Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2012, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2012, Síða 23
B reska óskarsverð- launaleikkonan Kate Winslet hefur látið sig málefni einhverfra miklu varða og brátt kemur út bók hennar: The Golden Hat: Talking back to Autism. Bókina gefur Kate út til þess að afla fjár fyrir Gullna hattinn, góðgerðasamtök sem Winslet stofnaði til stuðn- ings einhverfum börnum. Samtökin eru sem kunnugt er nefnd eftir ljóði Kela, ein- hverfa drengsins úr íslensku heimildarmyndinni Sólskins- drengnum, og stofnuð í sam- starfi við Margréti Dagmar Ericsdóttur, móður Kela. Þeim er ætlað að styðja við og styrkja einhverf börn og foreldra þeirra. Í bókinni er sögð sagan af kynnum Kate og Kela og hvernig hún ákvað að leggja baráttunni lið. Í bókinni eru viðtöl og myndir við frægðarfólk og auðvitað Kela. Hvert þeirra segir eitthvað sem þeim finnst markvert og skemmtilegt. George Clooney segir: „Mér þykir leitt þetta með Batman og Robin.“ Reese Witherspoon segir: „Elskið hvert annað.“ Keli segir: „Ég er raunveru- legur.“ Kate vill að bókin nái til allra þeirra sem koma að kennslu barna í Bandaríkj- unum. Kate hefur verið ötul í góðgerðastarfi sínu fyrir Gullna hattinn. Nú kemur út bók hennar en síðasta vetur sneru hún og snyrtivörufram- leiðandinn Lancome bökum saman og sett á markað nýja snyrtivörulínu. Winslet var andlit Lan- come-snyrtivörurisans og það var hún sem átti hugmyndina að nýju línunni. Það virðist vera að hún leggi sig alla fram við að sem flestir skilji og taki mið af heimi einhverfra. „Ég fann til sársauka þegar ég hitti Kela. Hann stafaði af hreinni samkennd. Ég vil að allir viti að það er hægt að byggja brú yfir til barna eins og Kela,“ sagði Kate í viðtali nýverið um bók sína. Meira verður fjallað um málefni Kate og Kela í helgar- blaði DV. kristjana@dv.is Fólk 23Miðvikudagur 15. febrúar 2012 „Ég er raunverulegur“ n Kate Winslet og sólskinsdrengurinn Keli heilla Bandaríkjamenn Smáauglýsingar smaar@dv.is sími 512 7004 Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00 BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900 M.BENZ E 200 KOMPRESSOR árg. 2007, ekinn 92 Þ.km, sjálfskiptur, leður, sóllúga ofl. Verð 3.680.000. Raðnr. 284065 á www.bilalind.is - Bíllinn er í salnum! FORD EXPLORER SPORT TRAC 4X4 09/2007, ekinn 68 Þ.km, sjálfskiptur, ný heilsársdekk, fallegt eintak. Verð 3.280.000. Raðnr.321029 - Jeppinn er á staðnum! SUBARU FORESTER 06/2007, ekinn aðeins 36 Þ.km, sjálf- skiptur, dráttarkúla. Verð 2.590.000. Raðnr.284057 á www.bilalind.is - Bíllinn er á staðnum! JEEP GRAND CHEROKEE NEW STYLE Árgerð 2011, ekinn 4 Þ.KM, 3,6L (nýja vélin) sjálfskiptur, leður, panorama ofl. ofl. Verð 10.490.000. Raðnr.117475 á www.hofdahollin.is - Jeppinn er í glæsilega salnum okkar! TOYOTA LAND CRUISER 90 VX 50TH ANEVERSERY 8 manna. 07/2001, ekinn 239 Þ.km, dísel, 5 gírar. Verð 2.960.000. Raðnr.118248 - Jeppinn er í glæsilegum salnum! MMC PAJERO INT TURBO diesel/stuttur. Árgerð 1998, ek- inn 196 Þ.km, dísel, 5 gírar. Verð 590.000. Raðnr. 270743 á www.hofdahollin.is - Jeppinn er á risastóru planinu! FORD EXCURSION LTD 4WD 35“ breyttur Árgerð 2003, ekinn 185 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, leður, einn eigandi frá 2004. Verð 3.890.000. Raðnr.134935 á www.hofdahollin.is - Jeppinn er á risastóra planinu okkar! TOYOTA COROLLA W/G SOL 06/2005, ekinn 95 Þ.km, sjálfskiptur. Verð 1.540.000. Raðnr.135507 - Bíllinn er á risastóru planinu! LAND ROVER DISCOVERY BASE 38“ Árgerð 1998, ekinn 255 Þ.KM, dí- sel, 5 gíra, 38 breyttur. Verð 1.390.000. Raðnr. 