarað
ilar voru almennt sammála um að
hægt hefði verið að standa öðruvísi
að sölu búanna... Aðferð Arion banka
á sölu svínabúanna hefði hins vegar
þrengt mögulegan kaupendahóp og
hafi söluferlið verið sniðið að þörf
um Stjörnugríss. Arion banki hafi
ekki tekið tillit til samkeppnissjónar
miða og megi telja ólíklegt að Arion
banki hefði haft sama háttinn á við
sölu annarra fyrirtækja, t.d. Haga og
Heklu,“ segir meðal annars í ákvörð
un Samkeppniseftirlitsins um að
komu Arion banka að málinu. Einn
ig er sagt að betra hefði verið ef bæði
svínabúin hefðu hætt starfsemi en að
markaðsráðandi aðilum yrðu afhent
ar bæði fasteignir og bústofn. Kemur
fram í ákvörðuninni að ekki hafi verið
látið reyna á til hlítar samstarf við eig
endur svínabúsins í Brautarholti. Rétt
er að taka fram að í ákvörðun Sam
keppniseftirlitsins kemur fram að svo
hafi ekki þurft að vera að niðurstaðan
úr söluferli Arion banka hefði verið
önnur ef söluferlið hefði verið opið.
Gyltunum slátrað
Öllum gyltunum, meira en 500 tals
ins, hefur verið slátrað á svínabúinu
í Brautarholti. „Það er rétt. Það voru
yfir 500 gyltur þarna,“ segir Geir
Gunnar Geirsson, framkvæmdastjóri
Stjörnugríss, í samtali við DV og stað
festir að búið sé að þurrka út stofn
inn í Brautarholti. Í ákvörðun Sam
keppniseftirlitsins kemur fram að
Stjörnugrís hafi greint frá því í svar
bréfi að ýmsar óafturkræfar ákvarð
anir hafi verið teknar í rekstri bús
ins. Geir segir að bæði Arion banki
og Samkeppniseftirlitið hafi verið
upplýst um þær ákvarðanir sem hafi
verið teknar er snúa að breytingum
á rekstri búanna. „Samkeppniseftir
litið heimilaði tilteknar aðgerðir sem
þurfti að grípa til, til þess að upp
fylla kröfur annarra stjórnvalda um
aðbúnað og heilsuhætti, það er að
segja Matvælastofnunar. Það voru
einungis þær breytingar sem voru
gerðar með samþykki Samkeppnis
eftirlitins, sem voru meðal annars
slátrun á einhverjum gripum,“ segir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Sam
keppniseftirlitsins, um aðkomu þess
að málinu. Aðspurður segir hann að
Samkeppniseftirlitið hafi hins vegar
ekki gefið leyfi fyrir því að öllum gylt
unum yrði slátrað í Brautarholti. Eft
irlitið hafi verið upplýst um það eftir
að slátrunin fór fram.
„Þetta eru náttúrulega lifandi dýr
og landbúnaður og búið að breyt
ast mikið. Þetta eru ekki sömu búin
og voru þegar þetta var keypt. Það
er búið að slátra dýrum og breyta
rekstrinum öllum. Við erum búin
að reka þetta í heilt ár,“ segir Geir
n Svínastofn þurrkaður út í Brautarholti n Samkeppniseftirlitið vissi ekki af slátrun 500 gyltna
n Óljóst með framhaldið ef áfrýjunarnefnd staðfestir ógildingu samruna tveggja svínabúa
500 gyltur drepnar
Guðni Rúnar Gíslason
blaðamaður skrifar gudni@dv.is
„Það er búið að
slátra dýrum og
breyta rekstrinum öllum.
Áfrýjunarnefnd tekur við Páll Gunnar
Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins
segir að eftirlitið hafi heimilað tilteknar
aðgerðir sem farið var fram á af hálfu Mat-
vælastofnunar.
Reksturinn gjörbreyttur Geir Gunnar
Geirsson, framkvæmdastjóri Stjörnugríss,
staðfesti að búið væri að slátra yfir 500
gyltum að Brautarholti.
