Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2013, Side 16
16 Fréttir 1.–3. febrúar 2013 Helgarblað
K
lukkan er korter í tíu á hálf
hráslagalegum miðviku-
dagsmorgni í janúar. Gestir
næturinnar í Gistiskýli Sam-
hjálpar við Þingholtsstræti
eru að tínast út, einn af öðrum. Það
var fullt í nótt, segir umsjónarmaður-
inn Tryggvi Magnússon. Öll tuttugu
rúmin voru nýtt.
Sumir koma í skýlið marga daga í
röð og fá þá stundum að geyma lítil-
fjörlegar eigur sínar í herbergjunum.
Ef þeir láta vita að þeir ætli að koma
aftur næstu nótt er ekki skipt á rúm-
inu sem þeir sváfu í. Annars er alltaf
hreint á rúmunum fyrir nýja gesti.
Þakklátir fyrir þak yfir höfuðið
Gistiskýlið er eingöngu ætlað karl-
mönnum og er opið frá klukkan 17
síðdegis til 10 á morgnana. Þangað
geta þeir leitað sem ekki eiga í önnur
hús að venda, fengið næturgistingu
og kvöld- og morgunhressingu.
Flestir sem leita í gistiskýlið eru í ein-
hverri neyslu en sumir eru utangarðs
vegna geðrænna vandamála. Neysla
vímuefna er ekki leyfð í skýlinu
sjálfu, en að sögn Tryggva er ástand
gestanna oft misjafnt þegar þeir
koma þangað. Og stundum kemur til
ryskinga þeirra á milli. Það kemur þó
sjaldan fyrir að ráðist sé á starfsfólk,
enda eru flestir þakklátir fyrir að fá
þak yfir höfuðið. „Yfirleitt hlýða þeir
en ef þeir gera það ekki þá hringjum
við á lögregluna,“ segir Tryggvi.
Brotnir einstaklingar
Tæplega 200 manns falla undir þá
skilgreiningu að vera heimilislausir
í Reykjavík og er meirihlutinn karl-
menn.
Ef fullt er í gistiskýlinu vísar starfs-
fólk þeim sem þangað koma á lög-
regluna, sem skýtur oft skjólshúsi
yfir þá sem ekki hafa annan sama-
stað. Samhjálp fagnaði 40 ára af-
mæli síðastliðinn fimmtudag, þann
31. janúar, og var blásið til hátíða-
halda í tilefni dagsins. Í tilefni af-
mælisins bauð Karl V. Matthíasson,
framkvæmdastjóri samtakanna,
blaðamanni að fylgja sér í Gistiskýl-
ið, kaffistofuna og Hlaðgerðarkot og
fræðast um starfsemina.
Þeir sem leita í skýlið eru mjög
brotnir einstaklingar, að sögn Karls,
sem mæta oft miklum fordómum
í samfélaginu. „En þetta eru börn
guðs eins og allir aðrir. Það er grund-
völlur starfs Samhjálpar, þessi hugs-
un, kristilegur kærleikur. Ég brýni
það alltaf fyrir starfsfólkinu að koma
af mikilli virðingu fram við skjól-
stæðingana.“
Samhjálp tók við rekstri Gistiskýl-
isins af félagsmálastofnun Reykja-
víkurborgar árið 1990.
Mikið álag í lok mánaðarins
Næsta stopp er kaffistofa Samhjálp-
ar í Borgartúni sem hefur verið starf-
andi síðan árið 1982, áður á Hverfis-
götu. Hún opnar opnar klukkan 10
á virkum dögum og þegar okkur ber
að garði rétt rúmlega tíu er setið
við þó nokkuð mörg borð. Gestirn-
ir eru að gæða sér á kaffi og nýbök-
uðu bakkelsi frá Björnsbakaríi á
Skúlagötu sem Samhjálp fær gefins.
Á kaffistofunni hittum við fyrir
Vilhjálm Svan Jóhannsson, dagskrár-
stjóra kaffistofu og áfangaúrræða.
„Nú er seinnipartur mánaðarins og
þá er meira álag. Þá má búast við
því að það komið hingað um 150 til
170 manns í dag,“ segir Svan, eins og
hann er alltaf kallaður. Þá má gera ráð
fyrir því að um 60 til 70 manns komi
og borði heitan mat á kaffistofunni,
sem borinn er fram klukkan hálf þrjú.
Fram að því er bakkelsi á boðstólum.
Tilgangurinn að gefa að borða
„Við leggjum mikla áherslu á að gæðin
séu góð í matnum hérna og að fólk fái
gott að borða.“ Samhjálp fær mikið af
mat gefins beint frá birgjum en sam-
tökin þurfa engu að síður að leggja út
fyrir ýmsu sem tengist kaffistofunni.
„Kaffistofan hefur alltaf verið
þungi á starfinu en þörfin fyrir hana
er mikil. Samkvæmt útreikningum
okkar síðastliðin ár eru heimsókn-
irnar hingað um 40 þúsund á ári
hverju og fer fjölgandi.“
Svan segir tilgang kaffistofunn-
ar eingöngu að gefa fólki að borða,
en þar fer ekki fram nein áfengisráð-
gjöf. „Við hlaupum samt undir bagga
með þeim sem eru illa á sig komnir
og komum þeim þá til dæmis upp í
Hlaðgerðarkot ef svo ber undir.“
Þurfa andlega vakningu
Hlaðgerðarkot er næsti viðkomu-
staður okkar Karls og á leiðinni
þangað ræðum við um alkóhólis-
mann og hvernig hann getur yfirtek-
ið líf fólks. Karl þekkir sjúkdóminn
af eigin raun, en fyrir tæpum þrjátíu
árum gekk hann inn á geðdeild og
fékk aðstoð við að losna við Bakkus
úr lífi sínu.
„Bakkus í vissum skilningi tekur
mann svo gjörtækt að til þess að fara
frá honum þá þarf maður að verða
fyrir andlegri vakningu, líkt og talað
Alkóhólismi
er sjúkdómur
sorgarinnar
n Samhjálp fagnar 40 ára afmæli n Skjólstæðingar þurfa á fyrirgefningu að halda
„Mjög margir alkóhólistar
sem koma inn í meðferð
eru með það á hreinu að þeir
séu skíthælar og aumingjar
sem hafi ekki rétt til neins
Heimilislegt í Hlaðgerðarkoti Guðrún og Svan segja oft mikið stuð í Hlaðgerðarkoti.
Þar myndist oft góður vinskapur á milli fólks sem endist út lífið. Mynd sigTryggur ari
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is