Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2012, Blaðsíða 19
G
uðfríður Lilja fædd-
ist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hún lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum
í Reykjavík 1992, BA-prófi í
stjórnmálafræði og sagnfræði
frá Harvard University 1996
og M.Phil.-prófi í heimspeki
og hugmyndasögu frá Cam-
bridge University í Bretlandi
árið 2000.
Guðfríður Lilja var aðstoð-
armaður prófessors í félags-
vísindum við Harvard 1994–
96, fræðslufulltrúi hjá miðstöð
innflytjenda í Berlín 1996–97,
starfaði við almannatengsl hjá
General Motors Europe 1997–
99, sinnti sjálfstæðum fræði-
störfum hjá Reykjavíkuraka-
demíunni 2001 auk þess sem
hún kenndi og var pistlahöf-
undur, var starfsmaður skrif-
stofu Alþingis 2001–2007,
m.a. framkvæmdastjóri þing-
mannanefndar um norður-
skautsmál, framkvæmdastýra
þingflokks Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs 2007–
2009, var varaþm. fyrir Vinstri-
hreyfinguna grænt framboð
2007–2009 og alþm. Suðvest-
urkjödæmis fyrir Vinstrihreyf-
inguna grænt framboð frá
2009.
Guðfríður Lilja er marg-
faldur Íslandsmeistari kvenna
í skák, fyrrv. fyrirliði kvenna-
landsliðsins í skák og ólymp-
íusveitar kvenna í skák, varð
fyrst Íslandsmeistari, þrettán
ára að aldri, og varð fyrst ís-
lenskra kvenna til að hljóta
alþjóðlegan meistaratitil
kvenna í skák.
Guðfríður Lilja sat í stjórn
Skáksambands Íslands og
Taflfélagsins Hellis, var forseti
Skáksambands Íslands 2004–
2008 og forseti Skáksambands
Norðurlanda 2006–2008. Þá
sat hún í stjórn Sagnfræðinga-
félags Íslands um skeið frá
2002.
Guðfríði Lilju voru veitt
Harvard College Scholars-
hip for outstanding academic
achieve ment 1992–96, Rad-
cliffe College Scholarship
1992–96, Elizabeth de Karman
Fellowship 1995–96 og Trinity
College Cambridge Scholar-
ship 1999–2000.
Guðfríður Lilja var formað-
ur þingflokks Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs
2009–2011, sat í umhverfis-
nefnd Alþingis 2009–2011, í
utanríkismálanefnd 2009 og
frá 2010, í félags- og trygginga-
málanefnd 2009-2011 og var
formaður hennar um skeið,
hefur setið í sérnefnd um
stjórnarskrármál, í heilbrigð-
isnefnd og umhverfis- og sam-
göngunefnd og verið formað-
ur hennar. Hún hefur setið í
Íslandsdeild þingmannaráð-
stefnunnar um norðurskauts-
mál og verið formaður hennar
og sat í Íslandsdeild Norður-
landaráðs 2009–2010.
Fjölskylda
Maki Guðfríðar Lilju er Stein-
unn H. Blöndal, f. 10.4. 1973,
ljósmóðir og hjúkrunarfræð-
ingur. Foreldrar hennar: Har-
aldur Blöndal, f. 6.7. 1946, d.
14.4. 2004, hrl. í Reykjavík, og
Sveindís Þórisdóttir, f. 1.12.
1944.
Börn Guðfríðar Lilju og
Steinunnar eru Haraldur Áss
Liljuson, f. 28.4. 2009; Sveindís
Eir Steinunnardóttir, f. 24.8.
2010.
Systkini Guðfríðar Lilju
eru Sigurður Áss Grétarsson,
f. 1.10. 1965, byggingaverk-
fræðingur og forstöðumaður
Siglingastofnunar, kvæntur
Árelíu Eydísi Guðmundsdótt-
ur; Andri Áss Grétarsson, f.
