Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Blaðsíða 19
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is Ættfræði 19Miðvikudagur 1. febrúar 2012 1. febrúar 30 ára Pravin Ramdin Hringbraut 112, Reykjavík Anna Salmon Snorradóttir Ásakór 15, Kópavogi Sigfús Heimisson Naustabryggju 11, Reykjavík Selma Guðbrandsdóttir Ystaseli 27, Reykjavík Lárus Guðmundur Jónsson Hörðukór 5, Kópavogi 40 ára Beate Stormo Kristnesi, Akureyri Gudrun Schmidt Hléskógum 11, Egilsstöðum Thuy Thi Vu Jórufelli 2, Reykjavík Daiva Léliené Heiðarbæ 7, Reykjavík Redouane Naoui Hverfisgötu 58, Reykjavík Sigurborg Arnarsdóttir Sunnubraut 10, Kópavogi Karl Viggó Vigfússon Hjallabraut 21, Hafnarfirði Stefán Georgsson Fífuvöllum 9, Hafnarfirði Erla Sif Gísladóttir Hjaltabakka 14, Reykjavík Þór Þorsteinsson Skálpastöðum 2, Borgarnesi Sævar Guðjónsson Fensölum 8, Kópavogi Guðrún Erla Hrafnsdóttir Skeggsstöðum, Blönduósi Guðbjörn Sigurjónsson Grænási 2a, Reykjanesbæ 50 ára Þórdís Sif Þórisdóttir Skagfirðingabraut 43, Sauðárkróki Sigríður Skúladóttir Brekkubraut 11, Akranesi Anton Antonsson Veghúsum 3, Reykjavík Klara Björg Olsen Kambaseli 63, Reykjavík Ásta Hrönn Jónsdóttir Þjóðbraut 1, Akranesi Guðjón Þórðarson Gauksási 15, Hafnarfirði Björk Sigurðardóttir Furugrund 79, Kópavogi Arnhildur Ásdís Kolbeins Gauksási 57, Hafnarfirði Kristín Sigfúsdóttir Hlíðarbæ 6, Akranesi Dariusz Stanislaw Kurkowski Hafnarbraut 23, Kópavogi Þorgeir Egilsson Digranesvegi 72a, Kópavogi Vilborg Kristinsdóttir Blikastöðum 1, Mosfellsbæ Anna María Jónsdóttir Stigahlíð 46, Reykjavík Þorvarður Björgúlfsson Kvíslartungu 36, Mosfellsbæ Ína Björg Ágústsdóttir Tunguvegi 78, Reykjavík Hildur Friðriksdóttir Kjarrvegi 11, Reykjavík Ólafur Haukur Ólafsson Sólvallagötu 24, Reykjavík Anna Rósa Vigfúsdóttir Ægisbyggð 22, Ólafsfirði 60 ára Hrönn Sigurðardóttir Sléttahrauni 34, Hafnarfirði Guðný Skarphéðinsdóttir Jakaseli 8, Reykjavík Hafsteinn Viðar Jónsson Mururima 1, Reykjavík Guðmundur B. Magnússon Austurtúni 6, Hólmavík Margrét Kristjánsdóttir Borgarhrauni 13, Hveragerði Ásta Sigríður Sigtryggsdóttir Lundar- brekku 16, Kópavogi Arngunnur Atladóttir Næfurási 12, Reykjavík Þór Gunnarsson Skildingatanga 4, Reykjavík Svava Sigurbjörg Hjaltadóttir Flyðru- granda 12, Reykjavík Ingibjörg Pálsdóttir Fossatúni, Borgarnesi 70 ára Valdimar Briem Óðinsgötu 3, Reykjavík Sigurður Guðmundsson Dalalandi 10, Reykjavík Kristján Óli Hjaltason Strandvegi 2, Garðabæ Jakobína Ingadóttir Kópavogstúni 6, Kópavogi Jóhann Sigurjónsson Langholtsvegi 176, Reykjavík Gústaf Jónasson Heiðarbrún 1, Hveragerði Matthildur Jóhannsdóttir Fróðengi 7, Reykjavík 75 