Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.2013, Page 16
Kristin Arnthorsdottir
Komdu sæl Guðrún! Hverju
finnst þér ábótavant við
barnalögin þar sem 97 kærumál af 100
eru felld niður og nánast 100%
sönnunarbyrði hvílir á börnunum?
Einnig hvað fyndist þér um að lögreglan
hefði lygamæli sér til aðstoðar í þessum
erfiðu málum? Alltaf er rætt um erfið
mál en eru ekki til ráð sem bæta
aðstöðu barnanna og að þau fái að
njóta vafans? Finnst þér ekki þessi
útkoma passa við það hversu margir
barnaníðingar eru þarna úti og athafna
sig í „friði og ró“ sbr. Karl Vignir?
Guðrún Jónsdóttir Sæl og
blessuð Kristín. Þú ert væntanlega
að tala um barnaverndarlög? Mér
finnst slæmt hversu erfitt það
er fyrir réttarkerfið á Íslandi að
ná utan um kynferðisbrotamál.
Það hefur þó sem betur fer margt
lagast og tilvist Barnahúss skiptir
sköpum. Það er þó ekki notað af
barnaverndaryfirvöldum allra
sveitarfélaga, t.d. ekki Reykjavíkur.
Þessi mál eru þau erfiðustu sem ég
þekki til, því sjaldnast eru vitni að
þeim og því orð gegn orði. Því yngri
sem börnin eru, því erfiðara er að
ná fram sönnun. Ég hef ekki trú á
lygamælum, þeir virka ekki sem
sannanir.
Ástasigrún Magnúsdóttir
Eru til næg úrræði fyrir menn
sem beita ofbeldi?
Guðrún Jónsdóttir Sæl Ásta
Sigrún. Nei, það er sjálfsagt að
til sé meðferðarúrræði fyrir alla
þá kynferðisbrotamenn sem
hugsanlega vildu nýta sér hana.
Hins vegar held ég að fæstir þeirra
átti sig á þörfinni fyrir hjálp. Það er
líka svo að við vitum um þá fæsta
og því verður meðferð aldrei nein
allsherjarlausn í kynferðisbrota-
málum.
Þórarinn Einarsson Hversu
algengt er að gerendur í
kynferðisbrotamálum eða
kaupendur kynlífsþjónustu séu
þjóðþekktir eða valdamiklir
einstaklingar? Getur verið að gerendur
njóti óeðlilegrar verndar yfirvaldsins
vegna klíkuskapar?
Guðrún Jónsdóttir Sæll Þórarinn.
Kynferðisbrotamenn koma úr
öllum stéttum, af öllu landinu.
Þeir byrja stundum mjög ungir og
brotamenn sem níðast á börnum,
halda oft áfram út lífið. Þeir eru
þverskurður af þjóðinni, og því
leynast á meðal þeirra þekktir og
valdamiklir einstaklingar. Í ljósi
stöðu sinnar eru þeir stundum
„ósnertanlegri“ en aðrir. Fólk vogar
sér ekki að kæra þá.
Vésteinn Gauti Hauksson
Sæl Guðrún – nú hef ég
vandað mig mjög mikið við að
kenna mínum börnum um einkastað-
ina (friðhelgi þeirra) og hef trú á að það
hjálpi til við að koma í veg fyrir ofbeldi
gagnvart þeim. En eru til einhverjar
rannsóknir sem sýna fram á að þetta
hafi einhvern tilgang?
Guðrún Jónsdóttir Mögulega,
ég hef ekki yfirsýn yfir þær. Það
er fínt að fræða börn og gera það
sem hægt er til þess að börn geti
sagt frá, ef þau eru beitt órétti.
Það er þó þannig að mörg gera það
ekki, þrátt fyrir alla fræðsluna og
því verðum við að passa að gera
þau ekki ábyrg fyrir eigin öryggi.
Treystum því ekki að þau séu örugg
vegna fræðslunnar. Kynferðisbrot
eru oftast framin í skjóli trausts
og því erfitt fyrir börn að segja
frá. Fræðslan þarf að vera þannig
uppbyggð að þau verði ekki gerð
ábyrg.