6.1. 1969, viðskiptafræðingur
í Reykjavík, kvæntur Maríu Ár-
dísi Gunnarsdóttur; Helgi Áss
Grétarsson, f. 18.2. 1977, lög-
fræðingur, stórmeistari í skák
og fyrrv. heimsmeistari í skák,
tuttugu ára og yngri, í sambúð
með Ólöfu Ingvarsdóttur.
Foreldrar Guðfríðar Lilju:
Grétar Áss Sigurðsson, f. 22.10.
1935, d. 22.12. 2010, viðskipta-
fræðingur, ríkisbókari um
skeið, þekktur skákmaður og
formaður Taflfélags Reykja-
víkur, og Sigrún Andrewsdótt-
ir, f. 28.9. 1939, kennari.
Ætt
Grétar var sonur Sigurðar,
brúarsmiðs í Reykjavík, hálf-
bróður, samfeðra, Guðmund-
ar Björnssonar landlæknis,
og Jónasar á Stóru-Giljá, afa
Jónasar Halldórssonar skák-
manns. Hálfsystir Sigurðar var
Ingibjörg, amma Jóns Torfa-
sonar skákmanns, Ögmund-
ar Jónassonar innanríkisráð-
herra, Ásgeirs Sigurðssonar
námsgagnastjóra og Guð-
mundar Björnssonar verk-
fræðings. Sigurður var sonur
Björns, b. á Marðarnúpi, bróð-
ur Elínborgar, langömmu Sig-
fúsar og Ingimundar í Heklu
Sigfússona. Björn var son-
ur Guðmundar, smiðs á Síðu
Guðmundssonar og Guðrún-
ar Sigfúsdóttur Bergmann,
hreppstjóra á Þorkelshóli
og ættföður Bergmannsætt-
ar. Móðir Sigurðar var María
Magnúsdóttir.
Móðir Grétars Áss var
Lilja, systir Hólmfríðar, móð-
ur Árna Björnssonar þjóð-
háttafræðings, föður Marðar
alþm. Lilja var dóttir Bene-
dikts, b. á Þorbergsstöðum í
Laxárdal, bróður Kristjáns,
föður Kristjáns borgarfógeta.
Benedikt var sonur Krist-
jáns, dbrm. á Þorbergsstöð-
um Tómassonar. Móðir Lilju
var Margrét Guðmundsdótt-
ir, b. í Snóksdal Guðmunds-
sonar.
Sigrún er dóttir Andrews,
sjómanns á Flateyri, bróð-
ur Guðbjarna, föður Hall-
dórs, fyrrv. Landsbankastjóra.
Systir Andrews var Þorbjörg,
móðir Kristínar Ólafsdótt-
ur Þorvaldssonar, útvegsb. á
Efstabóli í Önundarfirði Þor-
valdssonar. Móðir Andrews
var Kristín Halldórsdóttir, b. í
Ytri-Hjarðardal Jónssonar og
Guðrúnar Jónsdóttur. Móðir
Guðrúnar var Kristín Einars-
dóttir, b. í Tungu Ásgrímsson-
ar, b. í Arnardal Bárðarsonar,
ættföður Arnardalsættar Ill-
ugasonar.
Móðir Sigrúnar var Helga
Dagbjört Þórarinsdóttir frá
Þernuvík í Ögursveit, systir
Kristínar, móður Bjarna Guð-
mundssonar, fyrrv. landsliðs-
manns í handbolta.
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði 19Miðvikudagur 11. janúar 2012
miðvikudag 11. janúar
30 ára
Mariam Darai Garðastræti 4, Reykjavík
Cora Jovanna Claas Móhellu 10, Selfossi
Davíð Freyr Kristjánsson Kjarrvegi 13, RVK
Aneta Kownacka Fýlshólum 2, Reykjavík
Agnieszka Bukowska Skriðustekk 12, RVK
Olga Shusherina Skeljagranda 6, Reykjavík
Kristján Örn Kristjánsson Háal.br. 44, RVK
Ómar Örn Ólafsson Víðigrund 8, Sauðárkróki
Pétur Pétursson Holtsbúð 99, Garðabæ
Guðni Davíð Stefánsson Helgaf.br.1, Vestm.
