Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Side 22
22 | Fréttir 5.–7. ágúst 2011 Helgarblað L andsfundur sjálfstæðis- manna verður haldinn í nóvember og brátt fer að skýrast hvort ein- hverjir innan flokksins ætli sér að rugga bátnum og reyna að komast til aukinna valda. Formaður flokksins, Bjarni Benediktsson, virðist eiga formannsstólinn nokkuð öruggan þrátt fyrir að hafa þurft að glíma við ýmis mál sem hafa reynst honum erfið. Sú staða að hann sitji nokkuð öruggt kemur að mörgu leyti til vegna lítils framboðs á öðru frambærilegu fólki sem getur velt honum úr sessi. Flokkur- inn leggur mikið upp úr þeirri ímynd að sátt ríki um stöðu mála innanflokks og því er ólíklegt að karpað verði um málin á almennum vettvangi. Líklegra er að átökin muni eiga sér stað innan flokksins og þar verði reynt að lægja öldurnar og komast að niðurstöðu sem meirihluti flokksmanna geti sætt sig við. Situr áfram Skiptar skoðanir eru innan Sjálfstæðisflokksins um hvort Bjarni Benediktsson eigi að halda áfram að starfa sem for- maður flokksins. Tengsl hans við viðskiptalífið fram til árs- ins 2008 eru honum óþægur ljár í þúfu. Bjarni var um tíma stjórnarformaður N1 og einn af eigendum N1 og eignar- haldsfélagsins BNT. Félögin voru hluthafar í Vafningi sem kom að fasteignaviðskiptum í Makaó ásamt Sjóvá. Tapið á verkefninu fyrir Sjóvá var á fjórða milljarð króna og þurfti ríkið á endanum að bjarga fé- laginu með því að leggja því til um 12 milljarða króna. Bjarni kom þannig að því að ákveða þátttöku BNT í Vafningi og virðist hafa verið fullkomlega meðvitaður um tilgang félags- ins en hann hefur hafnað því að hafa haft eitthvað að segja um fjárfestingar félagsins í Makaó. Bjarni tók við sem formað- ur Sjálfstæðisflokksins á erf- iðum tíma í mars 2009. Hann sigraði Kristján Þór Júlíusson nokkuð örugglega í kosningu um formannsembættið þar sem Bjarni hlaut tæplega 60 prósenta kosningu. Bjarni hef- ur átt erfitt með að sannfæra fólk um afstöðu sína gagnvart Evrópusambandinu en eftir að hann tók við sem formað- ur hefur hann lagst gegn að- ild. Fyrir embættistökuna var hann þó ekki jafn eindreginn í afstöðu sinni enda lýsti hann því yfir ásamt Illuga Gunnars- syni í aðsendri grein í Frétta- blaðinu í desember 2008 að Ísland ætti að hefja aðildar- viðræður við Evrópusam- bandið. Þeir Bjarni og Illugi sögðu meðal annars að krón- an myndi reynast Íslendingum fjötur um fót til lengri tíma. Icesave-málið reyndist Bjarna erfitt og hafa eflaust sumir flokksmenn enn ekki fyrirgefið honum fyrir að lýsa yfir stuðningi við samning- inn sem þingið samþykkti í febrúar. Margir hefðu viljað sjá Bjarna taka eindregna afstöðu gegn samningnum en Bjarni ákvað að láta ískalt hagsmuna- mat ráða, eins og hann orð- aði það. Margir málsmetandi menn innan Sjálfstæðisflokks- ins létu í ljós gremju sína gagn- vart afstöðu Bjarna og ann- arra þingmanna flokksins til Icesave. „Ískalt hagsmunamat þeirra er talsvert undir frost- marki venjulegs siðferðis,“ sagði Tómas Ingi Olrich, fyrr- verandi ráðherra flokksins, til að mynda og er deginum ljós- ara að hverjum þeim orðum var beint. