Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Side 6
6 | Fréttir 5.–7. ágúst 2011 Helgarblað
SUMARHÚSIÐ
& GARÐURINN
NÝTT BLAÐ KOMIÐ Í VERSLANIR
Tryggðu þér eintak!
Áskrift í síma 578 4800
og á www.rit.is
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n Ríflega sautján þúsund manns hafa
ritað nafn sitt við kröfur Hagsmuna-
samtaka heimilanna um réttlátar
leiðréttingar á stökkbreyttum lán-
um heimilanna og afnám verðtrygg-
ingar.
Samtökin hafa lengi barist fyrir
leiðréttingum á húsnæðislánum
heimilanna, sem hækkuðu afar hratt
í verðbólgunni eftir efnahagshrun-
ið. Fram kemur á síðunni, þar sem
setja má nafn sitt, að hafi stjórnvöld
ekki orðið við kröfunni fyrir 1. janúar
2012 jafngildi undirskriftirnar kröfu
um þjóðaratkvæðagreiðslu.
Samtökin vilja að afturvirkt verði
sett þak á þátt verðbóta í hækkunum
húsnæðislána. Verðbólga olli því að
verðtryggð lán hækkuðu mikið eftir
hrun. Samtökin vilja að verðbóta-
þátturinn takmarkist við efri mörk
verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Ís-
lands, eða að hámarki 4 prósent á
ári.
Þá vilja samtökin að betri rétt-
ur neytenda gildi þegar kemur
að gengistryggðum lánum. Sama
reikni aðferð verði notuð og þegar
um er að ræða verðtryggð lán nema
ef niðurstaða dómstóla tryggi þeim
sem tóku gengistryggð lán betri kjör.
Þau vilja að tekinn verði af allur vafi
á að afturvirkar íþyngjandi inn-
heimtur verði bannaðar. Á vefsíð-
unni heimilin.is má lesa nánar um
þessa útfærslu en verðbólgan var
lengi hátt yfir efri viðmiðum seðla-
bankans. Þar geta þeir sem áhuga
hafa skrifað undir eða kynnt sér
nánar kröfur samtakanna.
baldur@dv.is
Undirskriftum Hagsmunasamtaka heimilanna fjölgar ört:
Sautján þúsund vilja leiðréttingar
Þak á verðbæturnar Fjölmargir hafa skrifað undir.
Vilja rannsókn
á sVínaslátrun
F
yrri eigendur svínabúsins í
Brautarholti telja að dráp á
500 gyltum búsins og þar með
útrýmingu svínastofnsins hafi
verið brot á samkeppnislög-
um og ætla að kæra málið til yfirvalda.
Gylturnar voru drepnar af hálfu for-
svarsmanna Stjörnugríss sem tók yfir
búið úr hendi Arion banka ásamt einu
öðru svínabúi að Hýrumel í júlí 2010.
Bankinn hafði nokkrum mánuðum
fyrr tekið yfir rekstur svínabúanna
vegna skuldavanda fyrri eigenda.
Vilja rannsókn
„Við munum, bræðurnir í Brautar-
holti, fara fram á það við samkeppn-
isyfirvöld að gerð verði rannsókn
á því sem átti sér stað þegar Stjör-
nugrís tekur við rekstrinum af Arion
banka. Þegar samkeppnisyfirvöld
tilkynna um að þessi samruni verði
tekinn til skoðunar þá hefst ákveð-
inn blekkingarleikur að okkar mati,“
segir Kristinn Gylfi Jónsson, einn af
fyrri eigendum búsins í Brautar-
holti. Reynt hafi verið að láta líta
út fyrir að aðstaðan fyrir dýrin hafi
verið of þröng og að aðbúnaður hafi
ekki verið í lagi á búinu, segir Krist-
inn. „Svo var alls ekki. Við vorum
árið þar á undan, mitt ár 2009 fram
til vorsins 2010, búnir að fækka
gyltum úr 630 í 510 vegna offram-
leiðslu á svínakjötsmarkaðnum.
Það voru því ekki nema um 80 pró-
sent af þeim gyltufjölda sem búið
rúmaði á staðnum,“ segir Kristinn
sem hafnar jafnframt þeim orðum
Geirs Gunnars Geirssonar, fram-
kvæmdastjóra Stjörnugríss, að bú-
stofninn í Brautarholti hafi verið
lélegur. Því til stuðnings segir Krist-
inn að Geir hafi í fleiri ár viljað selja
kjöt frá Brautarholti vegna óska eig-
in viðskiptavina.
Dýrunum slátrað
Eins og kom fram í DV á miðvikudag-
inn slátruðu forsvarsmenn Stjörnugr-
íss öllum gyltunum í Brautarholti eftir
að þeir höfðu tekið yfir búið. Á sama
tíma var samruni Stjörnugríss og bús-
ins í Brautarholti í skoðun hjá Sam-
keppniseftirlitinu. Eftirlitið hafði sam-
þykkt samrunann en þeirri ákvörðun
var áfrýjað og fór áfrýjunarnefnd yfir
úrskurð eftirlitsins. Fyrir stuttu kom
svo í ljós að samruninn var ógildur.
Í samrunanum fólst að Stjörnugrís
tæki yfir bústofninn í Brautarholti og
leigði fasteignir þar. En nú er bústofn-
inn horfinn þar sem búið er að slátra
öllum gyltunum.
„Við teljum að það hafi alls ekki
verið neinar forsendur fyrir því að
niðurskurðurinn færi fram, það var
rúmt um bústofninn í Brautarholti.