ára Hulda Karls Hvannavöllum 8, Akureyri Baldur Jónsson Klettavík 15, Borgarnesi Regína Margrét Birkis Árskógum 8, Reykjavík Birgir Haraldsson Bakka, Sauðárkróki Kristín Karlsdóttir Hvammi 2a, Flúðum Aðalheiður Svavarsdóttir Gullsmára 7, Kópavogi 80 ára Fanney Dóra Kristmannsdóttir Lundar- brekku 16, Kópavogi Margrét Gestsdóttir Núpalind 8, Kópavogi Árni S. Norðfjörð Dalalandi 10, Reykjavík 85 ára Anna Jónsdóttir Skólavegi 24, Reykjanesbæ 2. febrúar 30 ára Ingveldur Linda Gestsdóttir Kolugili, Hvammstanga Aðalsteinn Birgisson Nesbala 52, Seltjarnarnesi Birgir Pétur Þorsteinsson Hellulandi 15, Reykjavík Arna Sveinsdóttir Hátúni 4, Reykjavík Karen Lind Gunnarsdóttir Brúarási 11, Reykjavík Guðmunda Ellen Loftsdóttir Grettisgötu 75, Reykjavík Bjarki Borgþórsson Fjarðarbakka 5, Seyðisfirði Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir Norðurbraut 3, Hafnarfirði Friðbert Elí Friðbertsson Hnoðravöllum 23, Hafnarfirði Garðar Sigfússon Hagaseli 20, Reykjavík Sigvaldi Guðni Geirmundsson Ásgarði 11, Reykjanesbæ Sylvía Guðmundsdóttir Heiðarbraut 29d, Reykjanesbæ Hafliði Guðmundsson Laufengi 29, Reykjavík Ingólfur Þór Pétursson Lóuási 11, Hafnarfirði Margeir Valur Sigurðsson Ásabraut 6, Akranesi 40 ára Garðar Þorvarðsson Urriðakvísl 22, Reykjavík Margeir Vilhjálmsson Gvendargeisla 130, Reykjavík Arnar Guðmundsson Stórhóli 23, Húsavík Reimar Sigurjónsson Felli, Bakkafirði Sigríður Geirsdóttir Drangakór 4, Kópavogi Gunnar Árni Gunnarsson Logafold 153, Reykjavík Þórhildur Ólöf Helgadóttir Silungakvísl 8, Reykjavík 50 ára Supha Sriprasert Álfkonuhvarfi 53, Kópavogi Svala Íris Svavarsdóttir Heiðarlundi 2g, Akureyri Bergþór P. Aðalsteinsson Ekrusíðu 9, Akureyri Hörður Valgeirsson Nökkvavogi 29, Reykjavík Gústaf Fransson Klukkubergi 34, Hafnarfirði Kristinn Þór Runólfsson Akurholti 5, Mosfellsbæ Ingibjörg Hrönn Ingimarsdóttir Sólhei- mum 26, Reykjavík Tómas Karl Karlsson Múlasíðu 42, Akureyri Magnús Jónsson Hellnafelli 8, Grundarfirði Hildur Lindberg Hansdóttir Hörgsholti 25, Hafnarfirði Jónas Viðar Sveinsson Laugavegi 49, Reykjavík Margrét Ragnarsdóttir Laxakvísl 35, Reykjavík Logi Friðriksson Bárugranda 5, Reykjavík 60 ára Mieczyslaw Jaworowski Skipasundi 81, Reykjavík Jakob K. Kristjánsson Holtsbúð 55, Garðabæ Sigurbjörn Bárðarson Breiðahvarfi 4, Kópavogi Úlfur Agnarsson Aragötu 7, Reykjavík Bragi Björnsson Álfheimum 14, Reykjavík Freysteinn Vigfússon Fjarðarseli 12, Reykjavík Daníel Magnús Jörundsson Sviðholtsvör 1, Álftanesi Guðbjörg Pálmadóttir Háuhlíð 1, Sauðárkróki Friðlaugur U. Friðjónsson Háaleitisbraut 38, Reykjavík Heiðrún Björnsdóttir Sundstræti 34, Ísafirði Magnús Hans