Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Page 14
Sandkorn
U
mmæli forstjóra Útlendinga
stofnunar um „asylum
tourism“ eða ferðamenn
í hælisleit lýsa viðhorfum
sem eru varhugaverð í stofn
un sem fer með jafn viðkvæm mál.
„Þá er fólk bara að fara til útlanda og
kynnast landi og þjóð og nýti sér þá
þjónustu sem hælisleitendum standi
til boða,“ sagði Kristín Völundardóttir
þegar hún lýsti áhyggjum sínum í
viðtali við RÚV. Kvartaði hún undan
málafjölda og langri málsferð og
sagði þessar aðstæður skapa ákveðna
hættu á að fólk myndi misnota kerfið.
„Það getur verið dálítið aðlaðandi
fyrir fólk sem að er ekki beinlínis
hælisleitendur, sem ætlar að vinna
ólöglega eða koma í öðrum tilgangi,
að koma til Íslands. Þetta getur verið
fýsilegur kostur, að fá frítt fæði og
húsnæði þegar málsmeðferðin er
svona hrikalega löng.“
Það má vera að inni á milli séu
svartir sauðir sem hingað koma
á fölskum forsendum en forstjóri
Útlendingastofnunar getur ekki leyft
sér að tala um málefni flóttamanna
af slíkri léttúð. Í þessum ummælum
felst vanvirðing við skjólstæðingana.
Flóttamaður flýr heimaland sitt
af ótta við ofsóknir vegna kynþáttar,
trúarbragða, þjóðernis eða vegna
stjórnmálaskoðana. Flóttamaður á
í sumum tilfellum hættu á að sæta
dauðarefsingu, pyntingum eða
annarri ómannúðlegri meðferð eða
refsingu í heimalandinu. Hann fór
af illri nauðsyn og lagði allt í sölurn
ar í von um betra líf. Margir þurfa að
skilja maka eða aðra ástvini eftir, án
þess að vita hvort eða hvenær þeir
muni sjá þá aftur.
Flestir sækja um hæli í nágranna
löndum. Vesturlöndin virðast hafa
reist múra í kringum sig og aðeins
örfáir flóttamenn sækja um hæli
hér á landi, hlutfallslega fáir miðað
við önnur lönd. Engu að síður leyfir
Kristín sér að tala svona um málefni
flóttamanna.
Til þess að setja ummæli Kristínar
í samhengi við aðstæður og afdrif
flóttamanna hér á landi er áhugavert
að slá upp orðinu hælisleitandi á leit
arstreng Google.is.
Fyrsta fréttin sem upp kemur er af
fimmtán ára hælisleitanda, Bilal, sem
var dæmdur í fangelsi fyrir að fram
vísa fölsuðum vegabréfum. Fangels
ismálastofnun og Barnaverndarstofa
gripu inn í og komu honum í fóstur.
Þarna, fjórum mánuðum síðar, sagð
ist hann aldrei vilja yfirgefa Ísland, en
hafði ekki enn fengið bráðabrigða
kennitölu og óvíst var um fram
haldið.
Næsta frétt fjallar um Askarpour
Mohammad, 41 árs gamlan hælis
leitanda frá Íran, sem var vistaður
á geðdeild Landspítalans vegna
sjálfsvígshættu. Hann kom hingað
til landsins árið 2009 en var sendur
til Grikklands, þar voru aðstæður
taldar ómannúðlegar svo hann var
sendur aftur til Íslands. Um miðjan
júní var honum sagt að mál hans
fengi flýtimeðferð og hann fengi svör
innan fjögurra vikna. Fréttin birtist
daginn eftir að sá tími var liðinn en
Útlendingastofnun bar því við að við
bótargögn hefðu tafið málsmeðferð.
