Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Blaðsíða 54
54 Fólk 30. nóvember – 2. desember 2012 Helgarblað
M
arta María Jónasdóttir, um-
sjónarmaður Smartlands á
mbl.is kom fésbókarvinum
sínum heldur betur í gott
skap í vikunni þegar hún birti mynd-
band af sjálfri sér í líki suðurkóreska
tónlistarmannsins Psy að flytja
Gangnam Style. Hún spurði jafnframt
hvort ekki væru allir í stuði og við-
brögðin létu ekki á sér standa. Einn
fésbókarvinur Mörtu Maríu spurði
hana meðal annars að því hvort hún
tæki að sér að skemmta fyrir jólin.
Svaraði hún spurningunni um hæl:
„Já, hef góða reynslu af því að poppa
nakin upp úr afmælistertum …“
H
ér og nú ráðlegg ég engum að
finna sér annan maka á með-
an hann er enn í hjónabandi,
segir söngkonan Helga Möll-
er í viðtali í nýjasta tölublaði Vik-
unnar. Hún er ekki gift en á kærasta
til ellefu ára. Þau byrjuðu að vera
saman á meðan þau voru bæði gift
öðrum. Helga lýsir í viðtalinu erfið-
leikunum sem þessu hafa fylgt. Börn
þeirra beggja þurftu til að mynda
að líða fyrir gjörðir foreldra sinna.
„Ég var auðvitað fjandmaður þeirra
í rauninni, börnin hans horfðu upp
á móður sína í sorg og börnin mín
horfðu upp á pabba sinn í sorg.“
Helga og umræddur maður fóru
að búa saman strax eftir að hjóna-
böndum þeirra lauk en það gekk ekki
upp og þau slitu sambandinu. Hálfu
ári síðar tóku þau hins vegar saman
aftur og hafa verið saman síðan.
„Mín stærstu mistök í lífinu eru
að hafa farið út úr hjónabandi mínu
í framhjáhaldi,“ segir Helga Möller í
viðtalinu.
Marta María tekur
Gangnam Style
„Ég var fjand-
maður þeirra“
Þ
að er komin meiri samkeppni
á þennan markað en áður var.
Þetta hefur verið frekar fátæk-
legur markaður og fámenn-
ur hingað til. Fáir aðilar verið
í þessu þannig ég held það sé bara
fagnaðarefni fyrir þá sem eru í þessum
bransa og líka fyrir þá sem eru að kaupa
dagskrárefni, það er meiri samkeppni í
efnistökum, verði og öðru,“ segir Sig-
mar Vilhjálmsson einn af eigendum
framleiðslufyrirtækisins Stórveldisins.
Samkvæmt heimildum DV hafa verið
miklar hræringar á framleiðslumark-
aðnum hjá þeim sem standa að inn-
lendri dagskrárgerð fyrir sjónvarp. Um
þessar mundir kynna framleiðslufyrir-
tækin efni sitt fyrir sjónvarpsstöðvun-
um. Meiri samkeppni er á markaðn-
um nú en hefur verið. Sagafilm hefur
verið stærsta framleiðslufyrirtækið á
markaðnum en það framleiðir bæði
innlenda þætti og auglýsingar, kvik-
myndir og fleira. Aðrir á framleiðslu-
markaðnum, auk Saga Film og Stór-
veldisins, eru Pegasus, True North og
Blue Eyes.
Þórhallur í stað Þórs
Á fimmtudag var sagt frá því á DV.is að
Þórhallur Gunnarsson, sem lengi hef-
ur starfað við dagskrárgerð á RÚV, hafi
verið ráðinn sem framleiðslustjóri hjá
Sagafilm. Það mun hafa gerst í kjöl-
far þess að Þór Freysson, einn reynd-
asti framleiðandi landsins, sagði starfi
sínu hjá Saga Film lausu en hann mun
hefja störf hjá Stórveldinu í febrúar á
næsta ári. Í samtali við DV vildi Þór-
hallur ekki tjá sig um málið. „Ég vil
ekkert tjá mig um þetta mál hvorki af
né á,“ sagði hann. Kjartan Þór Þórðar-
son framkvæmdastjóri Sagafilm stað-
festi þetta í fréttatilkynningu sem hann
sendi frá sér í gær. „Ég tel að ráðning
Þórhalls sé til þess fallin að styrkja
Sagafilm sem leiðandi fyrirtæki í dag-
skrárgerð fyrir sjónvarp á Íslandi og ef-
ast ég ekki um að mörg ný og skemmti-
leg verkefni munu fylgja í kjölfar þess
að Þórhallur taki við taumunum í dag-
skrárdeildinni.“ Þór staðfesti í samtali
við DV að hann væri á leið til Stórveld-
isins. „Ég er að fara yfir í Stórveldið. Ég
náttúrulega þekki Simma og Jóa frá
fyrra samstarfi okkar, við erum bún-
ir að gera fjögur Idol saman og þetta
hefur alltaf legið svona í loftinu að við
myndum ná saman á þessum vett-
vangi einn góðan veðurdag. Þeir buðu
mér að breyta til og þetta var bara góð-
ur tímapunktur fyrir mig,“ segir Þór.
