Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Page 25
Erlent | 25Helgarblað 5.–7. ágúst 2011
VITA er lífið
Alicante
VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is
Kynntu þér ferðamöguleikana og
skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is
Flugsæti, 10. ágúst
Verð frá 29.900 kr.
Innifalið: Flug til Alicante og flugvallarskattar.
Vikulegt flug út október 2011.
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
V
IT
5
58
63
0
8/
11
Þrátt fyrir að þrælahald hafi verið
gert ólöglegt í Máritaníu árið 2007
hefur enginn þrælahaldari verið
dæmdur þar í landi. Mannréttinda-
samtök hafa bent á að þrátt fyrir
lagabreytingar virðist réttarkerfið
þar í landi ekki geta tekið á þessum
málum. Þrælahald hefur viðgengist
í Máritaníu í margar aldir. Tölur eru
eitthvað á reiki en að minnsta kosti
20 prósent íbúa landsins – 600 þús-
und – eru þrælar. Yfirleitt eru þrælar
dökkir á hörund en þrælahaldarnir
hvítir arabar.
Þrátt fyrir að þrælahaldarar hafi
ekki verið dæmdir í Máritaníu hafa
aðgerðasinnar sem berjast gegn
þrælahaldi fengið að finna fyrir því.
Biram Dah Abeid er leiðtogi samtaka
sem berjast gegn þrælahaldi í Márit-
aníu, en honum var stungið í örygg-
isfangelsi í lok síðasta árs þar sem
honum var haldið með herskáum
íslamistum. Var hann sakaður um að
hafa ráðist á lögreglumenn en í grein
The Guardian um málið segir að síð-
ar hafi komið í ljós að lögreglumenn
höfðu ráðist á hann.
DV hefur undanfarið fjallað um
flóttamanninn Mouhamde Lo sem
flúði þrælahald í Máritaníu við illan
leik. Hann felur sig nú fyrir íslensk-
um yfirvöldum en Útlendingastofn-
un hefur úrskurðað að senda skuli
hann aftur til Noregs þar sem um-
sókn hans um hæli hefur þegar ver-
ið hafnað. DV tæpir hér lauslega á
bágri stöðu mannréttindamála í Má-
ritaníu.
Í fangelsi fyrir andstöðu
Ýmis mannréttindasamtök for-
dæmdu handtöku Abeids og al-
þjóðasamtök gegn pyntingum sögðu
einu ástæðuna fyrir árásinni á Abeid
vera þá að refsa manninum fyr-
ir að berjast fyrir mannréttindum.
Abeid var hluti af hreyfingu aðger-
ðasinna og mótmælenda sem börð-
ust fyrir því að þrælahaldarar yrðu
dæmdir eftir lögunum sem sett voru
árið 2007. Fatima Mbaye, talskona
mannréttindasamtaka í Máritaníu,
sagði í samtali við franska miðilinn
Le Monde fyrr á þessu ári að eng-
inn hefði verið dæmdur fyrir þræla-
hald vegna þrýstings sem dómstólar
verða fyrir af hendi íhaldssamra og
trúaðra hópa.
Abeid var handtekinn eftir að
hann kom á lögreglustöð með tvær
stúlkur – níu og þrettán ára – en þær
höfðu verið þrælar í eigu fjölskyldu
lögreglustjórans. Rifrildi átti sér
stað á milli Abeids og lögregluþjón-
anna sem endaði með því að Abeid
varð fyrir meiðslum. Mbaye er sann-
færð um að Abeid sé ofsóttur vegna
stjórnmálaskoðana sinna og póli-
tískra aðgerða. Ibrahima Diallo, tals-
kona frelsishreyfingar Máritaníu í
Evrópu, sagði í samtali við le Monde
að Abeid hefði vitað þetta. „Hann
vissi að þeir vildu eyðileggja pólitíska
starfsemi hans. Nú er hann hræddur
um líf sitt.“
Barnaþrælkun
Abeid var ekki sá eini sem var hand-
tekinn fyrir pólitískar aðgerðir. Að
minnsta kosti fimm aðrir fengu sömu
meðferð. Í kjölfar öflugra mótmæla
alþjóðlegra mannréttindahreyfinga,
þar á meðal Amnesty International,
neyddist forseti Máritaníu, Moha-
med Ould Abdel Aziz, til þess að
veita þeim sakaruppgjöf. Eftir hung-
urverkföll mótmælenda þrælahalds
nú í vor neyddust yfirvöld í Márit-
aníu til þess að bregðast við og hand-
taka þrjár konur sem sakaðar höfðu
verið um að selja börn í þrældóm í
höfuðborginni Núaksjott. Í kjölfarið
voru þær sóttar til saka fyrir þræla-
hald og er það í fyrsta skipti í sögu
Máritaníu sem það gerist.
