Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Síða 18
18 | Fréttir 5.–7. ágúst 2011 Helgarblað
V
efmiðillinn B2 sem not-
ið hefur mikilla vinsælda
á meðal barna og unglinga
undanfarin ár krækir oftar
en ekki á vefsíður með ein-
hliða og neikvæðri umfjöllun um
femínista, múslima og ýmsa jaðar-
hópa. Vefurinn, sem er alla jafna ekki
pólitískur, gengur út á það að krækja
inn á vefsíður, oftast með vísan í að
það sé fyndið eða furðulegt. Inn á
milli grínsins birtast síðan síendur-
tekið krækjur inn á síður þar sem
ráðist er á málflutning femínista, lít-
ið er gert úr konum og jafnréttisbar-
áttu þeirra, eða múslimar sakaðir um
ýmislegt misjafnt. Andstæð pólitísk
sjónarmið eru ekki sýnileg á krækjum
vefsins.
Friðbjörn Orri Ketilsson er annar
tveggja eigenda Vefmiðlunar ehf. sem
rekur B2, og sjö aðra vefmiðla. Hann
er þekktur frjálshyggjumaður og rit-
stjóri hægri vefmiðilsins AMX sem
hefur undanfarið verið gagnrýndur
harðlega fyrir það sem sumir blogg-
arar hafa kallað „hatursskrif“. Grín er
eitt öflugasta tæki áróðursmeistara,
segir Hulda Þórisdóttir, stjórnmála-
sálfræðingur við Háskóla Íslands.
Miðpunktur ungs fólks
„B2 er vinsælasti tenglavefur lands-
ins með rúma 30.000 einstaka gesti
í viku hverri,“ segir á vefsíðunni, en
henni er þar lýst sem miðpunkti ungs
fólks á Íslandi. Vefurinn er tenglasafn
sem stofnað var af Friðbirni Orra Ket-
ilssyni, fyrst undir heitinu Batman.
Samkvæmt upplýsingum á síðunni
sjálfri sér ritstjórn um að velja úr þeim
krækjum sem berast frá lesendum.
Þar segir jafnframt að ritstjórnarstefna
sé höfð til hliðsjónar við val á efni en
á síðunni kemur ekki fram hver sé
ábyrgðarmaður hennar. Um efnis-
tök segir enn fremur að B2 hafi þann
„eina tilgang að skemmta gestum
sínum“ en ærumeiðingar séu meðal
annars ekki liðnar.
DV fékk ábendingu frá lesanda B2
sem blöskraði ákveðnar áherslur sem
birtast þar ítrekað gagnvart konum og
femínistum. „Femínistar vilja banna
hjónabönd!“ og „Femínistar vilja líka
breyta mannkynssögunni“ eru tvær
fyrirsagnir af fjölmörgum krækjum
sem B2 hefur birt um femínista. Þá
hefur oftar en ekki verið ráðist á nafn-
greinda femínista á vefnum eins og
þegar birtur var tengill á mynd af
Höllu Gunnarsdóttur með undirtexta
sem sagði: „Staðgöngumæður eru
hórur“. Ítrekað eru birtar krækjur á
bloggsíðu Sigurður Jónssonar, forrett-
indafeminismi.wordpress.com, en á
síðunni kemur fram að forréttinda-
femínismi sé „armur femínismans
sem hefur fyrir margt löngu gefið jafn-
réttisbaráttu upp á bátinn og berst nú
fyrir forréttindum með hreint ágætis
árangri.“
Grín öflugt áróðurstæki
„Mér virðist sem b2.is innihaldi fyrst
og fremst hefðbundið „prumpukal-
lagrín“ sem er líklegt til að höfða til
unglinga. En það sem vekur athygli er
að inn á milli leynast krækjur á síður
sem eru allt annars eðlis. Allt frá gagn-
rýni á guðstrú til kynþáttafordóma
og kvenfyrirlitningar. Það er erfitt að
leggja mat á það hversu meðvitaður
þessi pólitíski vinkill er á síðunni en