Þetta var eingöngu til að styrkja stöðu
Stjörnugríss,“ segir Kristinn sem full-
yrðir að Stjörnugrís sé búinn að fjölga
gyltum á öðrum búum. Að hans sögn
kemur þessi breyting fram í því að
framleiðsla á svínakjöti sé aftur farin
að aukast á undanförnum mánuð-
um. Auk þess sé búið að hækka verð
á svínakjöti um 25 prósent frá því í
fyrra. Kristinn segir að þetta séu áhrif
vegna yfirtöku Stjörnugríss á búinu í
Brautarholti.
„Við teljum að samrunaaðilarn-
ir tveir, Arion banki og Stjörnugrís,
hafi brotið gegn samkeppnislögum,“
segir Kristinn sem telur að ljóst sé að
Stjörnugrís hefði aldrei farið í að skera
niður allar gylturnar nema með sam-
þykki bankans. „Arion banki er þátt-
takandi í því sem ég vil líkja við mark-
aðsmisnotkun,“ segir Kristinn enda sé
búið að gera óafturkræfar breytingar
á búinu í Brautarholti. Þær breytingar
hafi leitt til röskunar á markaði með
framleiðslu svínakjöts. Kristinn tel-
ur það brot á samkeppnislögum að
skemma eða leggja niður fyrirtæki á
meðan samruni þess við annað fyrir-
tæki er til skoðunar hjá samkeppnis-
yfirvöldum.
Vissu ekki um slátrun
Í grein DV á miðvikudaginn kom
fram í máli Páls Gunnars Pálsson-
ar, forstjóra Samkeppniseftirlits-
ins, að eftirlitið hafi ekki gefið leyfi
fyrir því að allur stofninn í Brautar-
holti yrði felldur. Eftirlitið hafi aftur á
móti fengið fregnir af málinu eftir að
slátrunin fór fram. Samkeppniseftir-
litið hafði heimilað einhverjar breyt-
ingar á búinu í Brautarholti en ekki
að stofninn allur yrði felldur. Geir
Gunnar Geirsson, framkvæmda-
stjóri Stjörnugríss, sagði aftur á móti
að eftirlitið, auk Arion banka, hefði
alltaf verið upplýst um gang mála.
„Arion banki er
þátttakandi í því
sem ég vil líkja við mark-
aðsmisnotkun.
n Telur samkeppniseftirlitið þurfa að rannsaka svínaslátrun n Ætla að kæra
málið til yfirvalda n Hafnar fullyrðingum um slæman aðbúnað í Brautarholti
Guðni Rúnar Gíslason
blaðamaður skrifar gudni@dv.is
Svínunum slátrað Stjörnugrís slátraði
öllum gyltunum í Brautarholti eftir að það
tók yfir reksturinn. Nú hefur komið í ljós að
samruninn er ógildur.
Vill rannsókn Kristinn Gylfi Jónsson, fyrri
eigandi svínabúsins í Brautarholti vill rann-
sókn á því hvernig málum var háttað eftir
að Arion banki og síðar Stjörnugrís tóku yfir
rekstur búsins.
Upplýstu eftirlitið Geir Gunnar Geirsson,
framkvæmdastjóri Stjörnugríss, sagði að
samkeppniseftirlitið hefði ávallt verið upp-
lýst um gang mála.
Máluðu bæinn rauðan:
Sprelligosar
í Færeyjum
Vegfarendur í Þórshöfn í Færeyjum
ráku margir upp stór augu þegar þrír
strípalingar komu hlaupandi inn í
miðbæinn á dögunum. Þarna voru
á ferðinni leikararnir Árni Pétur og
Kjartan Guðjónssynir og Þórhallur
Sigurðsson, aðalleikarar í íslensku
gamanþáttunum Hæ Gosi!
Óafvitandi voru vegfarendur í
Þórshöfn komnir inn í miðjar tökur
á þáttunum en Gosamenn höfðu
komið fyrir myndavélum frá höfn-
inni þar sem Norræna lá við bryggju
og að miðbænum. Þá leið hlupu ís-
lensku leikararnir berrassaðir svo
uppi varð fótur og fit.
„Það kom smá líf í bæinn þegar
þetta gerðist,“ segir Heiðar Mar
Björnsson, einn af framleiðendum
og handritshöfundum Hæ Gosa!,
sem staddur er í Færeyjum um þess-
ar mundir. „Norræna var nýkomin
í höfn og allt fullt af fólki þarna. Við
höfðum náttúrulega ekki mannskap
í að hlaupa til og útskýra fyrir öllu
fólkinu að þarna væri verið að búa til
sjónvarpsþátt, þannig að við létum
bara vaða í gegnum þetta. Fólk varð
virkilega undrandi enda halda þeir
bara utan um sitt allra heilagasta í
þessu atriði.“
Þetta var þó ekki eina atvikið
sem vakið hefur athygli í Færeyjum
á þeim tíma sem íslenska tökulið-
ið hefur verið þar að störfum. Að-
standendur þáttanna urðu að breyta
sendibifreið í færeyskan fangaflutn-
ingabíl en að sögn Heiðars rann íbú-
um Þórshafnar kalt vatn milli skinns
og hörunds þegar þeir sáu óein-
kennisklæddan ljóshærðan karl-
mann aka bifreiðinni.
„Bíllinn heppnaðist svo vel að
fólk varð skelkað og fór að hringja
í lögguna á þriðjudag þegar það
sá þennan ljóshærða mann keyra
hann. Svo fór að löggan kyrrsetti
bílinn enda stóð mönnum ekki á
sama svo skömmu eftir voðaverkin í
Noregi,“ segir Heiðar Mar en svo fór
að löggan í Færeyjum tók bifreiðina
í sína vörslu þegar Gosamenn voru
ekki að nota hana.