Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 11. janúar 2012 Miðvikudagur
S
vanhildur Jakobsdóttir, móð-
ir Önnu Mjallar Ólafsdóttur,
segir ástæðuna fyrir hjóna-
skilnaði hennar og Cals
Worthington ekki vera vegna
líkamlegs ofbeldis, en sögusagn-
ir þess efnis hafa meðal annars ver-
ið á kreiki. „Nei, nei, það er alls ekki
ástæða þess að þau eru að skilja,“
segir Svanhildur og bætir við að
hann hafi hafi aldrei komið illa fram
við Önnu Mjöll á þann hátt. „Mér
hefur alltaf líkað mjög vel við Cal og
veit að hann er mjög góður maður.
Ég er búin að þekkja hann lengi og
veit að hann er alls ekki þannig mað-
ur. Hann hefur aldrei komið illa fram
við hana líkamlega.“
Aðspurð hvort ástæðan fyrir því
að Anna Mjöll og Cal voru ekki gift
lengur en raun bar vitni væri vegna
framhjáhalds Cals segist hún „ekki
vilja tjá sig um þetta mál.“ Svanhildur
segir að flestar af þeim sögusögnum
sem eru í gangi um ástæðu skilnað-
arins vera rangar, en málið sé mjög
viðkvæmt.
„Ósættanlegur ágreiningur“
Anna Mjöll sem fagnaði 42 ára af-
mæli sínu síðastliðinn laugardag,
sótti um skilnað frá eiginmanni sín-
um til níu mánaða, Cal Worthington,
í lok síðasta árs. Ástæða skilnaðarins
mun vera ósættanlegar ágreiningur
á milli þeirra hjóna. Hvort að ósætt-
anlegi ágreiningurinn liggi í kyn-
slóðabilinu sem er á milli þeirra er
ekki gott að segja, en Cal er fæddur
árið 1920 og er því á 92 aldursári. Það
eru því 50 ár sem skilja á milli þeirra.
Þrátt fyrir háan aldur virðist Cal enn
vera í fullu fjöri, en hann er sagður
hugsa vel um heilsuna, drekka í hófi
og ku vera reyklaus.
Sögð vera „gullgrafari“
Skilnaður þeirra hjóna virðist ætla
að verða stormasamur, en Cal lét á
dögunum draga forláta Bentley-bif-
reið Önnu Mjallar í burtu frá heim-
ili hennar. Anna Mjöll þurfti að
leggja leið sína á lögreglustöðina til
þess að ná í hann aftur. Þegar þang-
að var komið fékk hún þó ekki bíl-
inn afhentan því bíllinn er skráð-
ur í eigu fyrirtækis en ekki á hennar
nafn. Þetta fannst Önnu Mjöll skrýt-
ið enda taldi hún bílinn hafa verið
gjöf til sín frá Cal. „Þetta var gjöf til
mín, hmmm, mjög skrýtið, bara einn
af þessum dögum býst ég við,“ sagði
hún á Facebook-síðu sinni eftir at-
vikið.
Cal hefur sagt að hún fái ekki
krónu meira út úr skilnaðinum en
framfærslu upp á 500.000 krónur
mánaðarlega í sex mánuði eftir skiln-
aðinn. Anna Mjöll lætur hart mæta
hörðu og krefst þess að fá helming af
andvirði rúmlega 400 milljóna króna
glæsivillu þeirra í Beverly Hills. Sam-
kvæmt TMZ hefur Anna Mjöll kraf-
ist framfærslu frá eiginmanni sínum
upp á þúsundir dollara og má því
ætla að þau hafi ekki gert kaupmála
eins og algengt er þegar annar aðili í
hjónabandi er mun efnaðri en hinn.
Slúðurpressan í Bandaríkjunum
hefur fjallað talsvert um skiln-
að Önnu Mjallar og Cals. Þar hef-
ur Anna Mjöll meðal annars verið
kölluð „gullgrafari“ og verið líkt við
kynbombuna sálugu, Önnu Nicole
Smith, en báðar eiga það sameigin-
legt að vera ljóshærðar og hafa gifst
mönnum sem eru nógu gamlir til að
vera afar þeirra.
