Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2012, Síða 18
18 Sport 14. nóvember 2012 Miðvikudagur
1 Robin van PersieÞjóðerni: Hollenskt
Félag: Manchester
United
Staða: Framherji
Kaupverð: 30 milljónir
punda
Leiknar mínútur: 86%
Stig í Fantasy Premier
League: 77
Hollendingurinn hefur slegið í gegn hjá
Manchester United eins og við var að
búast. Hann hefur verið potturinn og
pannan í sóknarlínu United á tímabilinu og
skorað 8 mörk í 11 leikjum. Til viðbótar hefur
hann lagt upp fjögur mörk og fiskað eina
vítaspyrnu. Líklega bestu kaup sumarsins
– ef hann sleppur við meiðsli sem hafa oft
reynst honum erfið á ferlinum. Það er engin
tilviljun að Robin van Persie er stigahæsti
leikmaðurinn í deildinni – í Fantasy Premier
League.
2 Eden Hazard
Þjóðerni: Belgískt
Félag: Chelsea
Staða: Útherji
Kaupverð: 40 milljónir
punda
Leiknar mínútur: 93%
Stig í Fantasy Premier League: 69
Belginn ungi byrjaði með látum í haust og
var með 35 stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar
í Fantasy Premier League. Í þeim skoraði
hann mark og lagði upp sex en hafa verður
í huga að fiskuð vítaspyrna er talin sem
stoðsending. Hann hefur í raun lagt upp
fimm mörk, fiskað fjórar vítaspyrnur og
skorað tvö. Ekki amalegur árangur það,
enda kostaði hann sitt. Þó Hazard hafi átt
erfitt uppdráttar í síðustu leikjum verður
ekki af honum tekið að hann er stigahæsti
miðjumaðurinn í deildinni.
3 Steven Fletcher
Þjóðerni: Skoskt
Félag: Sunderland
Staða: Sóknarmaður
Kaupverð: 15 milljónir
punda
Leiknar mínútur: 84%
Stig í Fantasy Premier League: 48
Stjórnendur Sunderland voru klókir þegar
þeir klófestu Steven Fletcher frá Úlfunum í
sumar. Fletcher skoraði 22 mörk í 61 leik fyrir
Úlfana og er líklegur til að halda upptekn-
um hætti hjá Sunderland. Hann byrjaði
með látum og skoraði í fjórum fyrstu
leikjunum. Hann hefur reyndar ekki skorað
síðan 29. september en er alltaf líklegur og
spilar hvern einasta leik. Fimm mörk í tíu
leikjum er þó fínn árangur. Fletcher er leik-
maður sem gefur aldrei eftir.
4 Lukas Podolski
Þjóðerni: Þýskt
Félag: Arsenal
Staða: Framherji
Kaupverð: 13 milljónir
punda
Leiknar mínútur: 81%
Stig í Fantasy Premier League: 45
Þjóðverjinn var duglegur að skora hjá sínum
gömlu félögum í FC Köln (33 mörk í 88
leikjum) en hefur ekki tekist að halda upp-
teknum hætti í úrvalsdeildinni. Hann hefur
skorað þrjú mörk og lagt upp tvö en valdið
ákveðnum vonbrigðum, eins og liðið í heild.
Hann er þó fastamaður í liðinu en hafði ekki
skorað mark í sex leikjum í röð þegar hann
skoraði eitt í 3–3 jafntefli liðsins við Fulham
um helgina.
5 Oliver Giroud
Þjóðerni:
Franskt
Félag: Arsenal
Staða: Framherji
Kaupverð: 15
milljónir punda
Leiknar mínútur: 73%
Stig í Fantasy Premier League: 37
Framherjinn stæðilegi Oliver Giroud er
annar tveggja sem keyptur var til Arsenal
til að fylla það stóra skarð sem Robin
van Persie skildi eftir sig. Giroud, sem er á
besta aldri, hefur aðeins skorað þrjú mörk
á leiktíðinni og lagt upp eitt, þrátt fyrir að
vera fastamaður. Ekkert bendir til þess að
nýja framherjaparið á Emirates eigi eftir
að fleyta liðinu í toppbaráttuna á þessari
leiktíð.
6 Moussa DembeleÞjóðerni: Belgískt
Félag: Tottenham
Staða: Miðjumaður
Kaupverð: 19 milljónir
punda
Leiknar mínútur:
58%
Stig í Fantasy Premier
League: 25
Dembele hefur átt í basli eins og allt Totten-
ham-liðið á leiktíðinni. Hann var keyptur á
19 milljónir punda frá Fulham og til hans eru
gerðar miklar kröfur, enda á besta aldri, 25
ára gamall. Hann spilaði fyrstu sjö leikina og
skoraði í þeim eitt mark. Svo meiddist hann
og er enn meiddur.