sé þetta með ráðum gert, er það öfl-
ug leið til þess að koma pólitískum
skilaboðum á framfæri,“ segir Hulda
Þóris dóttir stjórnmálasálfræðingur og
bætir við: „Í fyrsta lagi vegna þess að
fólk, og sér í lagi unglingar, er lítt með-
tækilegt fyrir pólitískum áróðri sé til-
gangur hans augljós. Í öðru lagi er
grín eitt öflugasta tæki áróðursmeist-
ara – ef til vill er bara ótti öflugri – til
þess að vinna fólk á þitt band. Á b2.is
eru vefsíður með stjórnmálainnihaldi
rækilega umvafðar gríni og lesend-
ur líklega í góðu skapi þegar þeir lesa
skilaboðin. En sálfræðirannsóknir
hafa sýnt að þegar fólk er í góðu skapi
er það ekki eins gagnrýnið á innihald
skilaboða og líklegra til þess að sam-
þykkja efni þeirra.“
Nafnlaus viðmælandi DV sem
hefur fylgst með vefnum til fjölda ára
segir að þar hafi lengi vel viðgeng-
ist „markviss fasistaáróður“. Honum
blöskrar að vefur þar sem helsti mark-
hópurinn eru börn og unglingar sé
notaður til þess að koma því á fram-
færi sem hann segir vera „einhliða og
hatursfullar skoðanir.“ Þegar krækt
er á pólitísk umfjöllunarefni er yfir-
leitt um afar einfalda og einhliða um-
fjöllun að ræða. Þannig var tengt inn
á bloggsíðu Sverris Stormskers þegar
hann stakk upp á því að kvenkyns ráð-
herrar gætu kallað sig „ráðherfur“.
Not fyrir vændiskonur
Við nánari skoðun á B2 kemur í
ljós að sama dag og gengið var til
alþingiskosninga 2009 var ólíkt
öðrum dögum krækt á fjórar síð-
ur með vísan í stjórnmál á Íslandi.
Allt tengdist það á einn eða annan
hátt hættunni sem stafaði af vinstri-
flokkunum. Þar var meðal annars
krækt á mynd af rauðum skýjum í
sólsetri, en fyrirsögnin gaf í skyn að
ógn vinstri stjórnar lægi í loftinu:
„Rauða höndin tekur yfir“. B2 hefur
ítrekað krækt á umfjöllun um mót-
mæli gegn stjórn Vinstri grænna og
Samfylkingar, þá væntanlega með
vísan í skemmtanagildi, samanber
ritstjórnarstefnuna.
Fleiri hópar eiga undir högg að
sækja á B2. Þannig er tengt á vefsíður
þar sem múslimar eru sagðir vilja
drepa Mikka mús og að múslim-
ar vilji að Vesturlandabúar taki upp
nýtt tímatal. Þá er tengt á bloggsíðu
íhaldssömu hægrikonunnar Michelle
Malkin sem birtir myndir af múslim-
um með hatursboðskap. Þá er meðal
annars gert lítið úr fólki sem aðhyllist
lífrænt mataræði og á einum stað er
spurt hvers vegna Asíubúar tali svona
furðulega.
Kvenfyrirlitning er eitthvað sem
birtist með skýrum og greinilegum
hætti á sumum krækjum B2. Ný-
lega var sett inn krækja á eins kon-
ar teiknimyndasögu þar sem gefin
voru fimm ráð um það hvernig nota
mætti vændiskonur sér til þæginda
og hægðarauka. Þar var meðal ann-
ars lagt til að þær yrðu notaðar sem
hestar fyrir karlmenn í skylmingum,
að munnur þeirra yrði fylltur af fugla-
fóðri til að fóðra fuglana og þá mætti
einnig nota þær sem eins konar tjald-
súlur. Í annarri „grínteikningu“ sem
hlekkjað var á gat að líta góðlátleg ráð
til kvenna um að nota ekki of mik-
inn augnlit því þá litu þær út eins og
„ódýrar vændiskonur“.
