Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 1. febrúar 2012 Miðvikudagur
Með silíkon í hálsi og baki
n Saga Ýrr boðuð á fund velferðarnefndar vegna PIP-púða
S
aga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður
kvennanna sem hyggjast leita
réttar síns vegna PIP-brjósta-
púða, var boðuð á fund vel-
ferðarnefndar Alþingis síðastliðinn
mánudag. „Þetta voru í rauninni bara
spurningar sem voru lagðar fyrir mig
til að þau fengju upplýsingar um hver
staðan væri,“ segir Saga til að útskýra
hvað fór fram á fundinum. Næstir inn
á fund á eftir Sögu voru landlæknir og
fulltrúi velferðarráðuneytisins.
„Maður vonast til að þetta verði til
þess að það fari að koma einhver að-
gerðaáætlun,“ segir Saga og bendir á
að ekkert hafi verið gefið út um það
hvenær aðgerðirnar til að fjarlægja
brjóstapúðana eigi að hefjast. Vel-
ferðarráðuneytið hefur einungis sent
út bréf til kvennanna þar sem þeim er
boðið upp á ómskoðun á brjóstum.
Saga lét þá skoðun sína í ljós á
fundinum að það yrði að fara að taka
ákvarðanir í þessu máli. „Það er ekki
hægt að hafa konur bíðandi í von og
ótta um hvort þær fái aðgerð, hve-
nær þær fái aðgerð og hvort þær fái
aðra púða.“ Hún segir sumar þessara
kvenna jafnvel vera sárkvaldar. Þær
hafi farið í ómskoðun á eigin vegum
og fengið staðfestingu á því að silí-
konið sé farið að leka og dreifast um
líkama þeirra. Það sé komið í háls,
rifbein, bak og á fleiri staði.
Þá segir Saga það ekki síður mik-
ilvægt að þær fái þessar upplýsingar
sem fyrst svo þær geti skipulagt sig
og fengið frí frá vinnu vegna aðgerð-
anna.
Saga er þó mjög ánægð með að
hafa verið boðuð á umræddan fund
og telur önnur yfirvöld mega taka
sér velferðarnefnd til fyrirmyndar í
þessu máli. solrun@dv.is
Boðuð á fund Saga
Ýrr vonast til að nýaf-
staðinn fundur hjá
velferðarnefnd flýti
fyrir aðgerðaráætlun
vegna PIP-púða.
Stal úr verslun
Karlmaður um fertugt var hand-
tekinn aðfaranótt þriðjudags eftir
að hann var staðinn að þjófnaði í
verslun í Austurstræti í miðborg
Reykjavíkur. Í tilkynningu frá lög-
reglu kemur fram að maðurinn
hafi ekki viljað greiða fyrir vöruna
sem hann tók og þá ógnaði hann
öryggisvörðum sem höfðu afskipti
af honum. Þegar lögregla kom á
staðinn reyndist maðurinn vera
mjög ölvaður. Hann neitaði að
gefa lögreglu upp persónuupplýs-
ingar og greip lögregla því til þess
ráðs að færa hann á lögreglustöð.
Hann var vistaður í fangageymslu
lögreglu þar sem hann svaf úr sér
áfengisvímuna.
Lögregla leitar að vitnum:
Sprengja við
Stjórnarráðið
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu leitar vitna í tengslum við
rannsókn hennar á sprengju sem
fannst neðst við Hverfisgötu í
Reykjavík snemma á þriðjudag.