7 Joe AllenÞjóðerni:
Velskt
Félag: Liverpool
Staða: Miðjumaður
Kaupverð: 19 milljón-
ir punda
Leiknar mínútur: 100%
Stig í Fantasy Premier League: 23
Þessi knái miðjumaður fylgdi knattspyrnu-
stjóranum Brendan Rodgers frá Swansea og
kostaði skildinginn. Hann hefur spilað hverju
einustu mínútu á tímabilinu en hefur hvorki
tekist að skora né leggja upp mark. Áhrif
hans í sóknarleiknum virðast því hverfandi
en Rodgers notar hann fyrst og fremst sem
afturliggjandi miðjumann og hefur þurft að
verja frammistöðu leikmannsins.
8 Shinji Kagawa
Þjóðerni: Japanskt
Félag: Manchester
United
Staða: Sóknarmaður
Kaupverð: 15 milljónir
punda
Leiknar mínútur: 43%
Stig í Fantasy Premier League: 23
Japaninn ungi lofar góðu fyrir framtíðina
hjá United í nýja kerfinu sem Ferguson er að
innleiða. Takist honum að finna það form
sem leiddi til þess að hann var keyptur frá
Dortmund verður þess ekki langt að bíða að
hann verði í miklum metum hjá stuðnings-
mönnum enska stórveldisins. Ferguson
hefur þó sagt að hann þurfi tíma til að
aðlagast en Kagawa hefur skorað tvö mörk
og lagt upp eitt í þeim sex leikjum sem hann
hefur spilað.
9 OscarÞjóðerni:
Brasilískt
Félag: Chelsea
Staða: Miðjumaður
Kaupverð: 32 milljónir
punda
Leiknar mínútur: 62%
Stig í Fantasy Premier League: 22
Miklar væntingar eru gerðar til framtíðar
þessa unga Brasilíumanns. Hann er búinn
að spila sig inn í byrjunarliðið, á kostnað
ekki minni manns en Franks Lampard.
Oscar býr yfir gríðarlega miklum hæfileik-
um; hann er góður skotmaður, jafnvígur á
báða fætur og býr yfir miklum leikskilningi
miðað við aldur. Honum hefur þó ekki tekist
að skora og hefur aðeins lagt upp eitt mark
í ellefu leikjum. Hann hefur því ansi fá stig
fengið.
10 Gaston Ramirez
Þjóðerni: Úrú-
gvæskt
Félag: South-
ampton
Staða: Miðjumaður
Kaupverð: 15 milljónir punda
Leiknar mínútur: 39%
Stig í Fantasy Premier League: 17
Það er kannski ekki algengt að nýliðar í
ensku úrvalsdeildinni eyði í unga óreynda
leikmenn sem kosta jafn mikið og Gaston
Ramirez. Hann er aðeins 21 árs og skoraði 8
mörk í 33 leikjum fyrir Bologna á Ítalíu á síð-
ustu leiktíð og var keyptur til Southampton
fyrir metfé. Hann byrjaði ágætlega; skoraði
mark og lagði upp annað í fyrstu þremur
leikjunum. Svo meiddist hann í læri og var
frá keppni allan október. Spennandi verður
að fylgjast með pilti í
botnbaráttunni.
11 Javi Garcia
Þjóðerni: Spænskt
Félag: Manchester
City
Staða: Miðjumaður
Kaupverð: 20 milljónir punda
Leiknar mínútur: 28%
Stig í Fantasy Premier League: 13
Garcia spilaði fyrstu þrjá leiki tímabilsins.
Hann skoraði í fyrsta leiknum, gegn Stoke,
en varð fyrir því óláni að meiðast á læri í
meistaradeildarleik gegn Dortmund í byrjun
október. Hann hefur náð sér af meiðslunum
en spurningin er hvort þessi 20 milljóna
punda maður komist framar í goggunarröð-
ina en hinir ríkisbubbarnir hjá City.
12 Fabio Borini
Þjóðerni: Ítalskt
Félag: Liverpool
Staða: Sóknar-
maður
Kaupverð: 14
milljónir punda
Leiknar mínútur: 34%
Stig í Fantasy Premier League: 8
Flestir stuðningsmenn Liverpool klóra sér
enn í höfðinu yfir því hvernig í ósköpunum
Fabio Borini eigi að gagnast liðinu. Hann
er vissulega ungur að árum en virðist eiga
nokkuð langt í land til að verða fastamaður
hjá Liverpool. Rodgers notaði hann þó í
fyrstu sex leikjunum en lítið kom út úr því.
Síðan meiddist hann og er enn meiddur. DV
veit ekki til þess að hans sé saknað úr liðinu.