Áralangt stríð við femínista
Friðbjörn Orri og talsmenn Fem-
ínistafélags Íslands hafa lengi eld-
að grátt silfur vegna efnistaka á
Batman og síðar B2. Á árdögum
síðunnar var stór hluti tengla þar
klámtengdur þrátt fyrir að bannað
væri samkvæmt lögum að dreifa
klámi hér á landi. Töldu aðstand-
endur síðunnar að þeir væru í rétti
þar sem efnið var ekki vistað á ís-
lenskum netþjóni. Femínistafélag-
ið hélt síðar sýninguna „afbrigði af
ótta“ sem sýnd var í Nýlistasafninu
haustið 2003 en þar var klámefnið
sérstaklega til sýnis. Í kjölfarið voru
auglýsendur látnir vita af efnistök-
um síðunnar.
Heimildir DV herma að Frið-
björn Orri og aðstandendur síð-
unnar hafi orðið af miklum tekjum
í kjölfar þessa þar sem margir aug-
lýsendur hafi hætt að auglýsa á
vefnum. Á þessum tíma varð hat-
ursáróður gegn femínistum hvað
mestur á síðunni. Þegar Snjólfur
Ólafsson, prófessor við Háskóla Ís-
lands, ritaði greinar um kynbund-
inn launamun og sagði meðal ann-
ars að það gæti verið „í hæsta máta
eðlilegt“ að karlmenn væru með
hærri laun en konur, birti B2 tengil
á umfjöllunina undir fyrirsögninni:
„Femínistar flengdir lauf létt“.
Herstjórnarlist í hugmyndabar-
áttunni
AMX, annar miðill í eigu Friðbjörns
Orra, hefur verið iðinn við að gagn-
rýna „áróður“ fjölmiðla. Þannig
hafa fuglahvíslarar sakað fréttastofu
RÚV um að reka grímulausan áróð-
ur fyrir aðild að Evrópusamband-
inu, sem og eigendur Fréttablaðs-
ins fyrir að þekja blaðið með áróðri
sínum „marga ferkílómetra á ári.“ Þá
hafa AMX-liðar sakað DV um áróð-
ur fyrir að greina frá tugum milljóna
sem skólastjóri Hraðbrautar, Ólafur
Johnson, greiddi sér í arð. Því hefur
verið haldið fram – og hvergi mót-
mælt – að á meðal þeirra sem skrifa
á AMX séu skoðanabræður Frið-
björns Orra, þeir Björn Bjarnason
og Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son.
Hannes sagði á sínum tíma að
besta leiðin til þess að ná til fjöldans
væri sú að sannfæra blaðamenn
og aðra „dyraverði“ um ágæti hug-
myndafræðinnar. Í Frelsinu, sem
hann ritstýrði, skrifaði hann með-
al annars: „Við erum í rauninni
að ræða um herstjórnarlist í hug-
myndabaráttunni […] Við verðum
að snúa okkur til hinna, sem eru í
sambandi við fjöldann – til milli-
liðanna, til menntamannanna, til
þeirra, sem framleiða hugmyndir
og dreifa þeim. Okkur tekst að sann-
færa fjöldann, ef og þegar okkur
tekst að sannfæra þessa milliliði –
þessa dyraverði að vitund fjöldans,
ef svo má segja. Þeir eru kennarar
og blaðamenn, félagsmálafrömuðir
og rithöfundar, stjórnmálamenn og
embættismenn – í sem fæstum orð-
um þeir, sem móta skoðanir.“
Áróður Á barna-
og unglingasíðu
n Áróður gegn femínistum, múslimum og jaðarhópum ítrekað birtur á grínvef fyrir unglinga n Ritstjóri
AMX rekur vefsíðuna n b2.is er vinsæl á meðal barna og unglinga n Grín öflugasta tæki áróðursmeistara
„En sálfræðirann-
sóknir hafa sýnt að
þegar fólk er í góðu skapi
er það ekki eins gagnrýn-
ið á innihald skilaboða og
líklegra til þess að sam-
þykkja efni þeirra.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Andfemínistar Friðbjörn Orri Ketilsson,
ritstjóri AMX, rekur vefmiðilinn B2 en þar
eru oft krækjur á síður þar sem lítið er gert
úr konum og femínistum. Hann rekur sjö
aðra miðla.