Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Síða 17
Fréttir 17Helgarblað 30. nóvember – 2. desember 2012 leikstjórinn orðaði það. Þessi sam­ skipti hefðu hvergi verið samþykkt undir öðrum kringumstæðum.“ Júlíus Freyr segir að hann verði líka að viðurkenna að honum þyki stórfurðulegt að hann hafi tekið þátt í þessu. „Það var í raun ekki fyrr en seinna sem ég áttaði mig á því hvað ég hafði gert, ekki fyrr en ég fór að vinna úr mínum málum. Þá áttaði ég mig líka á því að ég hefði aldrei farið út í þetta ef sjálfs­ virðingin hefði verið í lagi. Þú þarft að vera með brotna sjálfsmynd til þess að taka þátt í þessu, eftir mína reynslu þá trúi ég ekki öðru. Það þýðir ekkert að setja fram einhverjar glansmyndir í kringum klámið.“ Hann áfellist þó hvorki sig né aðra sem þarna voru. „Við vor­ um eðlilegt fólk í óeðlilegum aðstæðum. Þetta voru yndislegir krakkar en við höfðum öll villst af leið. Brautin var ekki beinni en svo að einn af okkur endaði í fangelsi í Brasilíu fyrir fíkniefnasmygl.“ Skalf af stressi Tökurnar voru líka óþægilegar segir hann. „Það kom ekki fram í myndinni þegar maður var skjálf­ andi af stressi. Það var alltaf svo­ lítið af fólki á setti og það var óþægilegt að ganga upp að konu, strjúka rass og klípa í brjóst og vera ógeðslegur innan um allt þetta fólk. Ég get eiginlega ekki útskýrt þessa tilfinningu, hún er mjög sér­ kennileg og það var ekkert gott við hana.“ Eitt atriðið er honum sérstak­ lega eftirminnilegt. „Ég átti að koma aftan að leikkonunni, fara með hendurnar undir hendurnar á henni og grípa í brjóstin á henni. Hún var orðin svo stressuð að hún nötraði og var öll sveitt. Og þetta var svona saklaust atriðið miðað við annað sem hún þurfti að gera. Ég reyndi til dæmis að þröngva mér upp á hana, eins og ég átti að gera. Ekki það, þessi mynd var barna­ leikur miðað við klámið sem þrífst á netinu núna. Miðað við það hvernig okkur leið í þessum saklausa leik bíð ég ekki í það hvernig þeim líður sem þar koma fram. Enda væri útilokað fyrir mig að telja mér trú um að klám sé með einhverjum hætti gott eða skemmtilegt. Það er ekkert heillandi við það,“ segir Júlíus Freyr og bætir því við að þetta sé ekki spennandi heimur. Þetta fer ekki neitt „Reyndar held ég að okkur hafi öllum fundist þetta í lagi meðan á þessu stóð, þannig séð. Við sáum ekkert rangt við þetta. En upplifunin var sér­ kennileg og þegar upp var staðið þá fylgdi þessu svona ógeðstilfinning. Og hún kom ekkert mikið seinna. Það leið langur tími frá því að myndin var tekin upp og þar til hún var sýnd. Ég hafði alveg tíma til þess að fá móral yfir því sem ég hafði gert áður en hún kom út. En ég ákvað að bera höfuðið hátt og lét það óhikað vaða að ég hefði leikið í þessari mynd. Þannig að þeir voru margir sem sáu myndina. Og nú er hún komin á netið. Það eltir mann allt sem maður gerir,“ segir Júlíus Freyr. Hann er reglulega spurður hvort hann sé maðurinn í myndinni. Meira að segja úti í Hrísey þar sem hann kom sér fyrir og starfar sem kaup­ maður í dag. „Ég geri mér ekki alltaf grein fyrir því hvað þetta fer víða, hvað það eru margir sem heyra þetta og hvað það eru margir sem sjá þetta. Maður er aldrei óhultur fyrir þessari fortíð. Þetta fer ekki neitt. Þú getur fundið þetta á netinu og börnin mín eiga eft­ ir að sjá þetta. Ég kem ekkert í veg fyr­ ir það og það er virkilega óþægilegt.