Fórnarlömbin voru Salka Mint
Ahmed, ellefu ára, Meima Mint
Amar, þrettán ára, og Mint Moha-
med Lemine, fjórtán ára. Þau fædd-
ust eins og svo margir aðrir íbúar
Máritaníu inn í þrældóm og voru í
eigu kvennanna sem sóttar voru til
saka. Barnaþrælarnir voru sendir úr
sveitinni og til höfuðborgarinnar fyr-
ir um tveimur árum þar sem börnin
voru látin sinna þrifum á heimilum
kvennanna frá morgni til kvölds.
Strokuþræll flýr íslensk yfirvöld
Á heimasíðu Flóttamannastofn-
unar Sameinuðu þjóðanna segir
að þrælahald sé hluti af gamalgró-
inni samfélagsgerð Máritaníu. Kyn-
slóð eftir kynslóð séu þrælar í eigu
heilu fjölskyldnanna neyddir til þess
að vinna kauplaust við að sjá um
kamel dýr eigendanna og þjóna til
borðs. Þá eru konur og ungar stúlkur
seldar í kynlífsþrældóm heima fyrir
eða til Mið-Austurlanda. Þá gerir rík-
isstjórn landsins engan veginn nóg
til þess að koma í veg fyrir smygl á
þrælum, að mati Flóttamannastofn-
unarinnar.
Mouhamde Lo, sem fæddist inn í
fjölskyldu þræla í Máritaníu og tókst
með naumindum að strjúka þræla-
haldara sinn, hefur sagt við DV að
afar slæm örlög bíði hans þar í landi.
Eins og fram hefur komið í umfjöll-
un DV eiga strokuþrælar í Máritaníu
á hættu að verða refsað fyrir flóttann
með geldingu og/eða dauða. Máls-
meðferð Lo hér á landi hefur verið
harðlega gagnrýnd. Á meðal þess
sem hefur verið gagnrýnt er að hon-
um var ekki veitt nægjanlega góð
túlkaþjónusta. Það hafði þær afleið-
ingar að hann var í skýrslu Útlend-
ingastofnunar sakaður um að hafa
stundað sauðaþjófnað í heimalandi
sínu. Hann kannast hins vegar ekk-
ert við að hafa verið sauðaþjófur eða
að hafa sagt slíkt við skýrslutöku.
Ögmundur Jónasson innanríkisráð-
herra hefur varið úrskurð Útlend-
ingastofnunar.
Hroðaleg
örlög þræla
í Máritaníu
„ Barnaþrælarnir
voru sendir úr
sveitinni og til höfuðborg-
arinnar fyrir um tveimur
árum þar sem börnin
voru látin sinna þrifum á
heimilum kvennanna frá
morgni til kvölds.
n Að minnsta kosti 20 prósent íbúa Máritaníu eru í eigu hvítra þrælahaldara n Þrælahald varð ólöglegt
í Máritaníu árið 2007 n Stjórnvöld og dómstólar veikburða og lítill vilji er til að takast á við vandann
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Í felum
Mouhamde
Lo flúði úr
þrælahaldi og
hefur sótt um
hæli hér á landi.
Ákvörðun hefur
verið tekin um
að vísa honum
úr landi en hann
er í felum fyrir
íslenskum yfir-
völdum.
Þrælamæðgin Móðir og
barn sem halda til í Keube-
fátækrahverfinu í höfuð-
borginni Núaksjott í Máritaníu.
Í það minnsta 20 prósent íbúa
landsins eru þrælar en
þeir sinna meðal annars
kameldýrum eigenda sinna og
þjóna til borðs.