Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Qupperneq 4
4 Fréttir 1.–3. febrúar 2013 Helgarblað
Metro aftur í gjaldþrot
n Nýr eigandi sagður vinur Jóns Garðars
L
íf og heilsa ehf., sem frá árinu
2010 hefur rekið skyndibita-
staðina Metro, hefur með úr-
skurði Héraðsdóms Reykjavík-
ur verið tekið til gjaldþrotaskipta.
Félagið tók við rekstrinum eftir að
Lyst ehf. varð gjaldþrota. Jón Garð-
ar Ögmundsson, sem átti Lyst og er
framkvæmdastjóri Líf og heilsu er
fyrrverandi eiginmaður Kristínar Jó-
hannesdóttur, dóttir Jóhannesar í
Bónus og systir Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar. Lyst rak áður McDonalds
veitingastaðina á Íslandi.
DV greindi frá því í júlí árið 2010
að Jón Garðar hefði, þegar Lyst var
úrskurðað gjaldþrota, fært rekstur
skyndibitakeðjunnar yfir á Líf og
heilsu, sem var í eigu kærustu hans,
Ásgerðar Guðmundsdóttur. Engar
skuldir fylgdu með í þeim kaupum,
þær urðu eftir í hinu gjaldþrota fé-
lagi. Samkvæmt heimildum mbl.is
fæst lítið upp í 400 milljóna króna
kröfur sem gerðar voru í þrota-
bú Lystar, þvert á yfirlýsingar Jóns
Garðars á sínum tíma. Skiptum á bú-
inu er ekki lokið.
Mbl.is hefur eftir Jóni Garðari að
ástæðu gjaldþrotsins nú megi rekja
til þess að fyrirtækinu hafi ekki tek-
ist að semja um greiðslu opinberra
gjalda en að eignir félagsins muni
duga upp í allar skuldir, um 100
milljónir króna.
Fram kemur í frétt mbl.is að nýr
rekstraraðili sé þegar kominn fram.
Það félag heitir M-Veitingar en eig-
andi þess er Jón Heiðar Pálsson, ná-
granni Jóns Garðars á Seltjarnarnesi
og samkvæmt heimildum DV, góður
vinur. Jón Heiðar er sviðsstjóri sölu-
og markaðssviðs Maritech. Mbl.is
hefur eftir Jóni Garðari að miklir pen-
ingar séu á leið inn í félagið en hann
vilji ekki gefa upp hverjir nýir kaup-
endur séu.
Þess má geta að M-Veitingar var
stofnað í lok september og var skráð
til heimilis að Smáratorgi 5, þar sem
Metro er til húsa. Undir stofnskjöl-
in skrifuðu meðal annars systir Jóns
Garðars og faðir. n
baldur@dv.is
Ný prjónablöð frá Rauma
með íslenskri þýðingu
Ármúla 18, 108 Reykjavík Sími 511 3388
Opið mán - fös 9 - 18, lau 11 - 15
Á hausinn Félagið var úrskurðað gjald-
þrota í janúar.
Íhugar framboð
til varaformanns
„Ég staðfesti að ég er að hugsa
málið,“ segir Ólína Þorvarðardótt-
ir, þingkona Samfylkingarinnar,
sem útilokar ekki að blanda sér
í slaginn um varaformannssæti
flokksins á komandi landsfundi.
DV hefur heimildir fyrir því
að vaxandi þrýstingur sé á Ólínu
innan flokksins að gefa kost á sér
en framboðsfresturinn rennur út
klukkan 13:00 næsta laugardag.
Ólína hefur hins vegar legið und-
ir feldi og herma heimildir inn-
an flokksins að hún muni bíða og
sjá hvor hreppi formannsstólinn,
Guðbjartur Hannesson eða Árni
Páll Árnason, áður en hún tekur
ákvörðun. Það gæti því ekki legið
fyrir fyrr en á laugardagsmorgun
hvort Ólína fari fram.
