Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2012, Blaðsíða 12
12 Erlent 14. nóvember 2012 Miðvikudagur
Alþýðuhetja og smá-
prins næstu leiðtogar
Á
tjánda flokksþing kínverska
kommúnistaflokksins hófst
í Höll alþýðunnar í Peking
á fimmtudag í síðustu viku.
Þinginu lýkur á morgun,
fimmtudag, en þar mun ráðast hver
næsta forystusveit þessa fjölmenn
asta lands veraldar verður næsta
áratuginn. Flokksþingið er haldið
á fimm ára fresti en 2.270 fulltrúar í
flokknum alls staðar að eru saman
komnir í höfuðborginni til þess að
velja landinu nýja forystu.
Búist er við því að núverandi
varaforseti Kína, Xi Jinping, muni
taka við stöðu Hu Jintao sem aðal
ritari kommúnistaflokksins og for
seti Kína snemma á næsta ári. Hann
er sonur eins af stofnendum komm
únistaflokksins og hefur verið kall
aður „smáprinsinn“. Þá er talið að
Li Keqiang verði næsti forsætisráð
herra landsins. Hann er sagður al
þýðuhetja sem á rætur sínar að rekja
til landsbyggðarinnar.
DV tók saman nokkrar stað
reyndir um stjórnmálakerfið í Kína
og mennina sem munu taka við kefl
inu í þessu fjölmennasta ríki heims.
Þess má geta að umfjöllunin er byggð
á nýlegri úttekt Al Jazeera.
Andófsmenn handteknir
Um 130 „andófsmenn“ voru hand
teknir daginn sem flokksþingið var
sett, að sögn kínverskra fjölmiðla. Þá
handtóku lögregluþjónar fólk sem
reyndi að mótmæla ýmsu misrétti í
miðborg Peking. Á meðan þetta átti
sér stað á götum borgarinnar flutti for
setinn Hu Jintao setningarræðu inni í
Höll alþýðunnar. Þar varaði hann við
spillingu, og sagði að hún gæti bundið
enda á völd kommúnistaflokksins í
Kína.
Þá sagði Hu að kínverska þjóðin
þurfi að leggja harðar að sér á næst
unni til þess að stefna hærra. Hann vill
að Kína stefni að því að verða siglinga
veldi og eyddi þó nokkru púðri í að
tala um það. Hu Jintao hefur verið að
alritari kommúnistaflokksins sem og
forseti kínverska alþýðulýðveldisins
síðan 15. nóvember árið 2002. Tíu ára
valdasetu hans fer því senn að ljúka.
Smáprinsinn Xi Jinping
Eins og fyrr segir er búist við því að
Xi Jinping, núverandi varaforseti
Kína, muni taka við stöðu aðalritara
kommúnistaflokksins snemma á
næsta ári. Líklegt er að því muni
fylgja staða forseta landsins en sami
aðili hefur gegnt stöðu aðalritara og
forseta í Kína allt frá árinu 1993.
Xi hefur verið nefndur einn af
smáprinsum Kína en hann er sonur
fyrrverandi leiðtoga kommúnista
flokksins. Hann hefur verið viðriðinn
stjórnmál frá unga aldri. Xi hefur
sterk tengsl við herinn sem og valda
mikla aðila í þungavigtariðnaði.
Smáprins og þjóðlagasöngkona
Xi fæddist í Peking árið 1953 og gekk
til liðs við kommúnistaflokkinn árið
1977. Hann var útnefndur formað
ur flokksdeildar Shanghaí árið 2007.
Það leiddi til þess að hann fékk sæti í
fastanefndinni og varð síðar varafor
seti.
Xi er giftur kínversku þjóðlagasöng
konunni Peng Liyuan en dóttir hans er
sögð stunda nám við Harvardháskóla.
Það vakti ýmsar spurningar þegar Xi
hvarf af sjónarsviðinu í um tvær vikur
fyrr á þessu ári. Suma grunar að hann
hafi fengið hjartaáfall en ekkert hefur
verið gefið upp í þeim efnum.
Alþýðuhetjan Li
Ólíkt Xi á Li Keqiang rætur sínar að
rekja til sveita landsins. Hann er
sagður hafa hlotið „einfalt og lát
laust“ uppeldi. Sagt er að Li hafi feng
ið stjórnmálalegt uppeldi sitt hjá for
setanum Hu Jintao, að minnsta kosti
á seinni árum, og það hafi komið
honum í þá valdamiklu stöðu sem
hann er nú í.
Búist er við því að Li taki við sem
forsætisráðherra í kjölfar flokks
þingsins. Forsætisráðherrann fer
fyrir ríkisstjórn Kína og ber ábyrgð
á miðstjórn kínverska kommúnista
flokksins (e. Politburo).
Iðnbylting Li
Li fæddist árið 1955 í Anhuihéraði
og lærði lögfræði við Pekingháskóla.
Hann varð leiðtogi kommúnista
flokksins í Henanhéraði árið 1998.
Li hefur gott orð á sér fyrir að hafa
keyrt efnahag Henanhéraðs upp af
fullum krafti sem og að hafa breytt
Liaoninghéraði í sannkallað iðnað
arhérað.