Þriðja fréttin segir frá Mehdi
Kavyanpoor, hælisleitanda frá Íran,
sem var úrskurðaður í tveggja vikna
öryggisvistun eftir að hann reyndi að
kveikja í sér í húsi Rauða krossins í
Reykjavík. Hann hafði verið á Íslandi
í sjö ár og á þeim tíma hafði honum
fjórum sinnum verið synjað um
dvalar leyfi þar sem honum tókst ekki
að afla gagna sem sýndu fram á að
hann hefði verið pyntaður í írönsku
fangelsi.
Kristín hefur áður tjáð sig um mál
efni hælisleitenda á Íslandi. Um hlut
verk stofnunarinnar hafði hún meðal
annars þetta að segja: „Við erum líka
útvörður íslensks velferðarkerfis. Ef
við tökum þá geðþóttaákvörðun að
ætla að veita öllum hæli eða dvalar
leyfi án lagaheimildar þá fyllum
við velferðarkerfið af fólki sem við
getum í rauninni ekki boðið upp á
mannsæmandi líf.“
Því fer fjarri að flóttamenn reyn
ist byrði á velferðarkerfinu, flótta
mennirnir taka þátt í samfélaginu
líkt og aðrir innflytjendur og auðga
mannlífið með menningu sinni. Fái
þeir tækifæri til þess að mennta sig,
taka þátt í atvinnulífinu og aðlagast
samfélaginu geta þeir opnað dyr að
alþjóðlegum samskiptum og við
skiptum við önnur ríki.
Það er mikilvægt að forstjóri
Útlendingastofnunar beri virðingu
fyrir þeim sem til hans leita og taki
málefni flóttafólks alvarlega. Við
þekkjum ekki afdrif þeirra sem vísað
er úr landi.
William Roberts er einn þeirra
sem sendur var í burtu. Saga hans var
svona: Hann missti alla fjölskylduna
og marga af sínum bestu vinum í
stríðinu í Líberíu. Hann var hand
tekinn, barinn og pyntaður. Hendur
hans og fætur voru brenndar og hann
var lokaður inni í myrkrakompu dög
um saman. Á hverjum degi var fangi
drepinn og hann lifði í ótta um að
nú kæmi að honum. Þegar fangels
ið var sprengt upp skapaðist tækifæri
til þess að flýja og hann flúði. Hann
faldi sig í skipi án þess að vita hvert
ferð þess væri heitið og kom í land í
Hollandi.
Þar var honum neitað um hæli
svo hann varð sér úti um vegabréf og
flaug til Bandaríkjanna eftir talsvert
hark í Hollandi. Í Bandríkjunum sat
hann í fangelsi í tvö ár áður en hann
var sendur til Íslands árið 2005, en
hér hafði hann millilent. Hann beið
hér í þrjú ár áður en hann var send
ur aftur úr landi. Til hans hefur ekki
spurst síðan.
Erfitt er að ímynda sér annað en
að William hefði þótt lífið sem hefði
beðið hans hér á landi mannsæm
andi, hefði hann fengið tækifæri.
Árni í Iceland
n Jóhannes Jónsson kaup
maður dró sig skyndilega út
sem aðalstjórnandi Iceland
keðjunnar
sem undir
hans stjórn
hefur svo
sannarlega
tekið flugið.
Skýringin er
að veikindi
hans tóku sig upp að nýju.
Nýr aðaleigandi er Árni Pétur
Jónsson, eigandi 1011. Frá
því Iceland var stofnað hef
ur verið uppi orðrómur um
sameiningu við 1011. Flest
ir töldu þá að Jóhannes yrði
aðalmaður. Árni Þórður hef
ur lengi verið í innsta hring
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
hafa þeir félagar átt í góðu
samstarfi.
Hrossaborgarar
n Það er athyglisvert að
Jóhannes Jónsson yfirgaf
Iceland sama dag og versl
unarkeðjan varð fyrir því
stóráfalli að innkalla þurfti
hamborgara vegna gruns
um að í þeim væri að finna
hrossakjöt í stað hreins
nautakjöts. Þegar þetta áfall
bætist við það að andlit
keðjunnar hverfur á braut
er framtíð Iceland á Íslandi
óljós. Mál gætu farið á þann
veg að 1011 verði ofan á og
Iceland hverfi jafnskjótt og
það birtist.