Skiptir máli að hafa í sig og á
Anna Mjöll, sem búsett hefur verið í
Los Angeles í tæpa tvo áratugi, sagði
í einlægu viðtali í DV í janúar á síð-
asta ári „að stundum geti pening-
arnir orðið meira böl en hamingja og
þá einangrist fólk.“ Hún bætti þó við:
„Áhyggjuleysi skiptir miklu máli og
ef maður hefur nægilegt fé til að hafa
í sig og á, þá er maður á besta staðn-
um.“ Fái Anna Mjöll framfærslu frá
Cal líkt og heimildir herma að hún
hafi óskað eftir, ætti hún að geta lifað
áhyggjulausu lífi.
Svo virðist sem Anna Mjöll og Cal
hafi hist um eitthvert skeið áður þau
ákváðu að innsigla ást sína með hjóna-
bandi í apríl 2011, en fréttamiðillinn
Vísir greindi frá því í lok apríl 2010 að
Anna Mjöll hefði setið til borðs með
honum á veitingastað á Honolúlú á
Hawaii. Skötuhjúin rákust á leikarann
George Clooney á veitingastaðnum og
Anna Mjöll sagði Clooney hafa sprott-
ið á fætur til að heilsa upp á Cal enda
hafi Cal þekkt Frank Sinatra, Dean
Martin og Gary Grant persónulega, en
Clooney lítur mikið upp til þeirra, að
sögn Önnu Mjallar.
Cal þögull sem gröfin
Lögmaður Önnu Mjallar, Mark Vin-
cent Kaplan, er reynslumikill á sviði
stjörnuskilnaða en hann var lög-
maður Kevins Federline, fyrrverandi
eiginmanns Britney Spear, sem fékk
háa fjárhæð út úr skilnaði sínum við
söngkonuna.
Blaðamaður DV hringdi í eina af
bílasölum Cals í Long Beach í Kali-
forníu og fékk samband við konu
sem vildi ekki láta nafns síns get-
ið. Aðspurð hvort hún vissi hvar Cal
væri niðurkomin svaraði hún því
neitandi og bætti við með þykkum
bandarískum hreim að hvorki hún
né Cal hefðu neinn áhuga á að svara
spurningum frá blaðamönnum.
„Hver sem spurningin er, þá höfum
við ekkert að segja. Ég veit ekki hvar
Cal er og get lofað þér því að hann vill
ekki ræða við þig.“
Veltir 600 milljónum dala á ári
Cal hefur í gegnum tíðina vakið verð-
skuldaða athygli fyrir sérstakar sjón-
varps- og útvarpsauglýsingar sínar.
Hann birtist gjarnan með „hundin-
um“ Spot, sem er í raun aldrei hund-
ur. Spot hefur til að mynda komið
fram sem mörgæs, naut og fíll.
Cal á að baki þrjú önnur hjóna-
bönd og á sex börn á aldrinum 9 til
63 ára. Hann er mjög efnaður, en
samkvæmt umfjöllun The Los Ange-
les Times á síðasta ári á hann fjór-
ar bílasölur, tíu skrifstofubyggingar,
tvær verslunarmiðstöðvar, tíu þús-
und ekra búgarð, upptökuver, aug-
lýsingastofu og fjárfestingarfyrirtæki.
Fyrirtæki hans eru sögð velta 600
milljónum dala á ári.
„Hann er alveg einstakur“
Svanhildur Jakobsdóttir, móðir Önnu
Mjallar, sagði í samtali við DV skömmu
eftir brúðkaup þeirra Önnu Mjallar og
Cals að hún hefði þekkt Cal í sjö ár.
„Þetta er yndislegur maður í alla staði,“
sagði hún um tengdasoninn, bráðum
fyrrverandi. „Hann er alveg einstakur,“
bætti hún við.
Svanhildur og Ólafur Gaukur
heitinn, faðir Önnu Mjallar, voru við-
stödd brúðkaupið og birti Svanhild-
ur myndir frá því á Facebook-síðu
sinni. Öll fjölskyldan brosti og virt-
ist geisla af hamingju, hvítklædd frá
toppi til táar.
Lyktaði eins og fjós
Meredith Myers, bandarískur bloggari
og uppistandari, sagði á bloggi sínu í
september 2010 frá því þegar hún hitti
Cal á bar í New York skömmu áður.
