Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2012, Blaðsíða 12
12 Erlent 11. janúar 2012 Miðvikudagur
Lúxusbílar seljast vel
n Árið 2011 var draumaár fyrir framleiðendur Rolls-Royce og Bentley
Þ
rátt fyrir nokkuð djúpa
efnahagskreppu í heimin-
um virðast margir enn hafa
það afar gott. Sala á Rolls-
Royce-lúxusbifreiðum jókst veru-
lega á síðasta ári miðað við árið
2010. Þannig seldust 3.538 nýjar
Rolls-Royce-bifreiðar samanborið
við 2.711 árið 2010. Þetta er aukn-
ing upp á 31 prósent og hefur sal-
an raunar aldrei verið meiri í 107
ára sögu fyrirtækisins Rolls-Royce
Motors sem framleiðir bílana, en
það er dótturfyrirtæki bílarisans
BMW.
Að kaupa Rolls-Royce er ekki
fyrir meðaljóninn en nýir slík-
ir bílar kosta frá nokkrum tugum
milljóna króna allt upp í nokkur
hundruð milljónir. Á íslenska vefn-
um bilasolur.is má til dæmis finna
splunkunýja Rolls-Royce Phan-
tom-bifreið á 160 milljónir króna,
en bifreiðin stendur íslenskum
auðmönnum til boða í gegnum ís-
lenskt fyrirtæki.
Flestar bifreiðarnar sem fyrir-
tækið seldi á síðasta ári fóru til auð-
manna í Bandaríkjunum og Kína.
Í Bretlandi jókst salan um 30 pró-
sent, en Þýskaland og Rússland
voru stærstu markaðssvæðin í Evr-
ópu.
„Árið 2011 var frábært. Saga
fyrir tækisins hefur verið Bretlandi
til sóma,“ segir Torsten Muller-Ot-
vos, stjórnarformaður Rolls-Royce
Motors. Fyrirtækið hefur þegar til-
kynnt að framleiðsluverksmiðja þess
í Good wood í Vestur-Sussex á Eng-
landi verði stækkuð, en framkvæmd-
ir munu hefjast í febrúar næstkom-
andi.
Árið 2011 var gott fyrir fleiri lúxus-
bílaframleiðendur því í síðustu viku
tilkynnti Volkswagen, framleiðandi
Bentley, að sala á þeim bifreiðum
hefði aukist um 37 prósent árið 2011.
Með lík
í lestinni
Þrír Norður-Kóreubúar komust til
Japans á litlum sjö metra löngum
trébáti í síðustu viku. Með í för var
látinn félagi þeirra sem lést úr of-
kælingu á leiðinni.
Japanska strandgæslan fann
mennina nálægt japönsku eyjunni
Oki á föstudaginn síðastliðinn.
Þeir gáfu þær skýringar á ferð-
um sínum að þeir hefðu verið við
veiðar þegar vélin bilaði. Því hafi
þá rekið á haf út.
Í fyrstu var talið að mennirn-
ir væru að flýja ógnarstjórnina í
heimalandinu en þeir lýstu yfir
vilja sínum til þess að komast aftur
til síns heima. Merkilegt nokk
náðist samkomulag á milli Japana
og Norður-Kóreu um að þeir færu
aftur heim. Reuters greindi frá
þessu en þaðan er myndin komin.
Síðasta mark
13 ára drengs
Þrettán ára drengur lést í Bret-
landi eftir að hafa skorað mark
í fótboltaleik. Þetta gerðist í
Staffordskíri í miðvesturhluta
Englands á sunndagsmorgun.
Liam Wood hafði rétt skorað
fimmta mark AFC Saints, og
hneig niður þegar hann hljóp
fagnandi til baka. Honum var
veitt skyndihjálp á staðnum þar
til sjúkrabíll flutti hann á næsta
sjúkrahús. Tilraunir til endur-
lífgunar báru ekki árangur.
„Við sáum að hann brást ekki
við tilraunum til endurlífg-
unar – hann virtist einfaldlega
hafa hætt að anda,“ sagði Geoff
Green, þjálfari mótherjanna
Stafford Falcons. Facebook
minningarsíða hefur verið sett
á laggirnar til minningar um
drenginn, sem hafði ekki kennt
sér meins þegar atvikið varð.
Sýknaður í
kynvillumáli
Rúmlega þremur árum eftir að
leiðtogi stjórnarandstöðunnar
í Malasíu, Anwar Ibrahim, var
ákærður fyrir kynvillu hefur hann
verið sýknaður í málinu. „Rétt-
lætinu hefur verið fullnægt,“
sagði Anwar þegar hann ávarp-
aði stuðningsmenn sína fyrir utan
dómshúsið. Málaferlin á hend-
ur Anwar hafa verið harðlega
gagnrýnd enda þótt lykta langar
leiðir af spillingu og pólitískum
nornaveiðum. Samkynhneigð er
bönnuð með lögum í Malasíu en
sýknudóminn má rekja til þess
að lífsýni sem notuð voru sem
sönnunargögn í málinu spillt-
ust. Stjórnmálaskýrendur telja
líklegt að Anwar stefni á endur-
komu í stjórnmálin enda kosn-
ingar í nánd í landinu. Honum var
gefið að sök að hafa átt kynmök
við 23 ára aðstoðarmann sinn en
grunsemdir vöknuðu strax vegna
tímasetningar ásakananna. Í mars
2008 hafði flokkur Anwars unn-
ið mjög á í þingkosningunum í
landinu og í júlí sama ár var hann
handtekinn. Hann átti yfir höfði
sér 20 ára fangelsi hefði hann ver-
ið fundinn sekur.