Svínin drepin Stjörnugrís
gerði óafturkræfar breyting-
ar á búunum að Brautarholti
og Hýrumel og slátraði
meðal annars heilum stofni
í búinu að Brautarholti.
w
w
w
.d
v
.i
s
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 3.–4. ágúst 2011 miðvikudagur/fimmtudagur
8
7.
t
b
l
.
10
1.
á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
Bensínkostnaður hefur tvöfaldast
n Ekki kaupa stærri bíl n Breyttu yfir í metan n Forðastu
hraðakstur n Skipuleggðu snattið n Fáðu þér vespu 14–15
svona
sparar
maður
Bensín
Drápu 500 Svín
Eigendur Stjörnugríss felldu allar gylturnar á búi sem þeir mega ekki eiga
nýtur lífsins í Miami 28
Bieber á
brókinni
víðir ræðst
gegn risunum
Önnur verslun opnuð í Garðabæ
Margir
kvöddu
Sævar
Þingmenn í útför
Sævars Ciesielski 26
Fjórtán nauðganir
á útihátíðum í fyrra
Börnin
standa
undir
áróðrinum
Gréta slær í gegn með föður
sínum, Bubba Morthens
amx.is rekinn
ásamt leikjavef
27
10
6
„Fékk
bæði kosti
og galla
pabba“
2–3
Glæpurinn stendur morði næst 8
1
2
3
É
g bý á Íslandi, starfa hér og
borga skatta og ég var látinn
borga 8.700 krónur fyrir tvær
verkjatöflur bara vegna þess
að ég er ekki með lögheimili
hér,“ segir Árni Jóhannes Hallgríms-
son sem þurfti að leita sér aðstoðar í
sjúkratjaldi á Þjóðhátíð í Vestmanna-
eyjum um liðna helgi.
Verkjalyf við mígreni
Árni var í brekkunni á Þjóðhátíð þeg-
ar hann fékk mígrenikast, sem hann
fær reglulega. Honum var þá bent á
að fara í sjúkratjaldið þar sem hann
fengi aðstoð og gæti keypt verkjalyf á
örfá hundruð krónur. „Ég hitti lækni
og útskýrði fyrir honum að ég væri
með frjókornaofnæmi og oft leiði það
til mígrenis hjá mér. Hann kannaðist
við það og gaf mér tvær verkjatöflur.
Ég sagði að ég þyrfti veikar töflur en
hann gaf mér parkódín forte,“ segir
hann. Læknirinn hafi því næst beðið
hann um að bíða svo hann gæti fylgst
með hvernig töflurnar færu í hann. Á
meðan hann beið kom til hans kona
og bað um kennitölu. Þegar það kom
í ljós að hann á lögheimili í Noregi
var honum tilkynnt að hann þyrfti
að borga talsvert meira fyrir töflurn-
ar en venjan er, eða 8.700 krónur. Á
þeim tímapunkti var Árni búinn að
taka töflurnar og gat því ekki afþakk-
að þær.
Borgar skatt á Íslandi
„Ef ég hefði vitað þetta hefði ég far-
ið í eitthvert hvítu tjaldanna og at-
hugað hvort einhver gæti gefið mér
verkjatöflur. Ég hefði skilið þessa
upphæð ef ég hefði þurft að leita til
sjúkrahússins og verið lagður þar inn
en þetta finnst mér bjánalegt. Ég hef
borgað rúma milljón í skatt á síðustu
3 til 4 mánuðum á Íslandi og finnst
fáránlegt að þurfa að borga þetta fyr-
ir tvær töflur,“ segir Árni.
Aðspurður um ástæðu þess að
hann sé með lögheimili í Noregi seg-
ir hann að hann hafi verið svikinn
um laun í Noregi þegar hann bjó þar.
