Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2011, Side 46
Drottnun Red
Bull lokið
46 | Sport 5.–7. ágúst 2011 Helgarblað
Það var Jenson Button á
McLaren sem kom fyrstur í
mark í Ungverjalandskapp-
akstrinum síðastliðinn sunnu-
dag og vann þar sína aðra
keppni á árinu. Liðsfélagi
hans, Lewis Hamilton, var með
keppnina algjörlega í hendi sér
en gerði þau mistök að fara á
röng dekk á röngum tíma og
komst ekki einu sinni á verð-
launapall. Sigur Buttons var þó
jákvæður fyrir McLaren sem
hefur nú unnið tvær af síðustu
þremur keppnum í Formúl-
unni. Þar áður vann Fernando
Alonso á Ferrari Bretlands-
kappaksturinn sem segir okkur
eitt: Red Bull hefur ekki unnið
mót í þremur tilraunum! Hvers
vegna er það merkilegt? Jú,
því fyrir síðustu þrjár keppnir
hafði Red Bull og þá Sebasti-
an Vettel einsamall unnið sex
af fyrstu átta mótum ársins.
Einokun Red Bull-manna var
ótrúleg í upphafi móts og þó
henni sé loksins lokið virðist
það vera of seint fyrir hin lið-
in. Forskotið er einfaldlega of
mikið.
Öruggur á toppnum
Sebastian Vettel endaði í öðru
sæti í Ungverjalandi um síð-
ustu helgi og þar sem hann hélt
Alonso, Hamilton og Webber
fyrir aftan sig jók hann forskot
sitt í stigakeppni ökumanna
upp í áttatíu og þrjú stig. Vissu-
lega gefur sigur í dag 25 stig
en 83 stiga forysta er gríðar-
lega mikið, sérstaklega þar sem
Vettel er alltaf á meðal fremstu
manna þó hann hafi ekki unnið
síðustu þrjár keppnir. Til þess
að komast fram úr Vettel þyrfti
næsti maður í stigamótinu,
Mark Webber liðsfélagi hans
hjá Red Bull, að vinna þrjár
keppnir í röð og enda ofar en
í 5. sæti í einni keppni á sama
tíma og Vettel myndi ekki ná
stigasæti í öllum þessum fjór-
um mótum. Það er einfaldlega
ekki að fara að gerast.
Í keppnunum fimm sem
Vettel hefur ekki tekist að vinna
hefur hann fjórum sinnum ver-
ið í öðru sæti og einu sinni í því
fjórða. Það var því miður fyrir
hann á heimavelli í Þýskalandi.
Á meðan Vettel er að salla inn
stigunum, sérstaklega á með-
an hann heldur sér á verð-
launapalli, verður ógerlegt að
ná honum þar sem hinir kepp-
endurnir munu væntanlega
skipta sigrunum nokkuð bróð-
urlega á milli sín. Hamilton er
búinn að vinna tvívegis, Button
einnig tvær keppnir og Alonso
einu sinni. Á meðan þeir reyta
stig hver af öðrum hjálpar það
Vettel mikið. Er þetta afskap-
lega svipað og mótið 2009 þeg-
ar Jenson Button, þá á Brawn
GP, vann fyrstu sex mót ársins
og landaði þannig heimsmeist-
aratitlinum þrátt fyrir að vinna
ekki eitt mót til viðbótar.
„Verðum að líta á okkur
sjálfa“
„Það er sanngjarnt að segja að
í síðustu keppnum hafi Ferrari
og McLaren bætt hraða sinn
mikið,“ sagði Vettel eftir keppn-
ina í Þýskalandi en hann hefur
allt tímabilið ekki viljað gera of
mikið úr yfirburðum sínum og
Red Bull. Hefur hann krafist
þess að Red Bull-menn haldi
sig við efnið og bæti í frekar
en að verða saddir á toppnum.
Þessi yngsti heimsmeistari sög-
unnar virðist hafa haft nokkuð
fyrir sér þarna og hefðu menn
betur hlustað.
„Við verðum að líta af
hörku í eigin barm. Það er nóg
af hlutum sem við getum lært
og hlutir sem við getum bætt
hjá okkur, án þess að horfa á
keppinautana. Við verðum
að átta okkur á af hverju „við“
erum ekki að gera betur þess-
ar vikurnar. Þegar það eru
svona margar keppnir verð-
ur maður alltaf að vera vel
undirbúinn. Ekki bara í byrj-
un móts. Þetta er langt tíma-
bil og nóg af stigum í boði. Og
að því sögðu, eru auðvitað
átta keppnir eftir og takmark-
ið okkar þar er að vinna. Við
þurfum bara að fara að sækja
sigrana. Við erum enn hungr-
aðir. Þannig er það bara,“ segir
Sebastian Vettel.
