Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2012, Blaðsíða 7
n Jens Kjartansson var á skíðum í Austurríki samkvæmt heimildum DV
Í skíðaferð í
veikindaleyfi
Fréttir 7Miðvikudagur 15. febrúar 2012
n Karlmaður á áttræðisaldri varð fyrir hrottalegri árás á Þórshöfn
„Lýsandi fyrir baneitrað kerfi“
n Verðtryggð lán heimila hafa hækkað um 23 milljarða vegna skattahækkana
É
g bjóst nokkurn veginn við
þessari tölu. Þessar tölur eru
lýsandi fyrir þetta baneitraða
kerfi,“ segir Margrét Tryggva-
dóttir, þingmaður Hreyfingarinnar.
Margrét sendi skriflega fyrirspurn
á efnahags- og viðskiptaráðherra
þann 18. janúar síðastliðinn. Þar
spurði hún hversu mikið verð-
tryggð lán íslenskra heimila og
fyrirtækja hefðu hækkað síðan 1.
febrúar 2009 vegna skattahækk-
ana og annarra aukinna álagna af
hálfu ríkisins sem hafa áhrif á vísi-
tölu neysluverðs. Vildi Margrét fá
tölurnar sundurliðaðar í krónum
annars vegar og prósentum hins
vegar.
Í svari efnahags- og viðskipta-
ráðherra, sem barst á mánudag,
kemur fram að áhrif skattahækk-
ana og gjaldbreytinga á vísitölu
neysluverðs séu um 1,63 prósent
frá febrúar 2009 til 1. janúar 2009.
Hafa verðtryggð lán íslenskra
heimila og fyrirtækja hækkað sem
því nemur. Í svarinu er vísað í upp-
lýsingar frá Seðlabanka Íslands þar
sem fram kemur að verðtryggð út-
lán fjármálafyrirtækja til heimila,
þar á meðal opinberra fjármálafyr-
irtækja eins og Íbúðalánasjóðs og
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
hafi numið 1.409,6 milljörðum í
árslok 2011. Áhrif skattahækkana
og gjaldbreytinga ríkisins vega
því til hækkunar nærfellt 23 millj-
örðum á tímabilinu. Varðandi fyr-
irtæki er áætlað að verðtryggð
lán þeirra og eignarhaldsfélaga í
bankakerfinu hafi numið um 282,2
milljörðum króna í árslok 2011.
Nemur hækkunin því 4,6 milljörð-
um á tímabilinu. Hafa ber í huga
að vörugjöld eru ekki meðtalin þar
sem Hagstofan greinir þau ekki
með beinum hætti í vísitölunni.
Í samtali við DV segir Margrét
að upplýsingarnar sýni hversu
hættuleg verðtryggingin er. „Ég
held að flestir viðurkenni það að
á svona tímum þarf ríkið að afla
tekna. En það er ekki hægt að láta
fólk borga sama skattinn oft og það
er það sem er verið að gera þegar
hann bætist ofan á lánin hjá okk-
ur.“
Hækkað mikið Verðtryggð lán heimila
og fyrirtækja hafa hækkað samtals um
tæpa 28 milljarða vegna skattahækkana
og aukinna álagna ríkisins frá 2009.
J
ens Kjartansson lýtalæknir fór í
skíðaferð til Austurríkis á dögun-
um, samkvæmt heimildum DV.
Jens er þessa dagana í launuðu
veikindaleyfi frá störfum sínum
sem yfirlæknir á lýtalækningadeild
Landspítalans og einkarekstrinum á
Domus Medica. Heimildirnar herma
að kurr sé meðal starfsfólks spítalans
vegna utanlandsferðar yfirlæknisins á
sama tíma og PIP-brjóstapúðamálið
svokallaða hefur verið í hámæli. Það
þyki taktlaust og óviðeigandi.
Jens óskaði sjálfur eftir fjögurra
mánaða veikindaleyfi frá störfum sín-
um vegna augnsjúkdóms sem ágerist
við álag.
Tugir kvenna í mál
Jens notaði PIP-púðana einn lýta-
lækna hér á landi og kom þeim fyrir
í brjóstum rúmlega fjögur hundruð
kvenna. Púðarnir innihalda iðnaðar-
silíkon og konunum hefur verið boð-
ið upp á að láta fjarlægja þá á kostnað
ríkisins á næstu mánuðum. Tæplega
fimmtíu konur hyggjast þó sækja rétt
sinn gagnvart Jens, sem og eiginkonu
hans sem var innflutningsaðili púð-
anna. Þá hefur einnig komið fram að
grunur leiki á að rekstur á einkastofu
Jens hafi ekki samræmst skattalögum.
Mikið hefur því mætt á lýtalækninum
síðustu mánuðina.
Ekki eftirlit með veikindaleyfum
Björn Zoëga, forstjóri Landspítala
Háskólasjúkrahúss, segir í raun eng-
ar ákveðnar kröfur gerðar um það
hvað starfsmenn geri eða geri ekki
þegar þeir eru í veikindaleyfi. Þar af
leiðandi sé ekki haft eftirlit með því.
„Nei, íslenska kerfið er þannig að þú
skilar inn vottorði frá þínum lækni og
þú getur verið veikur á mismunandi
hátt. En það eru ekki gerðar nein-
ar kröfur aðrar en þær að ef það eru
einhverjar spurningar eða vafamál
sem vakna um veikindin þá höfum
við trúnaðarlækni sem getur haft
samband við lækni starfsmannsins
og farið í gegnum veikindin, hverjar
horfurnar eru og ýmislegt annað.“
Björn bendir þó á að lögum sam-
kvæmt sé starfsmönnum ekki heimilt
að vinna önnur störf meðan á leyfinu
stendur.
