Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Blaðsíða 6
6 Fréttir 1.–3. febrúar 2013 Helgarblað Óskari Finnssyni stefnt n Íslandsbanki fer í hart A thafna- og veitingamann- inum Óskari Finnssyni, sem meðal annars stofn- aði veitingahúsið Argent- ínu á sínum tíma og hefur tengst sölu á Herbalife á Íslandi, hefur verið stefnt vegna rúmlega 7 millj- óna króna skuldar við Íslands- banka. Þetta kemur fram í stefnu í Lögbirtingablaðinu. Ekki hefur tekist að birta Óskari stefnuna en hann er búsettur á óþekktum stað á Spáni. Um er að ræða lán sem Óskar tók upphaflega hjá Byr en Íslands- banki yfirtók sjóðinn árið 2011. Skuldin er á tékkareikningi Ósk- ars í Íslandsbanka sem var áður hjá Byr. DV greindi frá því á seinni hluta síðasts árs að Óskar hefði stað- ið í stórfelldu gjaldeyrisbraski hér á landi eftir hrunið 2008, ásamt bróður sínum Sigurði. Breska eignarhaldsfélagið Archbay Lim- ited var notað í viðskiptunum en það félag sótti um íslenska kenni- tölu í ágúst 2009, í gegnum Byr, til að geta stundað bankaviðskipti á Íslandi. Óskar Finnsson er stjórn- andi Archbay Limited samkvæmt upplýsingum úr bresku hluta- félagaskránni. ingi@dv.is Kaupverðið í hreinan hagnað n Skýrsla um fyrirtæki Ross Beaty, Alterra Power, og söluna á HS Orku O rkufyrirtæki Kanadamanns- ins Ross Beaty, Alterra Power áður Magma Energy, gæti hagnast um tæpa 16 milljarða króna, 123 millj- ónir dollara, við ætlaða sölu á tæplega 67 prósenta hlut fyrirtækisins í HS Orku á Reykjanesi. Þetta kemur fram í skýrslu sem breska verðbréfafyrir- tækið Mirabaud vann fyrir Alterra um stöðu og framtíðarmöguleika félags- ins og er dagsett þann 7. desember árið 2012. Skýrslan ber yfirskriftina: „Bæ, bæ Björk?“ Þessi ætlaði hagnað- ur byggir á því að Alterra Power selji hlutinn á sama gengi og félagið seldi rúmlega 33 prósenta hlut í félaginu í tveimur hlutum til félags í eigu ís- lenskra lífeyrissjóða, Jarðvarma slhf. Fyrirtæki Ross Beaty keypti HS Orku fyrir 280 milljónir dollara árið 2010. Líkt og kom fram í fjölmiðlum í síðustu viku eru viðræður íslensks fjárfestahóps, sem Alexander Guð- mundsson og Eldur Ólafsson fara fyr- ir, um kaup á hlut Alterra í HS Orku dottnar upp fyrir. Alexander segist að- spurður vera bundinn trúnaði um við- ræðurnar um kaupin og geti ekki tjáð sig um af hverju þau upp duttu fyrir. Búast við að selja á rúma 30 milljarða Í skýrslunni frá Mirabaud kemur fram að ef Alterra selur hlutinn á sama gengi og rúmlega 33 prósenta hlutinn í félaginu þá muni verðmæti hans vera 243 milljónir dollara, eða rúmlega 31 milljarður króna. Eft- ir að fyrirtækið hefur greitt upp skuldir vegna hlutarins, 120 millj- ónir dollara, þá er búist við hagnaði af viðskiptunum upp á áðurnefnda upphæð, 123 milljónir dollara, eða tæpum 16 milljörðum króna. Þessi ætlaði hagnaður af sölunni nemur nærri sömu upphæð og kaup verðið sem fyrirtæki Ross Beaty greiddi fyrir ríflega helming hlutafjár í HS Orku um mitt ár 2010. Þá keypti fyrirtæki Beatys hlutinn af Geysi Green Energy. Ef af sölunni verður á þessu verði mun Beaty því ná að ávaxta sitt pund vel á Íslandi. Lægra hagnaðarmat Mirabaud er 113 milljónir dollara, eða ríflega 14 milljarðar króna, af sölunni en það byggir á því að gengi íslensku krónunnar hefur lækkað talsvert frá kaupunum á HS Orku árið 2010 auk þess sem heimsmarkaðsverð á áli hefur lækkað. Í skýrslunni segir að jafnvel þó að félagið hagnist um 113 milljónir dollara á viðskiptun- um, eftir að búið verður að greiða upp skuldir vegna fjármögnunar hlutarins, þá sé það góður hagnað- ur. „Þetta yrði mjög jákvæð niður- staða...