Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2012, Side 35
Menning 35Helgarblað 30. nóvember – 2. desember 2012
„EinfaldlEga langflottastur“
rithöfundur heldur einnig svo mik
il manneskja. Skrifar um mikil
væg mál beint frá hjartanu en svo
er húmorinn aldrei langt undan
sem gerir hana að svo skemmtileg
um höfundi. Ég hlakka til að fylgjast
með henni næstu ár.“
9.–16. sæti
Einar Kárason
n „Dásamlegur sagnamaður, sög
ur hans eru vel uppbyggðar, fal
lega stílaðar, djúpar, skemmtilegar
og spennandi. Það er ekki algengt
að höfundum takist að halda öllu
þessu til haga í einu verki. Það tekst
Einari hins vegar og þess vegna
njóta allir þess að lesa bækur hans.“
n „Frábær stílisti og sagnamaður.
Skín hressleiki og kraftur úr öll
um skrifum Einars enda hefur
alltaf gustað töluvert af honum í
eigin persónu. Við vorum látin lesa
Djöflaeyjuna í gagnfræðaskóla og
fannst okkur félögunum hún svo
skemmtileg að við gátum farið orð
rétt með heilu kaflana aftur á bak og
áfram eins vottarnir með Biblíuna.
Skrautfjöðrin er auðvitað verð
launaþríleikurinn sem byggður er á
persónum og atburðum Sturlungu.
Með óborganlegu persónugaller
íi og hádramatískri en um leið afar
kómískri atburðarás hefur honum
tekist að gæða stórmerkan en nokk
uð tyrfinn sagnabálk nýju lífi.“
9.–16. sæti
Steinar Bragi
n „Hryllilegur rithöfundur, fær
mann til að öskra af hræðslu. Hann
skemmdi gjörsamlega fyrir mér það
að fá lánaðar glæsiíbúðir, ég er mjög
nojuð eftir að hafa lesið Konur. Ég
get samt ekki hætt að lesa hann.“
n „Einn fárra íslenskra rithöfunda
sem hefur á valdi sínu að skrifa góð
an súrrealískan texta. Óhugnan
legar, draumkenndar og grimmar
lýsingar sem eru heillandi og minna
helst á verk Davids Lynch. Konur
greip mig heljartökum þegar ég las
hana og hafði mikil áhrif á mig.“
9.–16. sæti
Arnaldur
Indriðason
n „Fullkomið vald
á krimmaforminu.
Styrkleikinn liggur í því að tefla
saman æsispennandi framvindu og
áhugaverðum persónusögum aðal
persónanna. Breyskleiki og hvers
dagsleg áferð aðalpersónanna gerir
þær nálægar og trúverðugar.“
n „Frábær á sínu sviði. Mætti segja
að hann sé „meinstrím“ rithöfundur
sem skrifar léttleikandi glæpasögur
í afþreyingarformi – en slíkar bók
menntir má alls ekki að mínu mati
vanmeta. Ef það væri einfalt mál að
gera bækur sem höfða til fjöldans
líkt og bækur Arnaldar gera, þá vær
um við að drukkna í slíkum bókum
– en sú er bara alls ekki raunin.“
9.–16. sæti
Svava Jak-
obsdóttir
n „… sem í sögum
sínum teiknar upp
heim kvenna og sprengir hann svo
upp. Áhrifamiklar sögur, jafnvel þó
þær séu lesnar 40 árum síðar.“
n „Braut blað í frásagnarhefð á Ís
landi. Einstakur frásagnarstíll henn
ar og grafískar myndlíkingar eru
virkileg uppgötvun fyrir mig.
n Að segja sögu um fólk í glerhúsi
er orðið klassík í dag.“
9.–16. sæti
Pétur Gunnarsson
n Býr yfir sígildum frásagnar
hæfileikum, þar sem íslenskur
hversdagsleiki er áberandi og ein
kennandi. Afar vel að sér í hug
myndafræði og þar af leiðandi full
fær um að setja íslenskan veruleika
í alþjóðlegt samhengi sem afhjúpar
lesendum hans nýja sýn á sína eig
in tilveru.“
n „Aðallega af persónulegum
ástæðum. Andri Haraldsson var
nefnilega samferða mér í gegnum
unglingsárin. Á sínum tíma kunni
ég heilu og hálfu kaflana úr Ég um
mig frá mér til mín utanbókar.“
9.–16. sæti
Kristín Eiríksdóttir
n „Myndlistarmaður að upplagi.
Maður sér það þegar kemur að
ímyndunarafli hennar. Það er
magnað! Karakterarnir hennar gera
víðreist, fara burt af sögueyjunni,
það er alltaf hressandi. Svo hefur
Kristín svo ríka efniskennd. Blóð
og slím og æla, bækurnar eru nán
ast gegnsósa, svo djúsí eru sögur
hennar.“
n „Rísandi stjarna í íslenskum bók
menntaheimi. Doris deyr var frábær
og ég hlakka til að lesa nýjustu bók
ina Hvítfeld.“
9.–16. sæti
Snorri Sturluson
n „The original and best. Kannski
ekki fyrsti höfundur Íslands, en sá
besti af þeim fyrstu. Og einn af fáum
fantasíuhöfundum sem Ísland hefur
átt. Hvar er Tolkien okkar tíma?“
n „Mjög góður höfundur og mikil
vægur íslenskum bókmenntum.“
9.–16. sæti
Andri Snær
Magnason
n „Ótrúlega fjölhæfur og
hugmynda ríkur rithöfundur sem
nýtir sköpunargáfu sína og hæfileika
til að hafa áhrif á samfélagið.“
„Sagan af bláa hnettinum er ein
yndislegasta bók sem ég hef lesið,
og LoveStar er hreinustu töfrar.“
Alexander Briem leiklistarnemi
Andrea Hjálmsdóttir bæjarfulltrúi
Bjargey Ólafsdóttir
myndlista- og kvikmyndagerðarkona
Brynhildur Björnsdóttir
blaðamaður
Davíð Þór Jónsson guðfræðingur
Erla Tryggvadóttir útvarpskona
Fríða Björk Ingvarsdóttir
blaðamaður og bókmenntagagnrýnandi
Guðríður Haraldsdóttir
ritstjóri Vikunnar
Harpa Dögg Benediktsdóttir
Hjarðar bókaormur
Hilda Jana Gísladóttir
sjónvarpskona
Hlynur Hallsson myndlistamaður
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir
framkvæmdarstjóri Hofs
Jónína Rós Guðmundsdóttir
alþingismaður
Karen Kjartansdóttir
fréttamaður og bókmenntafræðingur
Rannveig Karlsdóttir
framhaldsskólakennari
Sóley Björk Stefánsdóttir
fjölmiðlafræðingur
Sigurður G. Valgeirsson
gagnrýnandi
Steinunn Stefánsdóttir
aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins
Sveinn H. Guðmarsson
fréttamaður
Vera Sölvadóttir
kvikmyndagerðarkona
Urður Snædal ljóðskáld
Valur Gunnarsson blaðamaður
„Nístandi fegurð“ „Þekking, leikni og næmni“
„Superstar
heiðingjanna“
Strandir
Gerður Kristný
Appelsínur frá Abkasíu
Jón Ólafsson
Börn Loka
Skálmöld
Álitsgjafar