Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2012, Blaðsíða 2
2 Fréttir 14. nóvember 2012 Miðvikudagur Dópsalar gómaðir Tveir fíkniefnasalar voru handtekn­ ir af lögreglunni á Suðurnesjum á dögunum og í tengslum við hand­ tökurnar var einnig lagt hald á tals­ vert magn kannabisefna. Í tilkynn­ ingu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að við húsleit, sem gerð var í íbúðarhúsnæði í Reykjanesbæ, hafi fundist poki með kannabisefn­ um í loftljósi í stofunni. Talsvert var af umbúðum utan af kannabisefn­ um á stofuborðinu. Fíkniefnaleitar­ hundur lögreglunnar fann svo til viðbótar tuttugu poka með kanna­ bisefnum í stigagangi hússins. Félagi mannsins hafði daginn áður verið handtekinn með kanna­ bisefni í níu sölupakkningum á sér. Við húsleit í það skiptið fannst kannabis um alla íbúð, ásamt kannabisfræjum. Það var í ann­ að skipti á skömmum tíma sem sá var tekinn vegna fíkniefnasölu, því áður hafði lögregla gert húsleit hjá honum og þá fundust um 100 grömm af kannabisefnum, ýmist í söluumbúðum eða stærri pokum, auk lítillar vogar. Réðst á tvisvar lögreglumenn 35 ára karlmaður var í Héraðsdómi Austurlands á mánudag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær árásir á lögreglu­ menn við skyldustörf á Egilsstöð­ um. Í annað skiptið reyndi maður­ inn að henda lögreglumanni yfir svalahandrið. Það var að kvöldi mánudags 15. febrúar 2010 sem maðurinn veittist að lögreglumanni við skyldustörf sem hafði afskipti af hinum ákærða á heimili hans. Maðurinn ýtti lög­ reglumanninum að handriði sval­ ar á íbúðinni og reyndi að hrinda honum yfir það. Samhliða þessu hótaði maðurinn umræddum lög­ reglumanni og lögreglukonu lífláti. Síðara atvikið átti sér stað 20. maí síðastliðinn á lögreglustöðinni að Lyngási á Egilsstöðum. Veittist maðurinn þá að lögreglumanni við skyldustörf, reyndi að grípa um háls hans en endaði með að rífa bindi af einkennisbúningi lög­ reglumannsins. Við þingfestingu játaði mað­ urinn skýlaust brot sín. Hann á nokkurn sakaferil að baki en sam­ kvæmt því sem fram kemur í dómi Héraðsdóms Austurlands var hann á árunum 1997–1998 tvívegis dæmdur fyrir ofbeldisbrot og hlaut að auki fangelsisdóm í Svíþjóð árið 2000 fyrir tilraun til manndráps. Féllu í sjóinn Tveir menn féllu í sjóinn við Skarfabakka um níuleytið á mánudagskvöld þegar vinnuslys varð. Verktaki var að setja upp stálþil þegar allt fór á versta veg. Krani var að slaka bómu út fyrir þilið með mönnunum tveimur í körfu. Kraninn sporð­ reistist og við það fór karf­ an í sjóinn með mönnunum. Aðrir starfsmenn sem voru að vinna við þilið fóru með gröfu sem var á staðnum og náðu að koma bandi til mannanna og bjarga þeim þannig úr sjónum og á land. Blessunarlega sluppu mennirnir ómeiddir en voru þó fluttir á spítala til aðhlynningar. M ikil aðsókn hefur ver­ ið í Kvennaathvarfið að undanförnu og kona sem leitaði til athvarfsins í síð­ ustu viku ákvað að fara aft­ ur heim þrátt fyrir að ofbeldismaður­ inn búi í sama húsi frekar en að sofa á dýnu á gólfinu í athvarfinu. Húsnæðisskortur lengir dvölina „Það er búið að vera gríðarlega mikið um gesti hjá okkur allt þetta ár,“ seg­ ir Sigþrúður Guðmundsdóttir, fram­ kvæmdastýra Kvennaathvarfsins, og bætir því við að sennilega ráði tilvilj­ un því að nú séu heldur fleiri börn í húsinu en síðustu ár. Flest eru þau þriggja ára og yngri, en í dag eru einnig börn í húsinu sem eru allt upp í tíu ára gömul. Sigþrúður segir augljósu skýr­ inguna á fjölda dvalargesta vera þá að konur og börn dvelji gjarna mun lengur í húsinu en áður. „Skortur á húsnæði á leigumarkaði kem­ ur sér illa fyrir okkar konur. Yfirleitt fara konur ekki aftur heim í óbreytt ástand, á undanförnum árum hafa ekki nema 20–25 prósent þeirra gert það og sennilega færri í ár. Eins geta ekki nema um 10 prósent þeirra farið heim í breytt ástand, það er að segja þegar ofbeldismaðurinn er farinn af heimilinu. Þannig að það er kannski um þriðjungur sem fer aftur heim til sín. Hinar þurfa annaðhvort að finna sér nýtt húsnæði áður en þær fara héðan, og það er bara mjög erfitt á höfuðborgarsvæðinu í dag, eða fá inni hjá vinum eða vandamönnum.“ Vísa engum frá Alls dvelja núna átta konur og átta börn í Kvennaathvarfinu. