Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 31. október 2011 Mánudagur
M
ario Fulgoni, fyrrverandi
forstjóri breska flug-
félagsins Astraeus, lenti
í því eftir að hann lét af
störfum hjá Astraeus að
fylgst var með farsímanotkun hans
og tölvupóstur hans skoðaður sam-
kvæmt heimildum DV. Astraeus
er í eigu Pálma Haraldssonar, eig-
anda ferðaskrifstofunnar Iceland
Express, og á farþegaþoturnar sem
notaðar eru í áætlunarflugi Iceland
Express til og frá Íslandi. Heimildir
DV herma að Fulgoni ætli sér að
hefja flugtengdan rekstur með tíð
og tíma.
Fulgoni hætti hjá félaginu um
mánaðamótin ágúst-septem-
ber eftir að hafa sagt upp störfum
nokkru áður. Hann er á uppsagnar-
fresti hjá Astraeus en stýrir því ekki
út uppsagnarfrestinn. Fyrrverandi
forstjóri Astraeus, Hugh Parry,
sem Fulgoni tók við starfinu af árið
2008, er sestur aftur í forstjórastól
félagsins.
Taldi Astraeus þurfa nýjan
forstjóra
Aðspurður um starfslok sín hjá
Astraeus sagði Fulgoni, í samtali
við DV í lok ágúst, að það hefði ver-
ið hans mat að Astraeus þyrfti nýj-
an forstjóra til að vinna að sam-
þættingu í rekstri Iceland Express
og Astraeus. „Iceland Express er
fyrir tæki sem hefur stækkað mik-
ið á skömmum tíma. Líkt og gildir
yfirleitt um fyrirtæki sem stækka
mikið á skömmum tíma koma upp
erfiðleikar í rekstrinum sem þarf að
lagfæra. Með stækkun Iceland Ex-
press liggur fyrir að Astraeus þarf
að vinna enn nánar með Iceland
Express og styrkja félagið. Mikil-
vægi annars reksturs Astraeus,
leiga á flugvélum til annarra aðila,
hefur minnkað vegna þessa. Ég út-
skýrði það því fyrir eigendum flug-
félagsins fyrir nokkru að þeir þyrftu
forstjóra sem hentaði betur til að
vinna að þessari samþættingu á
milli Iceland Express og Astraeus,“
sagði Fulgoni.
Ber við trúnaði
Mario Fulgoni segist, aðspurður í
símtali frá Bretlandi, ekki getað tjáð
sig um hvort eigandi og stjórnendur
Iceland Express hafi fylgst með far-
síma- og tölvupóstnotkun hans þar
sem hann sé bundinn trúnaði gagn-
vart félaginu. Líkt og áður segir
þiggur hann ennþá laun frá Astra-
eus og mun gera það út uppsagn-
arfrest sinn. „Ég get ekki tjáð mig
um neitt slíkt þar sem ég er bund-
inn trúnaði gagnvart fyrirtækinu
og verð að gæta að því sem ég segi,“
segir Fulgoni.
Hann getur því ekki staðfest þær
frásagnir sem DV hafa borist af eftir-
liti með honum en heimildirnar fyr-
ir því eru traustar. Eftirlitið með Ful-
goni byggir á því að þar sem hann
ætli sér í flugtengdan rekstur kunni
hann að notfæra sér þær upplýs-
ingar sem hann býr yfir um rekstur
Astraeus og geti þar af leiðandi spillt
fyrir hagsmunum flugfélagsins.
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
framkvæmdastjóri Fengs, móður-
félags Iceland Express og Astraeus,
segir að það sé af og frá að fylgst hafi
verið með farsímanotkun og tölvu-
póstsamskiptum Fulgonis. „Þetta
er þvæla,“ segir Skarphéðinn Berg.
Hann segir að við starfslok Fulgon-
is hafi hann hætt að nota farsíma frá
Astraeus og eins hætt að nota tölvu-
póstfang sitt hjá fyrirtækinu.
Beðið um lögbann
Líkt og kom fram í Fréttablaðinu í
síðustu viku hefur Iceland Express
farið fram á að sýslumaðurinn í
Reykjavík setji lögbann á að Matt-
hías Imsland, fyrrverandi forstjóri
Iceland Express, notfæri sér upp-
lýsingar upp sem hann býr yfir um
rekstur Iceland Express. Ástæðan
er sú að Matthías er einn af eig-
endum nýs íslensks lággjaldaflug-
félags, WOW Air, sem verið er að
stofna. Aðaleigandi WOW Air verð-
ur fjárfestirinn Skúli Mogensen,
sem gjarnan er kenndur við hug-
búnaðarfyrirtækið Oz.
Viðurkenndu eftirlit
Í lögbannskröfunni frá Iceland Ex-
press, sem lögmaðurinn Sigurð-
ur G. Guðjónsson skrifaði, kemur
fram að krafa ferðaskrifstofunnar
byggi meðal annars á upplýsing-
um úr vinnufarsíma Matthíasar þar
sem fram komi að forstjórinn fyrr-
verandi hafi hringt í starfsmenn Ice-
land Express og boðið þeim starf á
nýjum vettvangi. Þar segir einnig að
Matthías hafi verið í sambandi við
viðskiptavini Iceland Express hér-
lendis og erlendis.
