Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 31. október 2011 Mánudagur
V
ogunarsjóður í eigu fjárfest-
ingarfélags Björgólfs Thors
Björgólfssonar, Novators,
hefur fengið greiddar bæt-
ur frá Bandaríkjastjórn út
af fjársvikamáli sem sjóðurinn lenti í
fyrir efnahagshrunið árið 2008. Þetta
segir Ragnhildur Sverrisdóttir, tals-
maður Novators, aðspurð um málið.
„Auk þess hefur Novator-sjóðurinn
fengið greiddar bætur frá ríkisstjórn
Bandaríkjanna vegna málsins,“ segir
Ragnhildur. Hún vill ekki greina frá því
hversu háar bæturnar eru.
Sjóðurinn, sem heitir Novator Cre-
dit Opportunities Fund, fjárfesti fyrir
20 milljónir dollara, tæpa 2,3 milljarða
króna á núvirði, í fjárfestingarsjóði
manns að nafni Marc Dreier. Fjárfest-
ingarsjóðurinn hét Solow Realty. Vog-
unarsjóður Novators er skráður á af-
landseyjunum Cayman.
Síðar kom í ljós að Dreier stundaði
fjársvik og hafði haft um 400 milljónir
dollara af viðskiptavinum sínum. Árið
2009 var Dreier dæmdur í 20 ára fang-
elsi fyrir fjársvikin af dómstól í New
York. „Eins og áður hefur verið skýrt
frá sveik Marc Dreier fé út úr mörg-
um fjárfestingarsjóðum með um-
fangsmikilli sölu á fölsuðum skulda-
bréfum og var dæmdur árið 2009 í 20
ára fangelsi. Einn fjárfestingarsjóða
Novators var meðal þeirra sem urðu
fyrir barðinu á þessum svikum,“ segir
Ragnhildur.
Fjárfestingarfélagið Novator er
ennþá í eigu Björgólfs Thors. Höfuð-
stöðvar Novators eru á Park Lane í
London.
Skiptastjóri Dreiers höfðaði mál
Á vef dómstóls í New York er að finna
dómsskjöl í máli skiptastjóra þrota-
bús Dreiers gegn vogunarsjóði Nova-
tors. Nýjustu dómsskjölin eru frá því í
sumar.
Ragnhildur segir að ástæða þessa
dómsmáls sé sú að skiptastjóri þrota-
bús Dreiers hafi höfðað mál gegn vog-
unarsjóðnum út af endurgreiðslum
sem sjóðurinn hafði fengið frá Dreier.
Þetta mál hefur nú verið fellt niður
að sögn Ragnhildar. „Í kjölfarið hófst
málarekstur í Bandaríkjunum þar sem
skiptastjóri þrotabús Dreiers reyndi að
ná til baka greiðslum sem skuldabréfa-
kaupendur höfðu fengið, ýmist í formi
endurgreiðslu á höfuðstól eða vaxta.
Málið á hendur Novator-sjóðnum hef-
ur nú verið fellt niður með samkomu-
lagi á milli aðila.“ Málaferli vegna fjár-
svikanna, sem tengjast Novator beint,
ættu því að vera úr sögunni.
Samson átti hlut í sjóðnum
Þrotabú móðurfélags Landsbankans,
Samson, á hlut í vogunarsjóði Nova-
tors að sögn Helga Birgissonar, skipta-
stjóra Samsonar. Eins og kunnugt er
áttu Björgólfur Thor og faðir hans,
Björgólfur Guðmundsson, eignar-
haldsfélagið Samson sem var stærsti
hluthafi Landsbankans.
Samson fjárfesti í umræddum vog-
unarsjóði Novators og bíða skiptaráð-
endur Samsonar eftir því að fá greidda
eign sína í vogunarsjóðnum. „Það er
verið að vinna í því að leysa eign Sam-
sonar í sjóðnum upp. Nú er verið að
vinna í því að koma eignum sjóðs-
ins í verð til þess að greiða hluthöfum
sjóðsins út. Við vitum ekki alveg hve-
nær það ætti að klárast og hverju það
skilar.“ Aðspurður segir Helgi að eign
Samsonar í sjóðnum sé metin á fjór-
ar milljónir dollara, um 450 milljónir
króna.
Þrotabú Samsonar ætti því meðal
annars að njóta góðs af bótagreiðsl-
unni frá bandaríska ríkinu út af fjár-
svikamálinu í New York.
n Málaferli þrotabús Marcs Dreier gegn vogunarsjóði Novators úr sög-
unni n Hafði rúma tvo milljarða af Novator n Samson á hlut í sjóðnum„Málið á hendur
Novator-sjóðnum
hefur nú verið fellt niður
með samkomulagi á milli
aðila.
Vogunarsjóði
dæmdar bætur
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
20 ára fangelsi Meðal þeirra sem lentu
í fjársvikaranum var vogunarsjóður í eigu
Novators og Samsonar.
Fær bætur Vogunarsjóður Novators
fær bætur frá bandaríska ríkinu út af
fjársvikum Marcs Dreier. Fjársvikarinn
Dreier hafði 20 milljónir dollara af
vogunarsjóðnum. Björgólfur Thor
Björgólfsson er eigandi Novators.
Ögmundur berjist gegn vændi
F
emínistafélag Íslands hefur
skorað á Ögmund Jónasson
innanríkisráðherra að beita
sér harðar í baráttunni gegn
vændi á Íslandi og veita auknu fjár-
magni í baráttuna. Bendir félagið á
að í Noregi sé barátta gegn vændi
sérstaklega merkt í fjárlögum.
