Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2012, Síða 8
eir greiddi spánarför
fyrir dóttur sigurðar
S
éra Sigurður Helgi Guð
mundsson, þáverandi
framkvæmdastjóri Eirar, lét
hjúkrunarheimilið greiða
fyrir utanlandsferð dóttur
sinnar Vilborgar og fjölskyldu
hennar í ágúst 2011. Reikningurinn
nam 200 þúsund krónum. Vilborg
fór þá með Icelandair til Alicante á
Spáni og var þar í tvær vikur ásamt
eiginmanni sínum og börnum.
Þetta herma heimildir DV. Ferða
lagið stóð yfir frá 10. ágúst til þess
24.
Rannsókn á greiðslunni á reikn
ingnum er komin til Ríkisendur
skoðunar, segir Magnús L. Sveins
son, núverandi stjórnarformaður
Eirar. „Ég get nú ekki mikið talað
um þetta eins og er, en þetta er í
gegnum Flugleiðir. Þetta var gert
framhjá okkur og við vissum ekk
ert um þetta. Og við ætlum að láta
rannsaka þetta.“ Magnús seg
ir hins vegar ekkert um það hvers
eðlis greiðslan á reikningnum var.
DV hefur aftur á móti heimildir
fyrir því að um hafi verið að ræða
greiðslu á farmiðum til Spánar
með Icelandair.
Skilgreint sem
„ lögfræðikostnaður“
DV hefur heimildir fyrir því að Sig
urður Helgi hafi keypt gjafakort frá
Icelandair upp á 200 þúsund krón
ur þann 11. janúar 2011 og notað
til þess kreditkort Eirar. Á reikn
inginn frá Icelandair handskrifaði
Sigurður Helgi: „Lögfræðikostn
aður færist á þróunarsjóð. SHG.“
Þannig urðu kaup á gjafakorti frá
flugfélagi að lögfræðikostnaði í
bókhaldi Eirar.
Þetta atriði er eitt af því sem
vakti athygli stjórnar Eirar að sögn
Magnúsar. „Það var bókað hjá
okkur að þetta væri „lögfræðikostn
aður“. Það kom engin nóta sem
slík. Ríkisendurskoðun óskar eft
ir að fá betri upplýsingar um málið
áður en þeir geta svarað því hvernig
þeir taka á því. Það er verið að taka
þessar upplýsingar saman hjá Eir,“
segir Magnús.
Sigurður Helgi lét af störfum
sem framkvæmdastjóri Eirar í maí í
fyrra. Frá kaupunum á gjafakortinu
frá Icelandair gekk hann í janúar
2011 og fór dóttir hans svo í ferðina
með Icelandair í ágúst.
Greiðsla til tengdarsonarins
Sigurður Helgi segir aðspurður að
um hafi verið að ræða greiðslu til
eiginmanns Vilborgar, Jóhannes
ar Rúnars Jóhannssonar, sem er
lögfræðingur, vegna vinnu hans
fyrir Eir. Aðspurður um af hverju
Jóhannes hafi fengið greitt með
þessum hætti segir Sigurður Helgi
að það sé ,,nokkuð sama“ hvernig
slíkar greiðslur sé afgreiddar. ,,Þetta
var bara eðlilegt,“ segir Sigurður
Helgi. ,,Ég svaraði því í vor hvernig
þessi reikningur var tilkominn.“ Líkt
og fram kom í máli Magnúsar hér að
framan var ekki útskýrt í bókhaldi
Eirar hvaða lögfræðikostnaður þetta
væri né að Jóhannes hefði unnið
þessi störf.
Aðspurður um hvað Jóhannes
Rúnar hafi gert fyrir Eir segir Sig
urður Helgi. ,,Hann var bara að
vinna að ákveðnum málum fyrir
mig. Þetta var vinna við samninga
við Reykjavíkurborg og hann mætti
með mér á nokkra fundi,“ segir Sig
urður Helgi. Spurður hvort Jóhann
es hafi unnið mikið fyrir Eir segir
Sigurður Helgi. ,,Hann vann nú
ekki oft fyrir mig, kannski tvisvar
eða þrisvar, og vildi yfirleitt ekki
taka neitt fyrir það. Mér fannst ekki
annað hægt en að greiða honum.“
Margra ára óráðsía
Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá því
í þar síðustu viku að Eir væri tækni
lega gjaldþrota og þyrfti að ráðast
í fjárhagslega endurskipulagningu
til að bjarga rekstrinum frá þroti.
Vinna við þetta stendur nú yfir á
vegum Eirar.
Síðan Eirarmálið komst í há
mæli í fjölmiðlum hefur Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, stjórnarformaður
Eirar og tímabundinn arftaki Sig
urðar Helga í starfi meðan eftir
maður hans var fundinn, látið af
störfum sem stjórnarformaður.
Magnús L. Sveinsson tók við af
Vilhjálmi.
Ýmislegt bendir til að fjárhags
erfiðleika og óráðsíu innan Eirar
megi rekja mörg ár aftur í tímann,
líkt og greiðsla Sigurðar Helga á
flugmiðum fyrir dóttur sína ber vott
um. Þá greindi DV frá því á mánu
daginn að Sigurður Helgi hefði
stofnað heildverslun með lyf og
hjúkrunargögn árið 1988, Ars ehf.,
sem meðal annars hefði selt hjúkr
unargögn til Eirar eftir að hann varð
framkvæmdastjóri árið 1993.