Magnússon Grandahvarfi 2, Kópavogi Hildur Hafstað Aragötu 12, Reykjavík 70 ára Sigríður B. Jóhannsdóttir Lækjasmára 84, Kópavogi Kolbrún Inga Guðmundsdóttir Heiðarbraut 4, Garði Anatoly Bragin Flúðaseli 68, Reykjavík Ragnheiður Heiðreksdóttir Beykihlíð 9, Reykjavík Áslaug Diðriksdóttir Efstasundi 85, Reykjavík Edmund Bellersen Vesturfold 35, Reykjavík 75 ára Björg Gunnarsdóttir Suðurgötu 17, Sandgerði Guðmundur Hólm Kastalagerði 7, Kópavogi Elsa Guðmundsdóttir Leynisbraut 29, Akranesi Helga Heiðbjört Björnsdóttir Kríunesi v/ Vatnsenda, Kópavogi 80 ára Einar Baldvinsson Brúnalandi 22, Reykjavík Gyða Svavarsdóttir Furugerði 1, Reykjavík 85 ára Oddný Eyjólfsdóttir Hvassaleiti 58, Reykjavík Jóna Margrét Júlíusdóttir Eyjahrauni 7, Vestmannaeyjum E rtu ekki að grínast...?“ spurði Þóra Margrét Lúthersdóttir til baka, og hló, þegar blaða- maður DV hafði leyft sér að spyrja hana hvort hún kviði nokkuð afmælistilstand- inu, en hún er einmitt þrí- tug í dag, miðvikudag: „Ég hef engan tíma til þess að fara að kvíða fyrir einhverju afmælis- tilstandi. Ég hef heldur engan tíma fyrir neitt sérstakt afmæl- istilstand – boð og boðskort, bjór og grill og gesti – ef þú heldur það. Ég er þriggja barna móðir á Blönduósi og á von á fjórða barninu í lok apríl. Ég er í 70 prósent vinnu utan heim- ilis á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi og ég er í 100 pró- sent fjarnámi við Landbúnað- arháskólann á Hvanneyri – er að ljúka námi í búvísindum nú í vor. Eiginmaðurinn er úti á sjó og kemur ekki í land fyrr en um miðjan febrúar. Ég ætti nú ekki annað eftir en að fara blása til veislu og velta fyrir mér veitingum og veisluþema. Ó nei!“ En ætlar þú ekkert að gera í tilefni dagsins? „Ég var lengi helst á því að gera ekki neitt í tilefni dagsins en svo ákvað ég bjóða pabba og mömmu út að borða og taka krakkana með. Síðan fer ég heim, leigi mér góða spólu og læt eldri dótturina dekra svolítið við mömmu sína. Leyfi mér sem sagt að gera ekki neitt í eina kvöldstund. Það er nú allt og sumt.“ En segðu mér annað: Er hægt að fara út að borða á Blönduósi? „Auðvitað. Á Pottinn mað- ur. Það er alveg æðislegur staður. Þar er meira að segja barnahorn svo maður geti slakað aðeins á eftir matinn.“ Þóra Margrét er sveitapía sem kallar ekki allt ömmu sína, alin upp á bænum Forsæludal í Vatnsdal. Eiginmaður henn- ar er Einar Árni Sigurðsson vélstjóri sem er á fraktskipinu Helgafelli hjá Samskipum, en börnin heita Arndís, tólf ára, Jóhanna María, sem verður þriggja ára í apríl, og Benedikt Þór, sem verður tveggja ára í júlí. En hvers vegna búfræði- próf. Á kannski að fara búa í sveit? „Það hefur nú ekkert verið ákveðið í þeim efnum en ég gæti alveg hugsað mér það já. Við sjáum bara til. En ef af því verður einhvern tíma er auð- vitað ágætt að vera með próf í búvísindum.