Femínistafélagið fagnar þeirri
líflegu umræðu sem aðgerðir Stóru
systur hafa kveikt. Í fréttatilkynn-
ingu frá félaginu segir: „Stóra systir
hefur leitt okkur fyrir sjónir að eft-
irspurn eftir vændi er gífurleg og
að vændisheimurinn er ekki huld-
ari en svo að auglýsingar blasa við
hverjum þeim sem vill sjá þær í dag-
blöðum og á internetinu. Árið 2009
urðu breytingar á löggjöf okkar sem
gerðu kaup á vændi ólögleg en sölu
þess heimila. Þrátt fyrir þessa fram-
sæknu löggjöf vantar stórlega á
eftir fylgni með lögunum.“
Femínistafélag Íslands bendir á
að í greinagerð með frumvarpinu
kemur fram að það sé „ekki ásætt-
anlegt að líta á mannslíkamann
sem söluvöru“. Gengið sé út frá því
í lögunum að ábyrgðin af viðskipt-
unum hvíli á herðum kaupandans,
eins og segir í tilkynningunni.
Þá segir: „Eins og Stóra syst-
ir bendir á endurspegla lögin vilja
og veita lögreglunni heimildir til
að taka á þeim félagslega harm-
leik sem vændi er. Eftirfylgnin hef-
ur hins vegar ekki verið sem skyldi
og ber lögreglan fyrir sig fjárskorti.
Rannsókn vændismála er í hönd-
um kynferðisafbrotadeildar sem
er verkefnum hlaðin og því þurfa
vændismál að keppa um fjármagn
og tíma við önnur kynferðisbrot
eins og nauðganir og kynferðis-
afbrotamál gegn börnum. Ljóst er
að til að geta sinnt málaflokknum
almennilega þarf að eyrnamerkja
honum fé.“
n Femínistafélag Íslands vill að Ísland fylgi fordæmi Noregs
Ögmundur Jónasson Er hvattur til að berjast enn harðar gegn vændi á Íslandi.
Íslensk umræða:
Ógn við heilbrigt
þjóðfélag
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands,
sagði við hátíðarmessu í Hallgríms-
kirkju á sunnudag að ærumeiðing-
ar og mannorðsmorð væru daglegt
brauð í opinberri umræðu á Íslandi.
Hann sagði opinbera umræðu vera á
villigötum. Upphrópanir og sleggju-
dóma bæri hæst, enda væri það sem
seldi best og næði að hrífa athygli
fjöldans.
„Einatt hafa sleggjudómarnir og
upphrópanirnar tekið yfir, það er
gömul saga og ný. Ærumeiðingar og
mannorðsmorð eru daglegt brauð í
opinberri orðræðu á Íslandi. Í orð-
ræðu fjölmiðla og bloggheima. Og
þetta er alvarlegt samfélagsmein og
ógnun við grundvöll heilbrigðs þjóð-
félags. Af hverju þarf þetta að vera
svona?“ spurði biskupinn en nefndi
ekki sértæk dæmi máli sínu til stuðn-
ings.
Karl hefur sjálfur verið harðlega
gagnrýndur fyrir framgöngu sína
í málum tengdum Ólafi Skúlasyni
biskupi og ásökunum Sigrúnar Pál-
ínu Ingvarsdóttur, Guðrúnar Ebbu
Ólafsdóttur og fleiri kvenna um að
Ólafur hafi beitt þær kynferðisof-
beldi. Karl hefur verið mikið í um-
ræðunni fyrir að hafa brugðist kon-
unum og meðal annars fyrir að hafa
stungið bréfi Guðrúnar Ebbu ofan í
skúffu og ekki tekið það til umfjöll-
unar fyrr en eftir að DV greindi frá
bréfi hennar í fyrra. Hann hefur ekki
veitt fjölmiðlum viðtöl í kjölfar útgáfu
bókar Guðrúnar Ebbu, þar sem hún
segir frá kynferðisofbeldi sem hún
varð fyrir af hálfu föður síns.
Í könnun á DV.is, er spurt hvort
fólk telji að orðræðan í fjölmiðlum og
bloggi sé ógn við grundvöll heilbrigðs
þjóðfélags. Á sunnudagskvöld höfðu
66 prósent lesenda svarað þeirri
spurningu neitandi og lýst sig þar
með ósammála orðum biskupsins.
Afi flæktur
fíkniefnamál
Fyrr í þessum mánuði var íslenskur
karlmaður á sextugsaldri, sem er ný-
orðinn afi, handtekinn og úrskurð-
aður í gæsluvarðhald vegna gruns um
aðild að langstærsta fíkniefnamáli
sem komið hefur upp hér á landi á
árinu. Vakti það athygli lögreglunnar
að maðurinn hefur aldrei komið við
sögu lögreglu áður, en það er óvenju-
legt í svo stórum málum. Fréttastofa
Stöðvar 2 greindi frá málinu á sunnu-
dagskvöld.
Maðurinn er starfsmaður heild-
sölufyrirtækis á höfuðborgarsvæðinu,
en í byrjun október kom til landsins
sending með gámaskipi frá Hollandi
sem innihélt tugi kílóa af fíkniefnum,
stíluð á fyrirtækið. Í sendingunni var
meðal annars; kókaín, amfetamín,
sterar og e-pillur.
Umræddur afi var þó ekki talinn
höfuðpaur málsins, en böndin beind-
ust fljótlega að karlmanni á fimmtugs-
aldri sem búsettur er á Spáni og hefur
hlotið dóma fyrir fíkniefnainnflutning.
Var hann handekinn á Keflavíkurflug-
velli aðfaranótt sunnudags og einnig
úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Rannsókn lögreglu vegna málsins
mun vera mjög umfangsmikil.