Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2012, Blaðsíða 22
Frímann afhenti „Frímanninn“
n Nýr ferðavefur já.is
S
jónvarpsmaðurinn
hégómlegi Frímann
Gunnarsson afhenti á
þriðjudaginn verðlaun-
in „Frímanninn“ – verðlaun
sem hann sjálfur stendur að
og eru veitt fyrir góða eftir-
fylgni við þá miklu landkynn-
ingu sem hann hefur sjálf-
ur staðið að á undanförnum
árum.
Tilefnið var opnun nýs vefj-
ar Já sem ætlað er að veita er-
lendum ferðamönnum betra
aðgengi að upplýsingum um
Ísland og vörur og þjónustu
sem þeim standa til boða hér
á landi. Nýja vefinn, sem má
finna á slóðinni www.iceland.
ja.is, er samstarfsverkefni Já
og aðila í íslenskri ferðaþjón-
ustu, og verða íslensk fyrirtæki
sýnilegri ferðamönnum bæði
áður en þeir koma til landsins
og meðan á dvöl þeirra stend-
ur.
„Í fyrra komu í kringum
600.000 ferðamenn til Íslands
og sumir telja að þeim muni
fjölga upp í milljón gesti inn-
an nokkurra ára,“ segir Sig-
ríður Margrét Oddsdóttir, for-
stjóri Já í fréttatilkynningu:
„Árlegur ferðamannafjöldi
sem nemur tvöfaldri til þre-
faldri íbúatölu Íslands þarf
vörur, þjónustu og ekki síst
upplýsingar. Ferðamenn vilja
með einföldum hætti að geta
kynnt sér bæði verslanir og
þjónustu á Íslandi. Þessi upp-
lýsingaþörf á jafnt við um veit-
ingastaði sem lýtalækna, hótel
sem heilsulindir.“
Sigríður segir að ferða-
menn þurfi alls kyns þjón-
ustu því sumir komi hingað
til lands meira að segja til að
gifta sig. „Ég tel að þjónustu-
og verslunariðnaður á Íslandi
geti rennt styrkari stoðum
undir reksturinn með því að
höfða betur til erlendra ferða-
manna. Ferðamenn þurfa
alls kyns hefðbundna þjón-
ustu, án þess að vita endilega
hvar þeir eigi að bera niður til
að afla hennar, sumir koma
meira að segja hingað til þess
að gifta sig!“
22 Fólk 11. janúar 2012 Miðvikudagur
Þ
að er allavega alveg
rosalega gaman að
vera til,“ segir sund-
drottningin Ragn-
heiður Ragnarsdótt-
ir sem er komin með nýjan
kærasta. Sá heppni heitir Atli
Bjarnason og leggur stund á
viðskiptafræði. Ragnheiður
staðfestir í viðtali við DV að
þau Atli séu par en vill lítið
tjá sig um sambandið. „Þetta
er mjög nýtt. Ég er búin að
þekkja hann mjög stutt. Þetta
gerðist allt mjög hratt en ég
er gríðarlega glöð,“ segir hún
hlæjandi og bætir við að það
gangi enn betur að æfa þegar
hún sé svona glöð og ánægð
með lífið.