Norska ríkið sé nú að vinna í því að
hann fái launin greidd og á meðan
verði hann að vera með lögheimili
þar. Annars afsali hann sér réttinum
til að fá peningana greidda. Hann
segir einnig að hann hafi aldrei sótt
um sjúkraskírteini í Noregi. „Mér var
sagt að ég gæti fengið þetta endur-
greitt en ef ég færi að eltast við þetta
kæmi ég bara út á núlli. Ef tekið er
inn í þetta bensínkostnaður og tími
úr vinnu myndi ég örugglega enda í
mínus.“
Skráð sem koma á heilsugæslu-
stöð
„Við setjum upp ákveðnar vinnuregl-
ur á Þjóðhátíð og förum eftir reglum
Tryggingastofnunar í sambandi við
greiðslur,“ segir Guðný Bogadóttir,
yfirhjúkrunarfræðingur á Heilbrigð-
isstofnun Vestmannaeyja, en stofn-
unin sá um umrætt sjúkratjald. Hún
segir að þar sem læknir hafi litið á
Árna hafi það verið skráð eins og
koma á heilsugæslustöð og greiða
þurfi samkvæmt því. Um leið og
læknir hafi afskipti af einstaklingi sé
það skráð í sjúkraskrárkerfið.
„Við dyrnar höfum við svo eins
konar dyraverði sem eru vanir
sjúkraflutningamenn, hjúkrunar-
fræðingar og sjúkraliðar og þeir
eru þar til að sortera þá sem þurfa
á læknisaðstoð frá þeim sem þurfa
kannski bara plástur eða verkjatöfl-
ur. Það átti fólk að geta keypt í dyr-
unum án þess að hitta lækni,“ seg-
ir hún og bætir við að ef Árni hafi
komið og kvartað undna slæmum
hausverk hafi dyraverðirnir væntan-
lega viljað að læknir skoðaði hann.
Henni þyki afar slæmt að Árni skuli
hafa þurft að greiða tæpar 9.000
krónur vegna misskilnings.
Engar undantekningar
Hún segir að undir venjulegum
kringumstæðum þegar fólk leitar
til læknis en er ekki skráð með lög-
heimili á landinu, sé tekið ljósrit af
skilríkjum og fólk borgi þá venjulegt
gjald. Það hafi þó ekki verið ljósrit-
unarvél á svæðinu og því hafi ekki
verið hægt að fara þá leið þó svo Árni
hefði verið með slíkt á sér. „Hann
hefur því væntanlega borgað 2.600
sem er komugjald fyrir utan dag-
vinnutíma auk þess að borga fullt
gjald fyrir töflurnar.“
Aðspurð hvort það hefði ekki
verið hægt að líta fram hjá þessu, á
Þjóðhátíð segir hún svo ekki vera.
„Við erum með ákveðnar reglur sem
við förum eftir, til dæmis að allir sem
fara inn til læknisins borga og allir
sem eru undir 18 ára aldri er tilkynnt
um til barnaverndaryfirvalda.“
Hún segir að allt fari þá leið og því
er ekkert einstaklingsmat eða und-
antekningar.
Þjóðhátíðargestur Árni Jóhannes er ósáttur við að hafa þurft að greiða 8.700 krónur
fyrir tvær verkjatöflur á Þjóðhátíð. Mynd EyÞÓR ÁRnASOn
Tvær verkjaTöflur
kosTuðu 9 þúsund
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Ef ég hefði vitað
þetta hefði ég far-
ið í eitthvert hvítu tjald-
anna og athugað hvort
einhver gæti gefið mér
verkjatöflur.
FARÐU
AFTUR
Í BÍÓ
Í FYRSTA
SINN
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík
n Þjóðhátíðargestur var rukkaður um tæpar 9.000 krónur fyrir tvær verkjatöflur
n Er ekki sjúkratryggður á Íslandi þar sem hann hefur skráð lögheimili í noregi
Þegar Íslendingar flytja aftur heim
þurfa þeir að hafa meðferðis plagg sem
nefnist E104. Þegar lögheimilið hefur
verið flutt til Íslands þarf að fara með
plaggið til Sjúkratrygginga Íslands og
sækja þar með um að komast aftur inn í
tryggingakerfið. Ef það er ekki gert er ein-
staklingurinn hvergi tryggður í hálft ár.
HEiMild: SjúkRAtRyggingAR ÍSlAndS.
E104