Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2011, Qupperneq 8
8 | Fréttir 31. október 2011 Mánudagur
Þorsteinn Húnbogason dæmdur:
Sekt eða
fangelsi
Þorsteinn Húnbogason var á föstu
dag dæmdur sekur um að hafa
komið fyrir ökurita í bifreið sem
Siv Friðleifsdóttir, alþingismaður
og fyrrverandi sambýliskona hans,
hafði til umráða og þannig fylgst
með ferðum hennar. Var hann
dæmdur til að greiða sekt upp á 270
þúsund krónur vegna málsins en
verði hún ekki greidd innan fjögurra
vikna sæti hann fangelsi í 20 daga.
Grunsemdir Sivjar vöknuðu þeg
ar Þorsteinn virtist vita allt um ferðir
hennar auk þess sem hann kom
reglulega á sömu staði og hún. Hún
lét því verkstæði skoða bílinn og við
leit fannst ökuritinn. Siv kærði málið
til lögreglu sem hóf rannsókn og var
í kjölfarið gefin út ákæra á hendur
Þorsteini í sumar.
Þorsteinn var ákærður sam
kvæmt IX. kafla fjarskiptalaga (vernd
persónuupplýsinga og friðhelgi
einkalífs). Rafræn vöktun með öku
rita án samþykkis og vitundar þess
sem sætir eftirliti getur varðað allt að
tveggja ára fangelsi, samkvæmt fjar
skiptalögum.
Ríkissaksóknari sagðist aðspurð
ur í samtali við fjölmiðla ekkert hafa
út á dóminn að setja. Í ljósi þess má
ólíklegt teljast að dómnum verði
áfrýjað af hálfu embættisins. Hvorki
Þorsteinn né Siv voru viðstödd
dómsuppkvaðningu, en Þorsteinn
mun vera á rjúpnaveiðum, enda
fyrsti rjúpnaveiðidagurinn í dag.
G
unnar Þorláksson bygging
armeistari, annar eigenda
eignarhaldsfélagsins CDG
sem áður hét Bygg Invest,
býr í stórglæsilegu húsi að
Hólmaþingi 9 í Kópavogi, þrátt fyrir
58 milljarða gjaldþrot tveggja fyrir
tækja sem honum tengdust. Sam
kvæmt heimildum DV var bygging
arkostnaður hússins um 250 til 300
milljónir króna. Samkvæmt fast
eignamati er brunabótamatið á hús
inu 136.050.000 krónur.
Gunnar er annar af eigendum
verktakafyrirtækisins Byggs, ásamt
Gylfa Héðinssyni, og hefur hann ára
tugalanga reynslu úr verktakabrans
anum. Fyrirtækin tvö sem skilja eftir
sig samtals 58 milljarða króna skuld
ir, eru áðurnefnt CDG ehf. og Sax
bygg Invest. Fyrirtækin voru stórtæk
á hlutabréfamarkaði á Íslandi fyrir
efnahagshrunið árið 2008. Þrátt fyrir
að Bygg hafi verið í ábyrgðum vegna
skulda félaganna tveggja heldur verk
takafyrirtækið milljarða króna fast
eignum, meðal annars í Borgartúni.
Þar fyrir utan halda eigendur Byggs
verðmætum, persónulegum eignum
eins og húsinu í Hólmaþingi.
Sundlaug og koníaksstofa
Húsið er teiknað af Rýma arkitektum
og er um 500 fermetrar. Í turni húss
ins er 25 fermetra koníaksstofa með
kamínu. Eldhúsið sjáft er um 40 fer
metrar og 25 metra sundlaug er á
neðstu hæðinni. Við sundlaugina er
glerveggur sem má opna á góðviðris
dögum. Hvergi er til sparað og er allt
útlit og innréttingar hússins sérhann
að á glæsilegan hátt. Lóðin við húsið
er einnig afar stór og glæsileg með út
sýni yfir Elliðavatn.
Halda verðmætum eignum
Þrátt fyrir gjaldþrot CDG halda Gunn
ar og Gylfi eftir afar verðmætum eign
um hér og þar um borgina í gegnum
móðurfélag CDG, Byggingar félag
Gunnars og Gylfa hf. Meðal þess
ara eigna eru Borgartún 27, höfuð
stöðvar Icelandic Group, Capacent og
KPMG, en húsið er metið á rúmlega
1.300 milljónir króna, Borgartún 31
og Skógarhlíð 12, þar sem er að finna
höfuðstöðvar endurskoðendaskrif
stofunnar Price waterhouseCoopers
á Íslandi. Áætlað heildarverðmæti
þeirra fasteigna sem Bygg heldur eftir
er um 4,4 milljarðar króna samkvæmt
ársreikningi félagsins fyrir árið 2009.
