Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Side 4
4 Fréttir 21. janúar 2013 Mánudagur Dagur styður Guðbjart Dagur B. Eggertsson, fráfarandi varaformaður Samfylkingarinn- ar, styður Guðbjart Hannesson velferðarráðherra í formannsslag flokksins. Þessu greindi Dagur frá í Silfri Egils á sunnudaginn og sagð- ist treysta Guðbjarti bæði mál- efnalega og til stjórnarmyndun- ar í kjölfar kosninga. Í netkönnun sem gerð var fyrir útvarpsþáttinn Sprengisand hlaut keppinautur Guðbjarts, Árni Páll Árnason, um 55 prósent atkvæða en Guðbjartur 45 prósent. Guðbjartur hefur þó forskot á meðal flokksbundinna samfylkingarmanna, 52 prósent gegn 48 prósentum, samkvæmt sömu könnun. Þegar upp er staðið eru það flokksmenn Samfylkingarinnar sem velja sér formann og er það gert með rafrænni kosningu. Hófst hún fyrir helgi og lýkur 28. janúar en atkvæðisrétt hafa allir skráðir félagar í Samfylkingunni sem voru skráðir í flokkinn fyrir 11. janúar. Ljóst er að barátta Guðbjarts og Árna Páls er afar tvísýn en niður- staða kosningarinnar verður kunngjörð fyrir landsfund Sam- fylkingarinnar sem fer fram 1.–3. febrúar næstkomandi. Oddný vill verða varaformaður Oddný Harðardóttir, þingmaður og fyrrverandi fjármálaráðherra, hyggst bjóða sig fram til emb- ættis varafor- manns Sam- fylkingarinnar á landsfundi flokksins. Hún hefur feng- ið byr undir báða vængi á síðustu miss- erum og er skemmst að minnast stórsigurs hennar í prófkjöri Samfylkingar- innar í Suðurkjördæmi þar sem hún skaut Björgvin G. Sigurðssyni ref fyrir rass. Dagur B. Eggertsson sækist ekki eftir endurkjöri. G uðjón Guðjónsson, af mörgum kallaður „riddari götunnar,“ lést á heimili sínu miðvikudaginn 16. janúar síðastliðinn. Laugardaginn 12. janúar varð hann fyrir fólskulegri árás sem tengdist bílþjófnaði. Fjöl- skyldan er bæði hrygg og sár yfir að- gerðaleysi lögreglu en hún frétti af líkamsárásinni fyrir tilviljun. Þeir sem leggja reglulega leið sína um Laugaveginn kannast ef til vill við Guðjón. Hann var vanur að keyra rúntinn niður Laugaveginn og skrúf- aði þá gjarnan bílrúðuna niður á bíl sínum og spilaði tónlist á hæsta styrk. Hann var litríkur og opinskár og van- ur að ræða um daginn og veginn við vegfarendur út um bílgluggann. Hann sagði í viðtali við Frétta- blaðið árið 2008 að hann væri jafnan látinn óáreittur og ræddi þá um hvað hann hefði gaman af því að spila tón- list fyrir vegfarendur. „Við komumst að því fyrir tilviljun að hann varð fyrir alvarlegri líkams- árás laugardaginn 12. janúar, sem hann kærði til lögreglunnar,“ segir dóttir Guðjóns, Rósa Björk. Stöðvaður af ókunnugum manni „Faðir minn hafði verið af ferðinni eftir kaffisopa á Café París og keyrði upp Hverfisgötuna og var þar stöðv- aður af ókunnugum manni. Sá ókunnugi gekk í veg fyrir bílinn á Hverfisgötu og neyddi hann til að stöðva og taka sig upp í bílinn. Hann lét föður minn síðan keyra sig upp í Kópavog og vísaði honum leið að bíl- skúr. Þar stal hann af honum bíln- um og skildi hann eftir stórslasaðan,“ segir Rósa frá. Nánustu aðstandendur ekki látnir vita „Lögreglan í Kópavogi kom að hon- um slösuðum og tók skýrslu af honum þar sem hann kærði sjálfur árásina og bílþjófnaðinn. Ég hef ekki lesið lög- regluskýrsluna sjálfa. Lögreglan fór svo með hann á slysavarðstofuna og skildi hann eftir þar. Þaðan var hann líklega sendur einn heim í leigubíl, á sterkum verkjalyfjum en við vitum ekki hvenær né hvernig eða í hvaða ástandi hann komst heim. Það eru að mínu viti óásættanleg vinnubrögð að ekki hafi verið haft samband við nán- ustu aðstandendur. Hann komst heim einhvern veginn en lét ekkert okkar vita af atburðinum. Það er vísbending um að hann hafi ekki verið með fullri rænu og hugsanlega hafi