Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Síða 20
20 | Fréttir 5.–7. ágúst 2011 Helgarblað Breytingatillögur við núverandi sjáv- arútvegsstefnu Evrópusambands- ins liggja nú fyrir Evrópuþinginu og leiðtogaráði sambandsins. Ráðgert er að nýja stefnan taki gildi 1. janú- ar 2013 og gildi til ársins 2020. Tals- verðar breytingar verða væntanlega á hinni sameiginlegu sjávarútvegs- stefnu (CFP-Common Fisheries Po- licy) sé tekið mið af tillögunum sem verða brátt teknar til umfjöllunar. Núverandi stefna hefur hlotið mikla gagnrýni frá aðildarríkjum, sérfræð- ingum, þrýstihópum sem og frjáls- um félagasamtökum ýmiss konar. Jóna Sólveig Elínardóttir er al- þjóðastjórnmálafræðingur sem skrif- aði meistaraverkefni sitt um aðkomu spænskra hagsmunaaðila að mótun sameiginlegu sjávarútvegsstefnunn- ar. Hún segir að breytingarnar taki að einhverju leyti mið af sjávarútvegs- stefnu Íslands og nái þær fram að ganga, verði sjávarútvegsstefna ESB mun líkari þeirri íslensku. Taka mark á gagnrýni Íslendinga „Skammsýni í stefnumörkun, alvar- leg ofnýting á auðlindum sjávar, brottkast, óhagkvæmni, skortur á sérfræðiþekkingu, miðstýring, gall- ar í markaðsskipulagi og í styrkja- kerfi sambandsins eru þau atriði sem helst hafa verið gagnrýnd. Mið- að við fyrirliggjandi breytingatillögur mun stefnan eftir endurskoðun líkj- ast sjávarútvegsstefnu Íslands meira en áður,“ segir Jóna Sólveig. Árið 2009 var gefin út af ESB svo- kölluð Grænbók um endurskoðun á sjávarútvegsstefnunni. Grænbæk- ur eru einmitt gefnar út til að stuðla að aukinni umræðu innan sam- bandsins um tiltekin málefni, oftar en ekki með aðkomu utanaðkom- andi sérfræðinga, ríkisstjórna eða annarra samtaka. Ríkisstjórnin setti fram umfangsmiklar athugasemdir við Grænbókina í janúar 2010 – og svo virðist sem eftir þeim hafi ver- ið farið að einhverju leyti, sé miðað við breytingatillögurnar sem nú eru komnar fram. Vilja taka upp kvótakerfi Í athugasemdum ríkisstjórnarinn- ar var lögð áhersla á að ESB tryggði arðbærni í sjávarútvegi en innan sambandsins hefur lítill sem eng- inn hagnaður verið af fiskveiðum. Þvert á móti hefur ESB þurft að reiða af hendi háa styrki til sjávarútvegs í langflestum aðildarríkjum. Í breyt- ingartillögunum kemur fram að ESB geti tekið sér Íslendinga, Norðmenn og Dani til fyrirmyndar hvað þetta varðar, og er lagt til að tekið verði upp kvótakerfi sem tryggi arðbærni. Hvað breytist í ESB? Samningaviðræður milli ESB og Ís- lands um mögulega aðild eru nú í fullum gangi. Ljóst er að þar mun skipta einna mestu máli hvernig samningi um sjávarútvegsmál verð- ur háttað. En er mögulegt að spá fyrir um merkjanlegar breytingar? „Það er mjög erfitt að spá fyrir um hvað muni breytast. Það veltur á mörgum þátt- um, en fyrst og síðast samningavið- ræðunum sjálfum,“ segir Jóna Sól- veig. Rétt er þó að minnast þess að ESB hefur nú þegar viðurkennt sérstöðu Íslendinga í sjávarútvegsmálum þar sem um grundvallaratvinnuveg sé að ræða. Telja því margir að Íslend- ingar ættu að geta samið um sjávar- útvegsmál svo úr verði ásættanlegur samningur. Komi til aðildar er ljóst að Ísland verður eitt umsvifamesta sjávarútvegsveldið innan sambands- ins, og ættu því áhrif Íslands innan greinarinnar að verða eftir því. Þann- ig hafa aðrar smáþjóðir meðal ann- ars náð fram miklum áhrifum þeg- ar kemur að sérsviðum þeirra, til að mynda Lúxemborg í fjármálum og viðskiptum og Finnland og Svíþjóð í fjarskiptamálum. n Breytingatillögur vegna sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu ESB liggja fyrir n Taka mið af athugasemdum íslensku ríkisstjórnarinnar Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Taka mið af íslenskri sjávarútvegsstefnu n Langtímastefnumörkun í stjórn á vist- kerfum sjávar með áherslu á vistkerfis- hugsun og sjálfbærni n Bann við brottkasti, kvótakerfi miðist við veiddan fisk en ekki löndunarmagn eins og nú er, og þetta leiði meðal annars til betri gagna um veiði n Arðbærari fiskveiðar, kvóti verði fram- seljanlegur innan aðildarríkis n Stuðningur við minni skip, minni útgerðir, og strandveiðar n Þróun á sjálfbærri fiskeldisframleiðslu n Bætt sérfræðiþekking í greininni, aukin gagnaöflun og rannsóknir, betri nýting á gögnum í samvinnu milli stjórnvalda og atvinnugreinarinnar n Dreifing valds frá Brussel til þeirra aðildarríkja eða aðila sem hafa hag af greininni, með öðrum orðum svæðavæð- ing (e. regionalisation) n Nýtt markaðsskipulag með meiri sam- keppni, gagnsæi markaða, jafnari aðstöðu framleiðenda og afurða, stöðugri mörk- uðum, betri merkingum, gæðastöðlum og rekjanleika n Endurbætur á styrkjakerfinu með auknu tilliti til sjálfbærni og hegðunar styrkþega, og með nýjum fiskveiðisjóði n Ábyrgð tekin á ofveiðum í samn- ingum við þriðjulönd um viðskipti með sjávarafurðir Meginatriðin í breytingatillögunum TEkið af EVropuVEfur.iS, upplýSingaVEiTu um EVrópuSamBandið og EVrópumál. damanaki bregður á leik Maria Damanaki er framkvæmdastjóri ESB á sviði sjávarút- vegsmála. Jóna Sólveig Elínardóttir Hún starfar sem rannsóknarmaður við Háskóla Íslands og hefur svarað fyrirspurnum á Evrópu- vefnum, evropuvefur.is. Taka mið af Íslandi Í tillögunum er meðal annars tekið mark á gagn- rýni Íslendinga. Samn- ingaviðræður Íslands og ESB um aðild Íslands að sambandinu eru nú í fullum gangi. „Miðað við fyrir- liggjandi breyt- ingatillögur mun stefnan eftir endurskoðun líkjast sjávarútvegsstefnu Íslands meira en áður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.