Rósa Konný Jóhannesdóttir Kvíaholti 15,
Borgarnesi
40 ára
Sigurþór Dan Bugðutanga 10, Mosfellsbæ
Jón Ragnar Gíslason Skúlabraut 43, Blönd.
Magnús Þór B. Hreggviðsson Blikabraut 6,
Reykjanesbæ
Fanney Kristín Hermannsdóttir Berg-
staðastræti 62, Reykjavík
Ólafur Tryggvi Haraldsson Ormarsstöðum
Steingerður S. Sigþórsdóttir Kirkjubrekku
7, Álftanesi
Auðunn Birgisson Heinabergi 17, Þorlákshöfn
Louise Stefanía Djermoun Fossagötu 6, RVK
Haukur Helgason Eggertsgötu 2, Reykjavík
Bergdís Eysteinsdóttir Baugakór 10, Kóp.
Áslaug Ella Gísladóttir Túngötu 14 Hvann-
eyri, Borgarnesi
Hulda Stefánsdóttir Hávallagötu 31, RVK
Sigríður Rúna Þrastardóttir Maríubaugi
103, Reykjavík
Jónas Logi Franklín Eikarlundi 24, Akureyri
Íris Róbertsdóttir Búhamri 70, Vestm.
Jóhanna Sigríður Svavarsdóttir Bæjargili
22, Garðabæ
Beata Malgorzata Kostka Sólv.g. 29, RVK
50 ára
Soffía Árnadóttir Berjavöllum 6, Hafnarfirði
Georg Grundfjörð Georgsson Svölutjörn 16,
Reykjanesbæ
Helga Björnsdóttir Starmýri 4, Reykjavík
Oddrún María Pálsdóttir Geitasandi 6, Hellu
Ásdís Þórkatla Hafsteinsdóttir Fagra-
hjalla 1, Kópavogi
Kristján Albert Eiríksson Engihjalla 23, Kóp.
Íris Guðmundsdóttir Hjaltabakka 20, RVK
Deborah Júlía Robinson Vallartröð 1, AK
60 ára
Kolbrún Þormóðsdóttir Sólvallag. 66, RVK
Sigríður Kristjánsdóttir Birkihlíð 29, Sauðár-
króki
Herdís Þórunn Jónsdóttir Frostaskjóli 105,
Reykjavík
Hallgrímur P. Helgason Digranesh. 35, Kóp.
Auður Ragna Guðmundsdóttir Sólheimum
23, Reykjavík
Ragnhildur Þorsteinsdóttir Sandbakka 24,
Höfn í Hornafirði
Sólveig S. Einarsdóttir Starmýri 5, Neskaupst.
Sveinn Guðmundur Einarsson Þiljuvöllum
10, Neskaupstað
Helga Guðjónsdóttir Holtsgötu 30, Sandg.
Magnea Kristleifsdóttir Kjalvararstöðum 2,
Reykholt í Borgarfirði
Ómar Önfjörð Magnússon Álftamýri 67, RVK
70 ára
Haukur Arnar Kjartansson Eyrarflöt 9, Akr.
Rósa Jónsdóttir Sundabúð 1, Vopnafirði
Freysteinn V. Hjaltalín Laufásv. 12, Stykkish.
Alda G. Jónsdóttir Rjúpnasölum 14, Kópavogi
Eygló Jensdóttir Suðurgötu 51, Reykjanesbæ
Þorgerður Magnea Oddsdóttir Brákarbraut
1, Borgarnesi
Jón Ásgeir Jónsson Laugavegi 162, Reykjavík
Baldur Þ Bjarnason Múlakoti 2, Kirkjubæjarkl.