Þegar er ljóst að Oddný G.
Harðardóttir, þingflokksformaður
Samfylkingarinnar, og Katrín Júl-
íusdóttir, fjármála- og efnahags-
ráðherra, gefa kost á sér í varafor-
mannskjörinu.
Gáfu Vilborgu
nuddinniskó
Starfsfólk kvenlækningadeild-
ar 21A á Landspítala afhenti
Vilborgu Örnu Gissurardóttur
suðurpólsfara gjafir þegar kaffi-
boð henni til heiðurs var haldið
á deildinni á miðvikudaginn. Vil-
borg gekk 1.140 kílómetra og safn-
aði áheitum fyrir Líf, styrktarfélag
kvennadeildar LSH. „Sérstaklega
var safnað fyrir kvenlækninga-
deildina til að bæta aðbúnað fyrir
sjúklinga og aðstandendur þeirra.
Nú þegar hafa safnast yfir 13 millj-
ónir króna,“ segir í tilkynningu.
„Starfsfólk kvennadeilda lýsti að-
dáun sinni á þeim kjarki og þori
sem Vilborg Arna hefði og óskaði
henni innilega til hamingju með
þetta mikla afrek. Við komuna af-
henti starfsfólkið henni gjafir, þar
á meðal nuddinniskó fyrir lúna
fætur,“ segir í tilkynningunni.
Sömu dómarar
sýknuðu Styrmi
n Mögulegt að stjórnendur hafi lagt á ráðin um Exeter Holdings-viðskiptin
H
éraðsdómur Reykjavík-
ur sýknaði Styrmi Braga-
son af ákæru um umboðs-
svik í Exeter Holdings í annað
sinn á fimmtudaginn. Arn-
grímur Ísberg, Guðjón St. Marteins-
son og Ragnheiður Harðardóttur
kváðu upp dóminn. Þau Arngrímur
og Ragnheiður kváðu líka upp dóm-
inn í Exeter Holdings-málinu árið
2011 og sýknuðu Styrmi þá líka. Spari-
sjóðsstjóri og stjórnarformaður Byrs,
Ragnar Z. Guðjónsson og Jón Þor-
steinn Jónsson, voru einnig sýknaðir
af ákæru í málinu, líkt og Styrmir, árið
2011 en Hæstiréttur Íslands snéri þeim
dómi í fyrra og dæmdi þá í fjögurra og
hálfs árs fangelsi.
Í sama dómi vísaði Hæstiréttur Ís-
lands málinu gegn Styrmi Bragsyni
aftur heim í hérað til efnismeðferðar
með eftirfarandi orðum: „Eins og áður
er rakið var ákærði X [Styrmir Braga-
son; innskot blaðamanns] sýknaður í
héraði af báðum þessum ákæruliðum
með þeim rökum einum að ákærðu
Jón og Ragnar teljist ekki hafa framið
það brot sem í I. kafla ákæru greinir.“
Vegna þess að Jón Þorsteinn og Ragn-
ar Z. voru dæmdir í Hæstarétti taldi
dómurinn að fjalla þyrfti aftur efnis-
lega um mál hans. Nú hefur héraðs-
dómur hins vegar komist að því að
Styrmir hafi ekki framið lögbrot með
aðkomu sinni að málinu.
Ríkissaksóknari, Sigríður Frið-
jónsdóttir, mun taka ákvörðun um
það hvort málinu verður vísað til
Hæstaréttar.