Vildi tæplega 6 mánaða
orlofsgreiðslur
Þá hefur DV heimildir fyrir því
að Sigurður Helgi hafi farið fram
á það við fjármálastjóra Eirar að
fá greitt orlof aftur í tímann upp
á tæplega sex mánuði, 170 daga,
þegar hann lét af störfum sem
framkvæmdastjóri. Sigurður Helgi
fór með kröfu þess efnis beint til
fjármálastjórans og framhjá stjórn
Eirar, líkt og hann byggist við að
gengið yrði frá greiðslunni án sam
ráðs við stjórnina. Greiðslan hljóð
aði upp á tæplega sex milljónir
króna. Stjórn Eirar leitaði hins vegar
til Ríkisendur skoðunar eftir áliti
hennar um hversu langt orlof Sig
urður Helgi ætti að fá.
Magnús segir að Ríkisendur
skoðun hafi komist að því að hann
ætti um tvo mánuði í orlof inni hjá
hjúkrunarheimilinu. „Við leituðum
eftir áliti frá Ríkisendurskoðun um
hvað hann ætti mikið inni. Hún
taldi að þetta væru tveir mánuðir og
voru honum bara greiddir þeir. Það
var ekki fótur fyrir þessari kröfu hjá
honum. Hann fékk bara sitt orlof
greitt,“ segir Magnús.
Tvö mál sem tengjast fyrrverandi
framkvæmdastjóra Eirar hafa því
verið send til Ríkisendurskoðunar.
Aðspurður hvort fleiri mál sem
tengist Sigurði Helga hafi verið send
til Ríkisendurskoðunar segir Magn
ús að svo sé ekki en að „verið sé að
skoða það hjá Eir“ hvort tilkynna
þurfi önnur mál.
DV hefur heimildir fyrir því að
einn af stjórnarmönnum Eirar hafi
óskað eftir því á fundi hjá stofnun
inni að hún óski eftir því að Ríkis
endurskoðun rannsaki sérstaklega
framkvæmdastjóratíð Sigurðar
Helga.
Konan og dóttirin ráðin
Miðað við þær heimildir sem DV hef
ur þá gæti verið fullt tilefni til slíkrar
rannsóknar. Þannig er ýmislegt sem
bendir til þess að Sigurður Helgi
hafi hyglað sér og sínum ótæpilega í
framkvæmdastjóratíð sinni. Þannig
var eiginkona Sigurðar Helga ráð
in sem djákni til Eirar eftir að hann
varð framkvæmdastjóri og dóttir
hans var gerð að framkvæmdastjóra
yfir sérstöku rekstrar sviði sem
framkvæmdastjórinn bjó til fyrir
hana. Eiginkona Sigurðar Helga lét
svo af störfum um leið og hann, og
dóttir hans skömmu síðar. Gerður
var við hana starfslokasamningur
og sviðið sem hún stýrði var lagt
niður.
Fékk jeppa
Heimildir DV herma einnig að Sig
urður Helgi hafi keyrt um á jeppa
sem var fjármagnaður með bíla
láni í gegnum Lýsingu auk þess
sem fleiri stjórnendur Eirar hafi
verið á slíkum farartækjum. Þá
þóttu laun Sigurðar Helga vegleg,
meira en 1.400 þúsund krónur á
mánuði.
Öllum þessum bílasamningum
var sagt upp eftir að Sigurður Helgi
hætti hjá Eir í fyrra.
Samningar við sömu aðila
Þá vakti það athygli að Sigurður
Helgi hafði keypt þjónustu af
sömu aðilum, til dæmis smiðum
og iðnaðarmönnum, um langt
árabil án þess að nokkurn tím
ann færi fram útboð á þeirri þjón
ustu sem viðkomandi aðilar veittu.
Eitt af þessum fyrirtækjum var
verktakinn Hákon og Pétur ehf.
sem vann að alls kyns viðgerðum á
húsnæði Eirar um árabil fyrir tugi
milljóna króna. Aldrei þótti tilefni
til að bjóða þá þjónustu út. Eitt af
því sem stjórnendur Eirar gerðu
eftir að Sigurður Helgi hætti var
að setja stofnuninni sérstakar inn
kaupa og útboðsreglur.
Slóðin af ýmiss konar spill
ingarmálum sem tengjast fram
kvæmdastjóratíð Sigurðar Helga
hjá Eir er því talsverð. Að svo
stöddu er ekki hægt að fullyrða
neitt um hversu mikil þessi slóð
er en miðað við þau mál sem fyrir
liggja er hún all nokkur. Frekari
rannsókn á framkvæmdastjóratíð
hans mun væntanlega leiða sann
leikann betur í ljós. n
8 Fréttir 14. nóvember 2012 Miðvikudagur
n Ríkisendurskoðun rannsakar miðakaup Sigurðar n Fjölskyldan vann hjá Eir
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Lögfræði-
kostnaður
færist á þróunar-
sjóð.
Eir borgaði flugmiða Séra Sigurður Helgi Guð-
mundsson lét Eir greiða 200 þúsund króna flugmiða
fyrir dóttur sína og fjölskyldu hennar sumarið 2011.