Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2012, Side 20
Wenger vill hugrekki í Mílanó
n Meistaradeildin aftur af stað
S
extán liða úrslit Meistara-
deildarinnar halda áfram
í kvöld, miðvikudag,
en þá er komið að fyrra
enska liðinu að spreyta sig,
Arsenal. Miðað við drátt flestra
stórliðanna verður seint sagt
að Arsenal hafi dottið í lukku-
pottinn en það mætir AC Mil-
an. Milan er ríkjandi meistari
á Ítalíu og er í toppbaráttunni
í ár. Arsenal á ágætis minning-
ar frá viðureign sinni við Milan
fyrir fjórum árum en það varð
þá fyrsta enska liðið til að vinna
Mílanó-liðið á útivelli er Fabre-
gas og Adebayor tryggðu Lund-
únaliðinu 2–0 sigur.
Wenger vill að sínir menn
sýni hugrekki í Mílanó í kvöld
og reyni að skora mark. „Það
verður alltaf að reyna að skora
þegar maður spilar fyrri leik-
inn úti því það hjálpar svo mik-
ið til fyrir seinni leikinn. Við
munum að sjálfsögðu reyna
að skora – það gerum við allt-
af. Kerfið okkar leyfir okkur að
vera svolítið hugrakkir í útileikj-
um,“ segir Wenger á heimasíðu
Arsenal.
Arsenal hefur nokkrum
sinnum undir stjórn Wengers
dottið út úr Meistaradeildinni
á dramatískan máta en lið-
inu hefur gjarnan gengið vel
með stórliðin og á erfiðum úti-
völlum. „Við höfum nokkrum
sinnum staðið okkur virkilega
vel á útivelli í Meistaradeild-
inni í gegnum árin og við erum
stoltir af þeirri frammistöðu.
Við unnum í Madríd árið 2006,
við unnum Inter, 5–1, árið 2003
og svo Milan árið 2008. Svona
frammistaða gefur okkur
sjálfstraust og við vitum vel að
hægt er að endurtaka leikinn,“
segir Wenger.
20 Sport 15. febrúar 2012 Miðvikudagur
Senna
tók tvenn
verðlaun
Heimildamyndin Senna sem
fjallar um lífshlaup Formúlu-
ökuþórsins Ayrton Senna vann
til tvennra BAFTA-verðlauna
um síðastliðna helgi. Myndin
var bæði kosin besta heim-
ildamyndin og fékk verðlaun
fyrir bestu klippinguna. Brasil-
íumaðurinn Senna er einhver
allra hæfileikaríkasti ökuþór í
sögu Formúlu 1 en hann lést
í keppni í San Marino árið
1994. Hann hafði þegar þar var
komið sögu unnið þrjá heims-
meistaratitla.
Vill skora Wenger vill að
sínir menn reyni að skora
á San Siro. Mynd ReuteRs
Margir á
listanum
Enska úrvalsdeildarfélag-
ið Úlfarnir sem rak Mick
McCarthy úr stjórastöð-
unni á mánudaginn er með
hátt í tíu manna lista yfir
mögulega arftaka hans sam-
kvæmt breskum blöðum.
Á þeim lista má finna nöfn
eins og Neil Warnock, Alan
Curbishley og Steve Bruce.
Warnock var sjálfur rekinn
frá QPR fyrr á tímabilinu
og Bruce var látinn fjúka
frá Sunderland. Curbishley
hefur aftur á móti ekki þjálf-
að síðan hann stýrði West
Ham frá 2006–2008. Mick
McCarthy er sjálfur orðað-
ur við stöðuna hjá Leeds en
hún er laus eftir að Ken Ba-
tes, stjórnarformaður liðsins,
rak Simon Grayson.
Svekktur
en kátur
Japanska ungstirnið Ryo
Miyaichi sem er á láni hjá
Bolton frá Arsenal sagði
blendnar tilfinningar hafa
fylgt því að spila sinn fyrsta
leik í ensku úrvalsdeildinni
um helgina þegar Bolton
tapaði gegn Wigan í miklum
fallslag. Miyaichi átti fínt skot
sem Al Habsi varði í marki
Wigan og þótti standa sig
ágætlega. „Það var gaman að
spila leikinn en við töpuðum
þannig ég get ekkert verið í
skýjunum. Þjálfarinn sagði
mér að fara út á völl og spila
minn leik sem ég reyndi að
gera. Vonandi læri ég mikið
af því að vera hérna,“ segir
Ryo Miyaichi.