“ – segir afmælis- barnið sem lætur ekki eitt þrí- tugsafmæli slá sig út af laginu.“ V alborg fæddist í Ráðagerði á Sel- tjarnarnesi en ólst upp í Reykjavík. Hún lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1941, prófi í for- spjallsvísindum við Há- skóla Íslands 1942, stund- aði nám í uppeldis- og sálarfræði við ríkisháskólann í Minnesota, Minneapolis í Bandaríkjunum, 1942–43 og stundaði nám við Smith College, North ampton í Massachusetts í Bandaríkj- unum, 1943–46, lauk þar BA- prófi 1944 og MA-prófi 1946, fyrst íslenskra kvenna. Valborg var skólastjóri Fósturskóla Sumargjafar (síðar Fósturskóla Íslands) 1946–85. Hún var kennari í sálarfræði við Hjúkrunar- kvennaskólann 1947–56, í uppeldisfræði við Náms- flokka Reykjavíkur 1949–50 og 1952–53 og gestafyrirlesari við Ohio Northern University í Bandaríkjunum 1977. Valborg sat í stjórn Geð- verndarfélags Íslands 1950– 58, í stjórn Barnavinafélags- ins Sumargjafar 1956–68, í Æskulýðsráði Reykjavíkur 1955–56 og sat í stjórnskip- uðum nefndum um Fóstur- skóla Íslands og forskólastarf innan vébanda grunnskóla. Valborg var ritari Zonta- klúbbs Reykjavíkur 1972–74, varaformaður 1974–75 og formaður 1975–76. Hún var formaður Félags kvenna í fræðslustörfum DKG 1987– 89 og formaður Bernskunn- ar - Íslandsdeildar OMEP (alþjóðasamtaka um upp- eldi ungra barna) frá stofnun 1989–2001. Valborg samdi og sendi frá sér, árið 2005, bókina Ís- lenska menntakonan verður til. Bókin fjallar um þær ungu konur sem öðrum fremur, ruddu brautina að menntun kvenna á Íslandi. Valborg var sæmd ridd- arakrossi fálkaorðunnar 1972 og stórriddarakrossi fálka- orðunnar 1986. Þá var Val- borg útnefnd heiðursdoktor við Kennaraháskóla Íslands 2001. Fjölskylda Valborg giftist 11.11. 1950 Ár- manni Snævarr, f. 18.9. 1919, d. 15.2. 2010, prófessor og fyrrv. háskólarektor Háskóla Íslands og hæstaréttardóm- ara. Hann var sonur Valdi- mars Snævarr skólastjóra og Stefaníu Erlendsdóttur hús- móður. Börn Valborgar og Ár- manns eru Sigríður Ásdís, f. 23.6. 1952, sendiherra, gift Kjartani Gunnarssyni, lög- fræðingi; Stefán Valdemar, f. 25.10.1953, ljóðskáld og doktor og prófessor í heim- speki í Lillehammer í Nor- egi; Sigurður Ármann, f. 6.4. 1955, M.Sc í hagfræði en kona hans er Eydís Krist- ín Sveinbjarnardóttir, MS í hjúkrun og aðstoðarmaður framkvæmdastjóra hjúkr- unar á Landspítala Háskóla- sjúkrahúsi; Valborg Þóra, f. 10.8. 1960, leikskólakenn- ari og hæstaréttarlögmað- ur, gift Eiríki Thorsteinsson, kvikmyndagerðarmanni; Árni Þorvaldur, f. 4.3. 