Vésteinn Gauti Hauksson Er
fræðslan þá mögulega á
einhverjum villigötum?
Hvernig fræði ég barnið mitt á bestan
máta að þínu mati?
Guðrún Jónsdóttir Sæll aftur. Ég
held að meginatriðið sé að hafa
þannig samband við barnið sitt
að það treysti sér til þess að segja
frá „vondum“ leyndarmálum. Að
barnið geti treyst foreldrum sínum
til þess að sleppa sér ekki, heldur
ráða við slík mál. Það er mikilvægt
að kenna þeim um mörk og um
yfirráðrétt yfir sjálfum sér. Ég bara
minni á að ofbeldi gegn börnum
er framið í aðstæðum þar sem
valdamunurinn er svo mikill að það
er vafasamt að barnið ráði við að
leita sér hjálpar, hversu vel sem við
fræðum það og þá er það samt ekki
barninu að kenna, eins og það gæti
haldið sjálft.
Ólafur Benediktsson Langar
að spyrja um eitt varðandi
Stígamót. Kom með
fyrrverandi eiginkonu minni til ykkar
fyrir mörgum árum síðan. Hún hafði
verið misnotuð sem barn á hræðilegan
hátt. Okkur fannst við finna svo mikla
reiði og biturleika hjá svo mörgum,
einnig forsvarsmönnum. Er ekkert í
ykkar prógrammi, sem segir að við
þurfum að fyrirgefa gerandanum? Það
að lifa með reiði og biturleika í hjarta er
mjög skaðlegt fyrir okkur. Munum orð
Jesú um það að við verðum að fyrirgefa
og biðja fyrir óvinum okkar.
Guðrún Jónsdóttir Sæll Ólafur.
Þetta er mikilvæg spurning.
Stígamót eiga nú langa sögu og
hafa starfsaðferðir verið bættar og
nú eru allar starfskonur Stígamóta
með háskólamenntun sem nýtist
í starfi, auk þess að hafa kynjaða
sýn á samfélagið. Spurningin um
fyrirgefningu er oft rædd. Margt
af okkar fólki hefur þörf fyrir að
fyrirgefa, eða getur ekki fyrirgefið.
Spurningin er líka um það hverjum
ætti að fyrirgefa? Fólk er oft
þjakað af sektarkennd, svo ósann-
gjarnt sem það er.
Kristin Arnthorsdottir
Finnst þér ekki Guðrún að við
ættum að beina sjónum okkar
að öllum þessum niðurfelldu málum og
fá almennileg svör við því hvers vegna
svona fá mál koma til kasta dómstóla?
Hér á eftir er svar Guðbjarts
Hannessonar til mín á facebókinni:
Sammála þér Kristín, það er
umhugsunarefni hvers vegna svo fáar
kærur hafa borist og hve fáir dómar
fallið. Takk fyrir þína baráttu, haltu
áfram að veita okkur sem stjórnum
landinu aðhald. Nú eru þessi mál öll
komin í endurskoðun og gott að hafa
fólk sem fylgist með.
Guðrún Jónsdóttir Sæl Kristín.
Hlutfall niðurfelldra mála miðað
við dóma er meginbrotalömin í
réttarkerfinu okkar. Við það má
bæta öllum þeim málum sem ekki
eru kærð. Aðeins 11–12% okkar
fólks leggur í að kæra, svo það er
annað aðalatriði. Það þarf að gera
allt sem mögulega er unnt til þess
að gera réttarkerfið þannig að fólk
treysti sér til þess að leita réttar
síns. Takk fyrir góðar kveðjur.
Baldur Guðmundsson Hvað
finnst þér um þá miklu
umfjöllun sem kynferðis-
brotamál hafa fengið í fjölmiðlum
síðustu vikur? Og hvernig hefur sú
bylgja haft áhrif á starf ykkar hjá
Stígamótum?
Guðrún Jónsdóttir Sæll Baldur.
