Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2012, Side 25
Fólk 25Miðvikudagur 14. nóvember 2012
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
L
eikkonan Anne Hathaway leggur
vanalega mikið á sig til að komast
í rétta gírinn fyrir kvikmyndahlut-
verk. Leikkonan breytti alfarið yfir
í grænmetisfæði til að grenna sig fyr-
ir kvikmyndina The Dark Knight Rises
og gekk ennþá lengra fyrir myndina
Les Misérables. Fyrir þá kvikmynd
lifði Anne á hafragraut og engu öðru
og missti þannig sjö kíló á tveim-
ur vikum. „Ætlunin var að líta út
fyrir að vera að dauða komin. Þetta
var auðvitað klikkun. En ég vildi ná
karakternum,“ sagði leikkonan í við-
tali við tímaritið Vogue.
Lifði á
hafra-
graut
n Vildi líta út fyrir
að vera að drepast
Les Misérables
Leikkonan leggur
mikið á sig til að
koma sér í form
fyrir hlutverk.
R
ihanna situr fyrir nánast nakin í
nýjasta tölublaði GQ en blaðið
er lagt undir leitina að manni
ársins. Í viðtalinu, sem nær yfir
sex blaðsíður, talar söngkonan um
ástina og fyrrverandi kærasta sinn,
Chris Brown. Rihanna, sem er 24 ára,
segir ekki satt að þau Brown séu byrjuð
saman aftur en tónlistarmaðurinn gekk
eftirminnilega í skrokk á söngkonunni
þegar þau voru par og hafa þau sést
saman upp á síðkastið.
L
eikarinn Matthew McConaughey
sem er vanur að vera vöðvastæltur
og í virkilega góðu formi er nú ekki
nema skugginn af sjálfum sér. Hann
hefur misst tæp 14 kíló fyrir hlut-
verk alnæmissjúklingsins Ron Woodruff í
kvikmyndinni The Dallas Buyers Club. „Ég
leik mann sem var veikur. Hann virkilega
vildi vera heilbrigður, en var það ekki,“
sagði leikarinn í viðtali við US Weekly.
„Þetta tekur meira á andlega en líkam-
lega. En ég mun fara niður í þá þyngd sem
ég þarf að fara niður í. Ég stefni að því, því
ég þarf að gera það fyrir þetta hlutverk.“
Það er ljóst að Matthew tekur hlutverk sitt
mjög alvarlega og þjáist fyrir listina.
Er að hvErfa!
n Matthew McConaughey þjáist fyrir listina
T
wilight-parið Robert
Pattinson og Kristen
Stewart mætti í fyrsta
skipti saman, eftir að
þau slitu sambandi sínu í
sumar, á Hollywood-viðburð
á mánudagskvöldið. Þær
sögur hafa gengið fjöllunum
hærra að þau hafi tekið
saman aftur og var það stað-
fest á frumsýningu síðasta
hluta Twilight-ævintýrisins,
The Breaking Dawn – Part 2,
í Los Angeles á mánudaginn.
Robert og Kristen leiddust
á rauða dreglinum og stilltu
sér upp fyrir myndatökur.
Aðdáendur fögnuðu þeim
ákaft og eru margir hverjir
eflaust ánægðir með að þau
hafi tekið saman aftur.
Robert sleit sambandinu
í sumar eftir að upp komst
um framhjáhald Kristen með
leikstjóranum Rupert Sand-
ers. Hann virðist nú hafa
fyrir gefið henni að fullu.
Stæltur Svona þekkjum við okkar mann betur.
Horaður Matthew er búinn að missa 14 kíló fyrir hlutverkið.
Nánast
nakin
n Rihanna lætur fötin
fjúka á forsíðu GQ
Ófeimin Þetta er
ekki í fyrsta skiptið
sem Rihanna situr
fyrir fáklædd og
líklega ekki í það
síðasta.
Saman á rauða dreglinum
n Robert og Kristen stilltu sér upp fyrir myndatökur
Leiddust Það virðist ekki leika
neinn vafi á því að Robert og
Kristen hafa tekið saman aftur.