Vinsæll Á síðasta ári seldust rúmlega 3.500 nýjar Rolls-Royce-bifreiðar. Slíkar bifreiðar
kosta frá tugum milljóna króna upp í hundruð milljóna. Mynd ReuteRs
Í
janúar 2011 var Salman Taseer,
héraðsstjóri í Punjab í Pakistan,
myrtur af einum af lífvörðum sín-
um. Lífvörðurinn, Mumtaz Qadri,
var dæmdur til dauða í október
síðastliðnum fyrir morðið. Þrátt fyrir
að Taseer hafi verið hátt settur emb-
ættismaður í Pakistan er hávær krafa
uppi um það í landinu að dómnum
verði breytt í lífstíðarfangelsi. Ástæð-
an er sú að stór hluti almennings telur
að Qadri hafi gert það rétta í stöðunni
þegar hann skaut yfirmann sinn 27
sinnum þegar hann yfirgaf veitinga-
stað í Islamabad, höfuðborg Pakist-
ans.
Mengaði brunn
Forsaga málsins er sú að Taseer,
sem var þekktur fyrir að taka mál-
stað minnihlutahópa, fór í herferð
fyrir konu sem var sökuð um guð-
last. Konan, sem er kristin og heit-
ir Asia Bibi, var sökuð um að menga
drykkjarbrunn í þorpi í Punjab-hér-
aði, en brunnurinn var aðeins ætlað-
ur múslimum. Íbúar þorpsins kröfð-
ust þess að hún tæki íslamska trú en
þegar hún neitaði var hún sökuð um
guðlast. Þegar Taseer heyrði af mál-
inu hóf hann baráttu fyrir konuna og
því að hún yrði hreinsuð af ásökunum
þorpsbúa og yfirvalda. Hann, ásamt
hópi blaðamanna, heimsótti hana í
fangelsi og fékk hann blaðamennina
til að taka viðtal við sig. Í viðtölunum
gagnrýndi hann lög landsins um guð-
last, en samkvæmt þeim á hver sem
kastar rýrð á kóraninn eða múslimska
trú yfir höfði sér fangelsi.
Þessi barátta Taseer lagðist illa í
strangtrúaða múslima og var Qadri
sannarlega í þeim hópi.
starfaði í Playboy-klúbbi
Taseer var mikilsvirtur og moldríkur
embættismaður sem stundaði nám
í fjármálum í Lundúnum á sjöunda
áratug liðinnar aldar. Hann var þekkt-
ur glaumgosi, starfaði sem féhirð-
ir í Playboy-klúbbi í borginni og var
í góðu sambandi við stúlkurnar sem
störfuðu á klúbbnum. Þegar hann
snéri aftur til Pakistans fór hann út í
stjórnmál og var hann meðal annars
dæmdur í fangelsi fyrir baráttu sína
fyrir lýðræði á einræðistímum forset-
ans, Zia ul Haq.
Blaðamaður breska ríkisútvarps-
ins, BBC, Owen B. Jones, heimsótti
Pakistan vegna málsins á dögun-
um. „Eftir að hafa spurt almenning
um Taseer-málið í heila viku, yfirgaf
ég landið með þá tilfinningu að fleiri
hefðu samúð með Qadri en með fórn-
arlambi hans,“ segir Jones í grein sinni.
Hetja í augum háttsettra
Málið þykir mjög eldfimt og til merkis
um það vildi nánast enginn taka að sér
að málið gegn Qadri. Að lokum féllst
einn lögmaður á það sem Jones hitti á
skrifstofu hans í Lahore. Við inngang-
inn stóðu tveir vopnaðir öryggisverð-
ir. „Þegar ég sagði vinum mínum frá
því að ég ætlaði að taka málið að mér
hvöttu þeir mig til að gera það ekki.
Ef ofsatrúarmenn verða pirraðir út í
einhvern verður sá hinn sami drep-
inn,“ segir lögmaðurinn í viðtalinu.
„En dauðarefsinguna verður að upp-
fylla. Ef refsingin verður milduð í lífs-
tíðarfangelsi mun ekki líða langur tími
þar til honum verður sleppt. Þá mun
Qadri fá góða stöðu, sem þingmaður
eða ráðherra, af því að hann er hetja í
augum almennings. Hann er ekki ein-
göngu hetja í augum hins venjulega
borgara heldur einnig í augum vel
menntaðra og vel lesinna manna, þar
á meðal dómara við dómstóla lands-
ins. Hann er hetja í augum mjög, mjög
háttsettra manna í Pakistan.“
Þetta virðist vera rétt ef marka má
lokaorðin í umfjöllun Jones. Hann
hitti bróður Qadri á heimili hans í
borginni Rawalpindi þar sem hann
býr ásamt 72 ættingjum sínum við
bágbornar aðstæður. „Þú getur ekki
ímyndað þér hvað bróðir minn hefur
gert. Áður fyrr vildi fólk varla horfa í
augun á okkur, hvað þá heilsa okkur.
Nú kemur það upp að okkur, tekur í
hendur okkar og kyssir þær. Við erum
þakklát Guði fyrir það að velja með-
lim úr fjölskyldu okkar til að vernda
orðspor spámannsins.“
Morðinginn sem
múgurinn elskar
„Hann er hetja í aug-
um mjög, mjög hátt-
settra manna í Pakistan.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Hampað sem hetju Hér sjást stuðn-
ingsmenn Qadri halda á spjaldi honum til
stuðnings eftir að hann var dæmdur til dauða.
Í járnum Qadri var
yfirbugaður af öðrum
lífvörðum Taseer
eftir að hann myrti
hann. Hér sést hann
skömmu eftir hand-
tökuna. MyndiR ReuteRs
n Lífvörður myrti moldríkan héraðsstjóra fyrir að taka málstað kristinnar konu
n Konan sögð hafa mengað drykkjarbrunn sem aðeins var ætlaður múslimum