Í tilkynningu frá lögreglu er aðili
sem var á biðstöð fyrir strætis-
vagna neðst á Hverfisgötunni, fyr-
ir klukkan sjö, sérstaklega hvattur
að gefa sig fram. Aðrir, hvort sem
þeir geta gefið upplýsingar um
fólk eða ökutæki á þessu svæði
á tímabilinu 6.30–7, eru einnig
beðnir um að hafa samband við
lögreglu í síma 444-1000 en upp-
lýsingar má einnig senda í tölvu-
pósti á netfangið abending@lrh.
is. Þá er hægt að koma nafnlaus-
um ábendingum á framfæri í síma
800-5005. Sprengjan sprakk fyrir
klukkan sjö að morgni, steinsnar
frá Stjórnarráðinu í Lækjargötu,
en engan sakaði og sömuleiðis
urðu engar skemmdir. Sprengjan
var ekki öflug en hætta var þó á
ferðum í nánasta umhverfi þar
sem hún sprakk. Einnig er ljóst að
sá eða þeir sem bjuggu hana til
hafa búið yfir einhverri kunnáttu.
Málið er litið alvarlegum augum
og er rannsókn þess í fullum
gangi. Enn er enginn grunaður
um verknaðinn en meðal þess
sem lögreglan vinnur að er að yf-
irfara myndefni úr eftirlitsmynda-
vélum í miðborginni.
Ógnaði kennara
með hnífi
Nemandi á tólfta aldursári við
Melaskóla í Reykjavík mætti vopn-
aður hnífi í skólann eftir hádegi á
þriðjudag. Drengurinn mun sam-
kvæmt heimildum DV hafa hótað
að skera kennara við skólann á
háls og ógnað nærstöddum með
vopninu.
Lögreglan var kölluð til og tókst
að telja drenginn á að láta hnífinn
af hendi. Málið verður tilkynnt til
barnaverndaryfirvalda.
Samkvæmt upplýsingum DV
voru nemendur við skólann kall-
aðir fyrr inn úr frímínútum vegna
atviksins þar sem umsjónarkenn-
arar ræddu við nemendur. Starfs-
mönnum og nemendum var víst
brugðið vegna þessa en eru allir
sagðir hafa brugðist hárrétt við.
É
g skil ekki þessa málfærslu,
þetta er alveg „clean“,“ sagði
Björn Leifsson, einn aðaleig-
enda Lauga ehf. sem rekur lík-
amsræktarstöðvarnar World
Class, í skýrslutöku fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur á þriðjudag.
Þrotabú Þreks ehf., sem var í eigu
Björns og hélt utan um rekstur lík-
amsræktarstöðvanna, krefst riftun-
ar á meintum 300 milljóna króna
„gjafagjörningi“, þar sem peningar
voru færðir úr Þreki yfir í Laugar ehf.
Þá er Laugum gert að endurgreiða
þrotabúinu peningana.
Forsaga málsins er sú að Laug-
ar ehf., sem hélt utan um fasteignir
og tæki World Class, gerði samning
við Seltjarnarnesbæ um byggingu
íþróttamannvirkis á Suðurströnd 2
til 8. Áætlaður kostnaður við bygg-
inguna var um 400 milljónir en
hækkaði upp í 715 milljónir á bygg-
ingartímanum vegna stækkunar
húsnæðisins, óðaverðbólgu og geng-
isfalls.
Veit ekki um hvað þetta snýst
Björn rakti það fyrir dómi hvaða at-
burðarás hefði farið í gang í kjölfarið.
Hann sagði Laugar ekki hafa getað
fengið meira fé lánað út á húsnæðið
og því var brugðið á það ráð í byrjun
árs 2008 að Þrek tæki lán fyrir viðbót-
arkostnaðinum. Þannig hefði orðið
til skuld Þreks við Laugar.
Í maí hefði fjármálastjóri Þreks
hins vegar bent á að eðlilegra væri að
Þrek eignaðist í staðinn 40 prósenta
hlut í fasteign Lauga á Seltjarnarnesi.
Þegar samningurinn var gerður var
hins vegar ákveðið að hann skyldi
gilda frá áramótum og er hann því
dagsettur 2. janúar 2008.
Björn virtist ansi brattur í dómsal
og virkaði stundum hálfhneykslaður
á spurningum Ólafs Kjartanssonar,
lögmanns þrotabús Þreks ehf., sem
nú nefnist ÞS69. Björn sagðist oft-
ar en einu sinni ekki skilja um hvað
málið snérist og spurði lögmanninn
hvað hann vildi eiginlega fá að vita.