“ Nú er sonur hans kominn á þann aldur að Júlíus Freyr telur tímabært að segja honum frá þessu. Hann hefur alltaf vitað að sú stund rynni upp en hefur fram til þessa ýtt því frá sér. „Þetta er ekki draumaumræðuefnið sem þú vilt taka upp við börnin þín. En ég held að þeim sé enginn greiði gerður með því að fela þetta.“ Allajafna ræðir hann þó ekki þessa upplifun við fólk þegar það spyr. Hann játar því bara að þetta sé hann og lætur þar við sitja. „Fólk hefur engan áhuga á að ræða það eitthvað frekar. Það vill ekki heyra af leiðinlegri hliðum klámsins. Ég hef reynt að segja fólki frá því hvað þetta voru sérkennilegar aðstæður en það hefur enginn áhuga á þeirri sögu.“ Hvergi óhultur Í huga hans leikur enginn vafi á því að saga hans er samhangandi, frá upphafi til enda, og að ofbeldið sem hann varð fyrir í æsku hafi haft áhrif á að hann fór þessa leið. Kyn­ ferðisofbeldið hófst þegar hann var sex ára og stóð fram á ung­ lingsárin. Hann áfelldist sjálfan sig fyrir það sem gerðist og sagði engum frá því. „Ég lagði mig fram við það að fela það fyrir öðrum, fela það hvað ég var ógeðslegur. Ég hélt að ég væri bara lítill perri. Seinna áttaði ég mig á því hvað ég var ungur og mikið barn þegar þetta hófst. Það var bara þessi líf­ fræðilega virkni sem ruglaði mig í ríminu og gerði það að verkum að ég skildi ekki muninn á kynlífi og kynferðislegu ofbeldi. Vald of­ beldismannsins var ansi mikið og ég var góður leikari þannig að það grunaði þetta engan.“ Ofbeldismaðurinn bjó í sama þorpi, elti Júlíus Frey uppi og króaði hann af svo hann gæti kom­ ið vilja sínum fram. „Þetta var lygilegur hæfileiki sem hann hafði. Ég upplifði mig hvergi öruggan, nema hjá gamla fólkinu í næsta húsi, vinum mínum. Annars treysti ég engum og hafði enga trú á sjálf­ um mér. Ég var haldinn miklum ranghugmyndum um mig, taldi mig vera feitan, ljótan og leiðin­ legan. Ég fann að fólk innan fjöl­ skyldunnar hafði trú á mér en ég þaggaði niður í þeim því þau vissu ekki hvernig ég væri í raun og veru. Ég beið alltaf eftir því að einhver myndi fatta það, þannig að ég hélt öllum persónulegum samskiptum á yfirborðinu.“ Fjölskyldan flutti loks á milli bæjarfélaga og Júlíus Freyr hélt að hann væri sloppinn. En þar beið hans annar níðingur sem læsti klónum í hann. „Það sann­ færði mig endanlega um að eitt­ hvað væri að mér. Ég væri greini­ lega svona lélegur og hefði valdið þessu sjálfur. Ég vissi það ekki þá að hann valdi mig af því að hann sá að ég var veikur fyrir. Það velur enginn að verða fyrir ofbeldi.“ Biðst afsökunar Næstu árin stundaði Júlíus Freyr stöðuga niðurrifsstarfsemi. Hann fór norður í menntaskóla þar sem hann var rekinn fyrir að gera ekkert: „Ég mætti ekki og gerði ekkert,“ segir hann og glottir út í annað. „Síðan tapaði ég vitglór­ unni endanlega þegar ég kom aft­ ur suður, þjáður af þörfinni fyrir að sanna mig. Ég leitaði eftir viður­ kenningu í gegnum kynlíf og gekk mjög langt í þeim efnum. Djammið snerist aðeins um eitt og mér var sama hjá hvaða stelp­ um ég svaf. Sjálfsvirðingin var ekkert að flækjast fyrir mér.“ Helst „höslaði“ hann um hverja helgi, báða dagana. Það kom jafnvel fyrir að hann var með tveimur konum sama kvöldið. „Ég n Upplifði stjórnleysi eftir langvarandi kynferðisofbeldi n Leitaði að viðurkenningu í gegnum kynlíf n Lék í klámmynd skammaðist mín ekki einu sinni fyrir það. Ég var algjörlega for­ hertur.