Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2012, Blaðsíða 19
14. nóvember 2012
U m s j ó n : K r i s t j a n a G u ð b r a n d s d ó t t i r / k r i s t j a n a @ d v . i s
m
y
n
d
e
y
þ
ó
r
á
r
n
a
s
o
n
Bókadómar
Milla
Spádómurinn
Íslensku ættarveldin
Suðurglugginn
Tónlistarrýni
Skálmöld
Tölvuleikjadómur
XCOM: Enemy Unknown
Háskaleg
og töfrandi
K
ristínu Ómarsdóttur finnst
nammi vera lýsandi fyrir
æsku Íslands. „Bara þetta
orð, nammi, það er svo
skemmtilegt,“ segir Kristín.
Þetta er sú menning sem ég er alin
upp í, sælgætismenning. Sem ég
held að margir hér á landi þekki.
Ég tók hana dálítið fyrir. Mér finnst
þetta vera svo lýsandi fyrir æsku
manns á Íslandi. Nammi.“
Í bók Kristínar um ungu stúlk-
una Millu eru kókosbollur. Með
appelsíni í gleri og lakkrísröri,
borðaðar af mikilli nautn. „Sjálf er
ég sykursjúk og má alls ekki borða
kókosbollur,“ segir Kristín og hlær.
Það er óhætt að segja að
íslenskir lesendur eigi þess ekki
kost að kynnast annarri eins sögu-
hetju og Millu hennar Kristínar.
Söguhetjuna segir hún hafa
orðið til mjög óvænt. Hún hafi
hreinlega ruðst fram. „Kannski
svona eins og einhver stelpa í
Reykjavík. Það er engin fyrirmynd
og engin forvinna. Ég var ekkert að
pæla í að skrifa sögu eins og þessa,
heldur ruddist hún fram þessi
persóna og vildi fá pláss.“
Milla fær fullt hús stiga
„Sjálf er ég sykur-
sjúk og má alls
ekki borða kókosbollur.