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra flokksins, tók undir gagnrýni Tómasar á flokksforystuna í þessu máli í pistli sínum á Evrópuvaktinni. Þreytt á bekknum Hanna Birna þurfti að sjá á eftir borgarstjórastólnum í hendur Jóns Gnarr þegar Besti flokkur- inn kom öllum að óvörum og sigraði í síðustu borgarstjórn- arkosningum. Hanna Birna hafði þá setið sem borgarstjóri í rúmlega eitt og hálft ár og unað sér vel sem slíkur. Þeg- ar hún settist í stólinn var hún fjórði borgarstjóri Reykvíkinga á um tíu mánuðum og þótti mörgum sem hún hefði náð að lægja þær öldur sem voru inn- an borgarstjórnarinnar á þeim tíma. Það er því ekki skrýtið að það hafi komið Hönnu Birnu á óvart þegar Besti flokkurinn með Jón Gnarr í fararbroddi velti henni og Sjálfstæðis- flokknum úr sessi sem stærsta aflinu innan borgarstjórnar- innar. Margir, og væntanlega Hanna Birna þar á meðal, gerðu ráð fyrir að stjórn Besta flokksins og Samfylkingarinn- ar yrði ekki langlíf. Innan Besta flokksins var lítið um pólitíska reynslu og því var búist við að einhver þyrfti að hlaupa í skarðið þegar Besti flokkurinn gæfist upp á verkefnum borg- arinnar. Þessi atburðarás hefur aftur á móti látið á sér standa og virðist sem meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinn- ar ætli að lifa út kjörtímabilið. Eftir því sem DV kemst næst þarf ansi mikið að ganga á til að samstarfið þar á milli slitni. Hanna Birna og fylgis- menn hennar eru því orðin ansi óþolinmóð og eiga erfitt með að hugsa þá hugsun til enda að hún starfi sem borg- arfulltrúi í tæp þrjú ár til við- bótar. Hanna Birna tók í kjölfar kosninganna við embætti for- seta borgarstjórnar en sagði sig frá því starfi í apríl síðastliðn- um. Hanna Birna bar því við að ekki hefði verið staðið við fyrir- heit um að halda áfram að inn- leiða ný vinnubrögð og aukið samstarf í samræmi við yfirlýs- ingu allrar borgarstjórnar eins og það var orðað á þeim tíma. Hanna Birna gegnir í dag engu formlegu embætti innan borgarinnar eftir að hún hætti í starfi forseta borgarstjórnar, fyrir utan að vera borgarfulltrúi og sitja í borgarráði. Slíkt er auðvitað mikil viðbrigði fyrir manneskju sem gegndi starfi borgarstjóra fyrir rétt rúmu ári. Ljóst er að Hanna Birna renn- ir hýru auga til aukinna áhrifa innan Sjálfstæðisflokksins og er talið að hún íhugi alvarlega að bjóða sig fram til formanns eða varaformanns Sjálfstæðis- flokksins. Helsta hindrunin í vegi hennar er ef til vill sú að hún vill helst komast til áhrifa án þess að styggja aðra valda- menn innan flokksins. Hennar óskastaða væri því sú að sátt myndaðist um að koma henni til aukinna valda innan flokks- ins, sem gæti mögulega stuðl- að að því að lægja öldur á með- al flokksmanna. Ekki er hefð fyrir því innan íslensku stjórnmálaflokkanna að formenn þeirra starfi innan borgarinnar. Öllu heldur mætti segja að allar hefðir segi til um að formenn flokkanna starfi í landsmálunum. Svo gæti far- ið að Hanna Birna vildi taka minna skref í þetta skiptið og sækjast eftir embætti varafor- manns. Eina hættan er sú að ef sterkur leiðtogi stígur fram og tekur við embætti formanns gæti orðið erfitt fyrir Hönnu að velta þeim einstaklingi úr stóli þegar hún telur sinn tíma vera kominn. Kallað á foringjann Foringinn, eins og hann er kallaður af sínum hörðustu fylgismönnum ritstýrir Morg- unblaðinu í dag og eru marg- ir sjálfstæðismenn sem sakna þess þegar Davíð Oddsson stýrði flokknum styrkri hendi. Það skal því engan undra að menn velti því fyrir sér hvort Davíð sé líklegur til að boða endurkomu sína í stjórnmál- in. Davíð á traust bakland í flokknum en ólíklegt þykir að Davíð bjóði sig fram til for- manns. Hann mun