Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Blaðsíða 15
Neytendur 15Miðvikudagur 1. febrúar 2012
n Margir finna fyrir löngun í sætindi þegar líður á daginn
Í
ljósi undangenginna atburða
finnst okkur mikilvægt að hafa
aðhald með eftirlitinu,“ segir
Brynhildur Pétursdóttir hjá
Neytendasamtökunum en samtök-
in hafa ítrekað þá beiðni að tekið
verði upp svokallað broskallakerfi
sem sem þau telja bestu leiðina til
að auka trúverðugleika eftirlits-
stofnana og fyrirtækja þar sem eft-
irlitsskýrslur og úttektir eru gerðar
opinberar. Samtökin sendu sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra
erindi í febrúar 2011 þar sem þau
hvöttu til þess að kerfið yrði tek-
ið upp hér á landi en það gengur
út á að opinbera eftirlitsskýrslur
heilbrigðisfulltrúa þannig að neyt-
endur séu upplýstir um ástand
veitingastaða, matvöruverslana, ís-
búða, bakaría og annarra staða sem
selja matvæli.
„Í Danmörku nær þetta yfir alla
staði sem selja mat, svo sem versl-
anir, veitingastaði og bakarí. Við
myndum vilja að það næði einnig
yfir alla þá sem framleiða mat,“ seg-
ir Brynhildur en Danir hafa stuðst
við slíkt kerfi í 10 ár með góðum
árangri. Fyrirtæki og heilbrigðis-
fulltrúar höfðu efasemdir í fyrstu
en nú er þekking danskra neytenda
á kerfinu mjög mikil enda hafa þar-
lend stjórnvöld kynnt það vel með-
al neytenda.
Brynhildur segir að kerfið sé ekki
valfrjálst því allar úttektir heilbrigð-
isfulltrúa á stöðum sem selja mat
eru gerðar opinberar. Í kjölfarið sé
þeim gefin einkunn í formi bros-
kalla sem eru settir í glugga staðar-
ins auk eftirlitsskýrslu heilbrigðis-
fulltrúa. Með þessu
móti eru neytend-
ur upplýstir um
ástand þess fyrir-
tækis sem þeir versla
við og sjá hversu vel
þau framfylgja þeim
reglum sem gilda
um starfsem-
ina. Vissulega
sé í dag eftir-
lit með slíkri
starfsemi en
neytendur fá
ekki að vita
niðurstöð-
una.
gunnhildur@dv.is
Bros táknar gæði
n Neytendasamtökin vilja innleiða broskallakerfið
Broskallar Með þeim geta
neytendur verið betur upp-
lýstir um ástand til dæmis
veitingastaða.
Reykjavík Hafnarfjörður Seltjarnarnes Kópavogur Garðabær Akranes Reykjanesbær Mosfellsbær Akureyri Árborg Fljótsdalshérað Fjarðabyggð Ísafjörður Skagafjörður Vestmannaeyjar Dalvíkurbyggð Hornafjörður
Leikskólagjald 24.501 kr. 30.021 kr. 31.477 kr. 25.078 kr. 33.390 kr. 27.868 kr. 31.480 kr. 31.642 kr. 29.560 kr. 31.146 kr. 25.336 kr. 33.726 kr. 34.342 kr. 27.688 kr. 29.829 kr. 30.797 kr. 25.396 kr.
Systkinaafsláttur 75,00% 30,00% 50,00% 30,00% 50,00% 50,00% 50,00% 50,00% 30,00% 25,00% 25,00% 50,00% 30,00% 50,00% 50,00% 30,00% 50,00%
Sorphirða 16.300 kr. 19.300 kr. 16.050 kr. 23.300 kr. 17.500 kr. 27.700 kr. 36.225 kr. 21.500 kr. 23.100 kr. 26.760 kr. 20.972 kr. 21.500 kr. 43.659 kr. 16.000 kr. 15.238 kr. 27.447 kr. 11.500 kr.
