Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Síða 11
Fréttir 11Helgarblað 1.–3. febrúar 2013 Á stæðan fyrir því að ég byrj- aði upphaflega að skrifa bloggpistla um líf okkar með drekanum, eins og við höf- um kallað heilakrabba- mein mannsins míns, er sú að það greindist þegar við áttum heima í Skotlandi fyrir sex árum og ég vildi deila því sem gerðist með ættingjum okkar og vinum heima á Íslandi,“ seg- ir Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur. Hún hefur bloggað opinskátt um hetjulega baráttu eiginmanns síns, Björgvins Ingimarssonar, við krabba- mein sem er nú á lokastigi. Í nýjustu bloggfærslunni sem Vilborg skrifaði þann 28. janúar síðastliðinn kemur fram að endalokin nálgist. „Minn heittelskaði lifir nú sína hinstu daga. ,,Þannig er þetta bara,“ sagði hann sjálfur á þriðjudags- kvöldið fyrir tveimur vikum þegar ég sagði honum að læknirinn hefði sagt að sjúkdómurinn væri að áger- ast hratt og nú væri ekki mjög langur tími til stefnu.“ Blogg Vilborgar hefur vakið mikla athygli langt út fyrir stórfjölskylduna og snert við fjölmörgum. „Drekinn“ óx utan um drekann Fljótlega eftir að æxlið greindist í höfði Björgvins fór fjölskyldan að líkja því við dreka. Samlíkinguna má upphaflega rekja til barnabókar sem dóttir þeirra fékk í jólagjöf skömmu eftir að æxlið greindist. Bókin fjall- ar um prinsessu og prins sem þurfa að berjast við dreka. „Drekinn þessi virðist við fyrstu sýn ógnvekjandi og illvígur en við erum ráðin í því að snúa hann niður í sameiningu hvað svo sem hann derrir sig, rétt eins og hjúin í sögunni góðu,“ skrifaði Vil- borg í janúar árið 2007. Síðar kom í ljós að æxlið hafði vaxið utan um hippocampus eða drekann í vinstra gagnaugablaðinu á Björgvini, og nafnið því enn meira viðeigandi. Staðsetning æxlisins var þannig að ekki var hægt að fjarlægja það allt, en hluti þess var fjarlægður með skurðaðgerð snemma árs 2007. Það var því viðbúið að meinið myndi taka sig upp aftur einhvern daginn. Veikindin tóku sig upp í haust Vilborg fann fljótt að skrifin hjálp- uðu henni ekki síður en ættingjun- um heima á Íslandi að takast á við lífið. Þá opnaðist með blogginu leið fyrir fólk til að sýna fjölskyldunni hlýhug, sem hefur verið þeim mjög mikilvægt. „Það styrkir mig líka að margir hafa sagt mér að skrifin mín hafi hjálpað þeim, þótt þeirra drekar hafi ekki endilega verið krabbamein heldur eitthvað allt annað.“ Á sama tíma og Vilborg hefur skrifað um baráttuna við drekann hefur hún bæði sín vegna, og þeirra sem fylgjast með blogginu, þurft að gera sitt besta til að sjá björtu hliðarnar á lífinu. Eftir að geislameðferðinni lauk árið 2007 flutti fjölskyldan heim til Íslands og bloggið lognaðist tímabundið út af. Vilborg segir lífið hafa gengið sinn vanagang næstu fimm árin, eða þangað til síðasta haust. Þá fékk fjöl- skyldan þær erfiðu fréttir að meinið hefði ekki aðeins tekið sig upp að nýju heldur hafði annað æxli mynd- ast í heila Björgvins. „Þegar drekinn vaknaði úr rot- inu og eignaðist „unga“ í haust tók ég aftur til við skrifin af sömu ástæðu og fyrr.” „Þurftum að geta talað um dauðann“ Vilborg segist hafa lært margt á þessari göngu. Og nú þegar henni er að ljúka hefur hún öðlast nýjan skilning á mikilvægi þess að tala um dauðann, rétt eins og lífið. „Það er í hverfulleika lífsins sem gildi þess er falið. Við elskum lífið vegna þess að því lýkur, líkt og við hrífumst af feg- urð blómsins vegna þess að það á eftir að fölna og dögunina vegna þess að við vitum að sólin á eftir að hníga í sæ. Við þurfum að geta talað um dauðann, á honum á ekki að hvíla bannhelgi,” segir Vilborg æðrulaus. Að ósk Björgvins hefur krabba- meinslyfjameðferð nú verið hætt, enda skilar hún ekki árangri lengur. Lyfjagjöfin þessa síðustu daga mið- ast því við halda niðri sjúkdómsein- kennum á borð við flogaköst og höf- uðverki. Og jafnframt við að gera líðan hans eins góða og mögulegt er. „Þau hrífa til þess sem þau eru ætluð og fyrir það er ég óendanlega þakk- lát að minn heittelskaði er ekki með neinar líkamlegar kvalir, hvorki höf- uðverki né ógleði,“ skrifaði Vilborg í nýjustu bloggfærslu sinni. Vill ekki nota orðin sigur eða tap Aðspurð hvernig henni líði í dag nú þegar hinsta kveðjustundin rennur brátt upp, segir hún erfitt að svara því. „En kannski get ég sagt eins og átta ára Skottan okkar sem strauk sér um hnakkann í gær og sagði: „Ég er leið hérna megin“ og síðan á ennið á sér og sagði: „En ekki fram- an á mér.