Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Page 10
10 Fréttir 1.–3. febrúar 2013 Helgarblað S egja má að viðhorf Íslendinga til Evrópusambandsins (ESB) hafi að einhverju leyti litast af Icesave-málinu á undanförn- um árum. Enda er óhætt að segja að Bretar og Hollendingar hafi reynt að beita áhrifum sínum víða gegn Ís- landi í tengslum við Icesave-mál- ið. DV leitaði til Eiríks Bergmanns Einarssonar, prófessors í stjórn- málafræði við Háskólann á Bifröst og spurði hann hvort úrskurður EFTA- dómstólsins myndi hafa einhver áhrif á viðhorf Íslendinga til ESB. „Þessi niðurstaða er vitaskuld frábær fyrir okkur Íslendinga. Og gott að þetta ömurlega mál sé loks- ins frá. Hefðum við hlotið dóm væri vissulega erfiðara að klára aðildar- samning við Evrópusambandið. Að því leyti verður aðildarferlið líkast til nokkuð léttara,“ segir Eiríkur. Að hans mati eigi Íslendingar kröfur á hendur Bretum og Hol- lendingum vegna framgöngu þeirra gagnvart Íslandi innan alþjóðlegra stofnana, svo sem í stjórn Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AGS) eins og nú hafi verið viðurkennt. „Hugsan- lega væri hægt að fara fram á að sú ólögmæta þvingun sem Ísland varð fyrir verði bætt með einhvers kon- ar fyrirgreiðslu í aðildarferlinu. Hins vegar finnst mér þó ekki að það eigi endilega að hafa áhrif á ákvörðun okkar Íslendinga um hvort við vilj- um í Evrópusambandið eður ei. Sú spurning stendur áfram ein og sér og alveg óháð Icesave. Hver borgari þessa lands verður að svara henni sjálfur án leiðsagnar annarra þar um,“ segir hann. Fleiri dæmi um átök við aðildarviðræður Þegar Eiríkur er spurður að því hvort hann muni eftir einhverjum svipuð- um átökum og Íslendingar hafa stað- ið í varðandi Icesave samtímis að- ildarviðræðum við ESB segir hann nærtækast að líta til landa fyrrum Júgóslavíu. „Nærtækust í tíma er deila Króata við Slóvena um Píran-flóann sem lengi vel stóð í vegi samnings. Við lok stríðsins í Júgóslavíu voru landa- merkin dregin eftir miðjum flóanum. Slóvenar fengu norðaustur ströndina en Króatar suðurströndina en með því móti var hafsvæði Slóveníu klemmt á milli króatísks og ítalsks yf- irráðasvæðis. Margir Slóvenar lentu þá Króatíumegin. Þegar Króatía sótti um aðild að ESB dró ríkisstjórn Slóveníu samningagerðina úr hófi fram og stóð hreint og beint í vegi fyrir ESB-aðild Króatíu þar til samn- ingar loksins náðust nýverið. En nú er Króatía á leiðinni inn í ESB,“ segir Eiríkur. Segir lítið um ESB Aðspurður um það hvað úrskurður EFTA-dómstólsins kenni Íslending- um varðandi stofnanir ESB segir Ei- ríkur að það verði að horfa til þess að dómsmálið var höfðað af Eft- irlitsstofnun EFTA (ESA) fyrir EFTA- dómsstólum. „Þessar stofnanir eru ekki hluti af ESB heldur stofnanir sem við rekum sjálf í félagi við Norðmenn og Liechtenstein til þess að hafa eft- irlit með skildum EFTA-ríkjanna á innri markaði Evrópu, sem við höf- um aðgang að í gegnum EES-samn- inginn. Dómsmálið segir því sára- lítið um samskipti við ESB þó svo að framkvæmdastjórn þess hafi ákveðið að hafa meðalgöngu með ESA þegar málið var komið alla leið fyrir dóm- inn. Dómurinn bendir hins vegar til þess, að mínu mati, að Evrópu- sambandið hefur gengið of langt í reglusmíð sem lýtur að því að ríki beri ábyrgð á kröfum í fallna banka. Að sama skapi hefur Ísland líka að minni hyggju gengið allt of langt í því að tryggja skuldir bankanna, til að mynda með því að tryggja allar inn- stæður upp í topp,“ segir hann. EFTA-dómurinn breytir ekki viðhorfi til ESB Ekki áhrif á viðhorf til ESB Að mati Eiríks ætti úrskurður EFTA-dómstólsins um Icesave ekki að hafa mikil áhrif á viðhorf Íslendinga til Evrópusambandsins. R íkisstjórnin kemur ekki vel út úr Icesave-málinu. Þau völdu leið sem hefði ekki leitt til jafn góðrar niðurstöðu. Spurningin er þá hvernig þau ætla að útskýra það fyrir kjós- endum,“ segir Gunnar Helgi Kristins- son, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, í samtali við DV að- spurður um það hvernig staða ríkis- stjórnarinnar sé eftir að EFTA-dóm- stóllinn úrskurðaði Íslendingum í vil. Óhætt er að segja