Spyr Jens ekki út í ferðina
Björn segist hafa heyrt sögusagnir af
því innan spítalans að Jens hafi farið í
skíðaferð. Hann vill þó ekki tjá sig um
sögusagnirnar og bendir á að Jens og
hans læknir verði að svara fyrir það
mál. „Ef hann hefur farið í þessa ferð
þá reiknum við með því að það hafi
verið gert með samþykki hans með-
höndlandi læknis. Ef það verður ein-
hver vafi á því þá mun auðvitað trún-
aðarlæknir okkar fara í málið.“
Björn segist sjálfur ekki hafa spurt
Jens út í utanlandsferðina og hann
ætli sér ekki að gera það. Hann bend-
ir á að ákveðið trúnaðarsamband ríki
á milli starfsmanns og vinnuveitanda
og sá síðarnefndi verði að treysta því
að viðkomandi sé að vinna í sínum
málum.
Erfitt að segja til um bata
Aðspurður hvort Jens muni, að öllu
óbreyttu, koma aftur til starfa sem yf-
irlæknir á lýtalækningadeildinni að
veikindaleyfi loknu, segir hann erfitt
að segja til um það á þessari stundu.
Það velti á því hvernig bati hans verð-
ur. „Eins og er er hann í þessu leyfi
og svo verður það bara skoðað þegar
honum batnar eða þegar hann kem-
ur til baka úr sínu veikindaleyfi,“ segir
Björn að lokum.
Ekki náðist í Jens Kjartansson við
vinnslu fréttarinnar.
„Ef hann hefur farið
í þessa ferð þá
reiknum við með því að
það hafi verið gert með
samþykki hans með-
höndlandi læknis.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Ekkert eftirlit Forstjóri Landspítalans
segir ákveðið trúnaðarsamband ríkja á milli
starfsmanns og vinnuveitanda.
Á skíðum Samkvæmt heim-
ildum DV fór Jens Kjartansson
í skíðaferð til Austurríkis á
dögunum. Hann er í launuðu
veikindaleyfi frá Landspítal-
anum. Morgunblaðið/ÞÖK
Takast á
um milljarða
Róbert Wessmann fjárfestir krefur
tvö dótturfélög Novator um greiðslu
30 milljóna evra, sem samsvara 4,8
milljörðum króna, sem Róbert telur
sig eiga inni hjá félögunum sem
tóku yfir samheitalyfjafyrirtækið
Actavis árið 2007. Novator er í eigu
Björgólfs Thors Björgólfssonar fjár-
festis. Munnlegur málflutningur í
skuldamáli sem Róbert höfðaði til
að fá greiðsluna innta af hendi, fór
fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á
mánudag og þriðjudag.
Róbert telur sig eiga upphæðina
inni og vísar meðal annars í fjárfest-
ingarsamning sem hann gerði þegar
hann keypti ríflega 12 prósenta hlut
í Actavis. Í samningnum er kveðið
á um að hann greiddi 25 milljónir
evra í reiðufé og 10 milljónir evra af
árangurstengdum þóknunum sem
hann taldi sig eiga inni hjá félögun-
um. Þá telur hann að í samningn-
um sé kveðið á um að honum séu
tryggðar þessar greiðslur.
Lögmaður dótturfélaganna
tveggja, Novator Phara Holdings
og Novator Pharma S.a.rl, segir
hins vegar að ekki séu forsendur til
þess að greiða Róberti þessa háu
þóknun, meðal annars vegna þess
að Róbert hafi ekki unnið sem fram-
kvæmdastjóri í tvö ár eftir undir-
ritun samningsins, eins og kveðið
var á um í honum og að hann hafi
ekki náð að hámarka virði fyrirtæk-
isins, heldur þveröfugt. Fyrirtækið
hafi lent í greiðslustöðvun og fjár-
festarnir hafi á einu ári nánast tapað
allri fjárfestingu sinni. Forsendur
fyrir árangurstengdu greiðslunni
hafi því með verið brostnar.
Eftir að rekstur Actavis fór út um
þúfur og áætlanir
náðust ekki, gekk
Deutsche Bank
að veðum sínum
í Actavis og tók
félagið yfir. Ólíklegt
verður því að teljast
að Róbert fái þessa
greiðslu innta
af hendi, þar
sem félögin
eru bæði
eignalaus.
Verðlaunaður
fyrir áhættureikni
Vilhjálmur Steingrímsson lækna-
nemi fékk á þriðjudag afhent ný-
sköpunarverðlaun forseta Íslands
fyrir áhættureikni sem nýta má til
útreikninga á áhættu í tengslum
við hjarta- og kransæðasjúkdóma
hjá öldruðum. Það var Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
sem afhenti verðlaunin á Bessa-
stöðum. Markmið verðlaunanna er
að heiðra námsmenn sem unnið
hafa framúrskarandi starf við úr-
lausn verkefna sem styrkt eru af
Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Sex verkefni voru tilnefnd en auk
verkefnis Vilhjálms mátti sjá verk-
efni um aukna nýtni í íslenskri
grænmetisrækt, rannsókn á eyði-
býlum og þróun aðgerða við mat
og viðgerðir á landi eftir skemmdir
vegna aksturs utan vega.