“ segir í skýrslunni. Vantar fjármagn í kanadískt verkefni Út frá skýrslunni er ljóst að Alterra hefur mikinn hug á að selja hlut- inn í HS Orku fyrir rétt verð. Ein af ástæðunum sem nefnd er í skýrsl- unni er að með sölunni gæti félagið fengið reiðufé til að fjármagna virkj- anaverkefni í Kanada, nánar tiltek- ið í Bresku Kolumbíu. Alterra starfar víða um lönd, meðal annars í Síle. Í skýrslunni segir meðal annars að það jákvæða við að selja hlutinn í HS Orku sé að þá geti félagið fjár- fest á svæðum þar sem orkuverð er ódýrara. Um þetta segir meðal annars fremst í skýrslunni: „Í júlí 2012 var tilkynnt að Alterra hefði borist tilboð í hlut þess í HS Orku. Samkvæmt síðasta verðmati bréfanna og eft- ir að gengið hefur verið frá endur- greiðslu á Magma-skuldabréfunum (sem notuð voru til kaupanna, gæti salan á 67 prósent hlut Alterra leitt af sér 113 milljón dollara hagnað (í Kanada dollurum 0,24 á hlut). Slík viðskipti gæti átt sér stað fyrir miðbik ársins 2013 og þetta reiðufé gæti ver- ið notað í önnur verkefni á svæðum þar sem orkuverð er hagstæðara.“ Alterra og Ross Beaty virðast því hafa mikinn hug á að selja hlut- inn í HS Orku enda myndi fyrirtæk- ið hagnast vel á honum. Ljóst er því að Beaty lítur ekki lengur á HS Orku sem langtímafjárfestingu en í til- kynningu sem hann sendi frá sér árið 2009, fyrst eftir að hann keypti lítinn hlut í HS Orku, kom fram sú skoðun hans að um langtímafjár- festingu væri að ræða. n „Bæ,bæ Björk? Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Ævintýralegur hagnaður Hagnaður Ross Beaty af fjár- festingunni í HS Orku er ansi mikill ef marka má skýrslu Mirabaud. Íslandsbanki stefnir Íslandsbanki hefur stefnt Óskari Finnssyni vegna rúmlega 7 milljóna króna skuldar. ASÍ stefnir LÍÚ Alþýðusamband Íslands krefst þess að viðurkennt verði fyrir Fé- lagsdómi að Landssamband ís- lenskra útvegsmanna hafi brotið lög um stéttarfélög um vinnudeil- ur þegar það beindi þeim fyrir- mælum til félagsmanna sinna að skip héldu ekki til veiða eftir sjó- mannadaginn í fyrra. Þeim hafi þess í stað verið beint til Reykja- víkurhafnar 7. júní 2012 í mót- mælaskyni gegn frumvörpum um breytingu á stjórn fiskveiða og veiðigjöld. „Flestum ætti að vera í fersku minni þau læti sem urðu við Reykjavíkurhöfn í kringum svo- kallaðan „samstöðufund“ út- gerðarmanna sl. sumar. ASÍ gerir enga athugasemd við þann fund og viðurkennir fúslega rétt út- gerðarmanna sem og annarra að hafa skoðanir og halda kröfum sínum á lofti. Ekki sé hins vegar ásættanlegt að nær allur fiski- skipafloti Íslands hafi verið stöðv- aður í því samhengi, enda að mati ASÍ engin rök sem hníga til þess að LÍÚ hafi beint því til sinna fé- laga með boði að ofan að veiðar skyldu stöðvaðar þar til eftir fund- inn. Að mati ASÍ hafi þessi stöðv- un flotans falið í sér ólögmæta vinnustöðvun eins og það hugtak er skilgreint í nefndum lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Baðst afsökun- ar á orðfærinu „Þetta er íbúafundur og ég stíg fram til að setja fram ákveðið sjónarmið en óheppilegt orð- færi, sem ég biðst afsökunar á, fær alla athyglina,“ sagði Sigurður Harðarson, stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi í kvöldfréttum RÚV á miðvikudag. Hann vísaði þar til ummæla sinna á íbúafundi í Grafarvogi þar sem hann kallaði meðal annars borg- arstjóra hyski. Sigurður sagði þó gagnrýnina á borgaryfirvöld eiga rétt á sér þar sem íbúar í Grafarvogi hafi þurft að lifa við yfirgang í skólamálum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.