Þegar umræðan er málefnaleg,
eins og mér finnst að hún hafi verið
sl. hálfan mánuð, þá er hún fyrst og
fremst til góðs. Mjög margir hafa nú
leitað sér hjálpar hjá okkur og aðrir
hafa kært til lögreglu. Umræðan
hefur snúist um hvað við getum
gert til þess að bæta móttökuskil-
yrðin þegar fólk leitar hjálpar og
hvernig við getum aukið fræðslu og
forvarnir. Við höfum í síðustu viku
verið boðaðar á fund allsherj-
arnefndar. Borgarstjórn heimsótti
Stígamót og fleiri valdhafar.
Regina Eiriksdottir
Sérfræðingur sagði að 1%
karla væru haldin barnagirnd.
Er til tala um barnagirnd kvenna?
Guðrún Jónsdóttir Sæl Regína.
Það eru til dæmi um hvað sem er í
þessum heimi. Líka um konur sem
nauðga og drepa og gera ýmislegt
slæmt. Það eru sannarlega til kon-
ur sem beita kynferðisofbeldi og ég
held að þær séu fleiri en okkar tölur
segja til um. Prósentutölur eru
mjög breytilegar eftir því um hvaða
rannsóknir er að ræða. Þær geta
komist upp í 10–20% og ljóst er að
„skuggatölur“ eru nokkrar.
Hannes Baldursson Nokkrir hafa verið sýknaðir af nauðgunarkærum með
vörninni „ég hélt hún vildi þetta“ eða
einhverju í þá áttina. Hversu algengt er
að slík mál komi upp á borðið hjá
Stígamótum og hverja telur þú vera
orsök þessa „misskilnings“?
Guðrún Jónsdóttir Eftir tilkomu
Neyðarmóttöku vegna nauðgana
árið 1993, hefur oft verið hægt
að sanna að menn hafi haft
„samræði“ við konu og þá var það
nærtækt fyrir menn að segjast
hafa haldið að athöfnin færi fram
með vilja beggja. Við þekkjum
mörg dæmi þess, líka þar sem um
líkamlega áverka var að ræða og
konur sýndu merki mikils áfalls. Ég
held að í samskiptum fólks ætti að
ríkja sú meginregla að kynin virði
hvert annað og kynlíf eigi sér þá
og því aðeins stað að ljóst sé að
þátttakendur vilji það báðir.
Auður Ketilsdóttir Sæl
vinkona. Þú hefur nefnt lágt
hlutfall sakfellinga hér að
ofan en hvaða öðrum málum myndir
þú vilja sjá ráðamenn beita sér fyrir að
ná í gegn? Hver eru þrjú efstu á
óskalistanum?
Guðrún Jónsdóttir Sæl og
blessuð Auður. Ég hef beitt mér
fyrir því að Neyðarmóttaka vegna
nauðgana verði stórefld. Minni
á það hvílíkt fyrirmyndarúrræði
Barnahúsið þykir vera, þannig á
Neyðarmóttakan líka að vera,
en hún er nú staðsett inni á
Neyðarmóttöku. Ég myndi vilja að
lögreglan forgangsraði sínum mál-
um þannig að hún fylgi eftir lögum
sem banna kaup á konum og ég
myndi vilja að nektarbúllunum
yrði lokað. Þar að auki hef ég leikið
mér að hugmyndum um sérstakan
saksóknara og sérstakan dómstól í
kynferðismálum.
Heiða Heiðars Sæl Guðrún.
Hvaða skoðun hefur þú á
aðferðum Blátt áfram þar
sem börn eru notuð í auglýsingum og
segja sín mörk?
Guðrún Jónsdóttir Sæl Heiða. Ég
dáist að dugnaði og þrautseigju
Blátt áfram-kvenna og finnst þær
hafa gert margt gott. Ég er ekki
sammála öllu í þeirra hugmynda-
fræði, en hef ákveðið að gagnrýna
þær ekki opinberlega. Vonandi
virðirðu það við mig.
Guðrún Gunnarsdóttir Sæl
Guðrún, af hverju má ekki
upplýsa um þessa menn,
þetta eru nánast alltaf karlmenn, með
nafni, eins og gert er t.d. í Bandaríkjun-
um? Það er gert til varnar, svo að t.d.
foreldrar átti sig á því hvort
barnakynferðisbrotamaður búi í næsta
nágrenni.