Grautfúll vara-
þingmaður
n Össur Skarphéðinsson
utan ríkisráðherra ver af
vígfimi þá ákvörðun ríkis
stjórnarinn
ar að fresta
viðkvæmustu
hlutum ESB
viðræðn
anna fram
yfir kosn
ingar. Inn
an flokks ráðherrans er þó
mikil ólga og telja margir
aðgerðina vera mikil svik við
málstaðinn. Nær hefði verið
að mæta Steingrími J. Sigfús-
syni af hörku og láta reyna á
það hvort stjórnarsamstarfið
héldi. Meðal þeirra sem eru
grautfúlir er varaþingmað
urinn Baldur Þórhallsson sem
staðhæfir að málið stórskaði
Samfylkinguna.
Bitur háðfugl
n Eftir því er tekið þessa
dagana að Davíð Oddsson,
ritstjóri Moggans og fyrr
verandi seðla
bankastjóri,
er nær við
þolslaus af
skapvonsku.
Davíð var í
viðtali við
Björn Bjarna-
son á ÍNN þar sem hann fór
hamförum og hraunaði yfir
allt sem fyrir var. Var svo að
skilja á gamla háðfuglinum
að flestir fulltrúar stjórnlaga
ráðs og þeir sem fylgja stjórn
arflokkunum að málum séu
hálfgerðir vitleysingar. Aug
ljóst er að hann hefur ekki
jafnað sig á því að hafa verið
borinn nauðugur út úr Seðla
bankanum. Sjaldan hefur ver
ið á borð borið stærra safn af
neikvæðni en þarna gerðist.
Flestir eru
opnir
Mér brá smá
Marteinn Þórsson segir tabú í samfélaginu varðandi alkóhólisma. – DV Tobba Marinós var til umfjöllunar í fyrirlestri í Háskóla Íslands. – DV
Draumalandið: „Frítt fæði og húsnæði“„Við erum
líka
útvörður íslensks
velferðarkerfis
Á
kjörtímabilinu hefur Björn Valur
Gíslason, BVG, þingmaður VG,
vakið á sér athygli fyrir orðbragð
sem misbýður dagfarsprúðu fólki.
Hann hefur í þingræðu kallað forseta
Íslands „forsetagreyið“ og bætt um bet
ur í skrifum og brúkað orðið „forseta
bjáninn“. Hvoru tveggja án rökstuðn
ings. Vandséð er hvernig slík ummæli
verði réttlætt.
Í þingræðu hefur BVG sakað þing
mann um að hafa þegið greiðslur frá
breskri lögmannsstofu í Icesavemál
inu. Dylgjað rakalaust um mútu
þægni. Í þingræðu hefur BVG einnig
sakað þingmann að ósekju um ölvun í
ræðustól. Hann hefur við annan mann
ráfað bláedrú fyrir framan ræðustól
Alþingis með mótmælaskilti og trufl
að tjáningarfrelsi þingmanns og þing
störf. BVG hefur sem varaformaður
fjárlaganefndar, þvert á valdsvið forseta
Alþingis, ráðist af óbilgirni að ríkisend
urskoðanda og starfsmönnum hans.
Dæmin eru fleiri. Að okkur Lilju Mós
esdóttur hefur þingmaðurinn vegið
í viðtölum og greinum og sakað okk
ur um gunguskap og að hafa hlaupist
undan ábyrgð. Enn án rökstuðnings
gagnvart ítarlega rökstuddri afstöðu
okkar gegn löngum og alvarlegum van
efndum forystu VG á stefnu flokksins.
