Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2012, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2012, Blaðsíða 14
E ld sn ey ti Bensín Dísilolía Algengt verð 240,5 kr. 252,8 kr. Algengt verð 240,1 kr. 252,5 kr. Höfuðb.sv. 240,0 kr. 252,4 kr. Algengt verð 240,5 kr. 252,9 kr. Algengt verð 242,4 kr. 252,8 kr. Melabraut 240,2 kr. 252,6 kr. 14 Neytendur 11. janúar 2012 Miðvikudagur Sagði skilið við kjötið 2003 n Skúli Helgason mælir með því fólk gerist grænmetisætur Frábær þjónusta n Lofið fær Jurtaapótekið á Skóla- vörðustíg en viðskiptavinur vill koma eftirfarandi á framfæri: „Það er alveg frábær þjónusta þar. Ég sendi fyrirspurn í tölvupósti og fékk svar tveimur dögum síðar sem mér finnst bara mjög gott. Sendi svo aftur aðra fyrirspurn og var svarað daginn eftir. Sem sagt gott að leita til þeirra og  manni er svarað um hæl.“ Svarað seint og illa n Lastið fær Umboðsmaður skuld- ara sem hefur ekki svarað tölvu- pósti sem sendur var fyrir mán- uði. Síðasta skipti þar áður var ekki heldur svarað fyrr en gengið var eftir svari. Lesandi sendi eftir- farandi: „Umboðsmaður skuldara svarar ekki tölvupóstum sem ég hef sent og gerir almennt ekk- ert umfram bankana til að hjálpa skuldurum í erfiðum verðsetning- armálum.“ DV leitaði til Umboðsmanns skuldara og bar lastið undir Svan- borgu Sigmarsdóttur upplýsinga- fulltrúa. Hún sagði að þetta væri leiðinlegt að heyra. „Vissulega reynum við að svara fyrr en þetta og ef engin svör hafa borist við fyr- irspurnum er ekkert annað hægt að gera en biðjast af- sökunar á því. Ég get hins vegar ekki tjáð mig um fullyrð- inguna um að ekk- ert sé gert umfram bankana, þar sem ég veit ekki um hvað málið snýst,“ sagði Svanborg. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Fjölmörg erindi frá leigjendum Ársskýrsla Leigjendaaðstoðar Neyt- endasamtakanna 2011 er komin út en Leigjendaaðstoðin var stofnuð á síðasta ári. Samkvæmt heimasíðu samtakanna bárust Leigjendaað- stoðinni á árinu alls 1.048 erindi frá leigjendum, þar af 817 eftir að þjónustusamningur við velferð- arráðuneytið tók gildi í maí 2011. Flest erindin vörðuðu viðhald og ástand leigueignar annars vegar og álitamál sem snúa að uppsögn leigusamnings hins vegar. Finna má ítarlega umfjöllun um leigumál á nýrri heimasíðu, leigjendur.is. n eysla á dýraafurðum í því magni sem tíðkast á Vestur- löndum eykur líkur á þeim sjúkdómum sem helst eru banamein Íslendinga. Nær- ingarfræðingurinn Ólafur G. Sæ- mundsson mælir með því að fólk minnki neyslu dýraafurða eða taki jafnvel eina tegund þeirra úr mat- aræði sínu, til dæmis rautt kjöt. Hann bendir á að óhóf í neyslu dýraafurða leiðir til offitu. Getum snúið þróuninni við Ein þeirra rannsókna sem sýna tengsl milli neyslu dýraafurða og banvænna sjúkdóma er The China- Cornell-Oxford Project en þar var dánartíðni, mataræði og lífsstíll 6.500 Kínverja skoðaður en rann- sóknin spannaði 20 ára tímabil. Að rannsókninni stóðu Oxford-háskól- inn í Bretlandi, Cornell-háskólinn í Bandaríkjunum og Chinese Aca- demy of Preventive Medicine í Kína. Niðurstöðurnar voru þær að þeir sem borða mikið af kjöti og öðrum dýraafurðum voru mun líklegri til að fá langvarandi sjúkdóma en þeir sem borðuðu einungis mat úr plönturík- inu. Síðarnefndi hópurinn sneiðir hjá dýraafurðum svo sem kjöti, fiski, eggjum, osti og mjólk en með því minnka þeir eða jafnvel snúa við þró- un langvinnra sjúkdóma. Niðurstöð- ur rannsóknarinnar benda þannig til Við borðum of mikið kjöt Á Vísindvef Háskóla Íslands segir að græn- metisætur séu engan veginn einsleitur hópur heldur skiptist hann í undirhópa eftir því hversu strangt fæðuvalið er: Semivegetarian er sá sem neytir jurtafæðu og útilokar sumar dýraafurðir úr neyslu sinni. Algengt er að neyslu á rauðu kjöti sé sleppt en að fuglakjöt og sjávarfang sé stundum á borðum. Semivegetarian neytir mjólkurafurða og eggja. Lacto-ovo-vegetarian neytir eggja og