Breytingar á eignarhaldi
Á móti hefur Bygg misst umtals
vert magn eigna, meðal annars fast
eignir á Bíldshöfða, í Mörkinni og á
Skúlagötu. Eignirnar sem eigendur
Bygg hefur misst eru hins vegar ekki
eins verðmætar og þær eignir sem
félagið heldur eftir, til dæmis um
ræddar eignir í Borgartúni. Svo virð
ist, samkvæmt þessu, sem breytingar
á eignarhaldi fasteignanna séu liður í
skuldauppgjöri Gunnars og Gylfa við
lánardrottna fyrirtækja sinna.
n Fær að halda rúmlega 100 milljóna einbýlishúsi þrátt fyrir gjaldþrot n Eitt glæsilegasta
hús landsins með 25 metra sundlaug innandyra n Gjaldþrot CDG nemur 58 milljörðum króna„ Í turni hússins er
25 fermetra kon
íaksstofa með kamínu,
eldhúsið sjáft er um 40 fer
metrar og 25 metra sund
laug er á neðstu hæðinni.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Íburður Gunnar Þorláksson
býr í rúmlega 100 milljóna króna
húsi, þrátt fyrir gjaldþrot upp á
tugi milljarða. MynD SiGtryGGur ari
Rothögg og hnífstunga
L
ögregla leysti á föstudags
kvöldið upp unglingapartí sem
fór úr böndunum í Mosfellsbæ
. Samkvæmt heimildum DV
var um að ræða samkvæmi þar sem
unglingar á aldrinum 16–17 ára
komu saman. Málsatvik voru þau að
unglingsstúlka sem hélt partíið fékk
þrjá óboðna gesti, tvo pilta og eina
stúlku, og leist gestgjafanum ekki
á blikuna. Að sögn varðstjóra lög
reglunnar í Mosfellsbæ voru þessir
óboðnu gestir meðal annars farn
ir að neyta fíkniefna og því leitaði
stúlkan til bróður síns til að fá að
stoð við að koma þeim óboðnu í
burtu. Bróðirinn kom aðvífandi
með fjóra vini sína með sér. Reyndu
þeir að ná tökum á samkvæminu en
það gekk ekki betur en svo að slags
mál brutust út og var einn gestanna
sleginn með steikarpönnu í höfuðið
og rotaðist. Þá var einn af þeim sem
komu til að leysa upp partíið stung
inn í hálsinn með hníf. Þrátt fyrir
alvarleika málsins munu áverkarn
ir þó ekki vera hættulegir að sögn
Karls Hjartarsonar, varðstjóra hjá
lögreglunni í Mosfellsbæ. Farið var
með manninn sem varð fyrir hníf
stungunni á slysadeild Landspít
alans og eftir að gert var að sárum
hans var honum leyft að fara heim.
Ofbeldismennirnir reyndu að flýja
af vettvangi en lögregla hafði hend
ur í hári þeirra skömmu síðar. Fengu
þau að gista fangageymslur. Karl
segir það vera óvenjulegt að slík mál
komi upp í Mosfellsbæ, almennt
sé rólegra yfir bænum en að aldrei
skyldi þó segja aldrei.
astasigrun@dv.is
n Sleginn með steikarpönnu í höfðuðið
Lifir hátt þrátt
fyrir gjaLdþrot
Samkvæmið fór úr böndunum Unglingar á aldrinum 16–17 ára réðu ekkert við veisluhöldin.
Bjuggu til
vopn úr sófa
Kalla þurfti til lögreglu til aðstoð
ar starfsfólki á meðferðarheimilinu
Stuðlum á laugardagskvöld þar sem
starfsfólk náði ekki tökum á slagsmál
um sem brutust út milli þriggja ung
linga sem þar eru vistaðir. Of margir
unglingar voru vistaðir á heimilinu
miðað við fjölda starfsmanna þar sem
eitt af ungmennunum sem struku frá
meðferðarheimilinu í Háholti er nú í
neyðarvistun á Stuðlum. Unglingarnir
munu hafa stolið lyklum og ákveð
ið að strjúka. Starfsmenn reyndu að
stöðva þá en þá tóku unglingarnir í
sundur sófa og bjuggu sér til vopn úr
honum. Því var haft samband við lög
reglu sem kom á vettvang. Í kjölfarið
voru unglingarnir handteknir og áttu
að fara aftur á Stuðla á sunnudags
kvöld. Þeir eru fimmtán og sextán ára.
Milljarðatekjur
af gjaldtöku
Ólína Þórðardóttir, þingkona
Samfylkingarinnar, vill að tekið
verið upp gjald fyrir makrílveið
ar á Íslandsmiðum. Ríkissjóður
verði af 9 milljörðum króna á
ári verði gjaldið ekki sett á. RÚV
greinir frá því að Jón Bjarnason
sjávarútvegsráðherra hafi ekki
útilokað að löggjöfinni verði
breytt til þess að heimila gjald
töku af makrílveiðum.
Einar K. Guðfinnsson, þing
maður Sjálfstæðisflokksins og
fyrrverandi sjávarútvegsráðherra,
segir hins vegar að besta leiðin sé
að stunda arðbærar veiðar. Bein
gjaldtaka sé ekki hluti af því.
Gunnar Lifir hátt þrátt fyrir tugmilljarða
gjaldþrot sem hann tengist.