Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Page 26
A lvarleg hungursneyð ríkir í Afríku. 11 milljónir manna þurfa bráðnauðsynlega á hjálp að halda, þar af 700.000 börn sem gætu dáið vegna vannæringar. Ástandið versnar stöðugt og hjálpar­ samtök hafa sent út neyðarkall. Á meðan er fimm hundruð svínum slátrað á Íslandi til að þurrka út sam­ keppnisaðilann. Einum þriðja af matvælafram­ leiðslu heimsins er hent, eða um 1,3 billjónum tonna af mat á ári, sam­ kvæmt Sameinuðu þjóðunum. Mat­ vælum er fleygt á framleiðslustigi, við flutninga, á mörkuðum, í verslunum og inni á heimilum. Ástæðurnar eru margvíslegar, of mikið er framleitt, verðið er of lágt og matvælin uppfylla ekki útlitskröfur neytenda. Ávextir og grænmeti þykir ólögulegt og brauð­ endar ógirnilegir. Og núorðið kunna fæstir að kaupa inn samkvæmt þörf­ um fjölskyldunnar. Aðeins þyrfti að nota einn fjórða af því sem hent er í Bandaríkjunum og Evrópu til að fæða alla þá sem svelta víða um heim, sem telja um einn milljarð manna. Þessi fjörutíu millj­ ón tonn sem enda í ruslinu í Banda­ ríkjunum einum saman myndu líka duga til. Og vatnið sem er notað í að rækta óþarfa matvæli gæti dugað fyr­ ir heimilishald hjá níu milljörðum manna. Með neyslusamfélaginu, sem er drifið áfram af græðgi, ofur­ skömmtum og tískustraumum, hef­ ur okkur tekist að nota einn þriðja af auðlindum jarðar á þrjátíu árum. Við höfum eytt þrjátíu prósentum af skógum jarðar, 25 prósentum af jarðvegi, helmingi olíunnar og fos­ fats. Tuttugu og fimm prósent spen­ dýra eru á hættulista og þúsundir teg­ unda deyja út á hverju ári. Vistkerfi á landi og í höfum eru í hættu. Vegna ofneyslu. Íslendingar hafa lengi haldið því fram að þeir séu umhverfisvæn þjóð. Þeir séu svo tengdir náttúrunni. En samkvæmt dr. Kristínu Völu Ragn­ arsdóttur, forseta verkfræði­ og nátt­ úruvísindasviðs HÍ, á það ekki við rök að styðjast. Vill hún meina að með amerískum lífsstíl þyrftum við fimm plánetur til að lifa af ef svo fer sem horfir, þrjár fyrir lífsstíl Evrópubúans en 21 fyrir lífshætti Íslendinga. Endurvinnslu á Íslandi er líka verulega ábótavant. Í fréttum í vik­ unni kom fram að Íslendingar end­ urvinna ekki nema hluta þeirra um­ búða sem Evrópulöggjöfin tilgreinir. Mörður Árnason, formaður um­ hverfisnefndar Alþingis, tók það þó fram að gæta þyrfti að því að endur­ vinnslan yrði ekki of dýr fyrir neyt­ endur. Það er áhugavert viðhorf í ljósi þess hvað það kostar jarðarbúa að keyra samfélög áfram á neyslu og framleiðslu. Á rúmum fimmtíu árum hafa menn breytt vistkerfum heims meira en á nokkru öðru skeiði í sögu mannkyns samkvæmt úttekt Sameinuðu þjóðanna. Eyðing búsvæða, ósjálfbær nýting auðlinda, loftslagsbreyting og mengun eru á meðal þess sem veldur. Nú er kannski kominn tími til að staldra við og skoða hvað það er sem við raunverulega þurfum og leita leiða til að bæta úr þessu ástandi. Benti Mörður líka á að sveitar­ félögin þyrftu að standa sig betur, þar á meðal Reykjavík. Borgarstjórn gæti tekið Fljótsdalshérað sér til fyr­ irmyndar með þriggja tunnu kerfi fyrir íbúa, þar sem eitt ílát er fyrir al­ mennt sorp, eitt fyrir flokkað sorp og eitt fyrir lífrænt sorp. Flokkaða sorpið er flutt til endurvinnslu, það lífræna til moltugerðar, sem hægt er að nýta við uppgræðslu og gróðursetningu, en almenna sorpið er það eina sem er urðað. Fyrirkomulagið er Fljóts­ dalshéraði til hróss og væri óskandi að Reykjavíkurborg tæki þetta kerfi upp. Það ætti ekki aðeins að vera á heimilum fólks heldur einnig á öll­ um leikskólum og grunnskólum svo börnin læri strax á unga aldri að end­ urvinna, að við borgum fyrir neysl­ una og að í ruslinu felist verðmæti. 26 | Umræða 5.–7. ágúst 2011 Helgarblað tryggvagötu 11, 101 reykjavík Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is Fréttastjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is Umsjón innblaðs: Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is DV á netinu: dv.is Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010, Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050. Smáauglýsingar: 512 7004. Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. verðmætin í ruslinu Leiðari Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar. Bókstaflega Stríð Ögmundar n Ekkert lát er á stríðsátökum Ög- mundar Jónassonar innanríkisráð­ herra og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra innan Vinstri­ grænna. Hermt er að ískuldi ríki á milli þeirra þótt sólin nái stöku sinnum að brjótast fram. Stærstu átökin milli þeirra nú um stundir eru um nýtt fangelsi sem Ögmundur vill ólmur byggja. Steingrímur er aftur á móti á þeirri línu að nota húsakost sem er til staðar eins og í Víðinesi. Einhverjir spá því að lokauppgjör milli turn­ anna tveggja sé óumflýjanlegt. Þar sé aðeins spurning um kjark Ög­ mundar til að taka formannsslag. Bjarna Ben hótað n Hatursvefurinn amx.is sendi Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálf­ stæðisflokksins, viðvörun á dög­ unum í gegn­ um svokallað fuglahvísl, sem fullyrt er að Björn Bjarnason, frændi Bjarna, skrifi ásamt fleirum. Þar er velt upp þeim möguleika að formaðurinn fái mótframboð í haust. Það velti þó á því hversu skýr Bjarni verði í and­ stöðu sinni við ESB eða hvort „ískalt hagsmunamat“ verði látið ráða för og gengið þannig gegn landsfundi. Í lokin kemur hótunin um að ef ná­ hirðin ráði ekki verði stofnaður nýr flokkur á hægri vængnum og þá lík­ lega undir forsæti Davíðs Oddssonar. Dylgjur Eiríks n Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófesor lenti í klóm þess alræmda blaðamanns Pressunnar, Eiríks Jóns- sonar, á dögun­ um. Tilefnið var Hinsegin dagar. Vildi Eiríkur fá að vita hvort Hannes ætlaði að mæta í Gay Pride­gönguna. Tilgangurinn var augljóslega sá að koma höggi á prófessorinn með dylgjuskrifum. Viðbrögðin létu enda ekki standa á sér í athugasemdum við umfjöllunina. Einhverjir rifjuðu upp feril Eiríks í fjölmiðlum sem þeir töldu vera nálægt botninum. Atli horfinn n Órólegi þingmaðurinn Atli Gísla- son hefur verið sem týndur og tröll­ um gefinn frá því hann kom Geir H. Haarde, fyrrver­ andi forsætis­ ráðherra, fyrir landsdóm. Atli sagði sig úr þing­ flokki VG ásamt Lilju Mósesdóttur og Ásmundi Daða Einarssyni. Síðan hefur ekkert af honum heyrst opinberlega. Ein­ hverjir telja að hann sé um það bil orðinn fráhverfur þingmennsku. Sandkorn B yggðastofnun er á meðal merkari fyrirbæra Íslandssög­ unnar. Þar er gjarnan flækju­ stig langt yfir því sem þekk­ ist. Boðleiðir hafa verið langar og algengt er að stofnunin vinni gegn byggð og mætti því gjarnan heita óbyggðastofnun. Þ etta sést glöggt ef litið er til þess litla þorps Flateyrar á Vestfjörðum. Þar varð það áfall að kvóti var seldur með þeim afleiðingum að hjól atvinnu­ lífsins hættu að snúast. Fólkið hafði ekki vinnu. Þá kom eðlilega til kasta Byggðastofnunar sem náði að koma að málum með flækjustigi sínu. Fyr­ irtækinu Lotnu voru fengnir lyklar að vinnsluhúsum og því afhentur bátur til veiða. Kaupsamningur var undir­ ritaður. Nokkrum mánuðum seinna komst flækjufótur Byggðastofnunar að því að rangir menn hefðu hreppt gæðin. Það var því hafist handa við að semja við fyrirtækið Toppfisk. En þá kom babb í bátinn. Lotnumenn neituðu að skila bátum og húsakosti og héldu fast um lyklana. Þannig er þetta ennþá nema að Toppfiskur er hættur við að hefja vinnslu. E n mál eru ekki alltaf svona flók­ in hjá Byggðastofnun. Þar inn­ an dyra er sem grár köttur gam­ all ráðherra, Sturla Böðvars son, sem situr í stjórn. Sturla hefur innleitt splunkunýja starfshætti. Í stað þess að vera stöðugt að semja við óskyld­ an aðila hefur hann ákveðið að vera báðum megin við borðið og einfalda allt. Sturla var gerður að stjórnarfor­ manni ævintýrafyrirtækisins sem er að stofnsetja ökugerði í hrauninu á Reykjanesi. Sturla stjórnarformað­ ur samdi síðan við Sturlu stjórnar­ mann í Byggðastofnun um 200 milljóna króna lán í þágu þess verkefnis að efla byggð í hrauninu. Þarna eru engin vanda­ mál eins og gerist á Flat­ eyri þar sem þrír þurfa að semja. Ökugerðið í hrauninu rís með ógnarhraða og þar er enginn vafi á því hver fer með lyklavöld og stýrir lánveitingum og lántökum. Þ essi einföldun verkferla hjá Byggðastofnun er hluti af stóru verkefni sem innan­ dyra kallast „Sturlun Byggða­ stofnunar“. Þetta snýst í stuttu máli um að hafa alla samningagerð sem einfaldasta og útrýma sem kostur er flækjustiginu. Pattstaða eins og á Flateyri mun aldrei aftur koma upp þegar stjórnir stofnunarinn­ ar og viðskiptavina hafa verið sam­ þættar eins og gerðist með ökugerð­ ið í eyðihrauninu. Aðgerðin Sturlun Byggðastofnunar er til fyrirmyndar og eftirbreytni fyrir allar opinberar stofnanir. opinber sturlun Svarthöfði „Við erum mjög svipuð. Ég fékk bæði kostina og gallana.