mjólkurafurða úr dýraríkinu en annars eingöngu jurtaafurða. Lacto-vegetarian neytir mjólkur- afurða en þar fyrir utan einungis jurtaafurða. Vegan útilokar allar dýraafurðir úr fæðu sinni, en neytir allra jurtaafurða. Fructarian borðar eingöngu jurtaafurðir sem má tína án þess að skemma móðurjurtina sam- kvæmt mismunandi þröngum skilgreiningum. n Offita er meðal annars afleiðing of mikillar neyslu dýraafurða n Offitan eykur líkur á að fá langvarandi sjúkdóma n Vannæring hrjáir oft jurtaætur að marga langvinna sjúkdóma megi rekja til vesturlandavæðingar en á Vesturlöndum eykst neysla dýrapró- teina og mjólkurafurða sífellt. Það eru matarvenjur sem hafa aldrei tíðkast í Kína eða eru afar óalgengar. Í kjölfar rannsóknarinnar gáfu feðgarnir og læknarnir T. Colin Campbell og Thomas M. Campbell II út bókina The China Study. Þar er skoðað sambandið á milli neyslu á dýraafurðum og sjúkdóma, svo sem ýmiss konar krabbameina, sykur- sýki, hjartasjúkdóma, offitu, bein- þynningar og heilahrörnunarsjúk- dóma. Offitan orsakar sjúkdóma „Ég mundi ekki ráðleggja fólki að taka allt kjöt út úr mataræðinu held- Næringarfræðingurinn Ólafur G. Sæmundsson segir að margir neyti allt of mikils kjöts. ur hafa í huga þessa gömlu góðu reglu að fara ekki út í ofát á einu né neinu. Sýnt hefur verið fram á tengsl á milli mikillar neyslu á kjöti og ým- issa sjúkdóma. Um það er ekki deilt en aftur á móti er spurning hvort það sé betra að taka út allan dýramat,“ segir Ólafur. Hann segir að kjötneysla margra sé allt of mikil og helstu tengsl við langvarandi sjúkdóma, hvort sem það eru hjarta- og æðasjúkdómar, sykursýki eða krabbamein, er offita. „Eftir því sem við erum feitari, þeim mun meiri líkur eru á að við verðum fyrir barðinu á þessum sjúkdómum. Þetta er svo tengt offitunni því þeir sem borða mikið af dýraafurðum eru Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is Heilsa nokkrir hópar grænmetisæta S kúli Helgason alþingis- maður og fjölskylda hans hafa verið grænmetisætur síðan sumarið 2003. Hann segir að eins og flestar góð- ar hugmyndir hafi þessi komið frá konu hans en hún hafði tekið af skarið og var búin að vera græn- metisæta í nokkur misseri á und- an. „Við vorum á leið til Banda- ríkjanna í nám og mér fannst það ágætur tímapunktur að segja skilið við kjötið áður en maður færi inn í þetta mikla vígi hormónakjötsins. Það má eiginlega segja að þetta séu þessi klassísku rök úr Dýrunum í Hálsaskógi, að ekkert dýr má borða annað dýr,“ segir hann. Skúli segir að þau borði dýraaf- urðir, svo sem mjólkurvörur og egg, en ekkert kjöt en hann sé sá eini sem borði stundum fisk. „Ég borða hann stundum í vinnunni en það er bara mín sérviska og kannski þjóð- arstoltið sem kemur upp. Heima borðum við eingöngu grænmetis- rétti og mat sem kallar ekki á að dýr þurfi að deyja fyrir okkar hönd.“ Synirnir fylgja einnig þessu mat- aræði en Skúli segir að það hafi kom- ið skemmtilega á óvart hve þeir séu harðir í grænmetinu. Þau hjónin hafi strax ákveðið að leyfa drengjunum að ráða og þeir hafi haldið mataræð- inu síðan. „Þeir eru jafnvel harðari en við.“ Það hafi þó stundum verið flókið fyrir þá utan heimilisins og þeir hafi þurft að fá sérstakan mat í skólanum sem hafi gengið upp og ofan. Synirn- ir hafi þó aldrei gefið eftir með þetta. Aðspurður hvort honum finn- ist þetta hafa áhrif á heilsuna og al- menna líðan segist Skúli hafa fund- ið það strax. „Við höfum verið býsna heilsuhraust eftir við tókum þetta skref þannig að ég mundi mæla með þessu. Ég geng ekki um með eldibrand og boða þetta fagnaðar- erindi en þetta hentar okkur vel og hver og einn verður að gera upp við sig hvort hann vilji taka þetta skref. Ég held að þetta sé sniðugt fyrir fólk sem er opið fyrir nýjungum, að prófa þetta og taka svo ákvörðun.“ Skúli Helgason Segir að hugmyndin hafi komið frá eiginkonunni. MYND SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.