Þar kemur fram að hún hafi hálfpart-
inn vorkennt þessum gamla manni
sem hafi virst hálftýndur inni á stað
þar sem inni hafi verið aðallega ungt,
hresst fólk. Cal hafi boðið henni upp
á drykk en ekki heyrt hana afþakka,
því það heyrðist ekki nógu vel í heyrn-
artækinu hans. Hún segir hann hafa
lyktað eins og hann hafi verið að koma
beint úr fjósinu. Cal hafi gerst áleit-
inn við hana og boðið henni með sér á
hótelherbergi. Vinnufélagar Meredith
fylgdust með samskiptum hennar og
Cals þeim til mikillar skemmtunnar og
það hafi ekki verið fyrr en seinna sem
einhver þeirra áttaði sig á um hvern
var að ræða, enda er hann mun þekkt-
ari á vesturströnd Bandaríkjanna en
fyrir austan.
Annað hjónaband Önnu Mjallar
Þetta er ekki fyrsta hjónaband Önnu
Mjallar en í byrjun árs 2007 giftist
hún Neil Stubenhaus sem er þekktur
bassaleikari. Hjónaband þeirra varði
ekki lengi en þau skildu í fyrra eftir
stormasamt hjónaband. Anna Mjöll
virðist því ekki hafa verið lengi laus og
liðug áður en hún og Cal fóru að stinga
saman nefjum. Staubenhaus er átta
árum eldri en Anna Mjöll, svo hann
kemst ekki í hálfkvisti við hinn níræða
Worthington hvað aldur varðar.
Cal á að baki þrjú hjónabönd og
er faðir sex barna á aldrinum 10 til 64
ára. Önnu Mjöll og Cal varð ekki barna
auðið en Anna Mjöll á hins vegar tvo
hunda sem heita Maestro og Mel-
ódía sem hún segir að séu litlu börn-
in hennar og að hún gæti ekki lifað án
þeirra.
Eyddi helgi með Michael
Jackson
Líf Önnu Mjallar hefur verið skraut-
legt og einkennst af miklum ævin-
týrum. Hún var meðal annars bak-
raddasöngkona hjá Julio Iglesias og
ferðaðist með honum um heiminn í
þrjú ár á tónleikaferðalagi. Hún hef-
ur lýst lífinu á ferðalaginu sem ævin-
týralegu sígaunalífi en þau spiluðu
meðal annars á tónleikum fyrir Slo-
bodan Milosevic.
Þá gerðist Anna Mjöll svo fræg
að eyða heilli helgi á Neverland-
búgarðinum með poppgoðsögn-
inni Michael Jackson árið 1993.
Hún lýsti heimsókninni í ítarlegu
viðtali í DV í ágúst það ár. Hún
sagði meðal annars að Jackson
væri „mest normal“ maður sem
hún hefði kynnst. Hann væri gíf-
urlega jarðbundinn og greinilega
með stórt hjarta.
Anna Mjöll hefur einnig orð-
ið þess heiðurs aðnjótandi að vera
boðið í partí á Playboy-setri Hughs
Hefner. Í viðtali í DV í janúar lýsti
hún stemningunni í partíunum og
hún virðist hafa kunnað vel við sig
í faðmi Hefners. Hún sagðist hafa
verið ein þeirra heppnu sem hann
heilsaði upp á. Sagði að hann væri
„…voða góður gæi, mjög hlýlegur …“
Hún sagði hann ávallt hafa kysst sig
og boðið velkomna.
Ekki náðist í Önnu Mjöll við
vinnslu fréttarinnar.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
„Hann er mjög
góður maður“
„Svanhildur seg-
ir flestar af þeim
sögusögnum sem eru í
gangi um ástæðu skiln-
aðarins vera rangar.
Á brúðkaupsdaginn Anna Mjöll og Cal á brúðkaupsdaginn ásamt foreldrum hennar, Svanhildi og Ólafi Gauki.
Þegar allt lék í lyndi Anna Mjöll var gift Worthington í níu mánuði áður en hún sótti um
skilnað. Fjallað var um sambandið á ýmsum slúðurfréttamiðlum vestanhafs. SkJÁSkot Af tMz.CoM
n Harka færist í skilnaðarmál Önnu Mjallar og Cals Worthington n Móðir hennar segir málið mjög
viðkvæmt n „Bara einn af þessum dögum býst ég við,“ sagði Anna Mjöll eftir að bíllinn var tekinn