270583 á www.hofdahollin.is - jeppinn er á risastóru planinu! M.BENZ C 55 AMG Árgerð 2005, ekinn 77 Þ.km, 363 hestöfl, sjálfskiptur, leður, lúga ofl. Verð 4.890.000. Raðnr.321747 - Kagg- inn er í salnum! KIA SPORTAGE KM diesel. 10/2006, ekinn aðeins 65 Þ.km, dísel, 6 gíra. Verð 2.140.000. Raðnr.281500 - Jeppinn er á staðnum! FORD MUSTANG SALEEN S281 500 hö. Árgerð 2006, ekinn 22 Þ.km, 6 gíra, leður, 20“ krómfelgur ofl. Verð 6.990.000. Raðnr.320341 á www. bilalind.is - Kagginn er í salnum! www.bioparadis.is hverfisgötu 54 / 101 reykjavík FARÐU AFTUR Í BÍÓ Í FYRSTA SINN Tangabryggja 14-16, 110 Rvk. S. 567 4840 www.hofdahollin.is RÝMINGARSALA! Tangabryggja 14-16, 110 Rvk. S. 567 4840 www.hofdahollin.is RÝMINGARSALA! Íbúð óskast Íbúð óskast fyrir háskólanema, helst á 105 svæðinu eða nálægt. Vinsamlegast hafið samband í 6617338 eða 7760179 . Harmonikka til sölu Antik harmonikka til sölu 120 bassa ítölsk 3.kóra. Nú yfirfarin Upplýsingar í síma 5670437 eða 8671837 Tek að mér Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmiss smærri verkefni. Upplýsingar í síma 847- 8704 eða á manninn@hotmail.com Vissi ekki að hún væri andlit EasyJet É g var alveg búin að steingleyma þessum myndum svo það kom mér mikið á óvart þegar ég fékk skilaboð frá góðri vinkonu í London, þar sem hún spurði mig hvort ég hefði verið í myndatöku fyrir auglýsingaherferð, ef ekki þá hefði hún fundið tvífara minn,“ segir Erna Hrund Hermanns- dóttir sem komst að því fyrir tilviljun að hún væri í auglýs- ingaherferð fyrir flugfélagið EasyJet. Erna kom af fjöllum þegar vinkonan hafði sam- band enda kannaðist hún ekki við að hafa setið fyrir í auglýs- ingu fyrir flugfélagið. „Þegar ég kannaðist svo ekkert við það fór hún strax og tók mynd af auglýsingunni og viti menn, þetta var ég að auglýsa flug fyrir Easyjet til Ís- lands,“ segir Erna en EasyJet er byrjað að selja flug til Ís- lands og myndirnar af Ernu eru partur af auglýsingaher- ferð henni tengdri. Þegar Erna sá myndirnar þekkti hún þær frá myndatöku sem hún fór í árið 2007. „Þetta er mynd sem er tekin sumarið 2007 í myndatöku fyr- ir myndabanka. Ég komst að því fyrir stuttu að þessi mynda- banki hefði verið Getty,“ segir Erna en Getty er einn stærsti myndabanki í heimi. Ernu grunaði ekki að myndirnar yrðu notaðar í auglýsingaher- ferð fyrir flugfélag. „Ég vissi að þessar myndir hefðu líklegast endað í myndabankanum en ég vissi ekki hvaða myndir eða hversu margar. Ég átti ekki von á því að fimm árum seinna myndi ein myndin dúkka upp í auglýsingu fyrir svona frekar stórt fyrirtæki.“ Erna segir það vera dálítið undarlegt að auglýsa fyrirtæki án þess að vita af því. „Þetta er mjög skrítin tilfinning, að vera bara í stórri auglýsinga- herferð úti um alla London sem ég vissi ekki einu sinni af,“ segir hún. Auglýsingarnar hafa vakið athygli fólks sem þekkir Ernu og hafa nokkrir haft samband við hana. „Ég hef fengið fleiri ábendingar um þetta frá fólki sem býr í London, en ekki frá neinum öðrum löndum enn sem komið er en það kemur í ljós,“ segir Erna hlæjandi. viktoria@dv.is n Komst að því fyrir tilviljun að hún er á myndum í auglýsingaherferð Vissi ekki neitt Erna hafði ekki hugmynd um að hún væri í auglýsingu fyrir flugrisann EasyJet. Auglýsingin Þessa mynd af Ernu sem tekin var fyrir 5 árum, má sjá víða í London þar sem hún er hluti af auglýsingarherferð EasyJet. Hjálpar einhverfum Kate Winslet lætur málefni einhverfra sér sig varða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.