Orðrétt segir Sigurður G. um
þetta atriði í lögbannsbeiðninni:
„Þá hefur komið í ljós, eftir að gerð-
arbeiðandi fékk útskrift á gsm-síma
þeim, sem hann leyfði gerðarþola
að halda og greiðir af, að gerðarþoli
hefur verið í miklu sambandi við
viðskiptavini gerðarbeiðanda hér á
landi, í Danmörku, Svíþjóð, Þýska-
landi og Frakklandi. Með beiðni
þessari fylgir útskrift allra þeirra
númera sem gerðarþoli hefur hringt
í í október. Símanúmer innlendra
ferðaþjónustuaðila eru merkt með
bláum lit, erlendra með gulum og
starfsmanna með bleikum.“ Iceland
Express telur því að félagið hafi haft
rétt á því að skoða farsímanotkun
Matthíasar þar sem hann hafi með
hegðun sinni brotið gegn ferða-
skrifstofunni og trúnaðarákvæðum
í starfsamningi sínum.
Lögmaður Matthíasar Imsland,
Jóhannes Árnason, segir að til skoð-
unar sé hvort skoðun Iceland Ex-
press á farsímanotkun Matthíasar
verði kærð til Persónuverndar. Í
febrúar í fyrra var útgefandi Morg-
unblaðsins, Óskar Magnússon, úr-
skurðaður brotlegur við persónu-
verndarlög í sambærilegu máli
þegar hann skoðaði tölvupóst Jó-
hanns Bjarna Kolbeinssonar, þá-
verandi blaðamanns Morgunblaðs-
ins, án þess að fá leyfi hjá honum til
þess.
Fylgst með tveimur forstjórum
Svo virðist því sem eigandi og stjórn-
endur Iceland Express og Astraeus
hafi bæði fylgst með farsímanotk-
un fyrrverandi forstjóra Iceland Ex-
press sem og Astraeus en báðir ætla
þeir sér að hefja flugtengdan rekst-
ur á mörkuðum þar sem fyrirtækja-
samsteypa Pálma Haraldssonar er í
rekstri. Óhætt er því að segja að mikil
átök eigi sér stað um þessar mundir
í flug- og ferðaskrifstofusamstæðu
Pálma.
Nýtt íslenskt lággjaldaflugfélag,
sem er vel rekið og fjárhagslega
sterkt, getur hugsanlega skemmt
heilmikið fyrir markaðsstöðu Ice-
land Express. Í því markaðsstríði sem
slík samkeppni á milli Iceland Ex-
press og WOW Air gæti búið til getur
þekking og reynsla Matthíasar Ims-
land af rekstri Iceland Express skipt
miklu máli. Minna er vitað um hvað
Mario Fulgoni ætlast fyrir og hvers
konar flugtengdan rekstur hann
hyggst fara út í.
Þá liggur fyrir að fjárhagsstaða
Iceland Express er ekki mjög burðug
um þessar mundir og hefur Pálmi
Haraldsson þurft að láta móðurfélag
ferðaskrifstofunnar, Feng, lána um
milljarð króna inn í fyrirtækið til að
bæta lausafjárstöðu þess. Þetta kom
fram í Fréttablaðinu á fimmtudag-
inn. Í blaðinu kom einnig fram að
áætlað tap Iceland Express væri um
800 milljónir króna á árinu. Umræð-
an um brotthvarf Matthíasar Ims-
land frá ferðaskrifstofunni mun
ekki verða til þess að bæta orðspor
fyrirtækisins og mun þar af leið-
andi ekki koma sér vel fyrir rekstr-
arstöðu þess.
Sími og póstur for-
stjórans skoðaður
n Eftirlit með Matthíasi Imsland og Mario Fulgoni n Ætla báðir í flugtengdan
rekstur n Fyrrverandi forstjórar í fyrirtækjum Pálma Haraldssonar
„Ég get ekki tjáð
mig um neitt slíkt
þar sem ég er bundinn
trúnaði gagnvart fyrir-
tækinu.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Ber við trúnaði Mario Fulgoni ber við
trúnaði þegar hann er spurður að því hvort
stjórnendur Astraeus hafi fylgst með
farsíma- og tölvupóstsamskiptum hans.
Íhuga að kæra Lögmaður Matthíasar
Imsland segir að til skoðunar sé hvort
eftirlit stjórnenda Iceland Express með
farsíma forstjórans fyrrverandi verði kært til
Persónuverndar.
Átök innan fyrirtækja Pálma
Svo virðist sem bæði hafi verið
fylgst með farsíma og tölvupósti
Matthíasar Imsland sem og Marios
Fulgoni, fyrrverandi forstjóra
Astraeus, eftir að þeir létu af
störfum hjá fyrirtækjunum. Pálmi
Haraldsson er eigandi Iceland
Express og Astraeus.