Ragnheiður hugsar vel
um heilsuna en hún starfar
sem fyrirsæta meðfram sund-
inu. Aðspurð segist hún ekki
einblína á útlitið þegar hún
standi á sundlaugarbakkan-
um en viðurkennir þó að út-
litið hafi samt áhrif. „Þar er
útlitið algjört aukaatriði en ég
fjármagna sundið með fyrir-
sætustörfum og vil því líta vel
út. Ég vil ekki vera með bauga
niður á gólf ef einhver kúnni
vill nota mig í auglýsingar. Svo
hefur maður líka meira sjálfs-
traust á sundlaugarbakkan-
um ef maður þarf ekki að hafa
áhyggjur af of mikilli appels-
ínuhúð svo þetta helst allt í
hendur,“ segir hún en bætir þó
við að allir hafi appelsínuh-
úð. „Þrátt fyrir að ég æfi mjög
mikið er ég ekki það heppin
að sleppa,“ segir hún en bæt-
ir við að hún lumi á góðu ráði
í baráttunni við appelsínuh-
úðina. „Ég reyni að fara viku-
lega í LPG-líkamslögun sem
bæði styrkir og stinnir húðina
og virkjar sogæðakerfið. Þetta
tæki er alveg frábært, bæði
fyrir appelsínuhúðina og fyrir
mig sem íþróttakonu og verð-
ur til þess að ég næ mér betur
á milli æfinga. Margar stórar
stjörnur á borð við Madonnu
og knattspyrnumanninn Zid-
ane nota þetta svo það þarf
enginn að skammast sín fyrir
að prófa.“
Aðspurð segir hún að nýi
kærastinn sé ekki íþróttamað-
ur. „Hann æfir og lifir heil-
brigðu lífi enda efast ég um
að ég geti heillast af manni
sem hugsar ekki um heils-
una. Heilsan er svo stór partur
af mínu lífi. Ég er ekki mann-
eskjan sem djammar eða situr
með snakk og kók fyrir fram-
an sjónvarpið á kvöldin og
því held ég að það yrðu miklir
árekstrar ef ég færi í samband
með þannig manni.“
indiana@dv.is
Ástfangin
sunddrottning
n Ragnhildur Ragnarsdóttir er ástfangin og nýtur lífsins
n Notar sömu tækni og Madonna gegn appelsínuhúð
Flott Þótt útlitið sé
aukaatriði hjá Ragnheiði
á sundlaugarbakkanum
vill hún líta vel út.
Sunddrottning
Æfingarnar ganga vel þessa
dagana hjá Röggu enda er
hún sátt við lífið og tilveruna.
„Þetta gerð-
ist allt mjög
hratt en ég er gríð-
arlega glöð
Lífskúnstner Frímann
Gunnarsson er engum líkur.
Tekst ekki
að byrja
Þessa dagana berjast eflaust
margir við að skemma
ekki þau áramótaheit sem
strengd voru þegar nýja árið
gekk í garð. Á meðal vinsæl-
ustu áramótaheita er án efa
að ætla að hætta að reykja,
hreyfa sig meira og drekka
minna. Fréttamaðurinn
Andri Ólafsson á Stöð 2 hlýt-
ur að hafa farið vitlausum
megin fram úr á nýársdag.
Á fésbókarsíðu sína skrifar
Andri færslu um að honum
sé ekki að takast að byrja
reykja aftur. Það sé því ekkert
annað í stöðunni en að selja
þá sígarettupakka sem hann
eigi. Stundum er gott að
takast ekki það sem maður
ætlar sér.
Rekinn
af RÚV
Íþróttafréttamanninum Hirti
Júlíusi Hjartarsyni hefur ver-
ið sagt upp á RÚV og hverfur
hann af skjánum tafarlaust.
Hjörtur hefur starfað fyrir
íþróttadeildina síðan haustið
2007 og var fljótlega gerður
að yfirmanni deildarinnar.
Hann hefur verið áberandi á
skjánum, þá einna helst sem
stjórnandi knattspyrnuþátt-
arins vinsæla Íslensku mörk-
in. Síðasta verk Hjartar var
að stýra beinni útsendingu af
Íþróttamanni ársins sem fór
fram síðastliðinn fimmtudag.
Stjörnur fara
í Stjörnu-
þjálfun
Deildarstjórinn, íþróttakenn-
arinn og einkaþjálfarinn
Anna Eiríksdóttir stendur
fyrir námskeiðinu Stjörnu-
þjálfun í líkamsræktarstöð-
inni Hreyfingu. Á námskeið-
inu hefur fjöldi þekktra og
áberandi Íslendinga látið
sjá sig en á meðal þeirra
eru tískulöggan Svavar Örn,
Smartlandsritstýran Marta
María Jónasdóttir og Þórdís
Kjartansdóttir lýtalæknir.
Stjörnuþjálfunin virðist því
standa fyllilega undir nafni.