Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2012, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2012, Blaðsíða 5
 Launamiðar og verktakamiðar Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi, lífeyri, bætur, styrki, happdrættis- og talnavinninga (skattskylda sem óskatt skylda), greiðslur til verktaka fyrir þjón- ustu (efni eða vinnu) eða aðrar greiðslur sem framtalsskyldar eru og/eða skattskyldar. Bifreiðahlunnindamiðar Skilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa haft kostnað af kaupum, leigu eða rekstri fólks- bifreiðar. Hlutafjármiðar Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshluta- félög, samvinnuhlutafélög og sparisjóðir. Viðskipti með hlutabréf og önnur verðbréf Skilaskyldir eru bankar, verðbréfa- fyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðs- viðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf og önnur verðbréf. Bankainnstæður Skilaskyldar eru allar fjármála- stofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar. Lánaupp lýsingar (bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán). Skila- skyldar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunar- leigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstakl inga. Stofnsjóðsmiðar Skilaskyld eru öll samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög. Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi. Greiðslumiðar – leiga eða afnot Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignarétt- indum eða öðrum réttindum. Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt stað- festri kaupréttaráætlun. Sama á við um söluréttarsamninga. Fjármagnstekjumiði Þeir aðilar sem greitt hafa fjár- magnstekjur skulu skila þessum miða og tilgreina þar sundurliðun fyrir þá aðila sem hafa móttekið þær og þá staðgreiðslu fjár- magnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða smærri innheimtu- aðila, t.d. lögfræðistofur. Þessum miða er eingöngu hægt að skila rafrænt. Skil á upplýsingum vegna skattframtals 2012 Vakin er athygli á nýjum launamiðareit, nr. 210, þar sem færa skal þann hluta arðgreiðslu sem telja skal sem laun skv. 3. málsl. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 90/2003. Einnig er vakin athygli á nýjum launamiðareit, nr. 220, þar sem færa skal stjórnarlaun. Minnt er á að upplýsingum um húsnæðishlunnindi skal skila á launamiða. Húsnæðishlunnindi eru allt að 5% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis 31. des. 2010, sem látið er launþega í té endurgjaldslaust eða með óeðlilega lágu endurgjaldi. Sjá nánar í lið 2.8 í skattmati ríkisskattstjóra vegna tekjuársins 2011. Skilafrestur á eftirtöldum gögnum vegna framtalsgerðar 2012 er til 30. janúar en þeir sem skila á rafrænu formi hafa þó frest til 10. febrúar 2012 Nánari upplýsingar á www.rsk.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.