13 Jack Rodwell
Þjóðerni: Enskt
Félag: Manchest-
er City
Staða: Miðju-
maður
Kaupverð: 15 milljónir
punda
Leiknar mínútur: 26%
Stig í Fantasy Premier League: 6
Jack Rodwell hefur ekki átt sjö dagana sæla
eftir að hann kom frá Everton. Hann spilaði
tvo af fyrstu þremur leikjunum en hefur
síðan lítið komið við sögu. Rodwell er aðeins
21 árs og gæti þurft að verma tréverkið á
þessari leiktíð. Hann hefur spilað fjórðung
leiktímans en er fyrst og fremst hugsaður
sem maður framtíðarinnar. Hann gæti orðið
næsti Nigel de Jong á miðjunni.
Van Persie og
Hazard bestir
Þ
rettán dýrustu leik-
mennirnir sem ensku úr-
valsdeildarfélögin keyptu
í sumar kostuðu samtals
262 milljónir punda. Þeir
hafa samtals skorað 26 mörk í
fyrstu ellefu umferðunum í ensku
úrvalsdeildinni. Hollendingurinn
Robin van Persie hefur skoraði
tæplega þriðjung þeirra, eða átta.
Margir leikmannanna þrettán
hafa lítið sem ekkert spilað með
sínum liðum og verma tréverkið
eða horfa á leikina meiddir úr
stúkunni helgi eftir helgi.
10 þúsund Íslendingar í Fantasy
Premier League
Enska úrvalsdeildin heldur úti
nokkurs konar draumaliðsleik,
Fantasy Premier League, þar sem
leikmönnum eru gefin stig fyrir
frammistöðu sína á vellinum.
Knattspyrnuáhugamenn um allan
heim spila leikinn og velja saman
leikmenn í sitt lið og fá stig í hverri
umferð eftir því hversu vel leik-
mönnum þeirra gengur.
Þannig fá miðjumenn, varnar-
menn og markmenn stig fyrir að
halda markinu hreinu og allir leik-
menn fá stig (mismunandi mörg
eftir því hvaða stöðu á vellinum
þeir leika) fyrir að skora eða leggja
upp mörk fyrir samherja sína.
Markmenn fá stig fyrir markvörslu
og allir leikmenn fá stig ef þeir
taka þátt í leiknum. Loks fara sér-
fræðingar yfir hvern og einn leik
og verðlauna þrjá bestu leikmenn
vallarins með bónusstigum. Þó um
leik sé að ræða, sem um 10.500 Ís-
lendingar spila, gefur hann nokk-
uð góða mynd af því hvaða leik-
menn hafa staðið sig vel. Þó verður
að hafa í huga að kerfið er ekki
fullkominn mælikvarði á getu leik-
manns. Þannig getur varnarmaður
sem leikur vel liðið fyrir að liðinu
gengur illa og fær á sig mörk í
hverjum leik. Hann getur þó feng-
ið stig fyrir að leggja upp eða skora
mörk, eða fengið bónusstig fyrir
góða frammistöðu.
Margir verma bekkinn
DV tók til gamans saman þrettán dýr-
ustu leikmennina sem ensku úrvals-
deildarfélögin keyptu í félagaskipta-
glugganum í sumar. Eins og sjá má
standa þeir allir framherjanum Robin
van Persie og miðjumanninum Eden
Hazard langt að baki þegar að stigum
í draumaliðsleiknum kemur. Steven
Fletcher hjá Sunderland og Arsenal-
framherjarnir Lukas Podolski og
Oliver Giroud hafa þó einnig staðið
sig ágætlega. Aðrir á listanum hafa
mun færri stig. Þeir hafa ýmist leik-
ið illa, verið meiddir eða ekki notaðir.
Athyglisvert er að skoða hversu
stóran hluta nýju og dýru leik-
mennirnir hafa leikið í sínum liðum.
Joe Allen hjá Liverpool er eini leik-
maðurinn sem hefur leikið alla ellefu
leikina á leiktíðinni, án þess að vera
skipt út af. Nokkrir þessara dýru leik-
manna hafa lítið sem ekkert komið
við sögu, af ýmsum ástæðum. Leik-
mönnunum hér fyrir neðan er raðað í
röð eftir stigafjölda í Fantasy Premier
League. n
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
n Misvel gengur hjá þrettán dýrustu leikmönnum sumarsins í enska boltanum
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
va
n
Pe
rs
ie
H
az
ar
d
Fl
et
ch
er
P
od
ol
sk
i
Gi
ro
ud
D
em
be
le
A
lle
n
K
ag
aw
a
O
sc
ar
Ra
m
ire
z
Ga
rc
ia
B
or
in
i
R
od
w
el
l
Stig í Fantasy Premier League Milljónir punda
Hvers virði eru gæðin?
Græna súlan sýnir stigafjölda 13 dýrustu leikmannanna í
Fantasy Premier League, sem keyptir voru í sumar. Rauða
súlan sýnir, til gamans, í milljörðum punda hversu dýrir
leikmennirnir voru.