““ Vilborg hefur skrifað um það á blogginu sínu og vill ítreka að henni þyki það leiðinlegur siður hjá fólki að líkja sjúkdómsgöngu við stríð. Og nota orðalagið að sigra eða tapa í baráttu við sjúk- dóminn. „Það talar um að einhver hafi „barist við krabbameinið“ en á endanum „tapað“ og „beðið ósig- ur fyrir meininu.“ Var þá til einsk- is gengin gatan um ævintýraskóg- inn, úr því að þetta „tapaðist“ allt á endanum? Við töpum ekki fyrir dauðanum. Dauðinn er það sem bíður okkar allra og við verðum einfaldlega að veita því viðtekt og gera það besta úr þeirri staðreynd sem við getum gert, hvert og eitt. Undirbúa okkur með því að leyfa okkur að hugsa og tala um það að deyja og á endanum, ef við fáum tækifæri til, dáið vel.“ Undrandi yfir sterkum viðbrögðum Vilborg viðurkennir að hún sé dálítið undrandi á því hversu sterk viðbrögð bloggið hennar hefur vakið. Hún tel- ur það merki um að mörgum finn- ist, líkt og henni sjálfri, rétt og gott að tala um dauðann, hinn óumflýjan- lega endi sem bíði okkar allra. „Það sem ekki má tala um verð- ur enn þungbærara og ógnvænlegra, orðin veita létti og við finnum að við erum alls ekki ein á báti, “ segir Vil- borg. Hún vill að lokum þakka fyrir all- ar góðu kveðjurnar sem fjölskyld- an hefur fengið undanfarna daga. Hún segir kærleikann í kveðjun- um veita þeim mátt sem þau þurfa til að komast í gegnum þessa erfiðu reynslu. n Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is „Það sem ekki má tala um verður enn þungbærara og ógnvæn- legra, orðin veita létti og við finnum að við erum alls ekki ein á báti. n Vilborg bloggar opinskátt um erfið veikindi eiginmannsins „Við töpum ekki fyrir dauðanum“ Hjónin Vilborg og eiginmaður hennar Björgvin Ingimarsson. Hún hefur skrifað opinskátt um veikindi hans. Feðginin Saman á setustofunni á Landspítalanum rétt fyrir síðustu jól. Hægt er að fylgjast með skrifum Vilborgar á bloggsíðu hennar: vilborgd.blogspot.com að fara að skila flokknum auknu fylgi. Líkt og fram kom í fjölmiðl- um í gær virðist Framsóknarflokk- urinn ætla sér að keyra á kröfunni um afnám verðtryggingar. Var því jafnvel haldið fram að flokkurinn myndi setja þá kröfu fram sem skil- yrði fyrir því að fara í ríkisstjórnar- samstarf eftir komandi kosningar. Átakamesta málið í áratugi Gunnar Helgi segist ekki muna eft- ir neinu öðru máli sem hafi valdið jafn miklum átökum á Alþingi líkt og Icesave-málið hefur gert allt frá bankahruninu í október 2008. „Mál sem koma upp í hugann eru átök um Kárahnjúkavirkjun, fjöl- miðlalögin og aðild að evrópska efnahagssvæðinu en ég held að Icesave-málið slái öllum þessum málum út,“ segir hann. Ekkert mál undanfarna áratugi hafi verið jafn umdeilt. „Ríkisstjórn á hverjum tíma hefur tilhneigingu til þess að taka það sem hún telur ábyrga og oft íhaldssama afstöðu en veigrar sér undan að taka áhættu á kostnað almennings. Stjórnarandstaðan er í því að gagnrýna það og það gerðist í þessu máli. Stjórnarand- staðan tók róttækari línu er ríkis- stjórnin og það vildi þannig til að til var neyðarheimild í stjórnskip- uninni sem var málskotsréttur forsetans. Þannig gat stjórnarand- staðan haft áhrif á málið. Stjórn- skipulega séð er þetta það já- kvæða sem kemur út úr þessu máli. Það eru hlutir í okkar stjórn- skipun sem hjálpa okkur að vinna skynsamlega og meirihluti Al- þingis ræður ekki öllu alltaf,“ segir Gunnar Helgi aðspurður um það hvaða lærdóm íslenskir stjórn- málamenn og flokkar geti dregið af Icesave-málinu. Gott dæmi um þetta er að á meðan Steingrímur J. Sigfússon var í stjórnarandstöðu gagnrýndi hann ríkisstjórn Samfylkingar- innar og Sjálfstæðisflokks fyrir að upplýsa þingið ekki um mál- efni Icesave og samninga við Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn í nóvem- ber og desember árið 2008 rétt áður en sú ríkisstjórn þurfi að víkja. Þegar Steingrímur komst sjálfur í ríkisstjórn snérist þetta við. Var hann harðlega gagn- rýndur fyrir að hafa haldið Ices- ave-samningnum sem kenndur er við Svavar Gestsson leyndum fyrir þinginu sumarið 2009 og fékk stjórnarandstaðan fyrst að heyra um innihald hans í fréttum RÚV. n n Gunnar Helgi Kristinsson segir erfitt fyrir ríkisstjórnina að verja afstöðu sína í Icesave LÍKLEGA EKKI KOSNINGAMÁL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.