“ n Gréta Morthens, dóttir Bubba, segist lík karli föður sínum. – DV „Þetta er fyrir neðan allar hellur. Það eru of margir leik- menn sem þurfa að fara að hugsa sinn gang.“ n Ólafur Þórðarson var brjálaður út í Fylkismennina sína sem töpuðu 1–3 gegn íBv í Pepsi-deildinni. – fotbolti.net „Nú erum við bara á leiðinni í sjón- varpið og ég er með aflitað hár og allir halda að ég sé orðinn geðveikur.“ n rapparinn og grínarinn Dóri DNA þurfti að aflita á sér hárið fyrir sjónvarps- þátt Mið-íslands. – Fréttablaðið „Sævar Ciesielski var meiri maður en flestir þeir sem hreykja sér hærra.“ n Fræðimaðurinn og stjórnlagaráðsmeð- limurinn Illugi Jökulsson bar vin sinn Sævar Ciesielski til grafar og sagði hann ódeigan baráttumann fyrir réttlæti. – Bloggsíða Illuga á Eyjunni N ú er lokið hinni árlegu eld­ messu Eyjamanna, þar sem Árni Johnsen fær óáreittur að nauðga eyrum sukkaðra samkomugesta. Og þrátt fyrir að Árni sé (í þetta skiptið) ekki kærð­ ur fyrir spjöll sín, berast lögreglu alltaf kærur frá konum sem vilja meina að þeim hafi verið nauðgað. Þessar konur eiga það þó sameigin­ legt með flestum öðrum íslenskum konum, í svipuðum sporum, að mál þeirra verða látin niður falla. En ef heppni stýrir því svo, að karlpungar fái dóm, mega konurnar þó vart eiga von á bótum. Ja, ekki nema þær státi af þeirri lukku að hafa verið nauðg­ að af guðsmanni; þá hleypur þjóð­ kirkjan til og borgar fyrir dráttinn. Fórnarlömb óréttlætis eiga það sameiginlegt að gerandinn er sá sem fær fullnægingu illkvittni sinn­ ar. Og svo kemur að því að bolurinn metur rétt og rangt. En þá fyrst fara málin að verða óskýr, því heimskan hefur völdin. Síðustu dagana hef ég lesið á net­ inu orð fólks sem hefur sagt sem svo, að við Íslendingar gætum losnað við alla hvítflibbaglæpi og yfirstéttar­ misrétti ef við værum svo lánsöm að eiga svo hugdjarfan starfsmann dómstóls götunar, einsog Norð­ menn státa af. Breiðavíkurdrengur­ inn norski, sem í níu ár, skipulagði ódæði sitt, nýtur í dag meðaumk­ unar vegna þess að hann er líklega skápahommi, tölvuleikjafíkill og hefur aldrei kynnst föður sínum. Við eigum semsagt boðbera ranglætis sem lofa níðingsverk, á þeirri forsendu, að farga beri þeim sem fegurðinni spilla. Ég sé fyrir mér krúnurökuð illmenni, sverjandi nýnasisma hollustu sína. Og við­ bjóðurinn vex í skjóli heimsku, hé­ góma, þjóðrembu og einstaklings­ upphefðar. Ýmsum mannanna verkum verð­ ur aldrei lýst með viðeigandi hætti. Þau eru á svo háu eða svo lágu plani að orð og hugsun ná ekki að dekka. Oftast er hryllingurinn byggður á hreinni og tærri græðgi, aumum ótta eða fullkominni vanþekkingu. Ótti við aðrar þjóðir, ótti við yfirvald í formi trúarskoðana, ótti við að einstaklingurinn verði undir í stríð­ inu við fjöldann, óttinn við að við­ urkenna heimsku sína. Menn óttast jöfnuðinn, útlendingana, múslim­ ana; framkvæmdavaldið, löggjafar­ valdið, dómsvaldið, fjölmiðlavaldið og peningavaldið. En innst inni vita sköllóttar fjallkonur allra þjóða, að það er sama hvernig við óttumst í þágu óttans; einn góðan veðurdag átta íbúar Jarðarinnar sig á því, að við erum öll, ein og sama þjóðin. Óttinn brýnir öll sín tól, hans ógn er slæmt að mæta en vonin getur veitt þeim skjól sem vilja heiminn bæta. Skáldið skrifar Kristján Hreinsson Sköllótta fjallkonan „Fórnarlömb órétt- lætis eiga það sameiginlegt að gerand- inn er sá sem fær full- nægingu illkvittni sinnar. „Matvælum er fleygt á framleiðslustigi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.