Viðskiptin geta ekki staðist
Ólafur benti á það í málflutningi sín-
um að samkvæmt þinglýstum eigna-
skiptasamningi þá hefði hlutur Þreks
í fasteigninni á Suðurströnd verið 50
prósent. Þá hefði Þrek einnig verið
skráð leigutaki á lóðinni sem byggt var
á. Þannig hefði félagið í raun frá upp-
hafi átt 50 prósenta hlut í umræddri
fasteign. Það gæti því ekki staðist að
Þrek hefði fengið 40 prósenta hlut
fyrir 300 milljónir króna og ljóst væri
að um „örlætisfærslu“ væri að ræða.
Ólafur benti jafnframt á að eng-
ar sannanir hefðu verið lagðar fram
fyrir því að Laugar hefðu greitt allan
kostnað við framkvæmdirnar á Suð-
urströnd fram til ársins 2008, líkt og
haldið hefði verið fram. Þá sagði hann
skýringarnar á því af hverju samn-
ingurinn væri ranglega dagsettur
ekki trúverðugar og að bókhaldsgögn
sýndu að færslan hefði ekki átt sér
stað fyrr en 4. febrúar 2009. Þá hefði
Þrek ehf. í raun verið orðið ógjaldfært.
Félagið varð svo gjaldþrota í sept-
ember árið 2009, en sama dag og það
gerðist keyptu Laugar ehf. rekstur
World Class út úr Þreki ehf. ÞS69 hef-
ur einnig krafist riftunar á þeim gjörn-
ingi.
„Kallaður kennitöluflakkari“
Sigurður G. fór mikinn í málflutningi
sínum. Hann gerði lítið úr málflutn-
ingi Ólafs og sagðist hafa tekið það
fram í greinargerð að málið væri illa
framsett og án sönnunargagna. Hann
krafðist að sjálfsögðu sýknu yfir skjól-
stæðingi sínum.
Sigurður sagði það tóman mis-
skilning að halda því fram að tölur í
bókhaldskerfi segðu til um það hve-
nær færsla væri gerð. Hann fullyrti að
réttri skipan hefði verið komið á sam-
skipti félaganna tveggja í maí 2008. Þá
benti Sigurður á að það væri óhugs-
andi að Þrek hefði getað eignast 50
prósenta hlut í fasteigninni án þess
að leggja til fé. Ef það væri raunin þá
væri þetta líklega eina félagið á Íslandi
sem hefði tekist þetta og það jaðraði
við fjársvik.
Þá benti Sigurður á að Þreki hefði
verið lofað 550 milljóna króna hlutafé
frá Straumi vegna fjárfestinga í Dan-
mörku. Það hefði hins vegar verið svik-
ið. Félagið hefði því orðið gjaldþrota.
Sigurður málaði Björn upp sem
hálfgert fórnarlamb í málinu. „Björn
Leifsson hefur bara fengið ónot frá
fjölmiðlum, verið kallaður kennitölu-
flakkari og svikari,“ sagði hann og benti
í áttina að Birni sem sat keikur í dóm-
sal meðan á málflutningi stóð. Hann
sagði Björn borga skuldir félaga sinna
og vera meira að segja í ábyrgð fyrir
félag sem væri í þroti. Kröfuhafarnir
hefðu því ekki orðið fyrir neinu tjóni.
n Bjössi í World Class botnar ekkert í málsókninni gegn sér
Krefjast riftunar
á „örlætisfærslu“
„Björn Leifsson
hefur bara fengið
ónot frá fjölmiðlum, verið
kallaður kennitöluflakkari
og svikari.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Skilur ekki málið
Björn Leifsson, einn
aðaleigenda Lauga
ehf., segir ekkert
óeðlilegt við viðskipti
Þreks ehf. og Lauga
ehf. Mynd SIgtryggur ArI