1962, BA í sagnfræði, upplýsinga- fulltrúi hjá Sameinuðu þjóð- unum í Brüssel. Systkini Valborgar: Þor- grímur Vídalín, f. 19.11. 1905, d. 10.7. 1983, prófastur á Staðastað; Hrefna, f. 28.10. 1907, d. 21.5. 1908; Anna, f. 5.12. 1908, d. 3.1. 1996, for- stöðumaður Kvennasögu- safns Íslands; Guðmundur Axel, f. 28.4. 1911, d. 20.9. 1931, lögfræðinemi; Guð- rún, f. 7.7. 1912, d. 1.7. 1905; Margrét, f. 29.1. 1914, d. 21.3. 2002, húsmóðir; Aðalheiður, f. 6.12. 1915, d. 29.6. 1998, húsmóðir; Sigurmar Ásberg, f. 18.4. 1917, d. 14.7. 1990, borgarfógeti; Áslaug, f. 27.1. 1919, d. 20.8. 2005, leikskóla- kennari. Systur Valborgar, sam- feðra, voru Kristín Lovísa, f. 23.3. 1898, d. 1.3. 1929, skóla- stjóri á Hvítárbakka og alþm. í Reykjavík; Margrét, f. 3.4. 1901, d. sama dag. Foreldrar Valborgar: Sig- urður Þórólfsson, f. 11.7. 1869, d. 1.3. 1929, skólastjóri á Hvítárbakka, og s.k.h., Ás- dís Margrét Þorgrímsdóttir, f. 18.10. 1883, d. 9.4. 1969, hús- móðir. Ætt Sigurður var sonur Þórólfs, b. á Skriðnafelli á Barðaströnd Einarssonar, skipstjóra og b. á Hreggstöðum á Barðaströnd Jónssonar, b. á Hreggstöðum Einarssonar. Móðir Jóns var Ástríður Sveinsdóttir, systir Guðlaugs, langafa Páls, lang- afa Ólafs Ólafssonar, fyrrv. landlæknis. Ásdís Margrét var systir Guðrúnar, móður Tómasar Á. Tómassonar sendiherra. Ásdís var dóttir Þorgríms, b. á Kára- stöðum á Vatnsnesi, bróður Davíðs, langafa Davíðs Odds- sonar Morgunblaðsritstjóra. Þorgrímur var hálfbróðir Frí- manns, föður Sigurbjargar, langömmu Guðrúnar Agn- arsdóttur, læknis og fyrrv. for- manns Krabbameinsfélags Íslands. Þorgrímur var son- ur Jónatans, b. á Marðarnúpi Davíðssonar. Móðir Jónatans var Ragnheiður Friðriksdótt- ir, pr. á Breiðabólstað í Vestur- hópi Þórarinssonar, ættföður Thorarensenættar Jónsson- ar. Móðir Friðriks var Sigríð- ur Stefánsdóttir, móðir Jóns Espólín sagnaritara og systir Ólafs, stiftamtmanns í Við- ey, ættföður Stephensen- ættar. Móðir Ragnheiðar var Hólmfríður Jónsdóttir, vara- lögmanns í Víðidalstungu Ólafssonar, lögsagnara á Eyri Jónssonar, ættföður Eyrarætt- ar, langafa Jóns forseta. Móðir Ásdísar Margrétar var Guðrún Guðmundsdóttir, systir Guðbjargar, móður Jóns Ásbjörnssonar hæstaréttar- dómara. Valborg Sigurðardóttir Fyrrv. skólastjóri Fósturskóla Íslands Örstutt afmælis- og hvíldarstund Þóra Margrét á Blönduósi, þrítug 90 ára á miðvikudag Afmælisbarn dagsins www.bioparadis.is hverfisgötu 54 / 101 reykjavík Afmælisbörn Til hamingju! Fjölskyldan Þóra Margrét og fjölskyldan á góðri stund

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.