P
ortúgalinn Andre Vil-
las-Boas, stjóri Chel-
sea, er ekki vinsæl-
asti maðurinn hjá
leikmönnum sínum
eftir að hafa kallað þá til æf-
ingu á sunnudaginn var eftir
tap gegn Everton, 2–0, daginn
áður. Sunnudagurinn átti að
vera frídagur hjá liðinu en eft-
ir að hafa misst niður unnin
leik gegn Manchester United
í jafntefli, 3–3, og svo tapað
gegn Everton vildi Villas-Boas
lesa yfir hausamótunum á
sínum mönnum. Samkvæmt
breska blaðinu The Guardi-
an lét Portúgalinn stjörnum
prýdda hersveit sína heyra
það. Hann fór yfir öll grund-
vallarmistök sem liðið er að
gera úti um allan völl, sér í
lagi í varnarleiknum. Það sem
Villas-Boas bjóst kannski ekki
við var að á móti fékk hann að
heyra frá leikmönnum sínum
nákvæmlega það sem þeim
finnst um hann og hans að-
ferðir.
undir pressu
Villas-Boas trúir því að hann
hafi allan stuðning eigand-
ans, Romans Abramovich,
sem var einnig staddur á æf-
ingasvæðinu á sunnudaginn.
Reyndar hefur Abramovich
verið meira og minna fastur
gestur á æfingasvæðinu síð-
ustu daga en hann hefur ver-
ið að taka út allt skipulagið í
kringum liðið. Hefur hann
meira að segja staðið við hlið
Villas-Boas á meðan hann
stýrir æfingum, klæddur í
þjálfaraúlpu.
Pressan er mikil á Portú-
galanum unga sem er í raun
fyrir löngu búinn að missa af
Englandsmeistaratitlinum.
Liðið er nú sautján stigum frá
toppliði Manchester City og
í harðri baráttu við Arsenal,
Newcastle og Liverpool um
síðasta Meistaradeildarsætið.
Hann á möguleika á tveim-
ur bikurum, enska bikarnum
og Meistaradeildinni, og þarf
hann líklega að vinna að
minnsta kosti annan hvorn
ætli hann að halda starfinu.
Ekki má gleyma að Carlo
Ancelotti var rekinn eftir eitt
titlalaust tímabil en árið áður
hafði hann unnið tvennuna á
Englandi á sínu fyrsta tíma-
bili hjá félaginu. Brottrekstur
Ancelotti var ekki vinsæll hjá
leikmönnum liðsins.
Furða sig á aðferðum
þjálfarans
Þegar Villas-Boas var ráðinn
átti hann að fá þrjú ár til að
endurskipuleggja Chelsea-
liðið þar sem margir leikmenn
eru komnir á síðasta söludag.
Hans verk var að safna ung-
um leikmönnum til liðsins
en á sama tíma halda þeim
gömlu góðum á meðan þeim
væri hægt og bítandi bolað frá
liðinu. Þrátt fyrir allt þetta átti
liðið að halda áfram að vinna
titla. Þetta hefur engan veginn
tekist hjá Villas-Boas því hann
er virkilega óvinsæll á með-
al eldri manna liðsins sam-
kvæmt breskum blöðum.
Hvernig hann hefur með-
höndlað ýmsa leikmenn hef-
ur farið í taugarnar á reynslu-
boltunum. Hann skipaði
Nicolas Anelka og Alex að æfa
með varaliðinu sem varð til
þess að báðir yfirgáfu Chelsea
í janúar. Þá hefur hann átt í
útistöðum við Frank Lampard
og meira að segja Gary Ca-
hill, miðvörðurinn sem kom
frá Bolton í janúar, furðar sig
á meðferðinni sem hann fær.
Cahill hefur aðeins spilað
einn leik á fimm vikum fyrir
félagið þrátt fyrir að varnar-
leikur þess hafi verið slakur.
Það er eins gott fyrir Vil-
las-Boas að leggja Napoli að
velli í Meistaradeildinni því
annars verður sæti hans orðið
ansi heitt. Svo heitt líklega að
honum verður ekki stætt á að
sitja á því lengur. Það fær eng-
inn þrjú ár hjá Chelsea. Þar á
að vinna titla. Alltaf.
Villas-Boas
að missa tökin
n Kallaði leikmenn inn á frídegi n Fékk að heyra það sem þeim finnst um hann
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti
Gæti farið Villas-Boas
er ekki öruggur með
starf sitt. Mynd ReuteRs