væntan- lega heldur ekki lýsa því yfir að hann bjóði sig ekki fram þar sem ótti manna við framboð hans heldur þeim á tánum. Davíð getur haft áhrif á samfélagsumræðuna í starfi sínu sem ritstjóri Morgun- blaðsins og á eflaust eftir að gera það í nokkur misseri til viðbótar. Hann varð 63 ára í byrjun árs og á enn nokkur góð ár eftir. Spurningin er hins veg- ar sú hvort hann hafi áhuga á að eyða þeim við það að koma Sjálfstæðisflokknum til valda á ný. Valdatímabil hans ein- kenndist af setu hans í ríkis- stjórn og þurfti hann ekki að láta reyna á setu í stjórnarand- stöðu. Ljóst er að Davíð vill vera þar sem hann fær að ráða. Erfitt hefur reynst þeim Bjarna og Geir H. Haarde að feta í fótspor Davíðs eftir að hann lét af starfi formanns flokksins. Geir lét af störfum eftir að hann greindist með æxli í vélinda. Á þeim tíma var hann búinn að sitja sem for- maður flokksins og forsætis- ráðherra í gegnum íslenska efnahagshrunið. Hlutverk Bjarna var að rífa flokkinn upp úr þeim dal sem hann var í eft- ir hrunið en hann hefur neyðst til að sitja í stjórnarandstöðu eftir að hann tók við sem for- maður. Hvort sem um er að kenna aðstæðum eða fólki, þá er leitun að einstaklingi sem getur leitt Sjálfstæðisflokkinn eins og Davíð gerði á sínum árum við völd. Foringjaslagurinn í Sjálfstæðisflokknum n Bjarni sterkur þrátt fyrir áföll og skiptar skoðanir n Hanna Birna orðin þreytt á að vera í andstöðu innan borgarinnar n Skortur á öðru frambærilegu fólki til að velta forystu úr sessi I cesave-málið veikti stöðu Bjarna Benediktssonar,“ segir Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri. Í fram- haldi af Icesave vöknuðu raddir og kröfur innan flokksins um að halda landsfund. Hann segir að svo hljóti að vera að það standi í einhverjum tengslum við að breyta einhverju í forystu flokksins. Erfitt sé hins vegar að segja til um hvort ein- hverjar breytingar séu fram undan þó að áhugi sé fyrir því innan einhverra hópa innan flokksins. „Þeir sem hafa áhuga á því að fella Bjarna eru þeir sem fylgdu þessari Davíðslínu, ekki síst í Icesave-mál- inu,“ segir Grétar og tekur fram að sá hópur muni ekki sætta sig við Kristján Þór Júlíusson. Kristján var í fjárlaganefndinni á sínum tíma sem vildi semja um málið. „Það er ekkert skrýtið þó nafn Hönnu Birnu sé nefnt. Henni tókst að halda friðinn í lok síðasta kjörtímabils en hún vann engan sigur í kosningunum í fyrra. Ætli hennar tími komi ekki síðar,“ segir Grétar sem telur Hönnu Birnu einn af framtíðarleiðtogum flokksins. Hann telur það spennandi til- hugsun ef einhver af konunum innan flokksins myndi láta á það reyna að bjóða sig fram til formanns flokksins. Það geti þó vel verið að staða Bjarna sem formanns sé nægilega sterk til að hann geti staðið slíka atlögu af sér. „En svo er spurning hvort hið óvænta muni gerast, eins og árið 1991,“ segir Grétar og vísar til þess þegar Davíð Oddsson kom óvænt inn og felldi Þorstein Pálsson í kjöri um formann flokksins. Telur áhuga innan flokksins á breytingum: „Icesave veikti stöðu Bjarna“ Stjórnmál Guðni Rúnar Gíslason gudni@dv.is „Hanna Birna og fylgis- menn hennar eru því orðnir ansi óþolin- móðir. Þreytt í borginni Hanna Birna vill sátt um sín störf en hefur áhuga á að komast til meiri valda. Tapaði fyrir Bjarna Ólíklegt þykir að Kristján Þór Júlíusson fari í framboð gegn Bjarna á ný.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.