75 ára
Haukur Kjartan Gunnarsson Sólars.7, Kóp
Böðvar Pálsson Búrfelli 3, Selfossi
Sigríður Guðlaug Sigurðardóttir Álfhóls-
vegi 133a, Kópavogi
Magnús Davíð Ingólfsson Baugh. 10, RVK
Margot Helga Hausler Espilundi 7, Garðabæ
80 ára
Einar Magnús Erlendsson Illugag. 12, Vestm.
Erla M. Olsen Kirkjuvegi 5, Reykjanesbæ
85 ára
Birgir Sigurðsson Aflagranda 40, Reykjavík
90 ára
Markús Markússon Sóltúni 2, Reykjavík
fimmtudag 12. janúar
30 ára
Arkadiusz Domitrz Breiðuvík 13, Reykjavík
Haraldur Ingi Ingólfsson Nýbýlav. 42, Kóp.
Guðlaug Linda Erlendsdóttir Kleppsvegi
4, Reykjavík
Eygló Margrét Stefánsdóttir Leifsg. 5, RVK
Anna Lilja Sigurvinsdóttir Munkaþverár-
stræti 11, Akureyri
Anna Sigurlína Tómasdóttir Tryggvagötu
9, Selfossi
Bjarki Halldórsson Vaðlaseli 2, Reykjavík
Hilma Eiðsdóttir Bakken Stekkh. Sauðárkr.
Árni Filippusson Fellsmúla 17, Reykjavík
Kristín Lórey Guðlaugsdóttir Jörfabakka
12, Reykjavík
Markús Már Efraím Sigurðsson Njálsgötu
48, Reykjavík
Víðir Örn Gunnarsson Reykjavíkurvegi 50,
Hafnarfirði
Hanna Guðmundsdóttir Bergstaðastræti
32b, Reykjavík
Kjartan Páll Þórarinsson Sólbrekku 13, Hús.
Berglind Sigurðardóttir Reykjahlíð 10, RVK
Erla Dögg Ólafsdóttir Tjarnarlundi 3g, AK
40 ára
Guðrún Linda Hilmarsdóttir Hæðargerði
28, Reyðarfirði
Lóa Birna Birgisdóttir Gefjunarbrunni 17,
Reykjavík
Þorsteinn Hallgrímsson Starhólma 14, Kóp.
Guðrún Halldórsdóttir Litlakrika 27, Mosf.
Þórdís Björg Kristjánsdóttir Fléttuvöllum
12, Hafnarfirði
Laufey Gunnarsdóttir Klukkubergi 27, Hafn.i
Þórir Stefánsson Vörðu 5, Djúpavogi
Ásgeir Eyþór Garðarsson Aðalgötu 8, Dalvík
Fanney Steinþórsdóttir Reykjab. 10, Mosf.
50 ára
Drífa Skúladóttir Bárðarási 19, Hellissandi
Sesselja Margrét Pálsdóttir Espigerði 16,
Reykjavík
Kristján Ólafsson Urðarvegi 41, Ísafirði
Sigurður Bjarni Gunnarsson Arnarsm.6,
Kópavogi
Garðar Hilmarsson Reynihlíð 12, Reykjavík
Steinunn E. Friðriksdóttir Hamragerði 5,
Egilsstöðum
Ingunn Hafdís Þorláksdóttir Víðim. 57, RVK
Snorri Wium Gnípuheiði 4, Kópavogi
60 ára
Guðlaug Helgadóttir Lundarbrekku 4, Kóp.