Sigmar er ánægður með að fá Þór
yfir í Stórveldið og segir hann mikinn
feng. „Með fullri virðingu fyrir öllum
öðrum þá held ég að Þór Freysson sé
reynslumesti og besti framleiðandi á
landinu í stærri útsendingum og stærri
þáttagerðum.“
Simmi og Jói í Stórveldinu
Töluverðar hræringar hafa verið á
framleiðslumarkaðnum og samkvæmt
heimildum DV er það meðal annars
vegna aukinna umsvifa Stórveldisins
en Sagafilm hefur lengi vel haft nokk-
uð stóra hlutdeild á markaðnum. Stór-
veldið var upprunalega stofnað af
Huga Halldórssyni í kringum þættina
Ameríska drauminn sem framleiddir
voru fyrir Stöð 2 en Hugi vann áður
hjá Saga Film. Framleiðslufyrirtækið
hefur stækkað ört á skömmum tíma
og hefur meðal annars framleitt þætti
á borð við Andraland, Andra á flandri,
Mannasiði Gillz, Týndu kynslóðina og
Heimsrétti Rikku. Fyrir um ári komu
þeir Sigmar og Jóhannes Ásbjörnsson,
betur þekktir sem Simmi og Jói, inn í
fyrirtækið.
Eðlilegur fylgifiskur samkeppni
Aðspurður hvort rétt sé að titrings
gæti á markaðnum vegna aukinnar
samkeppni segir Sigmar svo vera. „Já,
ég myndi segja það. Við höfum verið
að ráða til okkar fólk og viljað fjárfesta
í mannauði. Höfum þar af leiðandi
verið að leita að fólki sem hefur mikla
reynslu og þekkingu. Það fólk er í dag í
vinnu einhvers staðar,“ segir hann.
„Við lítum bara þannig á að þetta
sé eðlilegur fylgifiskur samkeppni.
Ég held að allir njóti góðs af því, þeir
sem vinna vinnunna hafa kost á því að
hafa val um hvar þeir vilja vinna,“ segir
hann. n
n Aukin samkeppni á framleiðslumarkaðnum
n Þórhallur til Sagafilm og Þór til Stórveldisins
S
umir strákarnir höfðu litla
trú á mér í byrjun og ég held
að ég hafi komið mörgum á
óvart. En ég var alveg rosa-
lega ákveðin að vinna. Al-
veg frá fyrsta degi,“ segir nýkrýndur
Íslandsmeistari í póker, hin tvítuga
Anika Mai Jóhannsdóttir.
Anika Mai hefur spilað í tvö ár en
þetta var hennar fyrsta Íslandsmeist-
aramót. Hún byrjaði að spila á Face-
book en færði sig svo yfir á Full Tilt og
fór að spila fyrir peninga. „Svo þegar
ég fór að spila „live“ var ekki aftur
snúið,“ segir Anika Mai sem útskrif-
aðist á dögunum úr Listdansskóla Ís-
lands. „Ég er búin að æfa ballett síðan
ég var þriggja ára en veit ekki hvort ég
eigi eftir að starfa við dansinn í fram-
tíðinni. Hins vegar er ég ákveðin að
fara út að keppa í póker,“ segir hún en
hennar uppáhaldsspilarar eru Phil
Ivey og Tom „Durr“ Dwan.
Anika óttast ekki að verða spilafíkn
að bráð. „Ég hef pælt mikið í þessu en
ég lít ekki á póker sem fjárhættuspil.
Þar er það heppni sem ræður. Póker
snýst um hæfileika og kunnáttu. Þú
getur ekki bara spilað á spilin, þú
verður að spila á andstæðinginn líka.
Og það er það skemmtilega við þetta.“
Anika segir fjölskylduna styðja
vel við bakið á sér. „Þau komu öll og
horfðu á mótið. Mömmu var mjög
illa við þetta í fyrstu en núna er hún
stolt af mér. Hún er búin að átta sig
á því að maður getur orðið góður í
þessu og að ég sé góð. Póker er algjör-
lega fyrir stelpur jafnt sem stráka. Það
eina sem þarf til að verða góður er að
hafa metnað og mikinn áhuga, eins
og með allt annað. Ef þú hefur virki-
legan metnað verður þú betri.“ n
indiana@dv.is
n Íslandsmeistarinn í póker er ballettdansari
Ætlaði að vinna
L
andslið grínara er nú í óðaönn
að gera sig klárt fyrir dag rauða
nefsins 7. desember þar sem
meginmarkmiðið verður að
gleðja landsmenn og bjóða fólki
á Íslandi að gerast heimsforeldrar
UNICEF. Þeir uppistandarar sem
hafa boðað komu sína í ár eru með-
al annars Ari Eldjárn, Saga Garðars-
dóttir, Ugla Egilsdóttir, Bergur Ebbi
Benediktsson og Dóri DNA. Ferskur
á sviðið mætir einnig Gunnar Hrafn
Jónsson fréttamaður sem bætist
nú í hóp grínistanna en hann bar
sigur úr býtum í keppninni fyndn-
asti maður Íslands. Dagur rauða
nefsins nær hámarki í söfnunar-
og skemmtiþætti í opinni dagskrá
á Stöð 2 og beinni útsendingu á
Vísi. n
Dagur rauða
nefsins nálgast
n Kom fésbókarvinum sínum í gott skap
n Helga Möller fór úr hjónabandi sínu
með framhjáhaldi
Þórhallur
í stað Þórs
Færir sig um set
Þórhallur verður
framleiðslustjóri
hjá Saga Film.
Metnaðarfull Anika er aðeins tvítug. Hún
ætlar sér út í lönd til að keppa í póker.