Li var valin í fastanefnd miðstjórn
arinnar (e. Standing Committee) –
valdamestu stofnunar stjórnkerfisins
í Kína – árið 2007 og sinnir nú stöðu
fyrsta varaforsætisráðherra. Lengi
vel var talið að hann yrði næsti aðal
ritari og forseti, en Xi var síðar valinn
með samhljóma áliti fastanefndar
innar. n
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
n Flokksþing kínverska kommúnistaflokksins stendur nú yfir í Peking
Kommúnistaflokkurinn í Kína
n Kommúnistaflokkurinn í Kína er heimsins stærsti stjórnmálaflokkur, með yfir 80
milljónir meðlima. Flokkurinn er langfyrirferðamesta aflið í kínversku þjóðfélagi en
áhrif hans ná til borga og bæja, inn í háskóla og á vinnustaði. Meðlimir í flokknum eru
embættismenn, yfirmenn hersins, bændur, verkamenn og starfsmenn ríkisrekinna
fyrirtækja.
n Kína er eins flokks ríki sem þýðir að allar stjórnmálalegar ákvarðanir þurfa að fara í
gegnum kínverska kommúnistaflokkinn. Andstaða við ráðandi hugmyndir getur haft
alvarlegar afleiðingar. Strúktúr flokksins er pýramídalaga, þorpsbúarnir sitja neðst
á meðan stjórnmálamenn frá Peking sitja á toppnum og stýra ákvarðanatökunni.
Meðlimir í flokknum velja sér fulltrúa til þess að senda á flokksþingið.
Flokksþing kommún-
istaflokksins
n Þrátt fyrir að flokksþing Kommúnistaflokksins komi
saman á fimm ára fresti, þá er ekki valið í miðnefnd
flokksins nema á öðru hverju þingi, eða á tíu ára fresti.
Flokksþingið velur um 200 aðila, og 150 til vara, til að sitja
í miðnefnd (e. Central Committee) flokksins. Það er síðan
miðnefndin sem ákvarðar hverjir sitji í miðstjórn, valdamesta hring flokksins.
Miðstjórnin
n 25 manns sitja í miðstjórninni, valdamestu stofnun stjórnkerfisins í Kína, en þeir
hafa úrslitavald um allar ákvarðanir sem teknar eru. Þeir sem sitja í miðstjórninni eru
yfirleitt formenn flokksfélaga í stærri héruðum landsins.
n Umræður stjórnarmanna miðstjórnarinnar fara fram fyrir luktum dyrum, þrátt fyrir
að lokaákvarðanir séu opinberlega teknar samkvæmt vilja flokksmanna. Samkvæmt
reglum kínverska kommúnistaflokksins ber formönnum flokksfélaga að segja af sér
þegar þeir ná 65 ára aldri. Þetta þýðir að 14 af 25 meðlimum miðstjórnarinnar munu
stíga til hliðar eftir þetta flokksþing.
Fastanefnd miðstjórnarinnar
n Í fastanefnd miðstjórnarinnar sitja níu meðlimir úr röðum miðstjórnarinnar. Þessir
aðilar hittast tvisvar í viku en fastanefndin er valdamesta stofnunin í Kína. Meðlimir í
fastanefndinni velja sín á milli hver þeirra verður aðalritari, forseti, varaforseti, sem og
forseti þingsins. Síðan 1993 hefur aðalritarinn einnig gegnt stöðu forseta landsins.
n Þrátt fyrir að í fastanefndinni sitji nú níu fulltrúar er líklegt að í þeirra nýju verði
einungis sjö. Allir nema tveir, þeir Xi Jinping og Li Keqiang sem þurfa að segja af
sér sökum aldurs. Búist er við því að Xi Jinping verði næsti aðalritari sem og forseti
kommúnistaflokksins, en það er valdamesta staðan í Kína. Jinping er sonur eins af
stofnendum kommúnistaflokksins en sá starfaði náið með Maó Zedong.
Ríkisráð Kína
n Ríkisráð (e. State Council) kínverska kommúnistaflokksins heldur utan um emb-
ættismannaveldi Kína. Í því sitja 35 meðlimir, en á meðal þeirra eru yfirmenn stofnana
ríkisins eins og utanríkisráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins. Meginmarkmið
ríkisráðs flokksins er hins vegar að sjá um og skipuleggja efnahagskerfi landsins.
n Forsætisráðherra fer fyrir ríkisráðinu en hann er einnig yfirmaður ríkisstjórnarinnar
og velur marga fulltrúa í miðstjórnina. Í ríkisráðinu eiga einnig sæti fjórir aðstoðarfor-
sætisráðherrar – en þeir eru allir meðlimir í miðstjórninni.
Næsti forsætisráðherra Li Keqiang ræðir við Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, á
fundi þeirra í Peking. Líklegt er talið að Li verði næsti forsætisráðherra landsins.
Þrír forsetar Tilvonandi forseti Kína, Xi Jinping, gengur fyrir aftan núverandi forseta
landsins, Hu Jintao, þar sem hann talar við fyrrverandi forseta landsins, Jiang Zemin, á
flokksþingi kínverska kommúnistaflokksins í Peking.
Áróður á torgi friðar Fólk gengur fram
hjá stórri auglýsingu á Torgi hins himneska
friðar miðvikudaginn 7. nóvember. Daginn
eftir var flokksþing kínverska kommúnista-
flokksins sett í Höll alþýðunnar. MyNdIr reuterS