“ Engu að síður fylgdi þessari hegðun ónotakennd, botnlaust samviskubit og sektarkennd. „Ég var alltaf með móral eftir helgar. Ég hagaði mér eins og drullusokkur og upplifði mig sem drullusokk. Ég var ekki að gera rétt, hvorki gagn­ vart mér né öðrum. Þannig að ég myndi gjarna vilja biðja þá afsök­ unar sem ég kom illa fram við, sérstaklega þessar konur sem ég særði. Þetta var í alvörunni bara ég. Ég hafði enga stjórn á eigin lífi og stóð oft eftir eitt stórt spurn­ ingarmerki; „hvernig gerðist þetta eiginlega?“ Mér fannst ég alltaf vera skítugur og var mjög para­ nojaður varðandi lyktina af mér þannig að ég var alltaf í sturtu. Það er óþægileg tilfinning að vera svona meðvitaður um sjálfan sig án þess að hafa hugmynd um það hver maður er.“ En fyrir honum snerist þessi leikur aldrei um kynlíf. „Um leið og kynlífið var komið í spilið var spennan farin. Ég vildi bara sjá hversu langt ég kæmist, þetta snerist bara um það að fá viður­ kenninguna. Það var enginn sam­ nefnari á milli kynlífs og tilfinn­ inga í mínum huga og fyrir vikið náði ég ekki að tengjast neinum tilfinningaböndum.“ Tók lífið í eigin hendur Síðan kynntist hann núverandi eig­ inkonu sinni og áttaði sig á því að hann væri komin í öngstræti með sjálfan sig. Það tók tíma en að lok­ um áttaði hann sig á því að hann yrði að leita sér hjálpar. Á Stíga­ mótum tók hann sín fyrstu skref í átt að nýju lífi. „Ég byrjaði að tala og hætti ekki fyrr en það var búið. Það var kominn tími á þetta,“ seg­ ir Júlíus Freyr sem upplifði mik­ inn létti eftir fyrsta tímann og hélt áfram að mæta. „Þótt maður hafi verið beittur ofbeldi þá hefur það ekki úrslitaþýðingu varðandi það sem á eftir kemur. Maður getur alltaf tekið völdin í sínar hendur. Það er ekkert sem mótar mann til framtíðar nema maður leyfi því að gera það. Maður getur alltaf ákveðið að takast á við lífið á eigin forsendum en ekki annarra.“ Þrátt fyrir aukna umræðu á undanförnum árum um kynferðis­ ofbeldi gagnvart drengjum segir hann enn vanta mikið upp á til þess að hún nái sama þroska og umræðan um kynferðisofbeldi gagnvart stúlkum. „Það virðist vera erfitt að viðurkenna þennan vanda og fá fólk til þess að fræða unga drengi um kynferðisofbeldi. Þeir verða að þekkja hættuna til þess að geta varið sig eða sagt frá því ef þeir lenda í ofbeldi. Við verðum líka að hugsa um hvaða skilaboð er verið að senda þegar því er fleygt fram að það sé ekki hægt að nauðga viljugum og að karlar séu alltaf viljugir. Verst er þó þessi sterka tenging sem virð­ ist vera í huga margra á milli þess að vera beittur ofbeldi og beita of­ beldi. Það er ekkert sem hræðir menn eins mikið frá því að segja frá kynferðisofbeldi eins og þessi mýta um að þeir verði ofbeldis­ menn sjálfir vegna reynslu sinnar. Mig langar til þess að hvetja menn til þess að takast á við ótt­ ann og leita sér aðstoðar. Ef þeir eru ekki tilbúnir til þess að fara í viðtal á Stígamótum eða í Dreka­ slóð þá mega þeir alltaf hafa sam­ band við mig,“ segir Júlíus Freyr að lokum og lætur netfangið fylgja: husbondinn@gmail.com. n „Ég geri mér ekki alltaf grein fyrir því hvað þetta fer víða, hvað það eru margir sem heyra þetta og hvað það eru margir sem sjá þetta. Maður er aldrei óhultur fyrir þessari fortíð. „Ég leitaði eftir viðurkenningu í gegnum kynlíf og gekk mjög langt í þeim efnum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.