höfuðáverk- arnir eða áfallið sjálft haft áhrif. Ég á eftir að fá að vita hversu nákvæmlega hann var skoðaður,“ segir Rósa sem segist skiljanlega vera afar brugðið yfir því að ekki hafi verið brugðist bet- ur við árásinni. Nú sé faðir hennar lát- inn og þótt bráðabirgðaniðurstaða krufningar segi að hann hafi látist úr hjartaáfalli, segir Rósa að krufningar- læknir hafi sagt hann ekki hafa þolað líkamsárásina. „Bráðabirgðaniður- staða krufningar segir að hann hafi látist úr hjartaáfalli. Hann var með höfuðáverka sem ég hef ekki fengið að vita meira um. Hún sagði það, krufn- ingarlæknirinn, að hann hefði ekki höndlað þessa árás. Hann væri ekki dáinn núna ef hann hefði ekki orðið fyrir þessari árás,“ segir Rósa. Lögreglan hefur ekki enn haft samband Rósa segir tilviljanir hafi ráðið því að fjölskyldan frétti af líkamsárásinni og lögreglan svari engu um það. Yfir því er hún bæði hrygg og reið. „Ég hafði verið að reyna að ná í hann pabba en með engum árangri og bað því húsvörðinn að athuga með hann á miðvikudaginn. Það var húsvörð- urinn sem kom að honum látnum og hringdi á lögreglu og bráðalið. Á fimmtudaginn komumst við aðstand- endur hans að því að hann varð fyrir líkamsárás og að bíl hans var stolið þá. Læknarnir flettu í sjúkraskýrsl- um hans, þar sem finna mátti upp- lýsingar um árásina. Við höfum ekk- ert heyrt frá lögreglunni í Kópavogi vegna árásarinnar þrátt fyrir óskir um að fá að heyra frá henni. Bíllinn er ekki fundinn og ég get því miður ekki séð að það sé verið að lyfta litlaputta til að finna árásarmanninn eða bílinn. Ég er í hálfgerðu áfalli yfir að- gerðaleysinu. Því auðvitað er maður alltaf tvístígandi, maður vill ekki eyði- leggja rannsóknina með nokkrum hætti eða trufla. En eftir að ég áttaði mig á aðgerðaleysinu, þá hlaut ég að spyrja mig hvers vegna? Hvers vegna er ekkert gert? Það hljóta að vera til myndir í eftirlitsmyndavélum á Hverfisgötu. Það hlýtur einhver að hafa séð eitthvað?“ Glaður og góður maður Ættingjar og aðstandendur hafa brugðið á það ráð að auglýsa eftir bílnum í von um að finna árásarmanninn og fá einhvers konar réttlæti til handa Guðjóni. „Pabbi var opinn, glaður og góð- ur maður sem var alltaf tilbúinn að rétta öðrum hjálparhönd. Hann var flugstjóri hjá Cargolux en kominn á eftirlaun. Og þótt hann væri til- búinn að hjálpa öðrum hafði hann alltaf vaðið fyrir neðan sig. Hann bjó í þremur heimsálfum á ævi sinni og kunni svo sannarlega að lesa fólk. Hann var ekki kallaður riddari götunnar að ástæðulausu, því hann var litríkur karakter, réttlátur og skemmtilegur.“ n n Bílnum stolið eftir líkamsárás n Sendur einn heim af slysavarðstofunni Auglýsing fjölskyldunnar „Auglýst er eftir árásarmanni og þjófi á svörtum Mercedes Benz #B-747 árg. 2006 sem var stolið af eldri manni á laugardaginn 12. jan. í Rvk Hverfisgötu/ og Kópvogi. Líklegast er að búið sé að skipta um númer á bílnum ef hann er á ferðinni. Ef einhver hefur mögulegar upplýsingar þá vinsamlega hringið beint í lögregluna. Ps. Riddari götunnar er eldri maðurinn sem rúntar miðbæ Rvk og Laugaveginn með músíkina í bílnum með rúðurnar skrúfaðar niður.“ „Hann var litríkur karakter, réttlátur og skemmtilegur Kristjana Guðbrandsdóttir blaðamaður skrifar kristjana@dv.is Glaður og góður maður „Pabbi var opinn, glaður og góður maður sem var alltaf tilbúinn að rétta öðrum hjálp- arhönd,“ segir Rósa Björk Guðjónsdóttir um föður sinn sem lést í síðustu viku eftir skelfilega lífsreynslu. MyNd FréttabLaðið Dó stuttu eftir árás og bílrán MEÐGÖNGUJÓGA- MÖMMUJÓGA- KRAKKAJÓGA KARLAJÓGA- MJÚKT JÓKA- BYRJENDA- NÁMSKEIÐ- JÓGA NÍDRA Guðjón Guðjónsson F. 22. júní 1936 D. 16. janúar 2013

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.