að margir hafi orðið hissa en að sama skapi af- skaplega fegnir með úrskurð EFTA- dómstólsins á mánudaginn er varð- ar Icesave. Aðrir fullyrtu kokhraustir að þeir hefðu allan tímann vitað að þetta yrði niðurstaðan. Viðbrögð ís- lenskra stjórnmálamanna við dómn- um voru ansi misjöfn. Þannig virtist Össur Skarphéðinsson, utanríkisrík- isráðherra ná að koma nokkuð vel út eftir að úrskurður dómsins var ljós. Talaði um að málsvörn Tim Ward, málflutningsmanns Íslands fyrir dómstólnum hefði verið „lögfræði- legt meistaraverk“ og hefur síðan notað frasann „Til hamingju Ísland“ líkt og Silvía nótt forðum. Hið sama er ekki hægt að segja um þau Jóhönnu Sigurðardóttur, for- sætisráðherra og Steingrím J. Sig- fússon, atvinnuvega- og nýsköp- unarráðherra. Samfylkingunni til happs hefur Jóhanna sem kunn- ugt er tilkynnt að hún sé á leið út úr stjórnmálum og því mun úrskurð- ur EFTA-dómstólsins ekki hafa eins neikvæð áhrif fyrir Samfylkinguna í komandi kosningum líkt og niður- staðan gæti haft fyrir Steingrím sem mun leiða Vinstri-græna í kosninga- baráttunni sem framundan er. Fylgi Vinstri-grænna mældist um níu pró- sent í síðasta þjóðarpúlsi Gallups í upphafi árs en flokkurinn fékk um 22 prósenta fylgi í kosningunum 2009. Líklega er niðurstaða EFTA-dóm- stólsins ekki til þess fallin að auka fylgi Vinstri-grænna. Þannig virt- ist sem utanríkisráðherra hefði búið sig mun betur undir jákvæða niður- stöðu EFTA-dómstólsins heldur en þau Jóhanna og Steingrímur. Óvænt niðurstaða fyrir ríkisstjórnina „Úrskurður EFTA-dómstólsins virðist hafa komið þeim Jóhönnu og Stein- grími í opna skjöldu. Það áttu fáir von á því að úrskurður dómsins yrði svona afgerandi. Það er því lítið ann- að að gera hjá þeim en að útskýra af hverju þau völdu að fara þá leið sem var farin,“ segir Gunnar Helgi. Að hans mati er ólíklegt að fylgi Vinstri- grænna minnki enn frekar vegna þessarar niðurstöðu. Fylgi þeirra í dag sé svipað og það sem flokkurinn fékk í alþingiskosningunum árið 1999 þegar flokkurinn bauð sig fram í fyrsta skipti og 2003. Þá fékk flokk- urinn um níu prósent atkvæða sem er sama hlutfall og flokkurinn mæld- ist í síðasta þjóðarpúlsi Gallups. „Það sem er orðið eftir af þeirra fylgi er frekar harður kjarni,“ segir hann. Icesave líklega ekki kosningamál Aðspurður um það hvort málefni Ices- ave verði áberandi í komandi kosn- ingabaráttu segir Gunnar Helgi að það blasi við að Framsóknarflokkurinn muni nýta sér það að hafa alltaf verið á móti þeim samningum sem Alþingi greiddi atkvæði um. „Samfylkingin og Vinstri-grænir munu gera allt til þess að tala um eitthvað annað. Sjálfstæðis- flokkurinn er í aðeins flóknari aðstöðu. Hann byrjaði á þessari samningaleið á meðan að hann var í ríkisstjórn og for- maður flokksins studdi leið ríkisstjórn- arinnar í seinni Icesave-kosningunni,“ segir Gunnar Helgi. Á móti megi hins vegar benda á að Icesave-málinu sé lokið og því eigi það ekki að verða neitt kosn- ingamál. Íslenskir stjórnmálaflokkar eru ekki að fara að gera neitt meira í þessu máli sem hefur nú legið yfir landsmönnum í meira en fjögur ár. Að mati Gunnars Helga væri það klókt fyrir Framsóknarflokkinn að nýta sér niðurstöðu Icesave-máls- ins í komandi kosningabaráttu en hins vegar sé óvíst að það sé endilega n Gunnar Helgi Kristinsson segir erfitt fyrir ríkisstjórnina að verja afstöðu sína í Icesave LÍKLEGA EKKI KOSNINGAMÁL Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar annas@dv.is Erfitt fyrir ríkisstjórnina Að mati Gunnars Helga Kristinssonar, prófessors í stjórnmálafræði við Háskóla Ísland er ekki auðvelt fyrir ríkisstjórnina nú að útskýra fyrir kjósendum þá leið sem hún fór í Icesave-málinu. Ólík áhrif Ætla má að áhrif Icesave-málsins á Samfylkinguna verði ekki mikil í ljósi yfirvofandi brotthvarfs Jóhönnu Sigurðardóttur. Stein- grímur J. Sigfússon mun hins vegar leiða Vinstri græna inn í komandi þingkosningar og er niðurstaða EFTA ekki beinlínis til þess fallin að auka fylgi flokksins. „Þau völdu leið sem hefði ekki leitt til jafn góðrar niðurstöðu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.