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu en rúmin eru alls um tuttugu talsins. Reynt er að skipuleggja vistarverurnar þannig að þær konur sem eru með lítil börn geti verið út af fyrir sig. Þegar her­ bergin eru þéttskipuð er brugð­ ið á það ráð að koma upp svefnher­ bergisaðstöðu í fundarherbergjum eða öðrum vistarverum hússins. Þá eru dæmi um að konur þurfi að sofa á dýnum á gólfinu og sú er raun­ in þegar þetta er skrifað. „Þrátt fyrir að stundum sé þröngt á þingi er kon­ um aldrei vísað frá vegna þrengsla eða plássleysis. Í raun er það með ólíkindum hvað sambúðin í Kvenna­ athvarfinu gengur vel og hvað and­ rúmsloftið er gott,“ segir Sigþrúður. Hins vegar eru alltaf dæmi um að konur velji það sjálfar að dvelja ekki í athvarfinu. „Væntanlega eru margar ástæður fyrir því að þær fara aftur heim. Ein gæti verið sú að þeim þyki óþægilegt að vera í nýjum aðstæð­ um, ókunnugu húsi þar sem þær þurfi að fara eftir húsreglum og hafa talsverðan fjölda sambýlisfólks sem þær velja sér ekki. Þannig að ég veit alveg dæmi þess að konur hafi frekar valið að fara annaðhvort heim eða fá inni hjá ættingja eða vini.“ Nýtt húsnæði fyrir vorið Allt stendur þetta til bóta en Sigþrúð­ ur segist vona að Kvennaathvarfið verði komið í nýtt húsnæði fyrir vor­ ið. „Í sjálfu sér er það fáránlegt að við þurfum að stækka við okkur af því að aðsóknin sé mikil,“ segir Sigþrúður og heldur áfram: „Stundum mæti ég í vinnuna og húsið er fullt af fólki en ég er samdauna ástandinu og sé ekkert athugavert við það. Síðan slær fáránleikinn mig alltaf, að hér skuli vera troðfullt hús af konum og börn­ um sem eigi sér heimili en hafi ekki aðgang að því.“ Hún bendir á að í lögum sé heim­ ild til þess að fjarlægja ofbeldismenn af heimilunum en einhverra hluta vegna virðist sú heimild ekki nýtast sem skyldi. „Í langflestum tilfell­ um býr ofbeldismaðurinn á heim­ ilinu. Auðvitað eru margar konur sem hingað koma sem vilja ekki hafa samband við lögregluna og hafa aldrei gert það. Í þeim tilvikum nýt­ ist þessi heimild eðlilega ekki. En við þekkjum líka mörg dæmi þess að kona sé í sambandi við lögregluna án þess að þessi leið sé farin og mér þætti forvitnilegt að vita af hverju það stafar. Annaðhvort er heimildin ekki notuð eða þá að það er eitt­ hvað að löggjöfinni, ef hún virkar ekki betur en þetta. Fyrir nokkrum mánuðum var farið fram á brottvikn­ ingu ofbeldismanns af heimili sínu á Norðurlandi. Sú ákvörðun var tekin af lögreglustjóra en henni var hnekkt í héraðsdómi.“ n n Konur og börn fylla Kvennaathvarfið n Allir fá inni sem þangað leita Hraktist aftur til ofbeldismannsins Upplifun barna af dvölinni Bergdís Ýr Guðmundsdóttir framkvæmdi rannsókn á starfsemi Kvennaathvarfsins með tilliti til barna, upplifun barna á dvöl sinni og óskir mæðra um þjónustu þeim til handa. Þar ræddi hún meðal annars við börn um dvöl þeirra í Kvennaathvarfinu og um fjarveruna frá föður sínum. Þetta höfðu börnin meðal annars að segja: n „… Ég vildi ekki heyra í honum. Ég var svo reið út í hann og hvað hann gerði. Ég veit ekki hvort hann gerði þetta því hann elskaði okkur svo mikið eða vildi vernda okkur en ég bara hataði hann.“ n „Fyrst var það erfitt, en hann var alltaf svo leiðinlegur við okkur að ég vildi ekki vera hjá honum. Það var sko skrítið að búa ekki með pabba, hann sagði okkur alltaf hvað við ættum að gera næst og hvað ekki, hvernig við áttum að klæða okkur og hvernig ekki … máttum ekki tala við [hitt kynið] og bara nokkra vini og ekki hitta þá. Ég þurfti að venjast því að hann réð ekki öllu.“ n „Þegar mamma var að biðja hann um að skilja sagði hann að við gætum ekki falið okkur fyrir honum og hann ætlaði að drepa okkur öll þrjú. Hann sagði að Ísland gæti ekki skilið okkur, en það gerði það! Þess vegna var öruggt þarna.“ Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is „Síðan slær fárán- leikinn mig alltaf, að hér skuli vera troðfullt hús af konum og börn- um sem eigi sér heimili en hafi ekki aðgang að því. Bíða heima Mikil aðsókn er í Kvennaathvarfið og fyrir helgi ákvað kona að fara frekar aftur heim en að sofa á dýnu í athvarfinu. Sigþrúður Guðmundsdóttir bendir á að það sé fáránlegt að athvarfið sé fullt af konum og börnum sem hafa ekki aðgang heimili sínu vegna ofbeldismanns- ins sem þar bíður og furðar sig á því af hverju austurríska leiðin virðist ekki virka ekki í raun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.