Guðrún Jónsdóttir Sæl Guðrún.
Það er tvíeggjað sverð að nafn-
greina brotamenn. Hins vegar hafa
nokkrir haft samband við okkur
eftir stóra Kastljósmálið og varpað
fram hugmynd um skrá yfir brota-
menn. Það hringdu nokkrir til okkar
sem Karl Vignir hafði beitt ofbeldi
og sögðu frá því að þau hefðu ekki
haft hugmynd um hversu stórtæk-
ur hann hefði verið. Þau héldu að
hann hefði bara beitt sig ofbeldi.
Draumar eru til um að til sé skrá
sem geyma mætti á heimasíðu eða
hjá lögreglu þar sem menn eru á
einhvern hátt auðkenndir t.d. með
upphafsstöfum eða öðru kenni-
merki, þannig að fólk geti kannað
hvort nauðgarar þeirra hafi brotið
gegn fleirum. Ég skil mjög vel þá
þörf, en veit ekki hvernig hægt væri
að framkvæma þetta, án þess að
brjóta lög og varpa tortryggni á
fólk sem ekkert hefur af sér gert.
Mögulega er þetta verkefni sem
lögregla gæti útfært.
Fundarstjóri Þessi spurning
barst í tölvupósti: Í Kastljósi
10. janúar sagðir þú að ef loka
ætti af alla kynferðisafbrotamenn
þyrfti að byggja yfir Akureyri og
Kópavog. Það gera rúmlega 45.000
manns. Ert þú á þeirri skoðun að
þriðjungur karlmanna sé kynferðisaf-
brotamenn?
Guðrún Jónsdóttir Ég sló þessu
fram til þess að undirstrika að
þeir eru margir og að lausnin sé
ekki að loka þá inni, heldur aðeins
stórvirkustu síbrotamennina sem
vitað er að hætta ekki nema þeir
séu stöðvaðir og þeir eru örfáir svo
vitað sé. Enginn veit hversu margir
kynferðisbrotamenn eru, en ýmsar
rannsóknir benda til þess að þeir
séu skuggalega margir. Samkv.
rannsókn Hrefnu Ólafsdóttur frá
2002 er talið að 17% barna gætu
hafa verið beitt kynferðisofbeldi.
Rannsókn og greining hafa nefnt
10–12% ef ég man rétt.
Kristján Sigurður
Kristjánsson Hví ekki að
skilgreina „barnagirnd“ eins
og hverja aðra kynhneigð?
Guðrún Jónsdóttir Sæll Kristján.
Fólk hefur hnotið um orðið barna-
girnd. Girnd er kennd sem þarf ekki
að leiða til ofbeldis og því ætti ekki
að nota orðið. Í sannleika sagt,
hef ég ekki hugsað um þetta og á
ekkert gáfulegt svar. Þarf að hugsa
þetta og ræða til þess að mynda
mér skoðun.
Róslín Valdemarsdóttir
Finnst þér að íslensk
stjórnvöld ættu að grípa inn í
mál þriggja íslenskra stelpna í
Danmörku, þar sem íslensk yfirvöld
sendu þær í hendur föður þeirra og
stuttu síðar lætur yngsta dóttirin, 5
ára, vita af því að henni sé illt á því
svæði þar sem enginn má snerta og
elsta dóttirin var send á sjúkrahús með
greinilegt handarfar eftir föður?
Guðrún Jónsdóttir Sæl Róslín. Ég
þekki ekki þetta hrikalega erfiða
mál og hef ekki sett mig inn í það.
Hafi stúlkurnar sagt þetta, ber að
sjálfsögðu að taka það alvarlega
og rannsaka það.
Gunnhildur Steinarsdóttir
Hvers konar úrræði mundir þú
vilja sjá fyrir dæmda
kynferðisafbrotamenn þegar þeir hafa
lokið afplánun?