Snjólaug Benediktsdóttir Sautjándajúní-
torgi 7, Garðabæ
Jónheiður Kristjánsdóttir Skálateigi 7,
Akureyri
Hjalti Pétursson Álfatúni 6, Kópavogi
Aðalsteinn Sveinsson Sundstræti 39, Ísafirði
Diljá Sigríður Markúsdóttir Grímsholti
8, Garði
Helgi Björnsson Fiskakvísl 2, Reykjavík
Ólöf Unnur Einarsdóttir Garðsstöðum 27,
Reykjavík
María Óskarsdóttir Reyrhaga 12, Selfossi
Marteinn Hafsteinn Gíslason Hvamma-
braut 10, Hafnarfirði
70 ára
Magnús Þorvaldsson Laugarnesvegi 87, RVK
Geir V Vilhjálmsson Ásgötu 21, Raufarhöfn
Helga Helgadóttir Lækjasmára 2, Kópavogi
William Thomas Möller Vallengi 4, Reykjavík
Sigurjón Árnason Hamrahlíð 23a, Vopnafirði
Baldur Ólafsson Hjallabraut 96, Hafnarfirði
Stefanía Stefánsdóttir Strandgötu 25b, AK
Ólafur S. Gústafsson Hólmvaði 8, Reykjavík
Ásta Anna Vigbergsdóttir Hraunbæ 82, RVK
Jóhanna Þorbjörg Arnoddsdóttir Ægis-
götu 10, Akureyri
75 ára
Hrefna Jónsdóttir Neðstabergi 9, Reykjavík
Guðlaug Hanna Friðjónsdóttir Lækjargötu
34c, Hafnarfirði
Bjarni Gústafsson Stillholti 17, Akranesi
Ursula Sigurgeirsson Granaskjóli 5, RVK
80 ára
Árný Hallgerður Friðriksdóttir Stekkjarseli
1, Reykjavík
Guðmunda Sigurðardóttir Kópavogsbraut
1b, Kópavogi
Magdalena Margrét Wood Fífumóa 1c,
Reykjanesbæ
85 ára
Stefán Þórarinsson Vallholtsvegi 15, Húsavík
Aðalsteinn Finnur Örnólfsson Gullsmára
7, Kópavogi
Guðrún Erla Ásgrímsdóttir Öldustíg 2,
Sauðárkróki
90 ára
Bent Scheving Thorsteinsson Hraunvangi
3, Hafnarfirði
P
álmar fæddist í
Reykjavík en ólst upp
í Grindavík. Hann var
í Grunnskóla Grinda-
víkur.
Pálmar stundaði fisk-
vinnslu í Grindavík á unglings-
árunum, starfaði við leikskól-
ann Dal í Kópavogi í þrjú ár
og hefur unnið við garðyrkju,
lengst af hjá Eðalgörðum.
Pálmar hefur átt hesta í fjög-
ur ár, stundar hestamennsku af
kappi, og er áhugaljósmynd-
ari.
Fjölskylda
Hálfsystur Pálmars eru Eva
Ásgeirsdóttir, f. 21.12. 1984,
snyrtifræðingur, búsett í Kópa-
vogi; Tinna Ásgeirsdóttir, f.
19.11. 1986, grafískur hönnuð-
ur, búsett í Svíþjóð; Elín Magn-
ea, f. 7.9. 1992, framreiðslu-
maður, búsett í Kópavogi;
Guðrún Ásgeirsdóttir, f. 11.6.
1998, grunnskólanemi.
Foreldrar Pálmars eru Sig-
rún Graham, f. 17.12. 1962,
bókasafnsfræðingur, búsett í
Kópavogi, og Magni Björns-
son, f. 5.9. 1957, rafeindaverk-
fræðingur, búsettur í Kanada.
Stjúpfaðir Pálmars og maður
Sigrúnar er Ásgeir Benedikts-
son, f. 2.3. 1960, verkstjóri hjá
Plastprenti.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
alþingismaður
Pálmar Davíð Magnason
verkamaður í Hafnarfirði
40 ára sl. þriðjudag
30 ára á miðvikudag
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík
Afmælisbörn
Til hamingju!