Uppsveifla Ferrari og
McLaren
Verkfræðingar McLaren og
Ferrari hafa gert gott mót und-
anfarnar vikur og gert það
ómögulega, að ná hraða Red
Bull. Fernando Alonso hefur
hrósað mönnunum á bak við
bílinn sinn óspart eftir síðustu
keppnir og finnur hann hvern-
ig bilið er alltaf að minnka.
„Þetta hefur tekið þrotlausa
vinnu og við höfum þurft að
vera þolinmóðir. Þetta var erf-
itt í byrjun tímabils en við viss-
um að þetta væri hægt. Það var
svekkjandi að fá ekki meira út
úr keppninni í Ungverjalandi
en ég er núna búinn að vera á
palli fimm af sex síðustu mót-
um. Ég þarf bara að ná inn
fleiri sigrum og svo væri auðvi-
tað fínt ef Vettel myndi aðeins
slaka á svo einhver spenna yrði
í þessu,“ segir Alonso kíminn.
Lewis Hamilton og hans
menn gerðu mistök í Ung-
verjalandi þegar hann skipti á
röng dekk og gaf frá sér örugg-
an sigur. Hann, eins og But-
ton, viðurkennir þó að vinna
tæknimanna McLaren hafi
verið undraverð. „Núna get-
um við alltaf keppt við Red
Bull, ekki bara á einhverjum
ákveðnum brautum. Vettel er
auðvitað í langbestu stöðunni
og græðir alltaf þegar við erum
að vinna mót sitt á hvað. Nú
þurfum við bara fleiri að vera
fyrir ofan hann svo það fari
að dragast saman á milli okk-
ar. Það er okkar að gera þetta
spennandi, ekki hans. Vettel
er frábær ökumaður, ríkjandi
heimsmeistari og á sína stöðu
skilið. En við gleymum þó ekki
að hann fór að gera mistök
undir lok tímabilsins í fyrra og
við munum knýja hann til að
keyra eins hratt og hann getur,“
segir keppnismaðurinn Lewis
Hamilton.
Ekkert óvænt á töflunni
Stigataflan í Formúlu 1 er eins
fyrirsjáanleg og þær gerast. Sex
efstu ökumennirnir aka fyr-
ir þrjú lang, langbestu liðin. Á
eftir þeim koma þeir fjórir sem
aka fyrir Mercedes og Renault,
liðin sem ekki ná þeim bestu en
eru töluvert betri en þau slak-
ari. Svo raða ökumenn 3. klassa
bílanna sér á töfluna en nýlið-
arnir frá í fyrra, Lotus, Virgin
og Hispania, reka lestina. Eng-
inn ökumanna þeirra liða hef-
ur fengið stig. Þar af leiðandi er
stigakeppni bílasmiða einnig
nokkuð óáhugaverð. Red Bull
er með gjörsamlega afgerandi
forystu. McLaren er svo í öðru
sæti með nokkuð gott forskot
á Ferrari þar sem Felipe Massa
hefur ekki fundið sig eftir slysið
í fyrra.
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Formúla 1
n Formúluliðin komin í fjögurra vikna sumarfrí n Vettel og Red Bull með yfirgnæfandi forskot
n Tók of langan tíma fyrir hin liðin að ná Red Bull n Stigataflan fyrirsjáanleg - allir á sínum stað
Langefstir Red Bull-menn
eru efstir á báðum töflum en
þurfa að fara að passa sig.
Vantar fleiri sigra Alonso er að koma sér á pall en verður að landa 25
stigunum ef hann ætlar að brúa bilið.
Gaf frá sér sigurinn í Ungverjalandi Hamilton og hans menn gerðu
mistök sem kostuðu hann sigurinn.
Stigakeppni ökumanna
Ökumaður Lið Stig
1. Sebastian Vettel Red Bull 234
2. Mark Webber Red Bull 149
3. Lewis Hamilton McLaren 146
4. Fernando Alonso Ferrari 145
5. Jenson Button McLaren 134
6. Felipe Massa Ferrari 70
7. Nico Rosberg Mercedes 48
8. Nick Heidfeld Renault 34
9. Vitaly Petrov Renault 32
10. Michael Schumacher Mercedes 32
11. Kamui Kobayashi Sauber 27
12. Adrian Sutil Force India 18
13. Sebastien Buemi Toro Rosso 12
14. Jamie Alguesuari Toro Rosso 10
15. Sergio Perez Sauber 8
16. Paul Di Resta Force India 8
17. Rubens Barrichello Williams 4
Stigakeppni bílasmiða
Lið Stig
1. Red Bull 383
2. McLaren 280
3. Ferrari 215
4. Mercedes 80
5. Renault 66
6. Sauber 35
7. Force India 26
8. Toro Rosso 22
9. Williams 4
10. Lotus 0
11. Hispania 0
12. Virgin 0
Staðan
eftir 11 keppnir af 19