Guðrún Jónsdóttir Sæl Gunnhild-
ur. Aðallega myndi ég vilja að fleiri
kynferðisbrotamenn væru dæmdir.
Hlutfallið á milli kærðra mála og
dóma er óviðunandi. Ég hef enga
trú á hefnd eða refsingum, ég vil
bara stöðva ofbeldi og að fólkið
okkar fái viðurkenningu á að á þeim
hafi verið brotið. Ég vildi að til væri
meðferð sem væri 100% örugg,
en ég hef hvergi heyrt um hana. Ég
óska þess bara að þeir hafi fengið
betrun og hætti að beita ofbeldi.
16 Umræða 21. janúar 2013 Mánudagur
„Ég vil bara stöðva ofbeldi“
M
y
n
d
iR
E
y
Þ
Ó
R
Á
R
n
A
S
O
n
„Hæfur sem ráðgjafi
hjá hvaða banka sem
er ;)“
Jón Páll Garðarsson við frétt
DV af svikaslóð Halldórs Viðars
Sanne sem meðal annars rukk-
aði hundruð þúsunda fyrir lífvarðanám-
skeið sem aldrei voru haldin.
„Ég átti einu sinni
svona nágranna
og virkaði vel að
hnoða bollur úr fiskimjöli og
laxerolíu, þessu dreifði ég um
nágrennið og mér er sagt að
eigandinn hafi þurft að þrífa
ræpuna ekki bara af veggjum
heldur loftinu líka og öskrin
í eigandanum eru mér enn í
fersku minni.“
Sverrir Þór Einarsson við
frétt um baráttu hótelstjórans
Veigars Freys Jökulssonar við
geltandi hund í nágrenni Hótel Brúar.
„Hún er góður frétta-
maður og á ekki að
gjalda fyrir uppruna
sinn.“
Rúnar Eiríksson við brot úr
viðtali DV við Pál Magnússon út-
varpsstjóra þar sem hann sagði
dóttur sína Eddu Sif hafa sótt um starf
íþróttafréttamanns án hans vitneskju.
„Í blíðu og stríðu
þangað til að ríkið
aðskilur okkur.“
Hólmar Kr. Þórhallsson við
frétt um þvingaðan aðskilnað
hjónanna Páls Bergþórssonar
og eiginkonu hans Huldu Baldursdóttur.
Hún þarf að búa á hjúkrunarheimili vegna
heilsubrests en hann getur ekki búið hjá
henni.
„Svo sláandi líkur
sem hann er norninni
í sögunni um Hans
og Grétu, þarf hann varla
að undrast að einhverjir vilji
koma á hann böndum.“
Jóhannes Ragnarsson við frétt
um ummæli Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar í viðtali við Sunday
Times. Kvaðst Jón vera fórnarlamb
nornaveiða.
„Af hverju átti hún
ekki að sækja um
þetta starf?? Af
hverju á hún að þurfa sneiða
framhjá störfum sem hún
er fullfær um að sinna og
langar til að vinna við? Það
væri mismunun ef hún þyrfti
að sleppa því að sækja um
þau störf sem í boði eru bara
af því að pabbi hennar er í
stjórnunarstöðu? Ég er bara
ekki að skilja þessa heift og
kjaftagang varðandi það að
hún hafi sótt um þetta starf
og verið ráðin í það. Hún hefur
staðið sig með stakri snilld
og það var góð tilbreyting
að sjá hressa, orðheppna
og brosmilda stelpu í þessu
starfi. Munið aðgát skal höfð í
nærveru sálar.
P.s. Hversu mörg ykkar
hafa lagt inn gott orð
fyrir vini og vanda-
menn, þegar verið er að ráða í
störf þar sem þið þekkið til....
nei ég bara spyr.“
dagný Björk Hreinsdóttir við brot úr
viðtali DV við Pál Magnússon þar sem
hann ræddi mál dóttur sinnar.
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV.is í vikunni
22
15
28
10
19
12nafn: Guðrún JónsdóttirAldur: 58 ára
Starf: Talskona Stígamóta
Menntun: Félagsráðgjafi
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, var á Beinni línu DV.is á föstudag