Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2011, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.2011, Qupperneq 22
22 | Fólk 31. október 2011 Mánudagur Bubbi kemur Ásdísi Rán til varnar Barnalandskonur fóru mikinn í síðustu viku þegar mynd- band af opnun verslunar Ás- dísar Ránar í Búlgaríu barst á netið. Ásdís svaraði gagnrýni á sig í viðtali við DV.is þar sem hún sagði meðal annars að fólk mætti kalla hana það sem því lysti, hún væri hamingju- söm enda hefði hún náð langt í sínum bransa. Nú hefur Bubbi Morthens blandað sér í um- ræðuna. Bubbi er ánægður með Ásdísi og segir Barnaland troð- ið af fólki sem horfi í spegil á hverjum degi og segist hata sig í stað þess að segjast elska sig. Ódýrir miðar Vinnustaðahrekkir geta verið af ýmsum toga. Þeir vandlegustu fela í sér að viðkomandi stendur í ströngu við að leiðrétta ein- hvern misskilning, ná heftaran- um úr hlaupi eða laga til lykla- borð þar sem takkarnir hafa farið í ferðalag á annað stað á lyklaborðinu. Katrín Oddsdóttir lögmaður lenti í vinnustaða- hrekk á föstudaginn í síðustu viku þegar stríðinn vinnufé- lagi hennar komst á Facebook- síðu hennar og auglýsti miða á Bjarkartónleika til sölu á helm- ingsafslætti. Það jafnast á við það að bjóða í partý í Dúfnahóla 10! Katrín fékk ótrúlegan fjölda pósta og símtala þann daginn og stóð svo sannarlega í ströngu. Bíódólgur Gaukur Úlfarsson leikstjóri er nú á ferðalagi í Úkraínu þar sem hann sýnir mynd sína Gnarr. Hann segir frá því á Facebook- síðu sinni að á fyrstu mínútu myndarinnar hafi kona byrjað að öskra og og sparka í veggi af því að myndin var ekki textuð á úkraínsku. „Það byrjaði einhver hress kona að öskra, rauk svo úr salnum með miklum tilþrifum. Svo sneri þessi bíódólgur aftur og stóð í anddyrinu og gólaði meira og sparkaði í veggi. Henni hafði verið lofað texta á úkra- ínsku en maðurinn sem átti að sjá um textavélina var í áfeng- isdái á einhverju hóruhúsi.“ En þarna er sögunni ekki lokið. „Eftir smá stund byrja ég að heyra einhver undarleg aukahljóð undir myndinni, svo skyndilega er snarlækkað í myndinni og þá stendur kona með míkrafón og þýðir myndina „live“ með míkrafón. Djööffull- sins geðveiki!“ P abbi talaði um kraftaverk,“ segir Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir í viðtali við Þóru Tómasdóttur í nýjasta eintaki Nýs Lífs um það þegar hún fékk símtal frá lækni dóttur sinnar þann 7. október, í miðju bankahruni. Í viðtalinu segir Þorgerður frá því þegar dóttir hennar greindist með einhverfu og störuflogaveiki í upphafi ársins 2008. Um vorið fór hún í heila- myndatöku þar sem æxli uppgötvað- ist við litla heilann. Síðar um sumarið fór dóttirin í uppskurð þar sem hluti æxlisins var fjarlægður. Fjölskyldan var því undir það búin um haustið að þurfa að fara til Svíþjóðar þar sem það sem eftir var af æxlinu yrði fjar- lægt með geislameðferð. Þorgerður segist hafa brotnað niður við símtalið. „Hann færði mér þær óvæntu frétt- ir að þeir sæju ekkert eftir af æxlinu. Hann sagði að það gerðist stundum þegar rótað væri í æxlum og nú væri það bara allt horfið. Við þyrftum ekki að fara til Svíþjóðar og barnið okkar ekki að fara í geislameðferð. Þá fyrst brotnaði ég niður. Þessari orrustu barnsins míns var skyndilega lokið þótt önnur verkefni tækju við. Pabbi talaði um kraftaverk. Ég held að það sé rétt hjá honum. Þessi októberdag- ur verður alltaf merkilegur í mínum huga.“ Gróðursetti tré í heilan skóg Þorgerður Katrín ræðir einnig um lærdóminn sem hún segist hafa dreg- ið af tímanum eftir hrun. Eftir að hafa sagt af sér varaformennsku og þing- sæti fann hún ró í því að gróðursetja tré. „Tíminn utan þings var lærdóms- ríkur og ég sá hlutina aðeins úr fjar- lægð. Ég gróðursetti mikið þetta sumar og það verður gaman að sjá skóginn sem vex af því,“ segir Þor- gerður Katrín sem segir lífið hafa orð- ið þægilegra og fjölskylduvænna eftir að hún hætti sem ráðherra og vara- formaður. „Líf mitt í dag er gott þegar ég horfi til barnanna minna. Hlutirnir hafa gengið upp og ofan eins og hjá mörgum Íslendingum. Við erum bara að halda áfram. Það er engin önnur leið í boði.“ Orrustu dótturinnar lokið Dóttir Þorgerðar greindist með einhverfu og störuflogaveiki í upphafi ársins 2008 og þurfti að fara í aðgerð. Æxli hvarf og stúlkan fékk bata. n Þorgerður Katrín barðist fyrir heilsu dóttur sinnar í miðju hruni Brotnaði niður við fréttir af kraftaverki Með kálf og kött í myndatöku T engdaforeldrum mínum fannst ég fara yfir strikið þegar ég bað þau um að lána mér kálf,“ segir Hulda Björk Snæbjarnardótt- ir en fjölskyldumynd hennar á Face- book hefur vakið mikla athygli. „Við vorum á leið í myndatöku fyrir jólin í fyrra og mig langaði að tengja mynd- ina við sveitina hjá manninum mín- um. Ljósmyndaranum fannst þetta frábær hugmynd og sagði mér endi- lega að pikka upp kálfinn hjá tengdó en köttinn og fjósagallana áttum við sjálf. Tengdapabbi hafði sérstaklega valið kálfinn og greitt honum og þrif- ið fyrir myndatökuna. Kötturinn var samt skíthræddur við hann og hríð- skalf svo það var erfitt að halda á honum,“ segir Hulda Björk þegar hún lýsir fjörugri myndatökunni. „Kálfur- inn vildi miklu frekar skoða sig um í stúdíóinu en vera hjá okkur og skildi ekki neitt þegar ljósmyndarinn var að kalla á hann. Það gekk þess vegna á ýmsu eða allt þar til maðurinn minn stakk puttanum upp í hann. Þá fór kálfurinn að sjúga af áfergju. Það er því ekki skrítið að við séum skelli- hlæjandi á myndinni. Svona miðað við hvernig allt gekk.“ Hulda segir fjölskyldu og vini hafa lítið litist á uppátækið í upphafi en að allir hafi verið afar hrifnir með mynd- ina í jólakortinu. „Það verður alla vega erfitt að toppa þetta fyrir þessi jól en ég er byrjuð að leggja hausinn í bleyti.“ n Hulda Björk Snæbjarnardóttir á erfitt með að toppa síðasta jólakort Flottur hópur Það gekk á ýmsu í myndatök- unni en kálfurinn varð ekki kyrr fyrr en hann fékk putta til að sjúga. Mynd FinnBOrGi MarinOSSOn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.