Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2012, Blaðsíða 21
Bækur 21Miðvikudagur 14. nóvember 2012
Frumleg og kímin fantasía
F
ljúgandi unglingsstúlkur virð-
ast vera yrkisefni fleiri höfunda
þessi jólin. Í Spádómnum eftir
Hildi Knútsdóttur segir af hinni
fimmtán ára Kolfinnu sem lifir í
framandi heimi þar sem íbúar ganga
um með haganlega smíðaða vængi
sem þeir nota þó aldrei. „Þeir birtast
einfaldlega við hlið barna nóttina
eftir að þau fæðast og þeir hverfa
nóttina eftir að manneskja deyr …
Þeir eru einn af leyndardómum lífs-
ins. Vængirnir og austrið.“
Kolfinna kemst þó fljótt á snoð-
ir um Spádóminn og þarf að berjast
við ill öfl sem sækjast eftir völdum í
hennar heimi.
Bókin er fljótlesin og spennandi.
Lipurlega skrifuð og af mikilli hug-
myndauðgi. Kynjahlutverkum er
frumlega snúið. Móðir er sterklegur
járnsmiður, dóttirin er sögð efnileg
til svipaðra starfa. Það er ánægjulegt
þegar höfundar falla ekki í fastmótuð
kynjahlutverk, fyrir utan þann aug-
ljósa kost að efnistökin verða fyrir
vikið frumlegri.
Heimsókn Kolfinnu til tunglsins
þar sem hún hittir fyrir tunglfiska
og mánagyðjuna Þrá eru fallegir
fantasíukaflar þar sem nostrað er við
hvert atriði. Hildi tekst vel upp við að
skapa áhugaverðan heim og leyfir
kímnigáfunni að njóta sín.
Bókin er helst til stutt þótt sagan
sé skemmtileg. Hún nýtur sín ágæt-
lega svo lipur og knöpp en hefði sval-
að frekari ævintýraþörf ef höfund-
urinn hefði staldrað við og styrkt
aðalsöguhetjuna með lengri frásögn
af viðfangsefnum hennar.
Illmenni sögunnar, Iðrun, er
óljóst og leyndardómsfullt. Mána-
gyðjan Þrá er heldur ekki öll þar sem
hún er séð og þá hafa lesendur ekki
kynnst svokölluðu „sólarhyski“. Hildi
ætti að hvetja til að skrifa framhald
á ævintýrum Kolfinnu ef ekki hefur
þegar verið gengið frá því. n
Ævintýri
alvöru
karlmanns
Bókaútgáfan McSweeney´s er
þekkt fyrir frumlega útgáfu sína.
Væntanleg er bók eftir rithöf-
undinn T. Cooper, Real Man
Adventures. Fyrir nokkrum árum
skrifaði T. Cooper bréf til for-
eldra sinna og sagði þeim að hann
væri ekki lengur dóttir þeirra. Og
það voru góðu fréttirnar … segir í
kynningu efnis bókarinnar.
Real Man Adventures er
könnun Coopers á karlmennsk-
unni, full kímni. Hann segir sögu
sína frá því að hann er kona þar til
hann verður karlmaður, en í dag
er Cooper giftur konu og stjúpfað-
ir tveggja barna.
Í bókinni tapar Cooper aldrei
kímnigáfunni og lýsandi dæmi
um það eru kaflar eins og „Tíu at-
riði sem fólk gerir ráð fyrir að ég
skilji um konur, en geri ekki!“ og:
„Stundum held ég að alla mann-
kynssöguna megi skýra með tilvist
testósteróns.“
Háskaleg
og töfrandi
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Dómur
Þ
að er óhætt að segja að ís-
lenskir lesendur eigi ekki
kost á að kynnast annarri
eins söguhetju og Millu
hennar Kristínar Ómars-
dóttur.
Milla er 21 árs, íslensk af asískum
ættum í móðurætt og lesbísk. Hún
er utangarðs og hefur leitað skjóls í
eigin draumaheimi. Þar er reyndar
skjólið lítið. Hún skrifar ömmu sinni
ótal bréf en fær engin svör, hún skoð-
ar vorkvöld í Reykjavík úr lofti með
vini sínum og í vinnunni skrásetur
hún gögn „Safnsins um hina venju-
legu íslensku fjölskyldu í lok tuttug-
ustu aldar“.