Útsvar 14,480% 14,480% 14,180% 14,480% 13,660% 14,480% 14,480% 14,480% 14,480% 14,480% 14,480% 14,480% 13,280% 14,480% 14,480% 14,480% 14,480%
Fasteignaskattur
íbúðarhúsnæðis 0,200% 0,320% 0,209% 0,320% 0,260% 0,361% 0,300% 0,265% 0,380% 0,325% 0,500% 0,430% 0,650% 0,500% 0,420% 0,470% 0,500%
Fráveitugjald, hlutfall
af heildarfasteignamati 0,185% * 0,110% 0,169% 0,120% * 0,170% 0,130% 0,150% 0,317% 0,318% 0,290% 0,250% 0,275% 0,200% 0,370% 0,300%
Vatnsgjald Allt að 0,5% 0,112% 0,120% 0,135% 0,110% Allt að 0,5% 0,193% 0,110% * 0,196% * 0,310% 0,180% 0,160% 0,193% 0,350% 0,180%
Skólamatur 310 kr. 375 kr. 365 kr. 395 kr. 428 kr. 300 kr. 275 kr. 310 kr. 350 kr. 410 kr. 425 kr. 435 kr. 412 kr. 305 kr. * 345 kr. 260 kr.
Fermetraverð 219.195 kr. 209.780 kr. 266.167 kr. 220.557 kr. 243.733 kr. 149.005 kr. 140.460 kr. 199.283 kr. 175.087 kr. 146.612 kr. 149.691 kr. 102.653 kr. 77.407 kr. 134.990 kr. 124.063 kr. 129.380 kr. 93.361 kr.
Sund barnamiði 120 kr. 110 kr. 120 kr. 150 kr. 120 kr. Frítt Frítt 130 kr. 150 kr. Frítt 250 kr. 200 kr. 260 kr. Frítt 150 kr. Frítt 180 kr.
Sund fullorðinsmiði 500 kr. 450 kr. 400 kr. 550 kr. 350 kr. 380 kr. 370 kr. 400 kr. 470 kr. 550 kr. 500 kr. 450 kr. 510 kr. 500 kr. 450 kr. 500 kr. 580 kr.
Frístundakort 25.000 kr. * 25.000 kr. Allt að 24.000 kr. 25.000 kr. 25.000 kr. * 15.000 kr. 10.000 kr. 10.000 kr. 20.000 kr.
Lágvöruverslun Já Já Já já Já Já já Já já já já já já Nei já Nei já
*Reykjavík og Akranes - 8.263 króna fráveitugjald fast gjald auk 318 króna breytilegs gjalds *Vestmannaeyjar - skólamatur 338 krónur fyrir 1. til 6. bekk og 415 krónur fyrir 7. til 10. bekk *Akureyri - 109,15 króna vatnsgjald auk 7.275 króna fastagjalds *Fljótsdalshérað - 225 króna vatnsgjald auk 7.400 króna fastagjalds *Skagafjörður - Hvatakort að upphæð 8.000 krónur að uppfylltum ákveðnum skilyrðum
n Samanburður á 18 sveitarfélögum sýnir að fermetraverð er hæst nálægt höfuðborginni n Töluverður munur er á leikskólagjöldum
ið en á heimasíðu fyrirtækisins segir
að gjaldið miðist við byggingarvísi-
tölu en fari þó aldrei yfir 0,5 prósent
af fasteignamati. Það er hæsta vatns-
gjaldið sem rukkað er en í Garðabæ
og Mosfellsbæ er það einungis 0,11
prósent.
Fasteignaverð
Þó svo að Reykjavík sé ekki með
hæsta fermetraverðið á fasteignum
þá er greinilegt að fólk þarf að borga
meira fyrir fermetrann því nær höf-
uðborginni sem það vill vera. Mik-
ill munur er á fasteignaverði á milli
sveitarfélaga en á heimasíðu Hag-
stofunnar má reikna út fermetraverð
eftir stöðum á landinu. Þegar sett
voru inn leitarskilyrði fyrir fermetra-
verð á sérbýli síðustu 12 mánuðina
kemur í ljós að dýrast er að kaupa
sér fasteign á Seltjarnarnesi. Þar má
búast við að þurfa að greiða 266.167
krónur fyrir fermetrann í sérbýli.
Næst dýrasti fermetrinn er í Garða-
bæ 243.733 krónur og Kópavogur
er í þriðja sæti með 220.557 krónur.
Ódýrast er að kaupa sér fasteign á
Ísafirði af þeim stöðum sem skoðað-
ir voru en þar er fermetrinn á 77.407
krónur. Bæði á Hornafirði og Húsavík
má fá fermetrann á rúmlega 90.000
krónur. Á þessu má sjá að munurinn
á hæsta og lægsta fermetraverðinu á
landinu er allt að 70 prósentum.
