Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Blaðsíða 2
FÉLAG Á PANAMA KAUPIR HÚS PÁLS 2 Fréttir 30. nóvember – 2. desember 2012 Helgarblað Banki Jóns í erfiðleikum 3 Banki Jóns Helga Guð- mundssonar í Lett- landi, Norvik Banka, á í erfiðleikum með að fjármagna sig og hefur lettneska fjár- málaeftirlitið viður- kennt opinberlega að stofnunin hafi áhyggjur af bank- anum. Þetta kom fram í nokkrum er- lendum fjölmiðlum, meðal annars Bloomberg og á vefsíðunni bne.eu, í lok síðasta mánaðar. Bankinn er sá áttundi stærsti í Lettlandi. Jón Helgi seldi fyrr á árinu ríflega 2/3 hluta bréfa sinna í bankanum og heldur eftir 15 prósentum. Norvik Banka er tuttugu ára gamall banki og er með 80 útibú í 17 borgum í Lettlandi. Sérstakur rann- sakar Straum 2 Embætti sér-staks sak- sóknara hefur borist kæra frá Fjármála- eftirlitinu vegna markaðsmisnotkun- ar fjárfestingarbank- ans Straums-Burða- ráss með hlutabréf í bankanum fyrir hrunið 2008. Frá þessu greindi DV á mánudag. Kæran barst fyrir nokkrum mánuðum. Björgólfur Thor Björg- ólfsson fjárfestir var stærsti hluthafi Straums fyrir hrunið og fór fyrir stjórn bankans. Kæran mun snúast um viðskipti Straums með hlutabréf í bankanum sjálfum og leikur grunur á að bankinn hafi keypt og selt bréf í honum til að hafa áhrif á verðmynd- un bréfanna. „Ég er dópisti“ 1 Sverrir Þór Gunnarsson, bet-ur þekktur sem Sveddi tönn, var dæmdur í 22 ára fangelsi á dögunum fyrir að skipuleggja smygl á rúmlega 50 þúsund e-töfl- um. DV náði tali af Sverri þar sem hann sagðist eiga von á því að verða sýknaður. Hann hafi ekki stundað skipulagðan innflutning á fíkni- efnum en hann sagðist þó þekkja þennan heim af eigin raun. „Ég skal segja þér satt, ég þekki allt þetta fólk. Ég þekki dópsala og smyglara því ég er dópisti og þegar þú ert dópisti þá verður þú að verða þér úti um dóp. Þannig að ég umgengst margt svona fólk,“ sagði hann. Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni P áll Magnússon, útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins, og eigin- kona hans seldu fyrr í þess- um mánuði rúmlega 400 fer- metra hús sitt við Sunnuflöt 14 í Garðabæ. Kaupandinn var Örvar Kærnested, stjórnarmaður í Straumi fjárfestingabanka. Örvar hefur verið búsettur í Bretlandi undanfarin sex ár þar sem hann starfaði sem yfir- maður hjá Kaupthing Singer & Fried- lander og síðar FL Group. Samkvæmt heimildum DV greiddi Örvar hluta af kaupverði hússins að Sunnuflöt með svokölluðum aflandskrónum. „Nú hljóta kaup og sala fjölskyldu minnar á íbúðarhúsnæði að flokkast undir einkamál,“ segir Páll Magn- ússon í svari við fyrirspurn DV um söluna á húsinu við Sunnuflöt. Hann segist ekki geta svarað því hvort hann hafi fengið greitt fyrir húsið með aflandskrónum. „Ég gæti ekki þótt ég vildi gefið upprunavottorð fyrir peningum annarra manna. Ég get þó fullvissað að mín húsnæðiskaup eru fjármögnuð í sveita míns andlits og með alíslenskum okurlánum – verð- tryggðum og stökkbreyttum – eins og raunin er hjá flestum venjulegum Ís- lendingum,“ segir í svarinu sem Páll sendi DV. Seðlabankinn endurgreiðir Örvari 20 prósent Fasteignasali sem DV ræddi við segir að virði rúmlega 400 fermetra húss að Sunnuflöt í Garðabæ nemi vart undir 100 milljónum króna og allt að 150 milljónum króna ef húsið sé í góðu ástandi. Ef við gefum okk- ur að húsið hafi selst á 125 milljónir króna og fyrir það hafi verið greitt með aflandskrónum myndi Seðla- bankinn endurgreiða viðkomandi um 25 milljónir króna. Samkvæmt fjárfestingarleið Seðlabankans fá þeir sem koma með aflandskrónur til landsins endurgreitt um 20 prósent af þeim fjármunum. Félag á Panama á húsið Samkvæmt veðbandayfirliti er húsið að Sunnuflöt nú í eigu félags- ins Riverside Capital ehf. en eigandi þess er síðan félag sem ber sama nafn en er skráð í Lúxemborg. Í stjórn Riverside Capital ehf. situr Örvar Kærnested og Richard Beenstock, viðskiptafélagi Örvars í Bretlandi. Til að gera eigendasöguna enn flóknari þá er Riverside Capital í Lúxemborg í eigu félagsins Integrem Holding S.A. en lögheimili þess er skráð í byggingu Swiss Bank í Panamaborg. Riverside Capital er í viðskiptum við MP banka á Íslandi og sá bank- inn um að fá kennitölu fyrir fyrirtæk- ið hér á landi. Því er óhætt að taka undir orð Páls Magnússonar að erfitt sé að finna upprunavottorð þeirra fjármuna sem félag Örvars Kærne- sted greiðir fyrir húsið að Sunnuflöt 14 í Garðabæ. Hagnaðist á hlutabréfasölu Örvar Kærnested situr í dag í stjórn Straums fjárfestingabanka. Hann starfaði hjá Kaupþingi frá 1998 til ársloka 2006. Var hann forstöðumað- ur fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings en árið 2006 tók hann við starfi að- stoðarframkvæmdastjóra hjá Kaup- thing Singer & Friedlander í Bret- landi. Árið 2007 tók hann við sem framkvæmdastjóri fjárfestingasviðs FL Group og stýrði skrifstofu þeirra í London. Frá árinu 2009 hefur hann rekið Ortus Capital sem starfar á sviði ráðgjafar og fjárfestinga í Bret- landi. Breska blaðið The Guardian greindi frá því árið 2009 að Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi forstjóri Singer & Friedlander, kæmi einnig að rekstri Ortus Capital. Þeir störf- uðu lengi saman hjá Kaupþingi. Talið er að Örvar hafi hagnast vel þegar hann seldi hlutabréf sín í Kaup- þingi eftir að hann hætti störfum hjá bankanum og réð sig til FL Group í upphafi árs 2007. Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis skuld- aði hann Kaupþingi um einn milljarð króna í upphafi árs 2007. Við starfslok greiddi hann skuldina upp en ekki er vitað hversu mikið Örvar hagn- aðist af sölu hlutabréfanna í Kaup- þingi. Hann greiddi hins vegar um 140 milljónir króna í skatta og opin- ber gjöld árið 2007 og var sjöundi hæsti skattgreiðandinn vegna þess árs í Reykjavík, næstur á undan sjálf- um Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Þá var Örvar með um 100 milljónir króna í árstekjur hjá Kaupþingi árið 2005 og 140 milljónir króna árið 2006. Örvar var í flokki með örfáum starfsmönnum Kaupþings sem náðu að innleysa hagnað vegna kauprétt- arsamninga sinna. Það gerði líka Kristín Pétursdóttir, sem starfaði sem aðstoðarforstjóri Singer & Fried- lander, en hún hætti störfum hjá úti- búi bankans í London í árslok 2006 líkt og Örvar. Kristín stofnaði síðan verðbréfafyrirtækið Auði Capital vor- ið 2007 en hún er einn af eigendum fyrir tækisins í dag og er jafnframt starfandi forstjóri. Einnig má nefna að Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson hætti störfum hjá Kaupþingi árið 2006 og stofnaði í framhaldinu fjárfestinga- bankann Saga Capital. Aðrir sem ekki hættu störfum hjá bankanum fyrir hrun sitja nú uppi með skuldir vegna kaupréttarsamninga. Hefur slitastjórn Kaupþings þó náð samkomulagi um endurgreiðslu þeirra hjá flestum af fyrrverandi stjórnendum bankans. n n Stjórnarmaður í Straumi keypti húsið af Páli gegnum félag á Panama Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar annas@dv.is „Ég gæti ekki þótt ég vildi gefið upprunavottorð fyrir peningum annarra Í eigu félags á Panama Örvar Kærnested fjárfestir keypti húsið að Sunnuflöt 14 af útvarpsstjóra í gegnum félag sem skráð er á Panama. Örvar hagnaðist á sölu hlutabréfa sinna í Kaupþingi þegar hann lét af störfum hjá bankanum árið 2007. Mynd Sigtryggur Ari Plataðir til að kaupa hlutabréf „Menn hafa verið plataðir til að kaupa hlutabréf,“ sagði Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, í umræðum á Alþingi á fimmtudag. Þar spurði hann Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis- ráðherra út í neytendavernd á fjár- málamarkaði. „Aldraðir hafa verið plataðir til að kaupa hlutabréf sem svo hurfu og sparnaðurinn fór. Einstaklingar nota yfirdrætti eins og að drekka vatn,“ sagði þingmað- urinn. Hann skoraði á ríkisstjórn- ina að bæta neytendaverndina. Jó- hanna sagði ríkisstjórnina vissulega vera með þessi mál á sinni dagskrá og tók undir með Pétri. „Ég fullvissa háttvirtan þingmann um að neyt- endamál eru ofarlega á blaði hjá þessari ríkisstjórn og hefur verið allt kjörtímabilið,“ sagði Jóhanna. Tekur við Landsbjörg „Þetta er afskaplega spennandi,“ segir Jón Svanberg Hjartarson sem hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Slysavarnafélags- ins Landsbjargar og tekur við stöðunni fyrsta janúar næst- komandi. Jón hefur verið félagi í Björgunarsveitinni Sæbjörg á Flateyri frá 1986. Hann hefur verið lögreglu- maður og lögregluvarðstjóri á Vestfjörðum, auk þess að vera settur aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á Vestfjörðum 2007–2008. „Ég er búinn að vera í þess- um björgunarsveitabransa, ef svo má að orði komast, síðan 1986,“ segir hann og segir þetta vera mikið tækifæri. Jón segist hyggja á flutninga suður til höfuðborgarinnar, en höfuðstöðvar Landsbjargar eru í Reykjavík. Það komi svo í ljós með tíð og tíma hvernig verði með aðra fjölskyldumeðlimi, en hann á þrjú börn og sambýlis- kona hans er Pálfríður Ása Vil- hjálmsdóttir. Nýverið var greint frá því að Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Landsbjargar væri endanlega hættur hjá sam- tökunum. Guðmundur fór í leyfi frá störfum eftir að umfjöllun um viðskipti hans komst í há- mæli fyrir skemmstu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.