Losnuðu við lán
Exeter Holdings-málið snýst um
1.100 milljóna króna lán sem Byr veitti
eignarhaldsfélaginu Exeter Holdings
á seinni hluta ársins 2008. Lánið var
notað til þess að kaupa stofnfjárbréf
af stjórnendum Byrs, meðal annars
Jóni Þorsteini og Ragnari Z., auk MP
banka, á yfirverði. Líkt og rakið er í
dómi Hæstaréttar hafði MP banki
gjaldfellt lán þeirra Jóns Þorsteins,
Ragnars Z. og fleiri aðila sem tengd-
ust Byr í byrjun október 2008 og kraf-
ið þá um greiðslu á lánum sem þess-
um aðilum hafði verið veitt til að
fjárfesta í stofnfjárbréfunum í Byr. Jón
Þorsteinn og Ragnar voru í ábyrgðum
fyrir lánunum og höfðu því hagsmuni
af því að láta Byr lána Exeter Holdings
fjármuni til að kaupa af þeim bréfin
svo þeir losnuðu undan ábyrgðun-
um.
Styrmir lagði á „ráðin“
Fyrir liggur að Styrmir Bragason kom
að því að leggja á „ráðin“, eins og það
var orðað í dómi Hæstaréttar yfir þeim
Jóni Þorsteini og Ragnari Z. á sínum
tíma, að skipuleggja lánveitingarnar
út úr Byr til stjórnenda Byrs en þess-
ir fjármunir voru síðan notaðir til að
endurgreiða MP banka lánin. Dóm-
ur Hæstaréttar yfir þeim Ragnari Z. og
Jóni Þorsteini bendir til að rétturinn
sé líklegur til að túlka aðkomu Styrm-
is að Exeter Holdings málinu með
víðari hætti en héraðsdómur.
Í samtali við DV í nóvember 2009
sagði Margeir Pétursson, stjórnar-
formaður og aðaleigandi MP banka
á þeim tíma, frá því að bankinn hefði
haft milligöngu um að finna kaup-
anda að bréfunum og tekið þátt í fjár-
mögnuninni á þeim. „Ég staðfesti að
við höfðum milligöngu um þessi við-
skipti og að þau voru boðin með fjár-
mögnun.“ Eigandi Exeter Holdings,
sem keypti bréfin af Jóni Þorsteini og
Ragnar Z. og fleirum, var Ágúst Sindri
Karlsson sem var einn af stofnendum
MP banka og einnig stjórnarmaður í
félögum á vegum hans.
Slapp við gjaldfellingu
Í aðalmeðferðinni í Exeter Holdings
málinu í héraði kom fram að Ágúst
hefði sloppið við gjaldfellingu 50 millj-
óna króna láns hjá MP banka gegn því
að kaupa bréfin til Exeter. Nokkrum
dögum eftir Exeter Holdings snún-
inginn í október 2008 sendi yfirmaður
áhættustýringar MP banka tölvupóst
til regluvarðar bankans þar sem fram
sagði: „ÁSK var ekki gjaldfellt vegna
Byr-dílsins.“
Ýmis konar upplýsingar í mál-
inu benda því til að MP Banki hafi
skipulagt viðskiptin með Byrsbréfin
enda hafði bankinn mikla hagsmuni
af því að fá til baka þann milljarð
króna sem hann átti útistandandi
vegna fjármögnunarinnar á bréfun-
um. Í stað þess að fá lánin greidd til
baka frá Byr bókfærði MP banki hjá
sér lán til Exeter Holdings fyrir bréf-
unum í Byr sem skiptu um hendur.
Það lán fékkst auðvitað aldrei greitt
til baka enda voru bréfin búin að
hrynja í verði og voru lítils virði þegar
viðskiptin áttu sér stað. Skiptum á
búi Exeter Holdings lauk í ágúst 2011
og fékkst ekkert upp í 1.600 millj-
óna króna kröfur sem lýst var í búið
en þar var krafan frá MP banka lang-
hæst. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„ÁSK
var
ekki gjald-
fellt vegna
Byr-dílsins
Sýknaður aftur Styrmir
Bragason hefur nú verið sýkn-
aður tvisvar af ákæru í Exeter
Holdings-málinu. Orðalag í dómi
Hæstaréttar Íslands bar þess
merki að dómurinn vildi túlka
aðkomu hans með víðari hætti
en héraðsdómur. myNd SiGtryGGur ari