Þrátt fyrir að vera með hæsta fer-
metraverðið í ár þá hefur það lækk-
að töluvert á Seltjarnarnesi eða um
rúmar 80.000 krónur. Það hefur að
vísu lækkað á flestum stöðum en ekki
eins mikið og á Seltjarnarnesi. Verðið
hefur þó hækkað örlítið á nokkrum
stöðum en það er á Fljótsdalshéraði,
í Fjarðabyggð og í Vestmannaeyjum.
Mikill systkinaafsláttur
Í könnuninni kemur í ljós að útgjöld
vegna barna eru lægst í Reykjavík en
hér er þó ekki tekinn inn kostnaður
vegna íþrótta og tómstunda en hann
getur verið afar misjafn eftir svæðum.
Þegar kemur að leikskólagjöldum
er ódýrast að vera með barn á leik-
skóla í Reykjavík en auk þess að vera
með lægsta gjaldið fyrir 8 tíma vist-
un á fullu fæði er systkinaafsláttur-
inn einnig hæstur í höfuðborginni,
eða 75 prósent fyrir annað barn og
frítt er fyrir þriðja barn. Önnur sveit-
arfélög sem komu vel út úr þessum
samanburði eru Kópavogur, Fljóts-
dalshérað og Hornafjörður, en gjald-
ið á þeim stöðum er um 25.000
krónur á mánuði. Hæst greiða for-
eldrar 34.342 krónur fyrir leikskóla
barnanna á Ísafirði en Fjarðabyggð
og Garðabær fylgja fast á eftir.
Þess má geta að öll sveitarfé-
lögin bjóða upp á systkinaafslátt og
er hann lægstur 25 prósent. Eins má
finna staði þar sem þriðja barn fær
leikskóladvölina fría.
Mesti styrkurinn á höfuð-
borgarsvæðinu
Alls staðar er boðið upp á að kaupa
mat í skólanum fyrir börnin og er
hann ódýrastur á Hornafirði þar
sem foreldrar greiða 260 krónur fyr-
ir hverja máltíð. Mest þarf að greiða
fyrir hádegisverð fyrir börnin á Húsa-
vík en þar er maturinn á 461 krónu.
Þetta er töluverður munur, eða um
43 prósent.
Íþrótta- og tómstundaiðkun
barna er niðurgreidd af sveitarfé-
laginu á nokkrum stöðum á land-
inu. Hæsta styrkinn er að finna í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Garðabæ
og Akranesi, eða 25.000 krónur fyrir
hvert barn. Í Hafnarfirði er styrknum
skipt í 20.400 krónur fyrir börn í 1. til
6. bekk, en 30.600 fyrir börn á efsta
stigi. Lægsti styrkurinn er á Akureyri
og Árborg ef ekki eru taldir með þeir
staðir sem veita enga slíka styrki.
Frítt í sund fyrir börnin
Það sem sveitarfélögin eiga sam-
eiginlegt er að á öllum stöðum eru
sundlaugar og þegar gerður er verð-
samanburður á þeim kemur í ljós
að algengt verð fyrir fullorðna eru
500 krónur. Dýrast er í sundlaugar
Árborgar eins og kom í ljós í könn-
un DV frá árinu 2009. Nú kostar þar
sundferð á manninn 550 krónur en
er þó frítt fyrir börnin. Það er algengt
að sundlaugar landsins veiti börn-
um frían aðgang en í þessari könnun
eru það fimm sveitarfélög sem rukka
ekki börnin fyrir sundferðina. Dýrast
er fyrir börnin í Fljótsdalshéraði, eða
260 krónur.
Lágvöruverðsverslanir
Verðlag og verslanir á hverjum stað
geta haft áhrif á hvort fólki finn-
ist staðurinn vera góður valkostur.
Sparverslanir eru um allt land en það
er síður en svo hægt að finna eina
slíka í öllum sveitarfélögum. Flest
þau sveitarfélaga sem hér eru skoð-
uð búa að einni eða fleiri sparversl-
unum en þar má finna annað hvort
Bónus, Nettó eða Krónuna. Í Skaga-
firði, Dalvíkurbyggð og Húsavík er þó
enga slíka að finna og þurfa því íbú-
ar að fara til nágrannabyggðarlaga til
að versla ódýrara í matinn. Það skal
tekið fram að einungis var leitað eftir
þessum þremur verslanakeðjum.
Barnafjölskyldur hafa það best í Reykjavík
Reykjavík Leikskólagjöld eru lægst og systkinaafsláttur mestur í höfuðborginni.
Sundlaug Garðabæjar Það er ódýrast fyrir fullorðna að fara í sund í Garðabæ.