Ég vísa til svika í ESB og Icesave
málunum. Endurreisn fjármálakerfis
ins á kostnað velferðarkerfisins, heim
ilanna og grunnstoða samfélags okkar,
allt að fyrirmælum Alþjóðagjaldeyris
sjóðsins, er gegn stefnu VG og and
stæð norrænum velferðarsjónarmið
um. Kapp hefur verið lagt á að bjarga
fjármálafyrirtækjum á kostnað heim
ilanna.
Orðfæri og orðum BVG hafa fjöl
miðlar á stundum hampað sem kjarn
yrtu sjómannamáli. Ég þekki marga
sjómenn en kannast ekki við þennan
dónaskap í þeirra röðum.
Þegar ég var að alast upp var einn
vinsælasti skemmtikraftur þjóðarinn
ar búktalarinn Baldur með brúðuna
sína, hann Konna. Baldur var kurte
is og yfirvegaður maður en Konni
kjaftfor, ókurteis, á köflum klám
fenginn og bölvaði. Konni hneykslaði
Baldur margsinnis með orðfari sínu
og hlaut ítrekað skammir og siðavönd
un Baldurs. Til þeirra félaga, Baldurs
og Konna, hefur mér oft verið hugsað
þegar BVG á í hlut, nánasti samstarfs
maður formanns VG. Ekki hef ég heyrt
formanninn álasa „Konna“ sínum fyrir
orðbragðið. Hann virðist ef eitthvað er
ánægður með kjafthátt og óskamm
feilni „Konna“.
Nú stefnir í „óefni“, BVG er að svo
stöddu utan seilingar við þingsæti
á næsta kjörtímabili. Formaðurinn
hlýtur að kippa því í liðinn og setja
„Konna“ sinn í kjöltu sína og launa
honum „öflugt liðssinni“.
Því hefur verið haldið fram með
frambærilegum rökum að virðing Al
þingis sé í skötulíki. BVG á þar nokk
uð drjúgan hlut að máli. Er ástæða til
að minna BVG og sporgöngumenn
hans á eftirfarandi niðurstöður þing
mannanefndar til að fjalla um skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis:
„Þingmannanefndin telur fulla
ástæðu til að taka alvarlega gagnrýni í
umfjöllun vinnuhóps um siðferði um
íslenska stjórnmálamenningu og legg
ur áherslu á að draga verði lærdóm
af henni. Alþingi á að vera vettvangur
umræðu sem tekur mið af almanna
hagsmunum. Góð stjórnmálaumræða
næst fram með því að láta andstæð
sjónarmið mætast þar sem byggt er á
staðreyndum og málin eru krufin til
mergjar. Íslensk stjórnmál hafa ekki
náð að þroskast nægilega í samræmi
við það. Stjórnmálaumræður á Al
þingi hafa einkennst um of af kapp
ræðu og átökum og því þarf að efla
góða rökræðusiði á Alþingi. Mikilvægt
er að Alþingi ræki umræðuhlutverk
sitt og sé vettvangur lýðræðislegra
og málefnalegra skoðanaskipta. Al
þingismönnum ber að sýna hugrekki,
heiðarleika og festu í störfum sínum.
Brýnt er að Alþingi og alþingismenn
endurheimti traust þjóðarinnar með
orðum sínum og athöfnum.“
Þingsályktun þingmannanefndar
innar þessa efnis og um margt fleira
var samþykkt af öllum 63 alþingis
mönnum þjóðarinnar, einnig af BVG.
Alþingi og alþingismenn munu ekki
endurheimta traust þjóðarinnar með
orðum og athöfnum Björns Vals Gísla
sonar, þingmanns VG.
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg
Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
14 21. janúar 2013 Mánudagur
„Alþingi og al-
þingismenn munu
ekki endurheimta traust
þjóðarinnar með orðum
og athöfnum Björns Vals
Gíslasonar, þingmanns VG
Aðsent
Atli Gíslason
Leiðari
Ingibjörg Dögg
Kjartansdóttir
ingibjorg@dv.is
Pólitískur götustrákur