Hún þráir að eiga sér slétt og fellt
líf – venjulegt líf – og hún leitar svara
um eigið sjálf með ýmsum hætti. Í
draumum sínum og ímyndunarafli.
Sagan á sér stað í Reykjavík. Um vor
og um kaldan vetur.
Sjálfsmyndin og safnið
Kristín hefur afar sérstakan stíl. Hann
er nístandi þungur og innhverfur en
á sama tíma gæddur fallegu furður-
aunsæi og kaldri kímnigáfu. Kaflarn-
ir þar sem Milla flýgur yfir borginni
með vini sínum eru sérlega falleg-
ir. Ekki síður þeir þar sem hennar
eigið ímyndunarafl tekur yfir hvers-
daginn. Tréð í garðinum sem enginn
annar sér og allar þessar kókosboll-
ur í grænum skrjáfandi pokum og
flöskur af appelsíni sem renna ofan
í söguhetjuna. Það er ómögulegt
að sjá Reykjavík sömu augum eftir
lestur bókarinnar. Sérstaklega ekki
tilteknar götur í Hlíðunum!
Samúðin er með söguhetjunni og
Kristín leyfir lesandanum að óttast
um Millu. Hún er með brotna sjálfs-
mynd og um sprungur sjálfsins fjarar
hennar eigið líf út.
Hvers vegna? Kristín er gagnrýnin
en fínlega. Flest okkar eiga ekki
heima á safni um hina venjulegu ís-
lensku fjölskyldu. Það er kominn
tími til að gefa fleirum tilverurétt.
Milla er ein þeirra og hún kom til
okkar fljúgandi á vorkvöldi í Reykja-
vík og bað um grið.
Á erindi
Milla er sorgleg og falleg saga um
leitina að sjálfinu sem getur verið
sumum hættuleg. En alltaf nauðsyn-
leg því það þarf að fylla upp í
sprungurnar.
Sagan af Millu á erindi í nútíma-
samfélagi sem viðhefur látlausa
gagnaskráningu á hinni venjulegu
manneskju en síður á hinni ævin-
týralegu eða þeirri utangarðs. n
Milla
Höfundur: Kristín
Ómarsdóttir
Útgefandi: JPV
314 blaðsíður
Spádómurinn
Höfundur: Hildur
Knútsdóttir
Útgefandi: JPV
210 blaðsíður
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Dómur Frumleg
Kynjahlutverkum
er frumlega snúið.
Móðir er sterklegur
járnsmiður, dóttirin
er sögð efnileg til
svipaðra starfa.
Fögur og
litrík bók
fyrir barðinu
á fellibyl
„Útgáfubransinn getur verið æsi-
legur á síðustu metrunum fyrir
jól. Mér finnst erfiðastur sá tími
þegar bækurnar eru í prent-
smiðju. Ég róast ekki fyrr en ég sé
fyrstu ummæli lesanda um hverja
bók,“ segir Guðrún Vilmundar-
dóttir hjá Bjarti bókaforlagi.
Bjartur gefur út fyrir jólin bókina
Mánasöngvarann eftir Signýju
Kolbeinsdóttur og Margréti Örn-
ólfsdóttur um sveppasystkinin
Búa og Gló og það hefur þurft að
hafa mikið fyrir þeirri bók.
Bókin er bæði fögur og litrík
og Guðrún segir frá því að í bók-
inni hafi þurft til sérstakan aukalit,
sjálflýsandi prentlit sem hafi þurft
að panta sérstaklega til landsins
frá Los Angeles. Litnum seinkaði
þar sem Bandaríkjamenn höfðu
í nógu öðru að snúast – nefni-
lega fellibylnum Sandy – og voru
verulegar áhyggjur af útgáfunni
um tíma. En prentliturinn kom til
landsins og sveppasystkinin fóru
í prentun.
„Sjálflýsandi liturinn er ekkert
alveg gargandi glóandi, hann lýsir
ekki upp heilu herbergin. En hann
gerir fallega bók enn fallegri,“ segir
Guðrún.
Leitin að sjálfinu getur verið lífshættuleg Flest okkar eiga ekki heima á safni um hina venjulegu íslensku fjölskyldu. Það er kominn
tími til að gefa fleirum tilverurétt. Milla er ein þeirra og hún kom til okkar fljúgandi á vorkvöldi í Reykjavík og bað um grið. Mynd eyþór ÁrnaSon