Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2012, Blaðsíða 16
16 Neytendur 14. nóvember 2012 Miðvikudagur
Góð þjónusta
n Lofið að þessu sinni fær Steik
húsið en ánægður viðskiptavinur
sendi eftirfarandi: „Við fórum að
borða þar á föstudaginn og þar
fengum við frábæra þjón
ustu og starfsfólkið var
viðkunnanlegt, tveir af
fimm fengu ekki góða
steik og starfsfólk
ið tók steikurnar
eins og skot til
baka, gerðu nýj
ar og allt með
lætið nýtt með
líka.“
Ekkert tilboð
n Lastið fær verslunin The Pier en
viðskiptavinur segist hafa rekið aug
un í afslátt hjá þeim fyrir skömmu
gegn því að afhenda miða. Hann
spurðist fyrir um hvar slíkir miðar
væru og fékk þau svör að þeir hefðu
komið með Fréttablaðinu. „Ég sagði
þá afgreiðslukonunni að á Akureyri
hefðum við ekki fengið blaðið
sökum veðurs. Því miður gat hún
ekkert gert svo ég hringdi suður
eftir helgina og fékk það svar að því
miður væri tilboðið útrunnið. Það
er klárlega verið að mismuna fólki
sem býr úti á landi og fær ekki
Fréttablaðið til að klippa út miða
sökum veðurs. Ég kem til með að
hugsa mig um áður en að ég versla
við The Pier á Íslandi aftur,“ segir
ósátti viðskiptavinurinn.
DV hafði samband við rekstrar
stjóra The Pier, sem sagði að þeim
þætti miður að heyra ummælin.
„Það er alls ekki ætlun okkar í The
Pier að mismuna viðskiptavin
um eftir því hvar þeir búa og gilda
öll tilboð alltaf í öllum verslunum.
Verslunin á Akureyri var lokuð á
laugardeginum vegna veðurs og
allt innanlandsflug og almennings
samgöngur lágu niðri og því komst
Fréttablaðið ekki til
skila. Vegna innan
hússmisskilnings
komust upplýs
ingar um fram
lengingu á tilboð
inu ekki til skila til
allra starfsmanna. Fyrir
hönd The Pier biðst ég
velvirðingar.“
Lof og last
Sendið lof eða last á neytendur@dv.is
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
Svona eyðir þú
minna í jólagjafir
n Ellefu ráð sem vert er að hafa í huga við jólagjafakaup fyrir hátíðarnar
Þ
ú sparar tíma, orku, andlega
heilsu og svo síðast en ekki
síst peninga ef þú skipulegg
ur jólagjafainnkaupin í tíma
og samkvæmt saman tekt
Rannsóknaseturs verslunarinnar
á horfum í jólaverslun er búist við
að hver Íslendingur muni eyða um
43.000 krónum í jólainnkaupin í ár.
Hér eru ráð sem vert er að skoða
svo þú getir reynt að koma í veg fyrir
að rústa fjárhaginn þegar kemur að
jólagjafakaupum. Nokkur þeirra
voru fengin af síðunni Money Talk
News.
1 Útbúðu lista Útbúðu lista yfir
það fólk sem þú ætlar
að gefa gjafir. Sniðugt
er að hafa einn dálk
fyrir fólkið, annan fyrir
gjafahugmynd og þann þriðja fyrir
verðhugmynd. Einnig er gott er að
skipta vinum og ættingjum upp.
2 Gerðu eyðsluáætlun Settu þér verðþak fyrirfram.
Ákveddu fyrirfram hvað þú ætlar að
eyða í heildina. Sú upphæð veltur
á því hvað þú þarft að kaupa fyrir
marga. Gott er að raða fólki á list
ann eftir upphæð gjafanna. Þú munt
örugglega eyða meira í makann og
mömmu en í gamla frænku.
3 Kynntu þér hvað varan
fæst Kynntu þér
hvar varan fæst áður
en þú ferð af stað.
Annars getur þú lent í
því að kaupa eitthvað allt annað en
var á listanum.
4 Gefðu nokkrum eins gjöf Ef þú gefur mörgum gjafir þá
getur verið sniðugt að kaupa sama
hlutinn. Reyndu að kreista út magn
afslátt ef þú segist ætla að kaupa
fleiri en eitt stykki af vörunni.
5 Deildu kostnaðinum Ef þú hefur hugsað þér að gefa stóra
og dýra gjöf en veist að þú hefur ekki
efni á henni, talaðu þá við vini og
ættingja um að sameinast um gjöf
ina.
6 Ekki óttast að spyrja Það er skemmtilegra að gefa ást
vini það sem hann þarfnast
eða langar í, heldur en að
taka áhættuna og giska
á hvað hann vill. Það er
aldrei gaman að fara í
búðir eftir jól til að skipta
gjöfinni, svo ekki sé talað
um ösina sem getur mynd
ast. Spurðu frekar viðkomandi, fyrir
hátíðarnar hvers hann óskar sér og
gefðu honum það.
7 Notaðar vörur eru ekkert verri Búðum sem selja notaðar
vörur fer sífellt fjölgandi og má þar
nefna Góða hirðinn, Kolaportið og
Rauða krossbúðirnar. Það er hægt
að gera mjög góð kaup í slíkum versl
unum og einnig þegar kemur að jóla
gjöfum. Þetta á við um bækur, tón
list, flíkur og húsgögn. Ræsið nú
hugmyndaflugið og gefið frum
legar og skemmtilegar gjafir.
8 Berðu saman verð Ef þú sérð það sem þú leitar
að, ekki kaupa það strax. Finndu
eins hlut í öðrum búðum og
berðu saman verðið. Einnig má
athuga hvort hann fáist á lægra
verði á netinu.
9 Lestu smáa letrið og lestu það svo aftur Ef þú gefur ást
vini jólagjöf sem honum líkar ekki
við gæti hann setið uppi með hana,
hafir þú ekki kynnt þér hvaða
skilareglur gilda um hana.
Dæmi um vörur sem má
sjaldnast skila eru eyrna
lokkar og nærföt. Kynntu
þér því vel skilareglur
þegar þú kaupir jólagjafir.
10 Ekki bíða fram á síðustu stundu
Vertu opinn fyrir jóla
gjafahugmyndum á öðr
um árstímum en upp úr
miðjum desember. Ekki
eiga eftir að kaupa jólagjafir
þegar Þorláksmessa er liðin því
þá aukast líkur á afleitum og illa
ígrunduðum kaupum. Þó jólin séu
ekki efst í huga okkar til dæmis í júlí
þá eru allar verslanir með útsölur þá
sem og strax eftir jól. Höfum þetta í
huga þegar nýja árið heilsar.
11 Búðu til gjafirnar sjálf/ur Það er fátt betra en að fá
heimatilbúna gjöf, hvort sem
um ræðir konfekt, sultur eða
prjónaðar flíkur. Slíkar gjafir
koma sér alltaf vel og munu
eiga sérstakan stað í hjarta
þiggjanda. n
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Jólagjafakaup Sýnum skynsemi og eyðum ekki um efni fram fyrir jólin. Mynd Photos.coM